Fréttablaðið - 22.12.2020, Side 30

Fréttablaðið - 22.12.2020, Side 30
Í því ljósi varð til COVID-verk-efnið Kirkjan til fólksins. Yfir-heiti margra ólíkra verkefna sem öll vísa til þess að ef fólkið kemst ekki í kirkjuna, þá kemur kirkjan heim til fólksins – með allri þeirri möguleikaf lóru sem tæknin býður upp á í dag. „Þegar nær dró aðventu gerðum við okkur grein fyrir að ólíklegt væri að kirkjur gætu opnað hafta- laust, jafnvel að þær yrðu lokaðar yfir aðventu og hátíðarnar. Þá fórum við strax að undirbúa og skipuleggja eina óvenjulegustu jólahátíð seinni tíma – hátíð þar sem Kirkjan leikur lykilhlut- verk, sem áður, en í stað þess að fólkið komi í Kirkjuna og njóti hátíðarinnar, þá kemur Kirkjan inn á hvert heimili með ljós og friðarboðskap jólanna, hátíðar- tónlist og vonina sem manns- sonurinn færði heiminum,“ segir Pétur Markan, samskiptastjóri á Biskupsstofu. Frábært samstarf „Kirkjan kemur til fólksins á aðventunni. Þá má ekki gleyma að upphaf leg merking orðsins kirkja, forngríska orðið ekklesía, þýðir ekki steypa heldur samfélag. Þannig mun kirkjan eiga samfélag með þjóðinni yfir hátíðarnar – kirkjan kemur í staðinn heim til fólksins. Sem dæmi um þetta má nefna frábært samstarf við RÚV – sem ég má til með að hrósa. Á aðventunni hafa verið sýndar messur á sunnu- dögum í fullum skrúða og gæðum. Þá verður helgistund á jólanótt með biskupi Íslands á aðfanga- dagskvöld á RÚV. Einnig verður hátíðarmessa á jóladag á RÚV klukkan 11. Aldrei hefur verið lagt jafn mikið í dagskrárgerð með Kirkjunni á aðventunni með RÚV. Fyrir það erum við ekki bara afar þakklát – við höfum fengið ótrúlega mikil og góð viðbrögð frá fólki hvaðanæva af landinu sem er þakklátt og glatt,“ greinir Pétur frá. „Þá hefur verið algjörlega stór- kostlegt að fylgjast með sóknum landsins, örsmáum prestaköllum upp í fjölmennustu kirkjur, ná frá- bæru valdi á tækni og miðlum og færa þannig kirkjuna, stundum daglega, til fólksins – þegar fólkið hefur ekki komist til kirkju. Þetta eru hetjur kirkjunnar sem hafa sýnt kraft og seiglu, frumkvæði og nýsköpun þegar verulega hefur reynt á. Yfir hátíðarnar verða sóknir landsins með hátíðarefni, í þessum streymis- og netanda, sem við hvetjum ykkur til að nálgast. Vandað dagatal Þá vann kirkjan vandað dagatal á aðventunni. Dagatalið er þannig saman sett að teiknaðar voru tutt- ugu og fjórar fallegar myndir með samhentum hjónum á besta aldri þar sem leiðarstef er fyrir hvern dag. Án þess að eigna einhverjum einum þjóðfélagshópi dagatalið þá einblínum við með þessum persónum á aðstæður og veröld eldri borgara á tíma félagshafta. Dagatalið má finna á samskipta- miðlum kirkjunnar. Dæmi um leiðarstef er til dæmis æðruleysi – síðan fylgir mynd þar sem leiðarstefið er túlkað. Þannig mun stafrænn gluggi birtast á hverjum degi – þegar glugginn er opnaður birtist myndin og undir mun hljóma ljóð/ljóðahugleiðing dagsins eftir Sigurbjörn Þorkels- son rithöfund. Höfundurinn les sjálfur með sinni djúpu silki- mjúku rödd. Verkefnið lítur afar vel út og er fyrst og fremst hugsað til að mæta áskorun samtímans; einmanaleika, áhyggjum og kvíða með von, kærleika og trú í aðdraganda jóla.“ Kirkjan kemur til fólksins Kirkjan hefur lagt áherslu á samvinnu og að vera bakhjarl sóttvarnayfirvalda allt frá upphafi heimsfaraldursins. Kirkjan kemur með ljós og friðar- boðskap jólanna, segir Pétur sam- skiptastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Allt helgihald Guðríðarkirkju á jólum og áramótum verður sent út á heimasíðu Guðríðarkirkju, gudridarkirkja.is, og á facebook síðu kirkjunnar, https://www.facebook.com/guðríðarkirkja. Helgihaldið verður með eftirfarandi hætti: Sunnudaginn 20. des. kl. 11:00 verður tónlistarhelgistund í umsjá Ásbjargar Jónsdóttur og Ástvalds Traustasonar. Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar fyrir altari. Á aðfangadag verður sendur út aftansöngur kl. 18:00. Sr. Karl V. Matthías- son þjónar fyrir altari og Sr. Leifur Ragnar Jónsson prédikar. Sr. Pétur Ragnhildarson les ritningarlestur. Hrönn Helgadóttir organisti leikur undir á orgel kirkjunnar og á fiðlu leikur Sigrún Harðardóttir. Davíð Ólafsson bassi, Hlöðver Sigurðsson tenór, Heiðdís Hanna Sigurðardóttir sópran og Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngja. Þann 26. des.kl. 14:00, annan í jólum, verður send út fjölskyldustund sem Sr. Pétur Ragnhildarson sér um ásamt Ástu Guðrúnu Guðmundsdóttur. Barna- kór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Ásbjargar Jónsdóttur barnakórsstjóra. Á Gamlársdag verður send út guðsþjónusta kl. 18:00. Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar fyrir altari og Sr. Karl V. Matthíasson prédikar. Hrönn Helgadóttir organisti leikur undir á orgel kirkjunnar og á fiðlu leikur Sigrún Harðardóttir. Davíð Ólafsson bassi, Hlöðver Sigurðsson tenór, Heiðdís Hanna Sigurðardóttir sópran og Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngja. Á Aðfangadag og Gamlársdag verður kirkjan opin milli kl. 14 – 16 og er fólk velkomið að líta við og eiga kyrrðarstund í kirkjunni. Prestar kirkjunnar verða á staðnum og gæta að fjöldatakmörkunum og geta einnig verið fólki innanhandar bænagjörð. Með blessunaróskum. Helgihald í Guðríðarkirkju um jól og áramót Jólin í Digranes- og Hjallakirkju 2020 Jólin í Digranes- og Hjallakirkju 2020Boðið verður upp á streymi sem hægt er að sjá á heimasíðum kirknanna www.digraneskirkja.is eða www.hjallakirkja.is eða Facebook Aðfangadagur jóla Streymt er upptöku fyrir aðfangadag sem tekin var upp í báðum kirkjum með tónlistarflutningi og töluðu máli frá leikmönnum og prestunum. sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Sunna Dóra Möller flytja hugleiðingar. sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Karen Lind Ólafsdóttir lesa ritningarlestra. Formenn sóknarnefnda Margrét Loftsdóttir og Andrés Jónsson flytja bænir. sr. Bolli Pétur Bollason ber fram blessunarorð í lok stundarinnar. Einsöngvarar: Einar Clausen og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir. Kristín Lárusdóttir leikur á Selló. Félagar úr kór Hjallakirkju syngja. Í lok stundarinnar er sungið “Heims um ból“ sem er samræmdur flutningur úr báðum kirkjum. Organistar eru Lára Bryndís Eggertsdóttir og Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Þennan dag munu sr. Gunnar og sr. Bolli mæta í kirkjurnar ásamt organistunum klukkan 18 til að flagga í Digraneskirkju og Hjallakirkju og “kannski” lesa guðspjallið og syngja “Heims um ból” Því verður ekki streymt. Gamlársdagur sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Sunna Dóra Möller lesa ritningarlestra, biðja bæna og flytja stuttar hugleiðingar. Sólveig Sigríður Einarsdóttir, organisti og Einar Clausen, söngvari sjá um tónlist fyrir stundina. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RGUÐSÞJÓNUSTUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.