Fréttablaðið - 22.12.2020, Page 30
Í því ljósi varð til COVID-verk-efnið Kirkjan til fólksins. Yfir-heiti margra ólíkra verkefna
sem öll vísa til þess að ef fólkið
kemst ekki í kirkjuna, þá kemur
kirkjan heim til fólksins – með
allri þeirri möguleikaf lóru sem
tæknin býður upp á í dag.
„Þegar nær dró aðventu gerðum
við okkur grein fyrir að ólíklegt
væri að kirkjur gætu opnað hafta-
laust, jafnvel að þær yrðu lokaðar
yfir aðventu og hátíðarnar. Þá
fórum við strax að undirbúa og
skipuleggja eina óvenjulegustu
jólahátíð seinni tíma – hátíð þar
sem Kirkjan leikur lykilhlut-
verk, sem áður, en í stað þess að
fólkið komi í Kirkjuna og njóti
hátíðarinnar, þá kemur Kirkjan
inn á hvert heimili með ljós og
friðarboðskap jólanna, hátíðar-
tónlist og vonina sem manns-
sonurinn færði heiminum,“ segir
Pétur Markan, samskiptastjóri á
Biskupsstofu.
Frábært samstarf
„Kirkjan kemur til fólksins á
aðventunni. Þá má ekki gleyma að
upphaf leg merking orðsins kirkja,
forngríska orðið ekklesía, þýðir
ekki steypa heldur samfélag.
Þannig mun kirkjan eiga samfélag
með þjóðinni yfir hátíðarnar –
kirkjan kemur í staðinn heim til
fólksins.
Sem dæmi um þetta má nefna
frábært samstarf við RÚV – sem ég
má til með að hrósa. Á aðventunni
hafa verið sýndar messur á sunnu-
dögum í fullum skrúða og gæðum.
Þá verður helgistund á jólanótt
með biskupi Íslands á aðfanga-
dagskvöld á RÚV. Einnig verður
hátíðarmessa á jóladag á RÚV
klukkan 11. Aldrei hefur verið
lagt jafn mikið í dagskrárgerð
með Kirkjunni á aðventunni með
RÚV. Fyrir það erum við ekki bara
afar þakklát – við höfum fengið
ótrúlega mikil og góð viðbrögð
frá fólki hvaðanæva af landinu
sem er þakklátt og glatt,“ greinir
Pétur frá.
„Þá hefur verið algjörlega stór-
kostlegt að fylgjast með sóknum
landsins, örsmáum prestaköllum
upp í fjölmennustu kirkjur, ná frá-
bæru valdi á tækni og miðlum og
færa þannig kirkjuna, stundum
daglega, til fólksins – þegar fólkið
hefur ekki komist til kirkju. Þetta
eru hetjur kirkjunnar sem hafa
sýnt kraft og seiglu, frumkvæði
og nýsköpun þegar verulega hefur
reynt á. Yfir hátíðarnar verða
sóknir landsins með hátíðarefni,
í þessum streymis- og netanda,
sem við hvetjum ykkur til að
nálgast.
Vandað dagatal
Þá vann kirkjan vandað dagatal á
aðventunni. Dagatalið er þannig
saman sett að teiknaðar voru tutt-
ugu og fjórar fallegar myndir með
samhentum hjónum á besta aldri
þar sem leiðarstef er fyrir hvern
dag. Án þess að eigna einhverjum
einum þjóðfélagshópi dagatalið
þá einblínum við með þessum
persónum á aðstæður og veröld
eldri borgara á tíma félagshafta.
Dagatalið má finna á samskipta-
miðlum kirkjunnar.
Dæmi um leiðarstef er til dæmis
æðruleysi – síðan fylgir mynd þar
sem leiðarstefið er túlkað. Þannig
mun stafrænn gluggi birtast á
hverjum degi – þegar glugginn er
opnaður birtist myndin og undir
mun hljóma ljóð/ljóðahugleiðing
dagsins eftir Sigurbjörn Þorkels-
son rithöfund. Höfundurinn les
sjálfur með sinni djúpu silki-
mjúku rödd. Verkefnið lítur afar
vel út og er fyrst og fremst hugsað
til að mæta áskorun samtímans;
einmanaleika, áhyggjum og
kvíða með von, kærleika og trú í
aðdraganda jóla.“
Kirkjan kemur til fólksins
Kirkjan hefur lagt áherslu á samvinnu og að vera bakhjarl
sóttvarnayfirvalda allt frá upphafi heimsfaraldursins.
Kirkjan kemur með ljós og friðar-
boðskap jólanna, segir Pétur sam-
skiptastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Allt helgihald Guðríðarkirkju á jólum og áramótum verður sent út á heimasíðu
Guðríðarkirkju, gudridarkirkja.is, og á facebook síðu kirkjunnar,
https://www.facebook.com/guðríðarkirkja.
Helgihaldið verður með eftirfarandi hætti:
Sunnudaginn 20. des. kl. 11:00 verður tónlistarhelgistund í umsjá
Ásbjargar Jónsdóttur og Ástvalds Traustasonar.
Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar fyrir altari.
Á aðfangadag verður sendur út aftansöngur kl. 18:00. Sr. Karl V. Matthías-
son þjónar fyrir altari og Sr. Leifur Ragnar Jónsson prédikar.
Sr. Pétur Ragnhildarson les ritningarlestur. Hrönn Helgadóttir organisti leikur
undir á orgel kirkjunnar og á fiðlu leikur Sigrún Harðardóttir. Davíð Ólafsson
bassi, Hlöðver Sigurðsson tenór, Heiðdís Hanna Sigurðardóttir sópran og
Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngja.
Þann 26. des.kl. 14:00, annan í jólum, verður send út fjölskyldustund sem
Sr. Pétur Ragnhildarson sér um ásamt Ástu Guðrúnu Guðmundsdóttur. Barna-
kór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Ásbjargar Jónsdóttur barnakórsstjóra.
Á Gamlársdag verður send út guðsþjónusta kl. 18:00. Sr. Leifur Ragnar
Jónsson þjónar fyrir altari og Sr. Karl V. Matthíasson prédikar. Hrönn
Helgadóttir organisti leikur undir á orgel kirkjunnar og á fiðlu leikur Sigrún
Harðardóttir. Davíð Ólafsson bassi, Hlöðver Sigurðsson tenór, Heiðdís Hanna
Sigurðardóttir sópran og Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngja.
Á Aðfangadag og Gamlársdag verður kirkjan opin milli kl. 14 – 16 og er
fólk velkomið að líta við og eiga kyrrðarstund í kirkjunni. Prestar kirkjunnar
verða á staðnum og gæta að fjöldatakmörkunum og geta einnig verið fólki
innanhandar bænagjörð.
Með blessunaróskum.
Helgihald í Guðríðarkirkju
um jól og áramót
Jólin í Digranes- og Hjallakirkju 2020 Jólin í Digranes- og Hjallakirkju 2020Boðið verður upp á streymi
sem hægt er að sjá á heimasíðum kirknanna
www.digraneskirkja.is eða www.hjallakirkja.is
eða Facebook
Aðfangadagur jóla
Streymt er upptöku fyrir aðfangadag sem tekin var upp í
báðum kirkjum með tónlistarflutningi og töluðu máli frá
leikmönnum og prestunum.
sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Sunna Dóra Möller
flytja hugleiðingar.
sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Karen Lind Ólafsdóttir
lesa ritningarlestra.
Formenn sóknarnefnda Margrét Loftsdóttir og
Andrés Jónsson flytja bænir.
sr. Bolli Pétur Bollason ber fram blessunarorð í
lok stundarinnar.
Einsöngvarar:
Einar Clausen og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir.
Kristín Lárusdóttir leikur á Selló.
Félagar úr kór Hjallakirkju syngja.
Í lok stundarinnar er sungið “Heims um ból“ sem er
samræmdur flutningur úr báðum kirkjum.
Organistar eru Lára Bryndís Eggertsdóttir og
Sólveig Sigríður Einarsdóttir.
Þennan dag munu sr. Gunnar og sr. Bolli mæta
í kirkjurnar ásamt organistunum klukkan 18 til að flagga
í Digraneskirkju og Hjallakirkju og “kannski”
lesa guðspjallið og syngja “Heims um ból”
Því verður ekki streymt.
Gamlársdagur
sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Sunna Dóra Möller lesa
ritningarlestra, biðja bæna og flytja stuttar hugleiðingar.
Sólveig Sigríður Einarsdóttir, organisti og Einar Clausen,
söngvari sjá um tónlist fyrir stundina.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RGUÐSÞJÓNUSTUR