Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 32
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 info@arcticstar.is - www.arcticstar.is SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA Arctic star sæbjúgnahylki innihalda yfir fimmtíu tegundir af næringarefnum, og eru þekkt fyrir: • Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið • Að auka blóðflæði • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlins ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á www.arcticstar.is Arctic Star sæbjúgnahylki Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hagkaupum. NÝJAR UMBÚ ÐIR Elva Dögg segir að þegar hún leggi af stað í að dekka borð þá ráðist útkoman oftar en ekki af einhverjum hlut sem hana langar að skreyta með. „Í ár var það „úfin“ blómaskreyting og berja- litaður dúkur sem ég vildi koma á borðið. Ég var með ákveðinn lit á dúk í huga og hætti ekki að leita fyrr en ég á endanum fann hörefni í rétta litnum og saumaði. Eftir það kom hitt að sjálfu sér. Ég ætlaði mér upphaflega að fara í ljóst og lystugt þema en endaði í dökkum og dulúðlegum stíl. Hér er ég að vinna með svarta diska, villta blómaskreytingu og furugreinar til skrauts í bland við kristalsglös og handrennda íslenska keramík sem setur punktinn yfir i-ið. Fersk blóm og lifandi greni ómissandi um hátíðirnar Elva er ekki fastheldin í litavali þegar kemur að því að dekka hátíðarborðið. „Það breytist á hverju ári. Þó að diskar og hnífapör séu meira og minna sami grunnurinn þá getur dúkurinn breyst, litaval á kertum, kerta- stjakar, skálar, glös og servíettur. Þetta eru allt hlutir sem hægt er að leika sér með á marga vegu. Hátíðarborð í berjalitunum Elva Hrund Ágústsdóttir, blaðamaður og stílisti, er fagurkeri fram í fingurgóma. Hún sviptir hulunni af hátíðarborðinu sínu í ár en hún veit fátt skemmtilegra en að gera fallegt. Elva er smekk- manneskja fram í fingurgóma, mikill fagurkeri og þykir fátt skemmtilegra en að dekka upp hátíðar- borð. MYNDIR/ AÐSENDAR Svarta matarstellið er frá Bloomingville og kristalsglösin eru frá Frederik Bagger. Skálin undir blómin er hönnun frá By Lassen og er einnig undir mat. Eva skreytir glösin með rósmaríngreinum og granateplakjörnum. MYND/AÐSEND Matarást Sjafnar Sjöfn Þórðardóttir sjofn@torg.is Fæst hjá N1, OLÍS, veiðivöruverslunum og veidikortid.is Frelsi til að veiða! Jólagjöf veiðimannsins 8.900 kr Það er fátt sem er meira til-heyrandi á þessum árstíma en smákökur, þær lyfta mannamótum á æðra plan, þær gleðja jafnt unga sem aldna og þær eru að margra mati nauð- synlegur hluti af jólunum. Það er líka erfitt að vera með of mikið af smákökum, þannig að jafnvel þó smákökubakstrinum sé kannski lokið (í bili) er alltaf hægt að bæta við. Þessar bragðgóðu og einföldu engiferkökur eru góður kandídat í smá viðbótarbakstur á lokametr- unum. Uppskriftin er upphaflega eftir Liberty Mendez og birtist á vef BBC. Það tekur um 30 mínútur að gera þessa uppskrift. Undir- búningurinn tekur um 20 mínútur og svo tekur það ekki nema um 10 mínútur að baka kökurnar. Upp- skriftin ætti að skila um 20 kökum. Innihald 100 g saltað smjör í teningum 75 g ljós púðursykur 1 msk. rifið ferskt engifer 100 g gyllt sírópi 250 g hveiti 1½ msk. malað engifer 1 tsk. matarsódi 1 lítil eggjarauða, hrærð Skref 1: Hitið ofninn í 190°C eða 170°C með blæstri. Setjið bökunar- pappír á tvær stórar bökunar- plötur. Bræðið smjörið, sykurinn, ferska engiferið og gyllta sírópið saman í potti á litlum hita og látið það kólna. Skref 2: Blandið hveitinu, malaða engiferinu og matarsódanum saman í skál með viðarskeið. Hrærið kældu sykurblöndunni og eggjarauðunni hægt og rólega út í og hnoðið í smá stund til að búa til deig. Skref 3: Rúllið deiginu upp í 20 gramma kúlur og raðið þeim á bökunarplöturnar með 3 cm bili á milli svo kökurnar hafi pláss til að dreifa úr sér. Bakið í 8-10 mínútur þar til þær verða gullinbrúnar. Látið þær kólna á plötunum í eina mínútu og færið þær svo á kæligrind og leyfið þeim að kólna alveg. Ægilega einfaldar engiferkökur Þessar bragðgóðu engiferkökur eru bæði einfaldar og fljótlegar í bakstri. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Annars finnst mér alveg ómiss- andi að hafa fersk blóm og greni. Það er fátt sem jafnast á við blómailm þegar sest er til borðs, fyrir utan hvað blóm eru mikil skreyting út af fyrir sig og það þarf varla neitt annað,“ segir hún. Vel dekkað borð er eins og forréttur fyrir augað Elvu er mikið í mun að borð- gestum líði vel og njóti þess að sitja við borðhaldið. „Ég vil fyrst og fremst að fólkinu við borðið líði vel. Það jafnast ekkert á við að sjá gleðina hjá þeim sem setjast til borðs, og fylgjast með gestunum virða fyrir sér skreytingarnar. Þá hefur manni tekist vel til. Vel dekkað borð er eins og góður for- réttur í mínum huga.“ 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.