Feykir - 10.04.2019, Blaðsíða 10
Vill auka álit fólks á textílvinnu
persónulegu verkefni. Þannig
var að fyrir nærri þremur
árum bað besti vinur okkar
mig um að hanna og prjóna
rúmteppi fyrir þau hjónin
og konan hans (mín besta)
mátti ekkert vita. Hann sagði:
„Viltu hanna rúmteppi fyrir
okkur hjónin og það á að vera
í mörgum björtum fallegum
litum eins og hjónaband okkar
hefur verið!“
Nokkur tími fór í hönnuna
en ég var komin u.þ.b. 15 sm í
haust þegar þær fréttir bárust
að hann væri greindur með
fjórða stigs krabba og ætti ekki
langt eftir. Ég sá að ég mundi
ekki fyrirgefa mér ef ég kláraði
ekki teppið svo gefið var í.
Síðan þá hefur verið prjónað
allar lausar stundir, margir
prjónar brotnir og bæði göt
og blöðrur komið á fingur. Í
byrjun febrúar var vinur okkar
svo veikur að við ákváðum að
nú væri tími til að afhenda
teppið þó svo það væri ekki
búið. - Var það tilfinningarrík
stund.
Til að fólk átti sig á um-
fanginu þá er umferðin 604
lykkjur og tók fjóra tíma að
prjóna hverja litarönd. Prjónar
eru nr. 2,5. Þegar flöturinn var
búinn tók ég lykkjur upp allan
hringinn og þá voru í allt 2.360
lykkjur á fjórum 1,5 m löngum
prjónum og fimmti prjóninn
nýttur til að prjóna með. Þetta
er eins og vera með ofvaxna
sokka. Um klukkutíma tók að
prjóna hringinn en nú er ég
langt komin með blúnduna
sem ég prjóna á þrjá vegu og
það tekur ekki nema u.þ.b.
þrjú korter.
Enn eygi ég von um að klára
teppið áður en hann kveður.
Hvaða handverk sem þú
hefur gert ertu ánægðust
með? -Hingað til hef verið
ánægðust með refilinn sem
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) frida@feykir.is
Jóhanna Erla Pálmadóttir á Akri
Jóhanna heklar við refilinn góða. MYNDIR ÚR EINKASAFNI.
Vafalaust þekkir flest
hannyrðafólk á landinu, að
minnsta kosti á Norðurlandi
vestra, til Jóhönnu Erlu
Pálmadóttur á Akri í
Húnavatnshreppi, svo
samofin er hún
textílhugtakinu. Hún er
textílkennari, verkefnisstjóri
hjá Textílmiðstöð Íslands og
að auki sauðfjárbóndi á Akri
með fjölskyldu sinni og
ullarnörd, að eigin sögn.
Jóhanna svarar spurningum
þáttarins að þessu sinni.
Hve lengi hefur þú stundað
hannyrðir? -Ég var fimm ára
þegar ég lærði af ömmu og
mömmu minni að prjóna og
þegar ég varð eldri heklaði
ég á allar dúkkurnar mínar.
Reyndar lék ég mér lengur
með dúkkur en gengur og
gerist þar sem mér fannst
svo skemmtilegt að hekla
á þær og búa til ýmislegt í
pappakassahúsið þeirra.
Hvaða handavinnu þykir þér
skemmtilegast að vinna? -Ég
er lærður útsaumskennari
svo útsaumurinn stendur mér
nærri og mér finnst hann
mjög skemmtilegur en ég
enda alltaf á prjóni. Prjón er
svo einfalt við hvaða tækifæri
sem er. Hvoru tveggja virkar
eins og hugleiðsla. Fátt er
skemmtilegra en að sjá hlutina
birtast, hvort heldur það er í
útsaumnum eða prjóni.
Hverju ertu að vinna að um
þessar mundir? -Ég prjóna
mikið lopapeysur og sjöl en
núna er ég að vinna að mjög
Gjöfin góða teppið - bara blúndan eftir.
Refillinn. Ingimundur og hans fólk á leið til Íslands.
Lopapeysur.
enn er í vinnslu en hann segir
Vatnsdæla sögu. Búnir eru
u.þ.b. 20 m af 46 m. Þetta er
hugsað sem samfélagsverkefni
og eru allir velkomnir. Mikið
hefur munað um nokkrar
duglegar konur sem koma
reglulega sem og danska
nemendur sem koma frá
textílskóla í Kaupmannahöfn í
janúar ár hvert.
Ég er líka mjög ánægð með
teppið þar sem mér finnst mér
hafa tekist að ná fram því sem
vinur okkar bað um þegar
hann pantaði það.
Þar fyrir utan finnst mér
vel hafa tekist með hönnun
og prjón á brúðarpeysu sem
ég hannaði fyrir unga brúði í
fjölskyldunni en sú uppskrift
birtist í Húsfreyjunni fyrir
nokkrum árum.
Annars á maður að reyna
að hafa gaman af handverkinu
og njóta þess.
Eitthvað sem þú vilt bæta við?
Ég hef helgað mig því verkefni
að breyta þeirri ranghugsun
að textílvinna sé lítils virði og
meðal annars þess vegna var
stofnað til Prjónagleðinnar
sem haldin er aðra helgi í júní
ár hvert. Þar er vettvangur
fyrir prjónafólk, með alls
konar reynslu, sem hingað til
hefur prjónað eitt inni í stofu
heima til að hittast, læra meira
og hafa gaman.
Það er ekki sjálfsagt að
halda úti hátíð eins og þessari
og hvet ég samfélagið okkar
hér á Norðvesturlandi til að
taka þátt og alla vega líta á
Sölutorgið. Það er ekki oft
sem okkur gefst tækifæri til
að t.d. sjá svona mikið af garni
og söluvöru á sama stað en
ekki síst þá er stemmingin
frábær bæði á Sölutorginu og
á námskeiðunum.
Ketill af Mæri fagnar Þorsteini, syni sínum.
10 14/2019