Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 1

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 1
Formleg opnun stærsta gagnavers á Íslandi, sem staðsett er við Blönduós, fór fram í gær að viðstöddum fjölmörgum boðsgestum. Haldnar voru ræður, klippt á borða og fólki leyft að skoða aðstæður. Dagskrá hófst með ávarpi Björns Brynjólfssonar forstjóra Etix Every- where Borealis, sem bauð fólk velkomið og fræddi fólk um verkefnið. Bauð hann Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, orðið en hann er jafnframt þingmaður Norðvesturkjör- dæmis. Þá sté Valdimar O. Hermanns- son, bæjarstjóri í pontu og loks Antoine Gaury forstöðumaður Etix Blockchain. Allir voru þeir sammála um að vel hafi til tekist með byggingu gagnaversins og þökkuðu afbragðsgóðum verktök- um fyrir þeirra framlag sem og góðum stuðningi sveitarfélaga á svæðinu. Byggt var á mettíma en fyrsta skóflustungan var tekin fyrir ári síðan eða 23. maí 2018. Innan þriggja mánaða var fyrsta húsið risið og starfsemi komin í gang en nú eru komin upp sex hús og vonir standa til að hægt verði að bæta við fleiri húsum í framtíðinni. Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Nýttu þér netverslun Skoðaðu vöruúrvalið á lya.is Holræsa- og stífluþjónusta Bjóðum alhliða lagnahreinsun og lagnamyndun Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958. Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is 20 TBL 22. maí 2019 39. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS. 6–7 BLS. 4 Dagbjört Dögg Karlsdóttir er íþróttagarpurinn Vann alla titla sem í boði voru BLS. 8 38 nýbúar eru að koma sér fyrir á Norðurlandi vestra Sýrlensku flótta- fólki tekið opnum örmum á Blönduósi og Hvammstanga Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Stórprent í toppgæðum Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum Etix Everywhere Borealis Formleg opnun gagnaversins á Blönduósi Meirapróf - Vinnuvélanámskeið Ökunám - Endurmenntun Birgir Örn Hreinsson Ökukennari S: 892-1790 bigh@simnet.is HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU Heitur matur kr. 1.490 | Súpa og brauð kr. 1.100 www.ommukaffi.is Sigurður Jóhann Hallbjörnsson, brottfluttur Króksari, tekur í áskorendapennann Lífið er golf Fyrirtækið leggur mikla áherslu á það í markaðssetningu sinni vítt og breytt um heiminn hve gagnaverið er umhverfisvænt með sína grænu orku. Þá er tekið fram að umhverfishitinn á Íslandi gerir það að verkum að kælingin sé náttúruleg og sparar þar með orku og kostnað. /PF Björn Brynjúlfsson, Ásmundur Einar Daðason, Antoine Gaury og Valdimar O. Hermannsson klippa á borðann. MYND: LEE ANN MAGINNIS Berum sameiginlega ábyrgð á umhvefinu Umhverfisdagar í Skagafirði Umhverfisdagar voru haldnir í Skagafirði í síðustu viku og tókust vel, að sögn Ingibjargar Huldar Þórðardóttur, formanns umhverfis- og samgöngunefndar Skagafjarðar, enda var ákveðið að gera meira úr átakinu þetta árið þar sem 30 ár voru frá fyrsta umhverfisdeginum í sveitarfélaginu. „Það tókst vel til og ég fann fyrir mikilli jákvæðni og ánægju með átakið í samfélaginu. Veðrið hefur alltaf einhver áhrif en umhverfisvitund og virðing ræður mestu í svona átaki. Umhverfismál eru mikið í umræðunni og við berum sameiginlega ábyrgð og allir eiga að geta lagt sitt af mörkum,“ segir Inga Huld. Henni fannst þátttakan vera góð og sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með fyrirtækja- áskoruninni. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.