Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 4

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 4
Feykir auglýsir eftir afleysinga- blaðamanni á Feyki og Feyki.is. Starfið felst í skrifum í blað og á netmiðil Feykis, frétta- og efnis- öflun ásamt tilfallandi störfum. Ráðningartími er frá júní og fram í ágúst. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku, geta ritað í Word og talað í síma. Bílpróf nauðsynlegt. Áhugasamir sendi umsókn á netfangið: palli@feykir.is fyrir 24. maí nk. Frekari upplýsingar gefur ritstjóri í síma 861 9842 og/eða 455 7176. Feyki bráðvantar blaðamann í sumar ný pr en t e hf . / 0 52 01 9 Húnvetningurinn Dagbjört Dögg Karlsdóttir hefur gert það gott í Domino's-deild kvenna í körfunni undanfarin ár með liði sínu, Val á Hlíðarenda, og var hún m.a. valin besti ungi leikmaður Domino's-deildar kvenna 2017-2018. Hjá Val er hún einn af burðarásum liðsins, sem hirti alla titla sem í boði voru á síðasta tímabili, deildar-, bikar- og Íslandsmeistarar. Einnig hefur hún verið í yngri landsliðshópum og nú í A-landsliðinu. Dagbjört Dögg er fædd árið 1999, uppalinn á Reykjaskóla í Hrútafirði en flutti í Kópavoginn þar sem hún stundar háskólanám meðfram körfuboltanum. Dagbjört er íþróttagarpur Feykis að þessu sinni. Hverra manna ertu? -Foreldrar mínir eru þau Halldóra Árna- dóttir og Karl B. Örvarsson. Íþróttafélag: -Valur. Helstu íþróttaafrek: -Evrópu- mótið sumarið 2015 er mér efst í huga, fyrir utan tímabilið sem kláraðist nú í apríl. En þá varð ég Evrópumeistari með U-16 ára unglingalandsliðinu í C-riðli og var það minn fyrsti alvöru liðstitill, en auk þess var ég valin í úrvalslið mótsins. Einnig dettur mér í hug sumarið 2016 þegar ég var á yngra ári í U-18 ára unglinga- landsliðinu en þá áttum við bullandi séns á að komast upp í A-riðil en kláruðum það því miður ekki. Við gengum samt sem áður stoltar frá verkefninu þar sem þetta var, og er enn, besti árangur kvennalandsliðs Íslands á EM frá upphafi. Einnig finnst mér mikill heið- ur að hafa verið tilnefnd til íþróttamanns ársins frá mínum heimaslóðum (USVH) fjórum sinnum, þ.e. árið 2015, 2016, 2017 og 2018 en ég hef tvisvar lent í 3. sæti og einu sinni í 2. sæti. Annars held ég að tíma- bilið 2018-2019 hafi skarað mest fram úr þar sem við næld- um í alla titlana þrjá, deildar-, bikar- og Íslandsmeistaratitil- inn og er fátt sem mun toppa það. Þetta lið vann fyrsta titil- inn í sögu Vals í körfuknatt- leiksdeild kvenna, og því mikill heiður að hafa verið partur af þeim hópi sem hefur nú skrifað sig í sögubækur félagsins. Skemmtilegasta augnablikið: -Ætli það sé ekki annað hvort þegar við tókum bikar- eða Íslandsmeistaratitilinn. En ég held að bikarmeistaratitillinn verði fyrir valinu því þá var fyrsta ártalið kvennamegin í kröfunni ritað á vegginn hjá Val. Auk þess var hann minn fyrsti liðstitill með mínu félagsliði og því mjög merkur áfangi fyrir mig. Neyðarlegasta atvikið: -Þau eru þó nokkur sem ég hef lent í þar sem hugur minn getur stundum verið hraður eða jafnvel fjar- verandi. Fyrir valinu sem neyðarlegasta atvikið er senni- lega sundferðin fræga. Þannig var að liðið ákvað að fara saman í sund. Ákveðið var að fara í Salalaugina í Kópavogi en ég hafði misst af fyrra orðinu og heyrði bara „Kópavogi.“ Skilj- anlega skellti ég mér í sjálfa Kópavogslaugina og beið eftir liðinu en engin kom. Mér fannst heldur neyðarlegt að mæta á næstu æfingu eftir atvikið og fannst það fremur hallærislegt. Svona er það nú bara. Einhver sérviska eða hjátrú? -Fyrir svona 1-2 árum síðan var ég rosaleg í þeim málum og hef því reynt að draga aðeins úr því svo það trufli mig ekki of mikið. Þó hef ég haldið í nokkrar hefðir, m.a. hef ég tekið ákveðna lukkugripi með mér í keppnis- ferðir en ég verð líka að hitta ofan í körfuna áður en leikurinn byrjar. Finnst það alveg hreint ómögulegt að byrja að spila leik þegar síðasta karfan í upphit- uninni er ekki ofan í. Uppáhalds íþróttamaður? -Ég horfi upp til svo margra íþrótta- manna og ekki aðeins úr körfuboltanum heldur líka úr öðrum íþróttum en sú fyrsta sem kom upp í hugann var Heather Buttler en hún var bandaríski leikmaðurinn okkar á síðasta tímabili. Hún kenndi mér mjög margt tengt körfu- boltanum en líka andlegu hliðinni þar sem hún er mjög sterk á því sviði og er frábær karakter sem ég hreifst af, full af jákvæðri orku. Ef þú mættir velja þér andstæð- ing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Myndi skora á Stephen Curry í keilu. Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Hann er kannski betri en ég í kröfubolta en ég myndi klárlega slá hann út í keilu- Vann alla titla sem í boði voru Dagbjört Dögg með Íslandsmeistarabikarinn, AÐSENDAR MYNDIR ÍÞRÓTTAGARPURINN Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona úr Hrútafirði keppninni. Sé þetta alveg fyrir mér, svakaleg keppni. Helsta afrek fyrir utan íþrótt- irnar? -Áður en ég valdi mér körfubolta sem aðal íþrótta- grein æfði ég frjálsar og fótbolta af fullum krafti. Verðlaunin urðu ekki veglegri en þátttöku- medalía í fótboltanum en ég fékk ýmsar viðurkenningar og verðlaun í frjálsunum fyrir t.d. spretthlaup og langstökk. En ég hætti í frjálsum í 7. bekk ef ég man það rétt. Ég hef alla tíð verið alin upp við mikla tónlist og æfði á píanó, harmonikku og söng. Tók svo þátt í söngva- keppni í grunnskóla og lenti þar einu sinni í 1. sæti sem var skemmtilegt afrek. Annars lít ég á litlu sigrana sem afrek, þ.e. að setja sér markmið og trúa því og treysta að þau gangi upp með vinnusemi og ekki gleyma að þykja vænt um árangurinn sinn og stefna svo hærra. Lífsmottó: -Mér hefur ávallt þótt mikilvægt að samgleðjast öðrum ef honum gengur vel í því sem hann tekur sér fyrir hendur í stað þess að öfunda, því engin græðir á því. Þannig getur maður lært af öðrum og hinn aðilinn bætir sig í leiðinni með því að miðla reynslu, því ef þú sáir einhverju góðu, verður uppskeran góð. Helsta fyrirmynd í lífinu: -Mínar helstu fyrirmyndir eru foreldrar mínir. Þau eru algjörir dugn- aðarforkar og hafa kennt mér að setja mér markmið, trúa á þau og vera tilbúin að leggja á sig vinnu til að ná þeim. Hvað er verið að gera þessa dagana? -Þessa dagana er ég að klára fyrsta árið mitt í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Einnig standa úrtaksæfingar hjá A-landsliðinu yfir þessa daganna og reyni ég að berjast við aðra leikmenn um að komast í lokahópinn sem fer á Smáþjóðaleikana sem fram fara í Svartfjallalandi í maí 2019. Hvað er framundan? -Þegar skólinn klárast byrja ég að vinna í sumarvinnunni minni í Reykjavík og svo fara U-20 úrtaksæfingarnar að hefjast fljótlega þar sem æft verður af krafti fyrir Evrópumótið sem haldið verður í Kosovo þetta árið. Þannig að það er eins gott að halda vel á spöðunum fram- undan, vera dugleg og æfa vel. UMSJÓN Páll Friðriksson Með þjálfarnum Darra Frey Atlasyni. Dagbjört er fastamaður í landsliðinu. 4 20/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.