Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 2

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 2
Arctic Coast Way – Norður- strandarleið var í gær valið á topp 10 lista yfir þá áfanga- staði í Evrópu sem best er að heimsækja, að mati Lonely Planet sem er einn vinsælasti útgefandi ferðahandbóka í heiminum. Í tilkynningu frá Markaðs- stofu Norðurlands segir að þetta sé mikil viðurkenning fyrir allt það starf sem nú þegar hefur verið unnið við að koma Arctic Coast Way af stað, en leiðin verður formlega opnuð þann 8. júní næstkomandi. Í umfjöllun Lonely Planet segir meðal annars að á leiðinni sé að finna allt það besta sem Ísland hefur upp á að bjóða, en um fáfarnari slóðir sé að ræða. „Frá söguslóðum til miðstöðva hvalaskoðunar, þá býður hvert lítið þorp og bær upp á innsýn inn í lífið á toppi veraldarinnar,“ segir meðal ann- ars í umfjölluninni. Með þróun Norðurstrandar- leiðar, verður til aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem vilja halda sig utan alfaraleiðar og gera það með því að fara meðfram strandlengju Norðurlands. Samtals er leiðin um 900 kílómetra löng, með 21 bæ eða þorpi og fjórum eyjum sem hægt er að komast út í með bát eða ferju. Ferðafólk sem fer þessa leið fær tækifæri til að ná betri tengslum við náttúruna, litskrúðugt menningarlíf og einnig hið daglegt amstur þeirra sem búa í nálægð við norður- heimskautsbauginn. /PF Nú er það ljóst að framlag Íslands í Söngkeppni evrópskra sjón- varpsstöðva vakti mikla athygli, ekki bara fyrir keppnina heldur einnig eftir hana líka. Fyrir keppni töluðu liðsmenn Hatara um sambúð Ísraela og Palestínumanna og mátti á þeim skilja, þó ekki væri allt ljóst sem þeir sögðu, að Palestínumenn ættu undir högg að sækja í sambúð sinni við nágranna sína. Í Ísrael, rétt fyrir keppni og í keppninni sjálfri vöktu Hatarar athygli fyrir að segja ekkert um málið og síðan kom stóra bomban í atkvæða- greiðslunni sjálfri og Ísrael skelfur. Bomban var lítill borði sem á stóð Palestína. Þessi gjörningur Hatara hefur vakið ýmis viðbrögð um allan heim og eru Íslendingar ekki á eitt sáttir um hvernig eigi að bregðast við. En allt fór þetta fram eftir áætlun og tilgangur listamann- anna náðist, að beina sjónum fólks að ástandinu milli landanna tveggja. Þegar þessi pistill er skrifaður er ekki ljóst hvort Íslandi verði meinuð þátttaka í söngkeppninni næsta ár eða ekki. Nefndinni sem tekur þá ákvörðun er mikill vandi á höndum, því ef það verður gert er Ísrael og hernámið í Palestínu enn og aftur komið í sviðsljósið. Nú veit ég ekki hvaða handrit var skrifað fyrirfram hjá Höturum og hvað er leikið af fingrum fram. BDSM búningarnir hafa vakið athygli en það má draga þá ályktun að þeir spili stórt hlutverk í rullunni. Skammstöfunin minnir á samtökin BDM sem láta sig málefni palestínsku þjóðarinnar varða og berjast fyrir frelsi, réttlæti og jafnrétti og halda í þá einföldu meginreglu að Palestínumenn eigi að hafa kost á sömu réttindum og restin af mannkyninu. Hvað svo sem verður um þátttöku Íslands í Júró næstu árin eða hvort einhver refsing bíði Hatara á eftir að koma í ljós en eitt er víst að málum þessara ríkja hefur verið kastað fram í sviðsljósið og ekki bara til fullorðinna heldur yngra fólksins líka sem spyr foreldra sína af hverju það sé svona rosalegt að halda á borða með nafni Palestínu á. Ég gæti trúað að svarið vefjist fyrir flestum enda staðan flókin svo ekki sé meira sagt. Ófriður hefur ríkt á þessu landssvæði margoft síðustu árþús- undin og hafa margar mismunandi landfræðilegar skilgreiningar verið notaðar til þess að afmarka það svæði sem kallað er Palestína í dag. Ísraelsríki var stofnað 1948 að atbeina Sameinuðu þjóðanna og má segja að þá þegar hafi hafist heilagt stríð milli þjóðanna. Allar friðarviðræður sem ég man eftir hafa runnið út í sandinn. Þó náðu Yasser Arafat, formaður Frelsishreyfingar Palestínumanna, og Yitzhak Rabin, forsætisráðherra Ísraels, að komast nálægt lausninni árið 1993 og hlutu friðarverðlaun Nóbels að launum, ásamt Shimoni Peres, utanríkisráðherra Ísraels. En ástandið í Palestínu er þó síst betra í dag og fyrirheit um aukna sjálfstjórn hafa ekki verið efnd og því síður í sjónmáli. En við getum þakkað Höturum fyrir að vekja máls á ástandinu og öryggis- vörðunum þakka ég sérstaklega fyrir að hrifsa veifurnar úr höndum þeirra því annars hefði þetta atriði ekki náð til fjöldans. Og nú krefst Simon Wiesenthal-stofnunin þess að Íslandi verði bannað að taka þátt í Evróvisíon í Hollandi á næsta ári. Takk fyrir það, það vekur heimsathygli. Kannski er þetta allt samkvæmt áætlun, eins og liðsmenn Hatara hafa sagt. Eitt skulum við samt muna, að Ísland hefur viðurkennt Palestínu sem fullvalda ríki og það er einkennilegt að mega ekki veifa fána þess eins og hverjum öðrum. Látum ekki hatrið sigra! Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Hatrið sigrað Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Áskriftarverð: 555 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 685 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Í síðustu viku lönduðu 29 bátar á Skagaströnd og var samanlagður afli þeirra rúm 54 tonn. Þrír bátar lögðu upp á Hofsósi fjögur og hálft tonn og 16 skip og bátar lönduðu tæplega 446 tonnum á Sauðárkróki. Engu var landað á Hvammstanga. Heildarafli vikunnar er þá 504.448 kíló. /FE Aflatölur á Norðurlandi vestra 12. – 18. maí 2019 29 lönduðu á Skagaströnd SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SAUÐÁRKRÓKUR Alfa SI 65 Handfæri 2.493 Badda SK 113 Grásleppunet 4.035 Dísa SI 121 Handfæri 2.337 Drangey SK 2 Botnvarpa 211.947 Fannar SK 11 Landbeitt lína 1.799 Fálki SK 35 Grásleppunet 1.843 Gammur II SK 120 Grásleppunet 1.802 Gjávík SK 20 Handfæri 1.196 Hafey SK 10 Grásleppunet 914 Hafey SK 10 Handfæri 1.022 Málmey SK 1 Botnvarpa 205.094 Maró SK 33 Handfæri 2.332 Már SK 90 Handfæri 2.414 Óskar SK 13 Grásleppunet 1.887 Skotta SK 138 Handfæri 150 Vinur SK 22 Handfæri 2.442 Ösp SK 135 Handfæri 2.015 Alls á Sauðárkróki 445.722 SKAGASTRÖND Alda HU 112 Línutrekt 2.350 Arndís HU 42 Grásleppunet 452 Arndís HU 42 Handfæri 1.735 Auður HU 94 Grásleppunet 736 Auður HU 94 Handfæri 2.377 Ásdís ÓF 250 Handfæri 404 Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 508 Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 8.053 Blíðfari HU 52 Handfæri 1.199 Bogga í Vík HU 6 Handfæri 2.644 Bragi Magg HU 70 Handfæri 1.098 Dagrún HU 121 Grásleppunet 3.357 Dísa HU 91 Grásleppunet 2.085 Dóra HU 225 Handfæri 2.172 Fengsæll HU 56 Grásleppunet 862 Geiri HU 69 Handfæri 2.384 Guðmundur á Hópi HU 203 Lína 932 Hafdís HU 85 Grásleppunet 2.414 Hjalti HU 313 Grásleppunet 1.298 Hjalti HU 313 Handfæri 808 Húni HU 62 Handfæri 1.347 Jenny HU 40 Handfæri 1.334 Kambur HU 24 Grásleppunet 2.435 Kópur HU 118 Handfæri 114 Már HU 545 Grásleppunet 649 Loftur HU 717 Handfæri 1.700 Lukka EA 777 Handfæri 2.106 Ólafur Magnússon HU 54 Grásleppunet 1.384 Svalur HU 124 Handfæri 615 Sæunn HU 30 Handfæri 1.395 Viktor Sig HU 66 Handfæri 1.678 Víðir EA 423 Handfæri 1.538 Alls á Skagaströnd 54.163 HOFSÓS Geisli SK 66 Línutrekt 345 Von SK 21 Grásleppunet 2.947 Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 1.271 Alls á Hofsósi 4.563 Norðurstrandarleið Einn besti áfangastaður Evrópu Þann 29. janúar sl. barst sveitarstjórn Skagastrandar erindi Brúar lífeyrissjóðs þar sem óskað var eftir því að sveitarfélög, í sam- vinnu við Hjallastefnuna ehf. myndu ganga til uppgjörs við lífeyrissjóðinn vegna uppgjörs Hjallastefnu við lífeyrissjóðinn á kröfum vegna jafnvægissjóðs og varúðarsjóðs. Í fundargerð sveitarstjórnar frá 14. maí kemur fram að alls hafi ellefu sveitarfélög fengið erindið en Hjallastefnan hefur samþykkt að greiða framlag í lífeyrisaukasjóð með sérstöku iðgjaldi en framlag í jafnvægissjóð og varúðarsjóð hefur ekki verið greitt og telur Hjallastefnan sig ekki bera skyldu til þess. Hefur Hjallastefnan vísað í þjónustusamninga félagsins við sveitarfélög og að ábyrgð á greiðslu sé sveitarfélaganna. Haldinn var sameiginlegur fundur með full- trúum umræddra sveitarfélaga, Brú lífeyrissjóði, Hjallastefnu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem efnið var rætt og niðurstaðan sú að sambandið myndi taka saman minnisblað um málið. Í erindi Sambandsins kemur fram að réttar- staða vegna málsins sé óviss svo ekki er ljóst á hverjum greiðsluskylda hvílir. /PF Skagaströnd Óvissa með jafnvægis- og varúðarsjóð Reykir á Reykjaströnd er einn viðkomustaða á Norðurstrandarleið. MYND: MARKAÐSSTOFA NORÐURLANDS 2 20/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.