Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 12

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 12
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað þann 17. maí og fengu 29 verkefni náð fyrir augum dómnefndar alls kr. 40 milljónir. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, afhenti styrkina í athöfn sem fór fram í Hörpu. Þrír styrkjanna rötuðu í Skagafjörðinn. Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað síðan 1991 og eru þeir ætlaðir frumkvöðla- konum eða fyrirtækjum í þeirra eigu. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í meiri- hlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi. Í ár bárust 135 umsóknir og hefur ráðgjafarnefnd metið umsóknir á undanförnum vikum. Nefndina skipa þær Herdís Á. Sæmundar- dóttir, Guðrún Stella Gissurar- dóttir, Elín Gróa Karlsdóttir, Elín Sigríður Þórðardóttir og Kolbrún Ágústa Guðnadóttir. Verkefnin eru af ýmsum toga en hæsta styrkinn, eða fjórar milljónir, hlaut Anna Bryndís Blöndal fyrir verkefni sitt „Lyfja- fræðileg umsjá“. Þrír styrkjanna koma í hlut kvenna í Skaga-firði og hlaut Hilma Eiðsdóttir í Stekkholti, Hilma – hönnun og handverk – kr. 1.500.000 til mark- aðssetningar, vöruþróunar, hönn- unar og efniskostnaðar á verk- efninu „Þaraband“. Stefanía Hjördís Leifsdóttir, Brúnastöðum í Fljótum, fær kr. 1.000.000 til vöruþróunar fyrir „mjöltun sauð- og geitfjár og ostavinnsla auk heimavinnslu úr ær- og geitakjöti“ og í hlut Elínborgar Erlu Ásgeirsdóttur, Breiðargerði í Lýdó, komu kr. 896.000 til vöruþróunar og efniskostnaðar vegna verkefnisins „Lífrænar baunir og ertur“. /PF Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 20 TBL 22. maí 2019 39. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Rúmar þrjár milljónir í Skagafjörð Atvinnumál kvenna Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ásamt fríðum hópi styrkþega. MYND: ATVINNUMALKVENNA.IS Sauðárkrókur Vilja byggja fjölda íbúða á Freyjugötureitnum Hrafnshóll ehf. hefur áhuga á því að byggja allt að 90 íbúðir á Freyjugötureitnum svokallaða á Sauðárkróki, þar sem áður stóðu verkstæði KS. Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skagafjarðar sl. föstudag var tekin fyrir umsókn fyrirtækisins um byggingarsvæðið en þar kemur fram að reiknað sé með að reiturinn verði fullbyggður innan tíu ára. Óskað var eftir því að Hrafnshóll ehf. fengi heimild til að vinna deiliskipulag af svæðinu og að félaginu yrði úthlutað því til framkvæmda. Samkvæmt fundargerð reikna umsækjendur með því að byggja 10-15 íbúðir strax á fyrsta ári. Áætlað er að reiturinn verði fullbyggður innan 10 ára, þá með 50 til 90 íbúðum, eftir því hvaða útfærsla verði fyrir valinu. Skipulags- og byggingarnefnd tók jákvætt í erindið og vísaði því til Byggðarráðs. /PF Freyjugötureiturinn svokallaði myndaðist eftir að húsnæði bílaverkstæðis KS var rifið fyrir nokkrum árum ásamt einhverjum húskofum og hest- húsum nokkru fyrir aldamót. MYND: PF FJÖLBRAUTASKÓLI NORÐURLANDS VESTRA Á SAUÐÁRKRÓKI Nánari upplýsingar á www.fnv.is eða í síma 455 8000 Brautskráning og skólaslit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verða föstudaginn 24. maí kl. 14:00 í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Allir velunnarar skólans velkomnir. Skólameistari Frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Norðurland vestra Flóttafólkið komið til síns heima Sýrlenska flóttafólkið sem kom til landsins í síðustu viku eftir langt ferðalag frá Líbanon hefur allt komið sér vel fyrir í nýjum húsakynnum í sínum nýju heimabæjum, Hvammstanga og Blönduósi. Nú í upphafi viku voru fólkinu haldnar veislur og það boðið velkomið á svæðið. Í Feyki þessa vikuna er rætt við verkefnastjóra beggja staðanna og kemur þar fram að sýrlensku fjölskyldurnar hafi allar búið í Líbanon við bágbornar aðstæður síðustu þrjú til fimm árin og hafa væntanlega upplifað ýmislegt. Forvitnileg viðtöl i opnu blaðsins sem fróðlegt er að lesa. /PF Mynd frá samkomu sem haldin var fyrir nýbúana á Hvammstanga. MYND: FE Blönduósbær Ársreikningur 2018 Sveitarstjórn Blönduósbæjar tók ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2018 til fyrri umræðu á fundi sínum þann 14. maí. Arnar Árnason, endurskoðandi frá KPMG fór yfir ársreikninginn og útskýrði helstu liði hans en helstu tölur eru þessar: Rekstrartekjur námu 1.071 milljónum króna en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir tekjum upp á 1.035 milljónir króna. Rekstargjöld voru 965 milljónir króna, fjármagns- gjöld voru 49,6 milljónir króna og niðurstaða úr rekstri er afkoma A og B hluta neikvæð sem nemur 850 þúsund krónum en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir jákvæðri afkomu sem nam einni milljón króna. Eigið fé Blönduósbæjar í árslok 2018 nam 764 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Skuldir og skuldbindingar: 131,4% Skuldaviðmið skv. reglugerð: 119%. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.