Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 11

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Klauf Feykir spyr... Hvað fannst þér um Palestínufána Hatara? Spurt á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is „Jú,jú, mér fannst það alveg í lagi.“ María Sif Gunnarsdóttir „Flottur fáni.“ Gróa Guðmunda Haraldsdóttir „Ég hef svo sem ekki neina sérstaka skoðun á þessu fánamáli Hatara en ef það hjálpar Palestínumönnum eitthvað er það hið besta mál.“ Arnar Kjartansson KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Stærstu fjársjóðirnir eru þeir sem augun greina ekki en hjartað finnur. – Judy Garland Sudoku Ótrúlegt – en kannski satt... Fyrsta hnattsiglingin er venjulega kennd við portúgalska sæfarann Magellan þó hann hafi ekki náð að ljúka henni sjálfur þar sem hann lést áður en hringnum var lokað. Ótrúlegt en kannski satt, þá er hægt að sigla beina leið kringum hnöttinn á 60. breiddargráðu suður. „Þeir voru frekar litlir.“ Sigurbjörn Björnsson Það eru þau Inga Jóna Sveinsdóttir, íþróttafræðingur og grunn- skólakennari og Árni Max Haraldsson, byggingariðnfræðingur sem gefa lesendum uppskriftir að þessu sinni. Þau búa á Skagaströnd með börnin sín þrjú en þangað fluttu þau frá Reykja- vík fyrir þremur árum. „Árni sér yfirleitt um eldamennskuna enda afbragðs kokkur! Inga sér aftur á móti um allan bakstur. Vinsælasti maturinn hjá okkur er lambalæri og ís í eftirrétt en allir á heimilinu elska það!“ segja þau. AÐALRÉTTUR Kjúklingaréttur 4 kjúklingabringur 1 stór sæt kartafla 1 paprika 1 rauðlaukur 1 Mexikóostur 1 dolla rjómaostur 2 dl rjómi spínat salt og pipar rjómi Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Skrælið sæta kartöflu og skerið í bita. Látið kartöflubitana í eldfast mót, setjið smá ólífuolíu yfir, saltið og piprið og setjið inn í ofn í 15 mínútur eða á meðan kjúklingurinn er undirbúinn. Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið stutt (lokið þeim) á heitri pönnu. Kryddið eftir smekk (okkur þykir t.d. gott að nota kjúklingakrydd, salt og pipar). Skerið Mexikóost og setjið í pott. Bræðið með rjómaosti og rjóma. Skerið papriku og lauk niður. Þegar kartöflurnar hafa verið í ofninum í 15 mínútur eru þær teknar út. Setjið spínat yfir sætu kartöflurnar og kjúklinginn yfir spínatið. Stráið papriku og rauðlauk yfir og hellið að lokum rjóma- sósunni yfir allt. Setjið í ofn og bakið í 25 mínútur. EFTIRRÉTTUR Frönsk súkkulaðikaka 2 dl sykur 200 g smjör 200 g suðusúkkulaði Girnilegur kjúklingaréttur og eitthvað sætt á eftir ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Inga Jóna og Árni Max matreiða Árni Max og Inga Jóna. AÐSEND MYND 1 dl hveiti 4 stk. egg Aðferð: Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkku- laðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lausbotna) við 170°C í 25 mínútur. Krem: 150 g suðusúkkulaði 70 g smjör 2-3 msk síróp Látið allt saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Kælið bráðina svolítið og berið hana síðan á kökuna þegar hún hefur kólnað. Kakan á að vera blaut í miðj- unni. Gott er að bera hana fram með rjóma eða ís og berjum, til dæmis jarðarberjum eða bláberjum. GOTT MEÐ KAFFINU Döðlugott 400 g döðlur 120 g púðursykur 250 g smjör 3-4 bollar Rice Krispies 200 g suðusúkkulaði Aðferð: Bræðið saman smjör og sykur, hrærið vel saman. Döðlurnar saxaðar smátt niður. Þegar sykurinn er bráðnaður og vel uppleystur er döðlunum blandað saman við. Látið malla þar til döðlurnar eru orðnar mjúkar og allt blandast vel saman. Blandið Rice Krispies saman við og hrærið vel. Byrjið á þremur bollum og bætið meiru við ef ykkur þykir þörf á. Setjið bökunarpappír í köku- form eða eldfast mót og þjappið deiginu ofan í. Bræðið suðusúkku- laðið og smyrjið því ofan á deigið. Setjið í ísskáp og leyfið að harðna. Skerið í bita og njótið. Verði ykkur að góðu! Við skorum á Guðnýju Nönnu Þórsdóttur, formann kvenfélagsins Einingar á Skagaströnd. 20/2019 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. FEYKIFÍN AFÞREYING Oft við nagla er mér beitt. Er í karlmannsbuxum. Samnefnt býli er sunnlenskt eitt. Á sauðfénaði og uxum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.