Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 5

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is Júdó Vormót Tindastóls Keppendur á Vormóti Tindastóls í júdó 2019 ásamt þeim Huldu Guðmundsdóttur (vinstra megin) og Sesselju Margréti Albertsdóttur (hægra megin), fyrstu konunum sem hófu að æfa júdó á Íslandi. MYND: KATHARINA SOMMERMEIER Vormót Tindastóls í júdó var haldið í íþróttahúsinu á Sauðárkróki sl. laugardag. Fimmtíu keppendur mættu til leiks frá fimm júdófélögum: KA á Akureyri, Pardus á Blönduósi, Reykavíkurfélögunum júdódeild Ármanns og Júdófélagi Reykjavíkur auk júdódeildar Tindastóls í Skagafirði. Fyrstu konur sem hófu að æfa júdó á Íslandi heiðruðu keppendur með nærveru sinni.. Einar Hreinsson, þjálfari júdódeildar Tinda- stóls, segir á heimasíðu deildarinnar að það sé orðinn fastur liður í starfinu að halda opið júdómót í lok vorannar en þetta er fimmta árið í röð sem Vormót Tindastóls í júdó er haldið. Markar það jafnframt lok annarinnar og þar fá júdóiðkendur tækifæri á því að spreyta sig í keppni við iðkendur frá öðrum júdófélögum. Að þessu sinni mættu fimmtíu keppendur til leiks, 21 stelpa og 29 strákar, sem kepptu í fimmtán þyngdar- og aldursflokkum. Eftir mót fór fram verðlaunaafhending og að þessu sinni afhentu þær stöllur Sesselja Margrét Albertsdóttir og Hulda Guðmundsdóttir verðlaunin, en þær eru fyrstu konurnar sem hófu að æfa júdó á Íslandi. Það var því mikill heiður að fá þær á mótið og njóta þeirra nærveru, skrifar Einar á Tindastóll.is. /PF Inkasso-deild kvenna : Tindastóll – FH 4–6 Hörð lexía sem Stólastúlkur fengu hjá FH Tindastóll og FH mættust á sunnudag á Sauðárkróksvelli í Inkasso-deild kvenna. Stóla- stúlkur gerðu sér lítið fyrir í 1. umferð og lögðu lið Hauka en rauða hluta Hafnarfjarðar hafði verið spáð 2. sæti í deildinni af spekingum. Lengi framan af leik á sunnudag leit út fyrir að FH-liðið, sem spáð er toppsæti deildarinnar, þyrfti að lúta í gras líkt og grannar þeirra en þegar til kom reyndist reynsla svarthvítu gestanna drjúg og þeir snéru leiknum sér í vil í síðari hálfleik. Lokatölur, í gríðarlega fjörugum leik, 4-6 fyrir FH. Lið Tindastóls mætti til leiks af fullum krafti og var hreinlega mun betra en gestirnir fyrsta hálftímann og hefði getað skorað fleiri mörk en þær gerðu. Gestirnir nýttu færin betur. Jackie Altshuld skoraði úr horni snemma leiks en lið FH jafnaði úr sinni fyrstu sókn. Stólastúlkur svöruðu með tveimur mörkum Murr og Jennýar og stöngin bjargaði liði FH skömmu síðar. FH-ingar fengu síðan umdeilda víta- spyrnu og minnkuðu muninn í 3-2 og þannig stóð í hálfleik. Reikna mátti með strembn- um síðari hálfleik en engan óraði fyrir að lið FH yrði búið að jafna eftir mínútu. Allen í marki Tindastóls gerði sig þá seka um hroðaleg mistök, missti framhjá sér sendingu inn á teiginn og Nótt Jónsdóttir gat ekki annað en skorað annað mark sitt í leiknum. Bæði lið fengu ágæt færi eftir þetta en vörn FH stóðst nokkrar ágætar tilraunir frá Murr. Nótt full- komnaði þrennuna með marki á 64. mínútu, átti þá ágætt skot sem Allen hefði átt að höndla betur en henni tókst ekki að slá boltann yfir markið og hann söng því í netinu. Staðan orðin 3-4. Eftir þetta tók FH yfir leikinn og stjórnaði miðjunni gjörsamlega þar sem þær fengu alltof mikinn tíma til að athafna sig. Gestirnir bættu við tveimur mörkum en það var Vigdís Edda sem átti síðasta orðið fyrir lið Tindastóls og lokatölur því 4–6. Margir leikmanna Tinda- stóls eiga ýmsilegt inni og hafa möguleika á að sýna það nk. föstudagskvöld þegar stelp- urnar mæta sterku liði Þróttar í Reykjavík. /ÓAB Smáþjóðaleikar Jóhann Björn og Ísak Óli keppa Þrír Skagfirðingar munu fara með landsliði Íslands í frjálsíþróttum á Smáþjóða- leikana sem fram fara í Svart- fjallalandi 27. maí til 1. júní í sumar. Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að í liðinu séu 22 íþróttamenn, þrettán konur og níu karlar. Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ valdi þá Ísak Óla Traustason, sem keppir í 110m grindahlaupi, langstökki og boðhlaupi, og Jóhann Björn Sigurbjörnsson, sem keppir í 100m og 200m hlaupum og boðhlaupi og svo er Sigurður Arnar Björnsson, þjálfari Frjálsíþróttadeildar Tindastóls, í þjálfarateymi liðsins. Á Smáþjóðaleikunum eiga keppnisrétt Evrópuþjóðir með íbúatölu undir einni milljón og hafa þeir verið haldnir annað hvert ár frá 1985, segir á Tindastóll.is. /PF Stólastúlkur fagna fyrsta markinu í leiknum. Þá átti eftir að skora níu mörk til viðbótar en því miður voru sex þeirra í mark Tindastóls. MYND: ÓAB Frjálsíþróttakapparnir Jóhann Björn og Ísak Óli. MYND AF TINDASTÓL.IS Knattspyrna Töp hjá strákunum Þriðja umferð í 2. deild karla hófst sl. laugardag og hélt lið Tindastóls suður í Garð þar sem þeir öttu kappi við spræka Víðispilta. Heimamenn náðu undirtökunum snemma leiks og ljóst í hálfleik að Stólarnir þyrftu að skora minnst þrjú mörk í síðari hálfleik til að fá eitthvað út úr leiknum. Það hafðist ekki og 3-0 tap staðreynd. Ari Steinn Guðmundsson gerði fyrsta mark leiksins á 5. mínútu og á 19. mínútu bætti Helgi Þór Jónsson við öðru marki Víðis. Mehdi Hadraoui gerði þriðja mark heimamanna á 37. mínútu og staðan 3-0 í hálfleik. Tindastólsmenn náðu að fylla betur í varnargötin í síðari hálfleik og héldu þá hreinu en ekki tókst þeim að koma boltanum í mark Garðsverja. Þriðja tapið í þremur leikjum hjá Tindastólsmönnum og markatala liðsins 0-8. Fannar Örn Kolbeinsson, fyrir- liði Stólanna, og Jonathan Faerber, markvörður, spiluðu fyrstu leiki sína í 2. deildinni þetta sumarið og vonandi fara strákarnir að breiða út vængina og taka flugið. Næsti leikur er gegn liði Dalvíkur/Reynis nk. föstudag kl. 19:15 og fer leikurinn fram á Sauðárkróksvelli. /ÓAB KB - Kormákur/Hvöt 3–1 Keppni í B-riðli 4. deildar fór af stað um helgina og liðsmenn Kormáks/Hvatar héldu suður í Breiðholt þar sem þeir mættu Knattspyrnufélagi Breiðholts. Praveen Gurung náði forystunni fyrir KB á 16. mínútu og Aron Daníelsson bætti við marki á 34. mínútu. Heimamenn gerðu sjálfsmark á 64. mínútu en Patryk Hrynie- wicki kom Breiðhyltingum í 3-1 á 69. mínútu og þar við sat. Átta lið skipa B-riðil og eru aðeins tvö þeirra utan af landi, Kormákur/Hvöt og Snæfell og verða Húnvetningar því stöð- ugir gestir á höfuðborgar- svæðinu í sumar. /ÓAB 20/2019 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.