Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 6

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 6
á sér og sjá um að aðlög- unarferlið sé að ganga, að styðja sjálfboðaliðana í að styðja fólkið. Ég bý hér á Hvammstanga í ár og verð til staðar hér og á Blönduósi ef flóttafólkið þarf á að halda og ef það vantar eitthvað. Svo skipulegg ég líka alls kyns fræðslu og skemmtilegheit og við Liljana munum hafa samstarf um það svo að okkar fræðsla skarist ekki. Samstarf er gríðarlega mikilvægt í svona verkefnum þannig að ég kem til með að vinna mjög náið með Liljönu.“ Nauðsynlegt að huga vel að sálræna þættinum Hlutverk Liljönu er margþætt. „Við erum í raun að tryggja þennan grunn. Fyrst og fremst erum við að tryggja það að fólkið fái húsnæði í eitt ár en svo vorum við að festa það í samningunum að það hafi möguleika á að framlengja. Svo er það öll þjónusta eins og fjárhagsaðstoð frá ríkinu í gegnum sveitarfélagið, skóla- þjónusta, heilbrigðisþjónusta o.s.frv. eða í rauninni bara allt sem er grunnur í lífi hvers einstaklings. Svo verð ég með fræðslu fyrir allt starfsfólk sem vinnur með flóttafólkinu. Ég var með sameiginlega fræðslu fyrir grunnskóla og leikskóla og annað námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Þar fór ég vel yfir þætti eins og hvernig á að vinna með fólkið, hverju við eigum að reikna með og hvernig á að bregðast við. Við þurfum að leggja áherslu á sálræna þáttinn, það er eitthvað sem gleymist oft hér á landi, sérstaklega í heilbrigðisþjónustunni. Þann- ig að öll svona þjónusta er í okkar höndum, það er bara eins og hvert annað heimili. Ég þarf að halda utan um allar þessar stofnanir sem eiga að vinna með fólkið og það er mikið samstarf í innviðunum. Við erum saman í teymi, ég, yfirfélagsráðgjafinn og svið- stjóri fjölskyldusviðs.“ „Þetta er mikið samvinnu- verkefni,“ segir Guðrún. „Ég kom inn í þetta fyrsta apríl og mér fannst alveg einstakt hvað þau voru langt komin og búin að skipuleggja þetta í marga mánuði og einstaklega faglega að þessu staðið. Það er svo algengt að sveitarfélög taki ákvörðun seint og allt sé sett í botn á síðustu metrunum og oftast reddast það nú, það er íslenska leiðin!“ Liljana segir að sveitar- félagið hafi ákveðið að ráða verkefnisstjóra mánuði fyrir komu fólksins þannig að hún hafi haft heilan mánuð til að undirbúa verkefnið og skipuleggja allt.“ Og svo vorum við bara tilbúin að bíða eftir fólkinu." Liljana og Guðrún eru sam- mála um að íbúar Hvamms- tanga séu mjög jákvæðir gagnvart þessu verkefni, vel hafi gengið að fá sjálfboðaliða til starfa og fólk hafi lagst á eitt um að taka vel á móti hópnum. „Ég vil bara segja að ég hef mjög góða tilfinningu fyrir þessu verkefni,“ segir Guðrún, „við erum með alveg úrvalsfólk eins og Liljönu sem er algjörlega meiri háttar og svo Ahmed núna.“ Hann kemur til með að dvelja á Sveitarfélögin annast undir- búninginn í nánu samstarfi við Rauða krossinn sem gegnir þar stóru hlutverki og hafa sjálfboðaliðar í Húna- vatnsdeild Rauða krossins lagt á sig ómælda vinnu til að sem best verði hlúð að hópnum. Þá hafa sveitarfélögin ráðið til sín verkefnastjóra til að stýra undirbúningi. Einnig hefur verið ráðinn túlkur á Blönduósi og unnið er að því á Hvammstanga. Guðrún Margrét Guð- mundsdóttir er verkefnastjóri á vegum Rauða krossins. Hún hefur umsjón með móttöku fólksins á Hvammstanga og á Blönduósi og verður búsett á Hvammstanga í ár. Verk- efnastjóri Húnaþings vestra er Liljana Milenkoska en hún er hjúkrunarfræðingur við Heilbrigðisstofnun Vestur- lands á Hvammstanga. Liljana skrifaði lokaritgerð sína í hjúkrun um sálræna líðan sýrlenskra flóttabarna á Íslandi, hvað við erum að gera á þessu sviði og hvað við getum gert betur.Feykir hitti þær að máli á Hvammstanga á föstudag í liðinni viku og spurði þær fyrst um í hverju aðkoma þeirra að móttökunni fælist. Guðrún segir hlutverk Rauða krossins aðallega vera tvíþætt. Í fyrsta lagi að safna innbúi í íbúðir og standsetja þær sem sveitarfélagið útveg- ar, sumt er keypt, t.d. frá IKEA, en öðru var safnað úr nágrenninu. „Þetta er allt sjálfboðastarf þannig að þetta er dálítil bilun. Í þessu tilfelli eru þetta níu íbúðir, það er puð að flytja í eina en níu er dálítið stórmál. Ákvörðunin var tekin seinna á Blönduósi þannig að þar eru nokkrir sjálfboðaliðar sem hafa varla VIÐTÖL Fríða Eyjólfsdóttir Í vikunni sem leið settust átta sýrlenskar fjölskyldur að á Norðurlandi vestra. Fimm þeirra komu til Hvammstanga, 23 manns, og þrjár til Blönduóss, alls 15 manns. Innan skamms er svo von á einni fjölskyldu til viðbótar til Blönduóss og telur hún sex manns. Undirbúningur fyrir komu fólksins hefur staðið í allnokkurn tíma en sveitarstjórn Húnaþings vestra tók ákvörðun um að taka á móti hópnum um miðjan desember og á Blönduósi var sambærileg ákvörðun tekin í febrúar. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir og Liljana Milenkoska, verkefnastjórar á Hvammstanga Íbúar Hvammstanga mjög jákvæðir gagnvart verkefninu Ahmed og Guðrún. MYNDIR: FE gert neitt annað í nokkrar vikur, ég er ekki að grínast,“ segir Guðrún og nefnir sem dæmi að einn hafi tekið sér frídag í vinnunni rétt fyrir komu fólksins af því hann vildi redda ákveðnum hlutum. „Hins vegar er það að mínu mati mun skemmtilegri hluti starfsins að sjá um þessa félagslegu aðlögun fólks. Að setja upp stuðningsfjölskyldukerfi eða leiðsögumannakerfi eins og það er kallað hjá Rauða kross- inum. Þá gefur fólk sig fram til að verða leiðsögumenn eða stuðningsfjölskyldur í eitt ár, það er skuldbinding fólgin í því. Mitt starf héðan í frá er að halda utan um stuðningsfjölskyldurnar og þá aðila sem hafa gefið kost Liljana og Sigurður maður hennar. Myndir frá samkomum sem haldnar voru til að bjóða fólkið velkomið. 6 20/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.