Feykir


Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 8

Feykir - 22.05.2019, Blaðsíða 8
Loks rennur laugardagurinn upp bjartur og fagur, miðaldra karlmaðurinn rís úr rekkju í þriðja skiptið (maður er víst ekki með sterka samkvæmisblöðru lengur), egg og beikon á pönnuna, hjartalyfin, magalyfin og verkjalyfin tekin til og eftir morgunmatinn er farið að klæða sig í golffötin sem gætu saman staðið af köflóttum buxum, þröngri innanundirpeysu, pólóbol í skærum lit (sem passar ekki við litinn á buxunum) og peysu/vesti með tíglamynstri sem passar engan veginn við buxurnar og pólóbolinn. Punkturinn yfir i-ið er svo annaðhvort sixpensari sem er snúið öfugt eða derhúfa með einhverju golfmerkja-logoi. Síðan er golfsettinu skellt í skottið og brunað á golfvöllinn. Þegar á völlinn er komið og búið að ganga frá helstu formsatriðum (greiða vallargjöld, kaupa nesti og fara á klósettið einu sinni enn) er skundað á fyrsta teig ásamt spilafélögunum. Næstu klukkustundir fara í að rembast við að slá litla hvíta kúlu í þar til gerðar holur á vellinum. Eftir að hafa horft á golf í sjónvarpi virðist þetta vera leikur einn. En miðaldra karlmaðurinn er ekki atvinnumaður í golfi og er árangurinn eftir því. Hækkaður blóðþrýstingur, hjartsláttartruflanir, skapsveiflur, hlátur, grátur, einstaka YEEEESSSSS, en með reglulegu millibili heyrist „Ég ER HÆTTUR Í GOLFI, HVER VILL EIGA GOLFSETTIÐ MITT” eru einkennandi tilfinningar fyrir miðaldra karlmanninn. Og eftir að hafa skrifað undir skorkort með þriggja stafa tölu, sem er álíka há og blóðþrýstingurinn, þá dirfist einn meðspilarinn að spyrja: „Eigum við að spila aftur á morgun?“ Með blóðhlaupin augu og svitaperlur á enni lítur miðaldra karlmaðurinn á meðspilarann með undrunarsvip og segir: „JÁ, AUÐVITAÐ!“ - - - - - Ég skora á Brynjar Rafn Birgisson að koma með næsta pistil. Þar sem ég er fæddur á því herrans ári 1969 mun ég fagna 50 ára afmæli seinna á árinu. Á þessum tímamótum telst ég víst vera miðaldra af jafnöldrum, gamalmenni í augum barnanna og fjörgamall í augum barnabarns. En hvað er miðaldra karlmaður að dunda sér við í frítíma sínum? Jú, eins og svo margir jafnaldrar mínir þá stunda ég golf (oft meira af vilja en mætti). Mörgum finnst ég vera full ungur til að stunda þessa „gamalmenna” íþrótt, en það verður að segjast að ég sé mest eftir því að hafa ekki byrjað að iðka þessa dásamlegu íþrótt mikið fyrr. En hvernig eyðir þessi miðaldra karlmaður frítíma sínum um helgar. Það má segja að helgin byrji á miðvikudegi þegar karlinn byrjar að undirbúa íþróttaiðkun helgarinnar. Þá er byrjað að kíkja á uppáhalds heimasíðurnar eins og vedur.is, yr.no, belgingur.is og blika.is til að athuga hvar mestu líkurnar eru á þurru veðri og hægum vindi og ekki væri verra ef hitabylgja (10+C) væri á viðkomandi svæði. Eftir að hafa spottað út líkleg leiksvæði er hinn heilagi gral vefsíða heimsóttur, þ.e.a.s. golf.is, til að athuga hvort ekki sé örugglega laust pláss á væntanlegu leiksvæði og jú, heppnin var með mér í þetta skiptið og ég kemst út að leika um helgina. Fimmtudagur og föstudagur fara í að kíkja reglulega á veðurspásíðurnar góðu og vonast til að veðurspáin breytist ekki og jafnvel kíkt í golfbúð eða tvær til að athuga hvort einhver ný hjálpartæki séu komin á markaðinn sem gætu bjargað helginni. ÁSKORENDAPENNINN Sigurður Jóhann Hallbjörnsson (Siggi Jói) brottfluttur Króksari Lífið er golf UMSJÓN Páll Friðriksson Siggi Jói að slá garð... nei, á golfvellinum. AÐSEND MYND Það er alltaf rík ástæða til að þakka það góða sem menn fá að upplifa hér í heimi og eins að horfa í trú og von til ljóssins handan landamæranna: Minningar um marga stund móta okkar kenndir. Eilíf von um endurfund upp til himna bendir. Ekki deyja hér allir gamlir. Kunningi minn minntist angurvær á einn, sem fór fyrir tímann eins og sagt er, og ég svaraði orðum hans eftirfarandi: Ég veit að mikill vinur hans þú varst og þekktir drenginn. Og fannst þar gróið gildi manns í gegnum hjartastrenginn. Þegar dauðinn vinnur – að okkur finnst – sinn sigur, megum við samt aldrei gleyma því að sá sigur er tímabundinn og lífið verður hinn endanlegi sigurvegari. En sár er aðskilnaður ástvina og við eitt slíkt sorgartilfelli orti ég: Fátt við löngum getum gjört og grátlegt margt að bera. Svo ásýnd lífsins Engilbjört fær ekki lengi að vera. Svo sárt á okkur herjar Hel og hjartafriðinn skaðar. En samt á bak við sortaél er sólin enn til staðar. Það huggi alla er eiga bágt að allt mun bölið víkja, er Dauðinn verður lagður lágt og lífið eitt mun ríkja! Þegar Skarphéðinn Einarsson, frændi minn frá Dagsbrún á Skagaströnd, lést nýlega, tileinkaði ég honum þessa kveðjuvísu: Fram þér vísi um friðarveg, frændi - og lendur skrýddar, dýrðarfull og dásamleg Dagsbrún hærri víddar. En þegar fyrir liggur að sérgæskan veður yfir allt og samgæskan fær hvergi að njóta sín, getur maður átt það til að kveða í vonbrigðatón yfir öllu hérlífsergi mannsins: Hverfa lönd og lýðir, lítið mannkyn prýðir. Týnast gefnar tíðir, tapast allt um síðir! En þegar samhjálp og betri siðir ráða, veit maður að byggt er undir heilbrigða farsæld til framtíðar og þá er bjart fyrir augum: Þjóðleg reisn með þroska góðum þokar dáðum fram á veg. Sinnir allra sálarljóðum, sýnir gildin dásamleg! Nýlega kom ég í Jónshús í Kaup- mannahöfn. Það var íslensk upplifun: Hér ég stend í húsi Jóns, hugsun sérhver gleðst við það. Hjartað rödd hins hreina tóns heyrir vel á slíkum stað. Og svo settist ég við skrifborð Jóns og kvað: Sælt er að fá að setjast hér, sál mín vel það finnur, að það er eitthvað inni hér sem áfram starf sitt vinnur. Og þegar ég kvaddi þessa íslensku eyju í dönsku höfuðborginni, var það með þessum orðum: Fyrir Ísland afrek mörg, öll með vilja góðum, unnu Jón og Ingibjörg úti á Hafnarslóðum. Þau hjónin urðu sannarlega ekki minni Íslendingar við að dvelja erlendis. Sú staðreynd mætti verða mörgum nú á tímum áminning um meiri og betri þjóðrækni. Alltaf finnur maður fyrir vaxandi gildi þeirrar lífssýnar sem maður ólst upp við og hugsar hlýtt til manngæsku þeirrar sem svo víða bjó í hjörtum í gamla daga og tók ekki mið af tál- sýnum tilfinningalausrar efnishyggju: Man ég það sem var svo vel, vil því aldrei gleyma. Öll mín þrá og allt mitt þel á þar líf sitt – heima! Ritað á Skagaströnd 10. maí 2019, Rúnar Kristjánsson Rúnar Kristjánsson Lífið sigrar allt að lokum 8 20/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.