Feykir - 09.10.2019, Blaðsíða 6
Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra fagnaði þann 21.
september sl. 40 ára afmæli
sínu með hátíðardagskrá á sal
Bóknámshússins að
viðstöddum góðum gestum.
Fluttar voru ræður og saga
skólans rifjuð upp í máli og
myndum. Í tilefni tímamótanna
mun Feykir birta nokkra pistla
um skólann og að þessu sinni
stikla á stóru í sögu skólans.
Stuðst er við upprifjun þá sem
Ingileif Oddsdóttir,
skólameistari og Jón F.
Hjartarson, fv. skólameistari,
flutti á fyrrnefndum
afmælisfagnaði.
Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra var stofnaður árið 1979 og
settur í fyrsta sinn 22. september
sama ár, þá undir heitinu
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki.
Skólameistari var ráðinn Jón F.
Hjartarson sem stýrði skólanum
farsællega til loka skólaárs 2011
er núverandi skólameistari,
Ingileif Oddsdóttir tók við.
Stofnendur skólans voru í
upphafi ríkissjóður og Sauðár-
krókskaupstaður en fram að
þeim tíma hafði verið starf-
ræktur Iðnskóli á Sauðárkróki
frá árinu 1946 og framhaldsdeild
við Gagnfræðaskólann á Sauðár-
króki frá árinu 1977. Á þessum
tíma voru íbúar Sauðárkróks
tæplega 2000 þúsund manns og
má með sanni segja að framsýni
bæjarstjórnar Sauðárkróks hafi
verið mikil. Fljótlega gerðust
allir þéttbýlisstaðir á Norður-
landi vestra, frá Hvammstanga
til Siglufjarðar, ásamt hreppum í
nágrenni Sauðárkróks, aðilar að
rekstri skólans.
Í fréttatilkynningu um
stofnun skólans segir að við
skólann verði starfræktar eftir-
farandi námsbrautir:
Fiskvinnslubraut 1 og 2
Iðnbrautir tréiðna,
málmiðna og rafiðna
Sjúkraliðabraut
Viðskiptabraut
Almennar bóknámsbrautir,
þ.e. náttúrufræðabraut
og uppeldisbraut.
Alls hófu 75 nemendur nám við
skólann á fyrstu önn.
Strax var ljóst að til þess að
skólinn gæti vaxið of dafnað í
framtíðinni þyrfti að reisa
heimavist og var fyrsti áfangi
hennar tekinn í notkun árið
1976. Fram að þeim tíma hafði
skólinn leigt herbergi víða í
bænum fyrir þá nemendur sem
á því þurftu að halda. Árið 1983
var stigið mikið framfaraskref
fyrir starfsemi skólans er fyrsti
áfangi verknámshúss var tekinn
í notkun og komust þá málm-
og rafiðnagreinar í varanlegt
húsnæði. Það var svo árið 1985
sem annar áfangi heimavistar
var tekinn í notkun. Tíu árum
eftir stofnun skólans voru um
300 nemendur við skólann.
Árið 1990 gerðu héraðsnefndir
V-Húnvetninga, A-Húnvetn-
inga, Skagfirðinga og Siglu-
fjarðarkaupstaðar samning um
rekstur skólans. Þá fékk skólinn
nafnið Fjölbrautaskóli Norður-
lands vestra á Sauðárkróki.
Enn var stigið stórt skref í
skólastarfinu árið 1994 er nýtt
Bóknámshús var tekið í notkun.
Fram að þeim tíma var kennt á
ýmsum stöðum í bænum en
flestar skólastofurnar voru
staðsettar á 3. hæð höfuðstöðva
Kaupfélags Skagfirðinga á
Ártorgi. Á 20 ára afmæli skólans
voru rúmlega 400 nemendur í
skólanum, tíu árum síðar voru
nemendur við skólann 450
talsins.
Fyrir níu árum síðan, eða árið
2010, var enn eitt heillaskrefið
stigið fyrir skólann þegar ný
viðbygging við verknámshúsið
var tekin í notkun og
tréiðngreinar fengu veglegt rými
fyrir sig. Ári síðar var
hátæknisetur opnað í verk-
námshúsinu og var tilkoma þess
sögð, í ávarpi skólameistara,
lykill að framförum í nútíma
iðnaði og framleiðslu þar sem
skólar eigi að leiða þá þróun en
ekki fylgja í kjölfarið.
Metnaður sem skilar sér í
margfalt öflugra samfélagi
Síðustu ár hafa um 500
nemendur stundað nám við
skólann og námsbrautum
fjölgað hægt og stígandi en
brautskráðir nemendur frá
upphafi til dagsins í dag eru alls
2.663. Í dag býður skólinn upp á
bóknám, verknám, ýmiss konar
starfsnám og fjarnám. Af
nýjungum hin síðari ár má t.d.
nefna hestanám við skólann,
kvikmyndanám, körfubolta-
akademíu og fótboltaakademíu.
Alls vinna í dag um 60
starfsmenn við skólann.
Skólinn rekur, í samstarfi við
Strandabyggð, Húnaþing vestra
og sveitarfélögin í Austur-
Húnavatnssýslu, dreifnáms-
stöðvar á Hólmavík, Hvamm-
stanga og Blönduósi og kom
fram í máli Þorleifs Karls
Eggertssonar, formanns stjórnar
SSNV í afmælishófinu, hve
mikilvægur skólinn væri fyrir
Norðurland vestra, enda ekki
sjálfgefið að á svæðinu væri
starfræktur framhaldsskóli.
Útskýrði hann hvernig
dreifnámið hefði breytt miklu
fyrir nemendur. „Stærsta
breyting sem hefur átt sér stað
fyrir menntun á Norðurlandi
vestra er dreifnámið. Það er
ómetanlegt fyrir alla að geta
stundað nám heiman frá sér,
verið tveimur árum lengur
heima.“
Það eru ekki bara unglingarnir
sem skólinn sinnir því stóru
hlutverki gegnir hann þegar
kemur að menntun fullorðinna.
Á þessu skólaári eru t.d. þrír
hópar í helgarnámi í húsasmíði
og fyrsti hópurinn í helgarnámi í
rafiðnum. Skólinn hefur einnig
verið í samstarfi innan
Fjarmenntaskólans, bæði
varðandi almenna bóklega
áfanga og sjúkraliðanám.
Sjúkraliðanámið hefur á
undanförnum árum verið í
samvinnu við Menntaskólann á
Ísafirði og Verkmenntaskóla
Austurlands. Mikil aðsókn hefur
verið í námið og var svo komið í
haust að ekki var hægt að verða
við öllum umsóknum.
Öllu námi í framhaldsskóla er
skipað á fjögur hæfniþrep sem
skarast annars vegar við
grunnskólastig og hins vegar við
háskólastig. Með þrepunum er
lýst stigvaxandi kröfu um
þekkingu, leikni og hæfni
nemenda í átt til sérhæfingar og
aukinnar menntunar. Námslok
námsbrauta eru tengd við
hæfniþrep. Lokamarkmið
námsbrauta kallast hæfniviðmið
og segja til um þá hæfni sem
stefnt er að nemendur búi yfir
við námslok. Nú á haustönn eru
í fyrsta sinn allar námsbrautir
við skólann kenndar samkvæmt
nýrri námskrá.
„Skólinn er gríðarlega
mikilvægur fyrir framþróun
samfélagsins. Eftir því er tekið
hversu mikill metnaður er
lagður í fræðslumál á öllum
skólastigum hér í byggðarlaginu.
Þessi metnaður mun skila sér í
margfalt öflugra samfélagi
okkur öllum til heilla,“ segir í
kveðju sem Lilja Alfreðsdóttir
mennta- og menningar-
málaráðherra sendi til skólans í
tilefni 40 ára afmælisins.
Stiklað á stóru í sögu skólans
Fjörtíu ára fjölbrautaskóli
Starfsfólk og nemendur Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki stilla sér upp í myndatöku í áhorfendabrekkunni við íþróttavöllinn á
Króknum. MYNDIR FENGNAR FRÁ FNV.
Fyrsta skólfustungan tekin að Bóknámshúsi. Gengið eftir Skagfirðingabrautinni að aflokinni útskrift.
Jón Hjartarson fv. skólameistari.
40 ára
6 38/2019