Feykir - 09.10.2019, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Dominos-deildin :: Tindastóll 77 - Keflavík 86
Keflvíkingar reyndust
sterkari í Síkinu
Tindastóll og Keflavík mættust í 1.
umferð Dominos-deildarinnar í Síkinu
á fimmtudaginn sl. Óhætt er að
fullyrða að talsverð eftirvænting hafi
verið hjá stuðningsmönnum Tindastóls
að sjá mikið breytt lið sitt mæta til
leiks en því miður var fátt sem gladdi
augað að þessu sinni. Keflvíkingar
voru sterkari í fyrri hálfleik og frábær
byrjun gestanna í síðari hálfleik
reyndist of stór biti fyrir lið Tindastóls
sem gerði þó sitt besta til að halda
spennu í leiknum. Sigur Keflvíkinga
var þó sanngjarn en lokatölur voru
77-86
Leikmenn Tindastóls léku glimrandi
vel fyrstu mínútur leiksins og
Austantjaldstríóið okkar raðaði niður
körfum. Stólarnir komust í 8-0 og hefðu
hæglega getað aukið muninn en það
kom snemma í ljós að hittni leikmanna
utan 3ja stiga línunnar var ekki upp á
marga fiska. Áður en fyrsti leikhluti var
úti höfðu Keflvíkingar komist yfir en
jafnt var að loknum fyrsta leikhluta, 19-
19. Stólarnir gerðu ágætlega í að loka á
Hörð Axel en því miður gekk ansi
brösuglega að verjast Khalil Ahmad og
Dominykas Milka sem virtist hreinlega
skora þegar honum sýndist. Keflvíkingar
komust í 25-32 um miðjan annan
leikhluta og þá loks gerði Gerel Simmons
sína fyrstu körfu í leiknum en fram að
því höfðu einungis Bilic, Brodnik og
Perkovic skorað fyrir lið Tindastóls.
Simmons sýndi mjög smarta takta af og
til, gríðarlega snöggur og með frábærar
hreyfingar, og hann sá til þess að staða
Stólanna væri ekki óþarflega döpur í
hálfleik en kappinn setti niður frábæran
þrist í þann mund sem leiktíminn rann
út og fékk víti í kaupbæti. Staðan 41-44 í
hálfleik.
Það hvorki gekk né rak hjá
heimamönnum í byrjun þriðja leikhluta.
Hvað eftir annað unnu gestirnir boltann
og skoruðu í andlitið á ráðvilltum
Stólum. Á fyrstu fjórum mínútunum
gerðu gestirnir 15 stig en Stólarnir tvö
og staðan 43-61. Baldur setti þá gömlu
refina Helga Rafn og Axel inn á og þeir
náðu að hrista aðeins upp í leiknum.
Helgi gerði sér lítið fyrir og gerði fyrstu
„íslensku“ körfu Tindastóls í leiknum
þegar tæpar 26 mínútur voru liðnar af
leiknum og það kann að sjálfsögðu ekki
góðri lukku að stýra. Ellefu stigum
munaði á liðunum fyrir lokafjórðunginn,
staðan 57-68, og í lokafjórðungnum
reyndu heimamenn ítrekað að ná upp
stemningu og keyra sig inn í leikinn.
Áhorfendur voru ánægðir þegar góðar
körfur frá Brodnik, Axel og Helga
minnkuðu muninn og þristur frá
Perkovic breytti stöðunni í 69-73.
Dúkkaði þá ekki Magnús Már, einu
sinni sem oftar, í horninu og setti niður
þrist og Milka og Ahmad bættu um
betur, aftur kominn ellefu stiga munur
og var þá mesti móðurinn af
heimamönnum. Simmons gerði sitt
besta til að halda Stólunum inni í
leiknum en það dugði ekki til og
lokatölur 77-86.
Það er að sjálfsögðu fullsnemmt að
dæma lið Tindastóls út frá einum leik þó
ljóst sé að leikur liðsins á fimmtudaginn
hafi valdið vonbrigðum. Það er líka
risaskellur fyrir Stólana að vera án Péturs
Birgissonar sem hefur glímt við meiðsli
frá því í fyrsta æfingaleik haustsins og
ekkert verið með síðan og það er óvíst
hvenær hann snýr aftur á parkettið.
Gerel Simmons var bestur í liði
Tindastóls, gerði 26 stig og sýndi oft
glæsilega takta. Sinica Bilic var öflugur
framan af leik og gerði í fyrri hálfleik 14
af 15 stigum sínum í leiknum. Perkovic
gerði 14 stig en var mistækur líkt og
Brodnik sem gerði 11 stig í leiknum.
Helgi Rafn skilaði átta stigum og dró
stríðsvagninn þegar Stólarnir reyndu að
berja sig inn í leikinn. Axel setti niður
þrist en aðrir komust ekki á blað. Lið
Tindastóls hefur sennilega aldrei haft á
jafn hávöxnu liði að skipa en engu að
síður var það Viðar sem tók flest fráköst
Tindastólsmanna eða sjö stykki.
Nýtingin í þriggja stiga skotum var
vandræðaleg, 7 niður í 31 tilraun, en
nýting gestanna var svo sem ekki mikið
skárri, 10 í 32.
Á morgun, fimmtudaginn 10.
október, leika Tindastólsmenn við
Njarðvík í Ljónagryfjunni og hefst
leikurinn kl. 20:15. Áfram Tindastóll!
/ÓAB
1. deild kvenna :: Tindastóll 69 – Fjölnir 63
Mikil barátta frá fyrstu
sekúndu leiksins
Meistaraflokkur kvenna Tindastóls
tók á móti Fjölni í fyrsta leik sínum í
fyrstu umferð 1. deildarinnar í
körfunni á laugardaginn og var ekki
annað að sjá, frá fyrstu sekúndum
leiksins, en að þær ætluðu sér sigur.
Baráttan og leikgleðin skein í gegn
hjá stelpunum sem gladdi
stuðningsmannahjörtu okkar allra
sem horfðum á leikinn eftir
svekkelsið hjá Meistaraflokki karla á
fimmtudaginn.
Það var mikill hiti á fyrstu mínútum
leiksins hjá báðum liðum. Þegar tvær
og hálf mínúta voru liðnar, eftir
frábæra byrjun hjá Tess, var staðan
jöfn 4:4. Tindastóll gaf þá aðeins meira
í og spilaði frábæran bolta og nýtti
færin sín vel því flestir boltar rötuðu
ofan í körfuna. Fjölnisstelpur áttu
góðar sóknir en því miður fyrir þær
var ekki sama sagan með þeirra hitni
og staðan því 22:12 eftir fyrsta
leikhluta. Tess átti 10 stig af þeim 22,
Marín 8 stig, Telma 2 og Inga Sólveig 2
stig.
Á fyrstu mínútu annars leikhluta
náðu bæði lið að skora körfu, staðan
24:14. Þá kom um þriggja mínútna
kafli í leiknum sem mikið gerðist en
ekkert skorað hjá hvorugu liðinu. Þá
reyndu Stólastelpur nokkrar þrggja
stiga körfur en því miður rataði boltinn
ekki ofan í hringinn góða. En þá tók
Tess þetta í sínar hendur og kom
Stólunum í 35:18 og ekki meira né
minna en 17 stiga munur á liðunum.
Þá lifnaði aðeins yfir Fjölnisstelpum,
sem voru greinilega ekki á því að gefast
upp, og náðu að minnka aðeins
muninn og staðan í hálfleik 39-24. Tess
skoraði 11 stig af 17, Hrefna 4 stig og
Marín 2 stig.
Á fyrstu mín. þriðja leikhluta kom
Marín sér í villuvandræði, komin með
fjórar villur, og tekin út af enda mikið
eftir af leiknum. Þetta nýttu
Fjölnisstelpur vel, settu niður bæði
vítaskotin ásamt því að setja niður eina
þriggja stiga körfu. Þetta skorgengi
Fjölnisstelpna sættu Stólastelpur sig
ekki við og setti Valdís niður eina
þriggja stiga körfu. Þá kom þriggja
stiga skota kafli hjá Stólunum sem því
miður skilaði engu í hringinn fyrr en
brotið var á Karenu Lind í þriggja stiga
skoti sem náði að setja niður eitt víti af
þrem. Þá komu tvær þriggja stiga
körfur í röð frá Stólastelpum ásamt því
að brotið var á Tess sem setti bæði
vítaskotin niður, staðan 53-34 og þær
aftur komnar með flotta forystu, 16
stig, á Fjölnisstelpur og þrjár mín. eftir
af þriðja leikhluta. Gestirnir náðu enn
og aftur að rífa sig upp og skoruðu
næstu 6 stig. Þegar 20 sek. voru eftir
settu heimastúlkur niður eina tveggja
stiga körfu sem Fjölnir svaraði með
körfu og staðan í lok þriðja leikhluta
55-44. Fjölnisstelpur náðu því, í þriðja
leikhluta, að saxa aðeins á Stóla og
skoruðu 20 stig á móti 16. Valdís var
með 6 stig, Karen 4, Tess 4 og Rekel 2.
Þá var komið að síðasta
leikhlutanum og gerði Inga Sólveig sér
lítið fyrir og skoraði næstu fimm stig
fyrir Stólastelpur ásamt því að Tess
setti niður tvö víti. Þegar tvær min.
voru búnar af þessum leikhluta náðu
Fjölnisstúlkur loksins að setja niður
fyrstu körfuna og við það slokknaði
aðeins á Stólunum. Gestirnir náðu þá
að minnka bilið niður í 62-53, 9 stiga
munur, og fimm mínútur eftir af
leiknum. Telma náði þá að setja niður
tveggja stiga körfu sem Fjölnisstúlkur
svöruðu með þriggja stiga körfu. Mikil
harka var á síðustu mínútum leiksins
þar sem bæði lið fengu á sig villur og
staðan orðin 65-59 þegar aðeins ein
mínúta var eftir af leiknum. Þá var
brotið á Tess sem hélt 100% nýtingunni
á vítalínunni sem er frábært.
Fjölnisstúlkur svöruðu með tveggja
stiga körfu en síðasta stig leiksins
skoraði Hera Sigrún úr vítaskoti og
lokatölu leiksins 69-63. Í þessum
leikhluta voru Fjölnisstúlkur betri og
skoruðu 19 stig á móti 13 stigum. Inga
Sólveig skoraði 5 stig, Tess 4 stig, Telma
2 stig og Hera 2 stig.
Tess átti alveg magnaðan leik og
skoraði 29 stig, átti 16 fráköst og 4
stoðsendingar. Marín var með 10 stig,
Inga Sólveig 7 stig, Hrefna 6 stig, Valdís
6 stig, Telma 4 stig, Karen 4 stig og
Rakel 2 stig.
Stelpurnar í Tindastól stóðu sig
ótrúlega vel og gaman að sjá þær spila
undir leiðsögn Árna Eggerts. Gott
flæði var í leiknum hjá Stólum og nýtti
Árni bekkinn vel, sem skoraði 18 stig
af 68. Næsti leikur verður 12. október
við Keflavík b í Keflavík en næsti
heimaleikur verður 19. okt. við
Njarðvík kl 16:00. /SG
Stólastúlkur að fagna sigrinum. MYND: SG
SIMMONS TEKUR SKOT. MYND: HJALTI ÁRNA
38/2019 5