Feykir - 09.10.2019, Blaðsíða 9
Sorphreinsun
Vilhelms
Harðarsonar
heitir núna Terra
Við viljum að flokkun sé einföld og sjálfsögð. Við viljum
hjálpa til við að bæta umgengni okkar við jörðina. Terra
er latneskt heiti jarðargyðjunnar og eitt af nöfnum
plánetunnar sem er heimkynni okkar allra.
Terra býður fyrirtækjum, sveitarfélögum og heimilum víðtæka umhverfis-
þjónustu. Við önnumst sorphirðu, söfnum endurvinnsluefnum, tökum
við spilliefnum og komum þeim í endurvinnslu eða eyðingu og útvegum
gáma og annan búnað sem bætir umgengni við umhverfið.
Terra er leiðandi á sínu sviði. Við erum fljót að tileinka okkur nýjungar og
höfum ástríðu fyrir að fræða og miðla. Við höfum metnað fyrir því að
skilja ekkert eftir og viljum hvetja og auðvelda Íslendingum að takast
á við þá áskorun. Að skilja ekkert eftir er okkar þýðing á hugtakinu
„Zero Waste“ og lýsir vel markmiði okkar í endurvinnslu og með-
höndlun úrgangs.