Feykir - 09.10.2019, Blaðsíða 2
Viðbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra
á Hvammstanga var vígð í síðustu viku að
viðstöddu fjölmenni. Með viðbyggingunni hefur
aðstaða í Íþróttamiðstöðinni batnað til muna og
þjónusta við íbúana hefur aukist verulega. Sagt
er frá vígslunni á vef sveitarfélagsins, hunathing.is.
Á vígsluhátíðinni fór Þorleifur Karl Eggertsson,
oddviti, yfir sögu byggingarinnar sem að mestu
var unnin af heimamönnum. Ráðbarður sf. sá
um hönnun hússins sem hófst árið 2016. Fyrsta
skóflustungan var tekinn um mitt ár 2017 og var
uppsteypu lokið vorið 2018 og var húsinu lokað
þá um sumarið. Tók þá við frágangur innanhúss
og utan sem lauk nú í haust. Stærð
viðbyggingarinnar er 300 m2.
Móttaka og aðkoma gesta er nú orðin góð
eftir að anddyri var stækkað. Aðstaða til
íþróttaiðkunar hefur batnað verulega með
góðum þrektækjasal með nýjum tækjum og
búnaði og einstöku útsýni yfir fjörðinn. Einnig
minni sal sem gefur mörguleika á að vera með
hóptíma og fjölbreyttar æfingar. Markmiðið er
að koma til móts við fjölbreyttan notendahóp á
öllum aldri.
Þá hefur aðstaða starfsfólks og kennara
batnað. Geymslupláss hefur aukist og er góð
áhaldageymsla í húsinu. Aðgengi fyrir fatlaða
hefur verið bætt með tilkomu lyftu og nýrra
snyrtinga fyrir fatlaða og í byggingunni er nýtt
dómaraherbergi með sturtuaðstöðu. Auk þess
var eldri búningsaðstaða tekin upp að hluta,
loftræsting og myndavélakerfi endurnýjað.
Þessar breytingar skapa ný tækifæri til að
halda stærri íþróttaviðburði og hægt er að bjóða
íþróttafélögum um land allt upp á fyrirtaks
aðstöðu fyrir æfingahelgar.
Að lokinni yfirferð Þorleifs Karls tók fulltrúi
ungmennaráðs Húnaþings vestra, Guðmundur
Grétar Magnússon, til máls og að lokum Anton
Scheel Birgisson framkvæmdastjóri Ungmenna-
sambands Vestur Húnvetninga. Dagskránni lauk
með metnaðarfullri sýningu ungmenna sem æfa
hestafimleika hjá hestamannafélaginu Þyt.
Myndir frá vígslunni má sjá á Facebooksíðu
Húnaþings vestra. /FE
Mikið hefur verið rætt og ritað um hlýnun jarðar
undanfarið og þær loftslagsbreytingar sem mannkyni
öllu stendur ógn af og taldar eru af mannavöldum. Hafa
vísindamenn, og hinir ýmsu fræðingar, lagt fram gögn því
til staðfestingar og því haldið
fram að mikið slæmt hljótist af
ef ekkert verður að gert. Þeir
sem efast um þá þróun hafa
verið gagnrýndir harðlega og
jafnvel spottaðir enda geti
hamfarahlýnun aldrei verið
góð.
Greta Thunberg hélt þrum-
andi ræðu yfir þjóðarleiðtogum
á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í New York fyrir
skömmu og snupraði þá sem þar
sátu og ráða örlögum heimsins.
„Þið hafið brugðist okkur, en unga fólkið er farið að skilja
svik ykkar. Augu komandi kynslóða stara á ykkur og ef þið
kjósið að bregðast okkur, munum við aldrei fyrirgefa
ykkur,” hefur Vísir.is eftir Gretu. Þeir sem hafa gagnrýnt
Gretu fyrir þessa skeleggu framgöngu eða bent á að hún
gæti verið á villigötum og hafi engar frambærilegar lausnir
hafa einnig fengið að finna til tevatnsins. En Greta tjáði sig
bara um hvernig henni finnst ástandið vera og það er bara
gott. Fólk hugsar þá kannski frekar um það hvað það getur
lagt af mörkum í baráttunni fyrir betri heimi.
Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri, er óbanginn og
ritaði athyglisverða grein á Kjarnanum.is í liðinni viku þar
sem hann segir heiminn ekki vera að farast vegna
loftslagshlýnunar. Aðra þætti telur hann upp sem gætu haft
meiri áhrif á mannkynið s.s. eins og offjölgun þess.
„Hingað til hef ég ekki misst svefn eða haft áhyggjur af
hækkun hita á jörðinni, enda tel ég ekki um neitt
neyðarástand (bráðahættu) á því sviði að ræða. Ég reikna
heldur ekki með að ég muni lifa það að innihald
gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti jarðar muni minnka.
En meðan mannkyninu fjölgar jafnmikið og raun ber vitni
og krafa um stöðugt meiri hagvöxt og betri lífskjör er uppi
eru að mínu mati engar líkur til að okkur takist að minnka
styrk koltvísýrings í andrúmslofti. Við þurfum því að
hættumeta áhrif hlýnunar á yfirvegaðan hátt og án
hræðsluáróðurs og laga okkur að þeim breytingum sem
kunna að verða á lífskilyrðum manna og dýra í einstökum
heimshlutum við frekari hlýnun,“ skrifar Magnús.
Kannski það sé málið, að tala um hamfarafjölgun. RÚV
sagði frá því í sumar að mannkyni myndi fjölga um tvo
milljarða næstu 30 árin. Tveir milljarðar eru litlar 2000
milljónir. Þetta er svo yfirgengileg tala að maður skilur vart
hver áhrif slíkrar fjölgunar geta orðið á Jörðina. Í dag erum
við um 7,7 milljarðar en verðum 9,7 milljarðar árið 2050
miðað við nýjustu mannfjöldaspár Sameinuðu þjóðanna.
Hvað er til ráða? Líkt og sumir þjást af flugviskubiti þjáist
ég af tímgunarbiti og ætla ekki að eignast fleiri börn!
Páll Friðriksson, ritstjóri.
LEIÐARI
Hamfarahlýnun eða
samfarahlýnun?
Viðbygging við Íþróttamiðstöð vígð
Tekinn á 166 km hraða
Húnaþing vestra
Glannaakstur í Blönduhlíðinni
Nokkrir fjölsóttir viðburðir voru í umdæmi
Lögreglunnar á Norðurlandi vestra um liðna
helgi, eins og stóðréttir í Víðidal og
matarmarkaður á Hofsósi. Þeim fylgir gjarnan
mikil umferð og í því fallega haustveðri sem ríkt
hefur að undanförnu, freistast margir ökumenn
til að aka of greitt. Einn þeirra var tekinn á 166
km hraða á klukkustund í Blönduhlíðinni.
Í Faebookfærslu lögreglunnar segir að hún
hafi haft afskipti af alls 144 ökumönnum um
helgina sem kærðir voru fyrir of hraðan akstur.
Sá sem hraðast ók var erlendur ferðamaður er
lögregla stöðvaði í Blönduhlíð í Skagafirði á 166
km hraða á klukkustund. Sá var sviptur
ökuréttindum á staðnum. Þá reyndist einn
ökumaður vera undir áhrifum áfengis. Að öðru
leyti gekk umferð vel og aðeins eitt minniháttar
umferðarslys var tilkynnt lögreglu. /PF
Á Sauðárkróki var landað tæpum 668 tonnum
í vikunni sem leið og var það Málmeyjan sem
var aflahæst með rúm 2.016 tonn. Rúmu 71
tonni var landað á Skagaströnd og var það
línubáturinn Sævík GK sem var aflahæst þar
með rúm 23 tonn. Tæp 28 tonn bárust á land á
Hofsósi og var dragnótabáturinn Njáll ÓF
aflahæstur með 12,6 tonn. Heildarafli
vikunnar á Norðurlandi vestra í síðustu viku
var 766.547 kíló. /FE
Aflatölur 29. sept. – 5. okt. 2019
Málmey með 216 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Landbeitt lína 4.422
Blær HU 77 Landbeitt lína 1.001
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 447
Dóra HU 225 Handfæri 2.030
Dúddi Gísla GK 48 Lína 17.250
Elfa HU 191 Handfæri 2.839
Fengsæll HU 56 Landbeitt lína 2.362
Geirfugl GK 66 Landbeitt lína 4.635
Geiri HU 69 Handfæri 1.707
Gunna Beta ST 60 Handfæri 894
Hafdís HU 85 Handfæri 2.002
Hafrún HU 12 Dragnót 4.497
Húni HU 62 Handfæri 1.948
Jenny HU 40 Handfæri 47
Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfiskinet 1.217
Sæunn HU 30 Handfæri 701
Sævík GK 757 Lína 23.103
Alls á Skagaströnd 71.102
SAUÐÁRKRÓKUR
Akurey AK 10 Botnvarpa 144.592
Drangey SK 2 Botnvarpa 139.852
Gammur SK 12 Þorskfiskinet 1.237
Guðrún GK 47 Lína 20.468
Hafborg SK 54 Þorskfiskinet 5.018
Hafey SK 1 Handfæri 668
Kristinn SH 812 Landbeitt lína 45.107
Kristín GK 457 Lína 58.797
Málmey SK 2 Botnvarpa 216.329
Onni HU 36 Dragnót 33.827
Steini G SK 14 Handfæri 1.104
Vinur SK 22 Handfæri 771
Alls á Sauðárkróki 667.770
HOFSÓS
Ásdís ÓF 250 Handfæri 3.028
Njáll ÓF 275 Dragnót 12.645
Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 1.393
Þorleifur EA 88 Dragnót 10.609
Alls á Hofsósi 27.675
Nýbygging við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra.
MYND: HUNATHING.IS
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Auglýsingastjóri:
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is & 4557171,
Áskriftarverð: 555 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 685 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
2 38/2019