Feykir


Feykir - 09.10.2019, Blaðsíða 14

Feykir - 09.10.2019, Blaðsíða 14
Pönk- og rokktónleikar í Bifröst Pínu rosalega gaman Nú á föstudagskvöldið verða haldnir dúndurtónleikar í Bifröst þegar pönksveitin DDT skordýraeitur og Tríó Pilla Prakkó leiða saman trunturnar sínar, eins og segir í kynningu. Tríóið þarf ekki um langan veg að fara en pönkararnir koma hins vegar alla leið frá Neskaupstað og innan raða bandsins er Króksarinn Ágúst Ingi Ágústsson sem brást vel við beiðni Feykis um að svara nokkrum spurningum. Pilli Prakkó brást hins vegar illa við, svaraði fáu og reyndar hafði hann þetta eitt að segja: „Ég er hundfúll yfir því að það kosti bara 2000 kall inn. Ég vildi að það kostaði 7000!“ Hljómsveitin DDT skor- dýraeitur var stofnuð haustið 2015 í Neskaupstað af fjórum kennurum Verkmenntaskóla Austurlands. Hljómsveitin er afsprengi annarrar hljóm- sveitar við skólann sem hét Doddi og draumaprinsarnir en sú hljómsveit kom saman snemma hausts 2015. „Eftir þann hitting langaði nokkra kennara að spila meira og hittust reglulega í kjölfarið, úr varð pönksveitin DDT skor- dýraeitur,“ segir trymbillinn Ágúst Ingi en auk hans skipa þeir Arnar Guðmundsson, söngur og gítar, Pjetur St. Arason gítar og söngur og Þorvarður Sigurbjörnsson, bassi og söngur, sveitina. „Upphafleg geta og hæfileikar þessara fjögurra leiddu til þess að bandið spilar aðallega frumsamið gleðipönk, þar sem stutt, hröð og rammpólitísk lög ráða ríkjum.“ Ágúst segir bandið hafa reynt að troða upp sem mest síðan það var stofnað enda njóti þeir góðs af því að Neskaupstaður er mikill tónlistarbær. „Höfum við t.a.m. komið fram á þunga- rokkshátíðinni Eistnaflugi síðan 2016 bæði á litlum og stórum sviðum. Svo höfum við verið duglegir að halda tónleika í Neskaupstað, stundum óbeðnir. Einnig höfum við spilað á jóla- tónleikum á Egilstöðum og 17. júní hátíð Fjarðabyggðar á Breiðdalsvík 2018 þegar Breiðdælingar voru boðnir formlega velkomnir í sveitar- félagið.“ Hljómsveitin gaf út fimm laga EP plötu sem kom út á aðventunni 2017 sem bar nafnið Aleppo og má finna hana á tónlistarveitunni Spotify. Nú í nóvember kemur svo út 15-16 laga plata sem verður væntanlega í flestum jólapökkum í ár. Ágúst segir tónlistarferilinn hafa byrjað snemma þegar hann prófaði fyrst að tromma í bílskúrnum í Fellstúni 5 en þar var trommusett sem faðir hans átti, en sá hafði svolítið fitlað við kjuðanna og kenndi drengnum fyrstu trixin. Ágúst Ingi og Sveinn Guðmundsson, nágranni hans í Fellstúninu, spiluðu síðan ábreiður af Nirvana lögum á unglings- árum, en Sveinn hafði eignast bók með gítarhljómum amerísku sveitarinnar. „Síðan lá trommuleikurinn niðri í allmörg ár þangað til ég flutti til Neskaupstaðar og sagðist kunna að tromma og komst í kennaraband VA, sem eins og áður sagði er fyrirrennari DDT. Getan var nú ekki mikil fyrst um sinn, en eftir nám í tónlistarskóla getur trommar- inn Ágúst Ingi ágætlega haldið takti og tempói,“ segir hann. Hvernig kemur það til að DDT kemur á Sauðárkrók? „Við vorum beðnir um að spila á Græna hattinum fimmtu- daginn 10. október á tónleikum til styrktar Grófinni geð- verndarmiðstöð. Þar sem við vorum bókaðir á Norður- landinu ákváðum við að kanna möguleikann á því að spila á Sauðárkróki. Erum við aðdáendur hljómsveitarinnar Pilla Prakkó og settum okkur í samband við þá og viðruðum þá hugmynd að halda tónleika saman. Það stóð ekki á þeirri hljómsveit enda spilaþyrstir eins og við og blása því böndin til tónleika í Bifröst föstu- daginn 11. október. Verður gaman fyrir móður trommarans í DDT að sjá drenginn sinn spila. Þetta gæti orðið svolítið villt þó snyrtimennskan verði í fyrir- rúmi. Allavega er hægt að lofa hröðu og taktföstu gleðipönki þar sem feilnótur slá fáa út af laginu ásamt vandaðra efni. Markmið DDT Skordýraeiturs hefur alltaf verið að skemmta sjálfum sér og áhorfendum um leið,“ segir Ágúst sem hvetur Króksara og nærsveitunga til þess að flykkjast í Bifröst á þennan menningarviðburð. „Ekki á hverjum degi að pönkhljómsveit skipuð mis- miðaldra körlum kemur í bæinn með frumsamið efni. Þetta verður pínu rosalega gaman.“ /PF DDT skordýraeitur í banastuði. Ágúst Ingi mundar kjuðana af stakri snilli. MYNDIR: AÐSENDAR Tækifærismynd með Heru Hjartardóttur á Trúbadorahátíð á Neskaupstað á dögunum. Margir öðrum gera greiða, gæskan ein þar ræður ferð. Opna á vinning vænstu leiða, vaxta hverja sæmdargerð. Þeir sem njóta oft þó öfugt öllum gæðum bregðast við. Skilja ekki inntak göfugt eða fylgd við betri sið. Vanþakklætið verst þar kemur víða fram í ljótri mynd. Margur í þeim anda fremur ótrúlega grófa synd. Breytni slíka er bágt að skilja, brotahneigðin seint þar deyr. Sumir ekkert annað vilja en að heimta stöðugt meir. Sjálfselskan með sínum hótum sækir fram með eigið lag, fylgir alltaf fölskum nótum, fellir allan manndómsbrag. Margt er nú í nýjum fræðum nefnt sem eitthvert gáfnastig. En það er ljótt að gleyma gæðum, - gleyma að þakka fyrir sig! Rúnar Kristjánsson AÐSENT Að gleyma gæðum Þéttir eiturbelgir á Eistnaflugi 2016. 14 38/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.