Feykir - 09.10.2019, Blaðsíða 3
Opnað fyrir umsóknir
Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í
Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir árið
2020 en hann veitir styrki til uppbyggingar,
viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á
ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón
sveitarfélaga og einkaaðila allt um land.
Einnig styrkir sjóðurinn aðgerðir sem varða öryggi
ferðamanna og verndun náttúru landsins svo og verkefni
til undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna styrkhæfra
verkefna.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun veita umsækj-
endum leiðbeiningar við undirbúning og gerð umsókna
þar til auglýstum umsóknarfresti lýkur en umsóknum
skal skilað rafrænt í gegnum Þjónustugátt Ferðamála-
stofu sem aðgengileg er á www.ferdamalastofa.is/
umsoknir. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um
umsóknaferlið. Umsóknarfrestur er til hádegis þriðju-
daginn 29. október 2019. /FEUndirbúningur að endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, búsetu- og byggðarþróun sveitarfélagsins er
hafinn. Í tengslum við vinnu að skipulaginu er leitað til
sérfræðinga, hagaðila og almennings til að ræða áherslur og
framtíðarsýn að því er segir í frétt á vef Sveitarfélagsins
Skagafjarðar.
Í tilefni endurskoðunarinnar boðar skipulags- og
byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar til opins fundar um
helstu áherslur við mótun aðalskipulagstillögu fyrir sveitarfélagið
næstu tólf árin í það minnsta. Á fundinum verða formaður
skipulags- og byggingarnefndar, sveitarstjóri, sérfræðingar frá
Byggðastofnun og formaður Búnaðarsambands Skagfirðinga með
framsögur og að þeim loknum verða umræður og vinnustofur.
Fundurinn verður haldinn í Húsi frítímans á morgun,
fimmtudaginn 10. október, klukkan 17:00-19:00 og eru íbúar og
hagaðilar hvattir til þátttöku til að móta áherslur og framtíðarsýn
á aðalskipulagi sveitarfélagsins. /FE
Endurskoðun
á aðalskipulagi
Sveitarfélagið Skagafjörður
Frá Sauðárkróki. MYND:FE
Kálfshamarsvík. Skagabyggð fékk fyrr á þessu ári styrk
til að bæta aðstöðu fyrir ferðafólk í Kálfshamarsvík.
MYND:NORTHWEST.IS
Veiddu hnúðlax í Djúpadalsá
Sjaldséður gestur í Blönduhlíð
Þeir voru heldur betur undrandi bræðurnir á
Minni-Ökrum í Blönduhlíð, Stefán Ármann og
Helgi Vagnssynir, er þeir litu fiskinn augum sem
þeir veiddu upp úr Djúpadalsalsánni, skammt
frá heimili þeirra fyrir skömmu. Var þar kominn,
langt fram í Blönduhlíð, hinn ófagri fiskur
hnúðlax sem tilheyrir ættkvísl Kyrrahafslaxa.
Fallegir urriðar hafa veiðst í Dalsánni en hnúðlaxinn
er alveg ný saga og að sögn Vagns Stefánssonar, föður
þeirra bræðra, lætur Dalsáin yfirleitt lítið yfir sér og ekki
þekkt fyrir mikla veiði. Sagði hann aðallega um smáfisk
að ræða í gegnum tíðina en síðustu ár hafi krakkarnir
borið heim fína urriða og bleikjur og eftir þær miklu
rigningar seinniparts sumar hafi mikil ganga verið í
ánni.
„Veiðitíminn er september til október og við förum
nokkrum sinnum á þessu tímabili og veiðum með
gömlum og frumstæðum aðferðum þ.e. með höndum
og heimagerðum háf,“ segir Helgi. „Það er mest urrriði
sem veiðist í ánni og fáeinar bleikjur en við sáum strax
að þetta var ekki eðlilegur fiskur og langaði okkur mikið
til að ná honum. Við urðum forvitnir að vita hvernig fiskur
þetta væri. Þegar við spurðum pabba þá hélt hann að
það hefði flætt upp úr Grænuvötnunum í rigningunni um
daginn og að þetta væri afkomandi af skrímslinu sem á
að vera þar,“ segir Helgi kíminn en þá bræður langar til
að stoppa fiskinn upp og eiga til minninga, þar sem
þetta er fyrsti laxinn sem þeir veiða. „Við systkinin
byrjuðum að veiða í ánni fyrir mörgum árum og varð
pabbi mjög hissa þegar við fórum að koma heim með
þetta stóra fiska. Aflinn hefur verið flakaður og reyktur
eða steiktur í smjöri.“
Hnúðlaxar (Oncorhynchus gorbuscha) hafa lengi
veiðst í íslenskum ám, segir á Vísindavefnum. Þeirra
varð fyrst vart í evrópskum ám upp úr miðri 20. öld.
Þann 12. ágúst 1960 veiddist einn slíkur í Hítará á
Mýrum og var það fyrsti hnúðlaxinn sem kom á land úr
íslenskri á. Hnúðlaxana í Evrópu má rekja til tilrauna
Rússa til að koma á legg hnúðlaxastofnum í rússneskum
ám. Í framhaldi af því fór fljótlega að bera á hnúðlöxum
í öðrum ám í Evrópu, þar á meðal í íslenskum. /PF
Hér heldur Helgi á urriðanum en Stefán Ármann handleikur
hnúðlaxinn. MYND AÐSEND
Veiði er nú lokið í flestum
laxveiðiám landsins og
hefur lokatölum verið skilað
fyrir allar húnvetnsku árnar.
Þær eiga það flestar
sammerkt að afli þar er
umtalsvert minni en síðustu
ár og oft þarf að leita langt
aftur í tímann til að finna
svo léleg sumur.
Miðfjarðará er efst á
listanum yfir norðlensku
árnar. Hún er í þriðja sæti
með 1606 laxa. Þar veiddust
2.719 laxar í fyrra og 3.765
árið 2017.
Laxá á Ásum er með
lokatölur upp á 807 laxa og er
í sjötta sætinu og nær trúlega
að halda því. Þar veiddust
fleiri laxar en á síðasta ári
þegar hún skilaði 702 fiskum
en lokatölur þar árið á undan
voru 1.108.
Í Blöndu veiddust ekki
nema 638 laxar og þarf að
fara allt aftur til ársins 2003
til að finna jafn lélegt sumar.
Þar veiddust 870 laxar í fyrra
og 1.433 í hittifyrra. Blanda
er í 14. sæti á listanum.
Í Vatnsdalsá veiddust 477
laxar í ár samanborið við 551
í fyrra og 714 árið 2017.
Víðidalsá var með loka-
tölur upp á 430. Í fyrra
Miðfjarðará efst
norðlensku ánna
Lokatölur í laxveiðinni
Miðfjarðará var í þriðja sæti á lista Landssambands veiðifélaga yfir aflahæstu
árnar. Mynd:angling.is.
veiddust þar 588 laxar og 781
árið áður.
Hrútafjarðará og Síká skera sig
úr líkt og Laxá á Ásum og
skiluðu meiri afla en í fyrra.
Veiðin þar var 401 lax en þeir
voru 360 á síðasta ári og 684
árið 2017.
Loks kemur svo Svartá sem er
mjög neðarlega á lista. Þar var
veiðin aðeins 57 laxar
samanborið við 129 í fyrra og
128 árið 2017.
Á vef Landssambands veiði-
félaga, angling.is, má finna
lokatölur mörg ár aftur í
tímann svo áhugasamir geta
kynnt sér þær þar. /FE
Afmælishátíð Höfðaskóla
Skagaströnd
Höfðaskóli á Skagaströnd á 80
ára afmæli á þessu ári og var
því fagnað í gær. Dagskrá
afmælishátíðar hófst með
skrúðgöngu frá Bjarmanesi
klukkan 14.
Eftir það bauðst gestum og
gangandi að skoða núverandi
skólahúsnæði, þau verkefni sem
nemendur hafa unnið við í
þemaviku undanfarna daga og
þiggja léttar veitingar. /PF
Höfðaskóli. MYND: SKAGASTROND.IS
38/2019 3