Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Blaðsíða 28

Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Blaðsíða 28
28 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 30. MAÍ 2008 Skoðaðu úrvalið! Grillaðu í allt sumar! Skagamaðurinn Pétur Magnússon tók nýverið við starfi framkvæmdastjóra Hrafnistuheimilanna. Með brosi á vör líkir hann starfinu við stöðu bæjarstjóra í þokkalega stóru sveitarfélagi. Líkingin er ekki fjarri lagi því að Pétur segir samfélagið á Hrafnistu lúta lögmálum bæjarfélaga. „Hér er fengist við húsnæðismál, heilbrigðismál, félagsleg málefni, dagvistun, verslunarrekstur og rekstur sundlauga og félagsmiðstöðva, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Pétur og bætir við að samfélagið telji um 2.000 manns, um þúsund starfsmenn, hátt í 800 heimilismenn og um 200 manns til viðbótar sem nýta sér margvíslega þjónustu Hrafnistu. Pétur lauk lyfjafræðinámi með mastersgráðu frá Háskóla Íslands árið 1998 og MBA námi frá Háskóla Reykjavíkur með sérstakri áherslu á mannauðsstjórnun árið 2004. Undanfarin 11 ár hefur Pétur starfað hér á landi að markaðs- og kynningarmálum fyrir alþjóðleg lyfjafyrirtæki, síðustu 3 ár sem æðsti maður lyfjafyrirtækisins Merck Sharp & Dohme á Íslandi. Hann hefur alla tíð verið mjög virkur í félagsmálum. Meðal annars hefur hann gegnt trúnaðarstörfum fyrir Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og Lyfjafræðingafélag Íslands. Hann er fyrrverandi formaður Knattspyrnudeildar Aftureldingar í Mosfellsbæ. Þótt Pétur hafi kynnt sér starfsemi Hrafnistuheimilanna áður en hann tók þar til starfa var ýmislegt sem kom honum þægilega á óvart. „Fyrir það fyrsta er það mannauðurinn sem mér finnst vera helsti kostur Hrafnistuheimilanna. Til þess að starfsemin blómstri, vaxi og þróist þarf duglegt og metnaðarfullt starfsfólk eins og hér vinnur. Vinnan er oft erfið en flest mál eru leyst farsællega og með brosi á vör. Annað, sem ég gerði mér ekki grein fyrir, er hversu vel er hlúð að félagslega þættinum fyrir heimilisfólk. Á Hrafnistuheimilunum er dagskrá, bæði til afþreyingar og uppbyggingar, frá morgni til kvölds og þessi þáttur heimilanna er mun meiri en ég og flestir, sem ekki þekkja til Hrafnistu, gera sér grein fyrir.“ Það þriðja, sem Pétur nefnir, er heimilisbragurinn. „Hér er afskaplega góður andi og þrátt fyrir að á heimilunum búi fjöldi fólks tekst að skapa gott og heimilislegt andrúmsloft og vel er tekið á móti nýju fólki, bæði heimilisfólki og starfsfólki. Oft þarf ég að gefa mér tíma til þess að spjalla við heimilisfólkið um heima og geima. Þegar ég þarf að sinna erindum á heimilunum eða funda með starfsfólki deilda þarf ég að ætla mér góðan tíma því að ég er oft stoppaður á leiðinni til að ræða málin og það er eitt af því sem gerir störfin hér á Hrafnistu skemmtileg og gefandi,“ segir Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Hrafnistuheimilanna. Eftir Egil Þorgilsson stýrimann Það mun hafa verið trú margra Íslendinga, að við gætum ekki rekið stórskipa útgerð, og sú trú var fast ríkjandi alt fram yfir síðustu aldamót, og meira að segja munu margir hafa verið vantrúaðir á framtíðarmöguleika Eimskipafélagsins, þegar það var stofnað 1914. Hinsvegar var, að minnsta kosti út um landið, oft litið með auðmýkt og undirgefni upp til þeirra útlendu manna, sem þá sigldu stærri skipum hingað til lands. Eg man eftir því, þegar póstskipin komu hinar svokölluðu miðsvetrarferðir, hvað dáðst var að dugnaði hinna útlendu sjómanna. Að vísu skal það játað, að skilyrði fyrir vetrarferðum hér við land, voru þá að miklum mun verri en þau nú eru. En nú heyrist líka lítið um það talað, þótt íslenzkir sjómenn sigli stærri skipum inn á hverja vík á landinu, í hverjum mánuði, árið út og árið inn. Nú á þjóðin lítinn en fagran verzlunarflota, og sú útgerð borið sig ágætlega. Hinir framsýnu og góðu menn, sem áttu frumkvæðið að stofnun Eimskipafélags Íslands, og sjómennirnir, hafa sannað þjóðinni, að hún getur átt sín milliferðaskip sjálf, og þarf ekki að vera upp á aðrar þjóðir komin með flutninga að og frá landinu. Þessu marki er þó ekki enn náð svo vel sé. Við þurfum að eignast fleiri og stærri skip, og því til sönnunar má benda á, að enn þurfa landsmenn að leigja útlend skip til flutninga, og borga þannig stórar upphæðir til erlendra skipafélaga. Þau eru orðin mörg, skipsverðin, sem þannig hafa horfið út úr landinu, en það ætti að fara að minnka, og það getur horfið með öllu, ef landsmenn standa óskiftir um að auka verzlunarflota sinn. Samfara vaxandi framleiðslu landsmanna, kemur vaxandi þörf fyrir fleiri skip. Sumir halda því fram, að ekkert sé fyrir skipin að gera, nema rétt einstöku sinnum, og er það að nokkru leyti satt. Eins og stendur gerir þörfin fyrir fleiri skip aðallega vart við sig vor og haust; þess á milli er ekki svo mikið að gera, út yfir það sem póstskipin, sem þegar eru til, komast yfir að flytja. En þetta er að breytast meir og meir. Útflutningar og aðflutningar eru að jafnast meira yfir allt árið, og svo er sá möguleiki fyrir hendi, jafnt fyrir Íslendinga sem aðrar þjóðir, að senda þá skipin út í heiminn, og fá verkefni fyrir þau á hinum frjálsa siglingamarkaði. Ef skipin okkar eru þannig útbúin, að þau væru samkeppnisfær við skip annarra þjóða, þá hefðu þau alveg eins möguleika til að fá farma, eins og annarra þjóða skip, og sá erlendi gjaldeyrir, sem þá kæmi inn í landið, væri án efa velkominn. Eg hygg að slík útgerð væri alls ekki áhættumeiri en sum önnur útgerð, sem landsmenn reka, og hún hefir þann stóra kost, að ef Evrópuþjóðirnar fara í stríð og loka fyrir viðskipti sín hér við land, með sínum skipum, að þá hafa landsmenn sín eigin skip, og geta sótt björg í bú, hvert sem vera skal. Þegar allar þjóðir Evrópu vígbúast og kaupa manndrápsvélar fyrir miljarða, þá ættu Íslendingar að vígbúast með því að kaupa eða byggja fleiri stór og traust skip. Þau gleðitíðindi eru nú líka að gerast, að Eimskipafélag Íslands ætlar að bæta við sig einu skipi, helmingi stærra og vandaðra en nokkurt annað íslenskt skip, og er það vel, að Eimskipafélagið hafi í því forystu. Öll þjóðin er hluthafi í þeirri útgerð, og það ætti að vera metnaðarmál allrar þjóðarinnar, að gera Eimskipafélag Ísland stórt og sterkt. Í heimstyrjöldinni 1914-18 hefði farið illa fyrir landi og þjóð, ef fossar Eimskipafélagsins og skip ríkisins hefðu ekki verið til. Þá voru skipin aðeins tvö en nú eru þau sex og það sjöunda á leiðinni; það er því hér um gleðilega þróun að ræða. Í næsta stríði, hvenær sem það kemur, hafa Íslendingar brúk fyrir mörg skip, því þá er hætt við að eitthvert þeirra verði ófriðarþjóðunum að bráð, og er þá gott að hafa þau heldur fleiri en færri. Sérstaklega er mjög áríðandi, að sem fyrst verði hafist handa að kaupa eða byggja mótorkæliskip, 3 – 4 þúsund tonn, til flutninga vestur um haf til Ameríku, því þangað verða Íslendingar að beina viðskiptum sínum, ef til ófriðar dregur hér í álfu. En nú er ekki tími til að bollaleggja þetta mál lengi, nú er nauðsynlegt að framkvæma þetta sem fyrst, ásamt ýmsu öðru, sökum hins ótrygga ástands í heiminum. Hin nýja ríkisstjórn ætti í þessu máli að sýna þjóðinni sinn góða vilja, að tryggja þjóðina, með því að hefja strax framkvæmdir að því að styrkja ríflega siglingaflota þjóðarinnar og endurnýja hann og stækka. En eins og eg tók fram áður, er það sjálfsagt, að Eimskipafélagið hafi í þessum málum forystu, og njóti þar til svo mikils stuðnings frá ríkisstjórninni sem kostur er, svo tryggður sé framgangur þessa máls. Sjálfsagt er líka að styðja hin eimskipafélögin, og hvetja þau til að bæta við sig skipum, ef mögulegt er. Íslendingar eiga að vera sjálfum sér nógir á þessu sviði, engu síður en öðrum, og þeir geta það, ef þeir standa einhuga að því. Í maí 1939. Egill Þorgilsson. Endurskráð af Guðlaugi Gíslasyni stýrimanni í apríl 2008. Getum við Íslendingar orðið mikil siglingaþjóð? Í öðru tölublaði Sjómannsins í júlí 1939 birtist grein eftir Egil Þorgilsson (1895- 1980), stýrimann um margra áratuga skeið hjá Eimskip, síðast á ms. Tröllafossi, eða þar til hann hætti siglingum fyrir aldurs sakir 1961. Greinin er um margt athyglis- verð í ljósi umræðunnar nú um stöðu íslenskrar kaupskipaútgerðar og farman- nastéttar því að Egill fjallar m.a. um öryggi þjóðarinnar sem felst í yfirráðum yfir eigin millilandaflota. Greinin birtist nokkrum vikum áður en heimsstyrjöldin síðari hófst með innrás Þjóðverja í Pólland 1. september sama ár. Bæjarstjóri Hrafnistu

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.