Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Blaðsíða 30

Sjómannadagsblaðið - 30.05.2008, Blaðsíða 30
30 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 30. MAÍ 2008 Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra Boðaþing í Kópavogi: Nýstárlegt hjúkrunarheimili og þjónustuíbúðir Framkvæmdir við nýstárlegt hjúkrunarheimili fyrir aldraða eru hafnar við Boðaþing í Kópavogi, í grennd við Elliðavatn. Um er að ræða samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Hrafnistuheimilanna. Um er að ræða hjúkrunarheimili sem samanstendur af fjórum húsum. Hvert þeirra er með 22 hjúkrunarrými, allt einbýli. Þar er að auki sameiginleg þvottaaðstaða, eldhús og borðstofa. Húsin fjögur tengjast þjónustumiðstöð sem ætluð er eldri borgurum í Kópavogi auk heimilisfólks. Þar verður sundlaug, sjúkraþjálfun, dagvistun, netkaffihúsi og félagsmiðstöð Auk hjúkrunarheimilisins mun Hrafnista reisa 93 þjónustu- og öryggisíbúðir fyrir aldraða við Boðaþing. Íbúarnir munu geta nýtt sér alla þá þjónustu sem er í boði á svæðinu. Ný Hrafnista í Reykjavík: Landnám í Fossvogi Undirbúningur er hafinn að heilmiklu landnámi Hrafnistu í Fossvogshverfinu í Reykjavík. Þar verða byggðar 100 þjónustuíbúðir og félagsmiðstöð, einkum ætluð eldri íbúum í Fossvogs- og Háaleitishverfi auk þess sem eldri borgarar utan svæðisins geta nýtt sér aðstöðuna. Framkvæmdirnar eru í náinni samvinnu við Reykjavíkurborg.. Þótt þjónustumiðstöðin eigi að vera í beinum tengslum við nýju þjónustu- og öryggisíbúðirnar á vegum Hrafnistu er lagt upp úr góðu aðgengi íbúa annarra húsa á svæðinu eins og byggingum SEM samtakanna, MS félagsins og Félags eldri borgara. Þegar er búið að leggja frumdrög að innra skipulagi þjónustumiðstöðvarinnar í samstarfi við stjórnendur velferðasviðs Reykjavíkurborgar. Í þjónustumiðstöðinni verður almenn þjónusta, svo sem fót-, hand- og hársnyrting, sjúkra- og hreyfiþjálfun. Einnig aðstaða fyrir heimahjúkrun og heimaþjónustu, skrifstofur starfsmanna og viðtalsherbergi svo og búningsaðstaða starfsmanna, fundarherbergi og önnur aðstaða fyrir starfsmenn. Áformað er að kaffihús verði starfrækt í þjónustumiðstöðinni og að aðstaða verði fyrir fjölbreytt félagsstarf. Gert er ráð fyrir fjölnotasölum sem hægt er að skipta upp fyrir hópa- og klúbbastarf, auk þess sem þar verða vinnustofur fyrir hvers kyns föndur og handavinnu. Þannig má gera ráð fyrir að opið félagsstarf gæti nýtt sér aðstöðu félagsmiðstöðvarinnar samhliða dagsvistun aldraðra. Ennfremur er gert ráð fyrir því að hægt verði að bjóða þar uppá aðstöðu fyrir sjálfsprottið félagsstarf, jafnvel þótt þjónustumiðstöðin sjálf sé lokuð um kvöld og helgar. Í þjónustumiðstöðinni er gert ráð fyrir sundlaug sem auk þess að þjóna eldri borgurum á svæðinu er ætlað að bæta úr brýnni þörf fyrir sundkennslu grunnskólanna í grenndinni. Upplýsingar um lausar leiguíbúðir fást hjá Sjómannadagsráði í síma 585-9301 og á vef Sjómannadagsráðs, www.sjomannadagsrad.is. Stöðug uppbygging og landnám Hrafnistu Framsýni og framkvæmdir hafa einkennt starfsemi Hrafnistu allt frá því að Sjómannadagsráð hóf rekstur Hrafnistu í Reykjavík fyrir réttum 50 árum. Allt frá upphafi hefur Hrafnista verið leiðandi í þjónustu við aldraða og innleitt fjölda nýjunga á þessu sviði. Fjöldi sveitarfélaga hefur leitað ráða og samstarfs við Hrafnistu, enda búa stjórnendur heimilanna yfir rmikilli þekkingu á þessu sviði. Auk Hrafnistuheimilanna á Sjómannadagsráð og rekur 88 þjónustuíbúðir sem eru leigðar fólki sem náð hefur 60 ára aldri. Um er að ræða íbúðir við Hrafnistuheimilin í Reykjavík og Hafnarfirði. Um þessar mundir vinnur Hrafnista að uppbyggingu víða á höfuðborgarsvæðinu. Líkan sem sýnir hvernig byggð Hrafnistu í Fossvoginum mun líta út. Teikningar af þjónustu- og öryggisíbúðum Hrafnistu í Fossvogi. Afstöðumynd sem sýnir væntanlegar byggingar í Boðaþingi í Kópavogi. Teikningar af hjúkrunarherbergjunum í Boðaþingi.

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.