Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjöldi báta var á Pollinum á Akureyri í gær, sumir að koma
inn til löndunar og aðrir að halda til veiða. Strandveiðar
máttu hefjast á mánudag en strandveiðimenn í Eyjafirði kom-
ust ekki út fyrr en í gær vegna veðurs. Veiðimenn sem rætt
var við í gær töldu að þokkalegt fiskirí hefði verið hjá öllum.
Athygli vakti að þorskurinn var stútfullur af loðnu.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Krökkt af strandveiðibátum á Pollinum þegar loks gaf til veiða
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Svartolíumengun sem skaðað hefur
sjófugla við suðurströndina marar
mögulega í kafi og sést því ekki á
yfirborðinu. Umhverfisstofnun
(UST) skoðar nú í samvinnu við
Landhelgisgæsluna og með aðstoð
haffræðings hjá Hafrannsóknastofn-
un hvort mengunin geti tengst skips-
flaki á hafsbotni. Nokkurn tíma mun
taka að kanna það út frá hafstraum-
um og öðrum nauðsynlegum gögn-
um ásamt upplýsingum um staðsetn-
ingu skipsflaka á svæðinu,
samkvæmt frétt UST.
„Við vonum að það komi fljótlega
eitthvað út úr þessum líkanaútreikn-
ingum og að það geti að minnsta
kosti hjálpað okkur að skilgreina
svæði sem ástæða er til að skoða
nánar,“ segir Sigurrós Friðriksdótt-
ir, teymisstjóri hjá UST.
Fundist hafa yfir 100 olíublautir
fuglar í fjörum í Vestmannaeyjum og
við suðurströndina í vetur. UST hef-
ur fengið flestar tilkynningar um
svartolíublauta fugla á svæðinu frá
Víkurfjöru og vestur fyrir Dyrhóla-
ey, auk Vestmannaeyja. Eins eru
dæmi um olíublauta fugla vestur við
Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Mest
hefur fundist af langvíu og æðarfugli
en líka stöku skarfur og lundi.
Samkvæmt greiningu á sýnum úr
fjöðrum fuglanna er í öllum tilvikum
um sams konar svartolíu að ræða.
Ekki hefur orðið vart svartolíu-
mengunar í fjörum þar sem fuglarnir
hafa fundist. Þá hefur ekki heldur
sést olíumengun á yfirborði sjávar í
flugferðum Landhelgisgæslunnar
yfir svæðið eða á gervitunglamynd-
um frá Siglingaöryggisstofnun Evr-
ópu (EMSA).
Tilmæli um að láta vita
Sigurrós segir að nú sé unnið eftir
þeirri tilgátu að olíumengunin nái
ekki upp á yfirborðið. Fuglategund-
irnar sem hafa lent í svartolíunni
eiga það sameiginlegt að kafa eftir
æti, þótt þær fari misjafnlega djúpt.
Mögulega hafa fuglarnir lent í
olíunni þegar þeir kafa.
Landhelgisgæslan sendi tilmæli til
sjófarenda um að láta vita ef þeir
yrðu varir við olíumengun á þessu
svæði. Engin slík tilkynning hefur
borist enn sem komið er, að sögn
Sigurrósar.
Olíumengunin líklega neðansjávar
Svartolíumengun gæti komið frá skipsflaki Mengunin kann að mara í kafi
Sjófuglar sem kafa eftir æti hafa lent í olíunni Margir fuglanna hafa drepist
Ljósmyndir/Margrét Lilja Magnúsdóttir
Langvía Svartolíublautur fugl og svo eftir hreinsun hjá Sea Life Trust.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra segir ljóst að það hefði verið
mjög gott ef ríkið hefði lokið við sölu á
Íslandsbanka fyrir heimsfaraldur
kórónuveiru sem nú geisar og hefur
haft mikil áhrif á íslenskt efnahagslíf.
Sölu á Íslandsbanka og Lands-
banka hefur verið frestað um óákveð-
inn tíma vegna faraldursins.
„Ég hef verið mjög áfram um að
losa um eignarhlut ríkisins í bankan-
um. Það hafa margir efast en í augna-
blikinu er að minnsta kosti ljóst að það
hefði verið mjög gott að vera búin að
selja,“ segir Bjarni um Íslandsbanka.
Höggið tvöfaldur sáttmáli
Hluta af því sem fengist fyrir Ís-
landsbanka átti að nota til að fjár-
magna samgöngusáttmála höfuð-
borgarsvæðisins. Bjarni segir að þótt
sölu á Íslandsbanka hafi verið frestað
þýði það ekki að forsendur fyrir sátt-
málanum séu brostnar.
„Viðbótarhalli ríkissjóðs er stærri
en tvöfaldur höfuðborgarpakkinn
sem átti að koma til framkvæmda á
næstu tólf árum,“ segir Bjarni um
samgöngusáttmálann.
Þörf er á að yfirfara efnahagsáætl-
un næstu ára og fjármögnun á út-
gjöldum ríkissjóðs vegna faraldursins
að sögn Bjarna. Hann bendir á að
sveitarfélögin hafi
kallað eftir stuðn-
ingi og því óljóst
hvort þau geti far-
ið í þær fjárfest-
ingar sem sam-
göngusáttmálinn
krefst.
Útilokað hefði
verið að fá gott
verð fyrir Íslands-
banka í faraldri.
„Ég held einfaldlega að það sé ekki
tímabært að taka neinar ákvarðanir
um sölu á fjármálafyrirtæki við þess-
ar aðstæður. Ef við ætlum að ávaxta
virði bankans þurfum við að velja
tímasetninguna vel,“ segir Bjarni.
Hefði verið gott að vera
búin að selja Íslandsbanka
Áform um sölu Íslandsbanka og Landsbanka sett á ís
Bjarni
Benediktsson
Sea Life Trust í Vestmanna-
eyjum fékk um 25 olíublauta
fugla til hreinsunar í vetur, þar
af einn úr Reynisfjöru. Um
helmingurinn var mengaður af
svartolíu og sá fyrsti svartolíu-
blauti kom í lok febrúar. Allt
voru það langvíur.
„Það hefur gengið ágætlega
að þrífa fuglana. Við erum með
góða sápu og ágætis aðferðir,“
sagði Margrét Lilja Magnús-
dóttir, líffræðingur hjá Sea Life
Trust. Aðstaða til þrifa er hjá
Þekkingarsetri Vestmannaeyja.
Flestir náðu sér en sumir voru
örmagna eða höfðu fengið olíu í
lungu eða meltingarveg og
drápust. Engir fuglar komu síð-
asta mánuðinn.
Flestum
varð bjargað
OLÍUBLAUTAR LANGVÍUR
00000
www.veidikortid.is
Gleðilegt
veiðisumar!
Fæst hjá N1 - OLÍS og veiðiverslunum