Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Endurbygging elstu hlöðu á Íslandi,
Skjaldbreiðar á Kálfatjörn á Vatns-
leysuströnd, reist af þáverandi ábú-
endum staðarins um 1850 og í notk-
un alveg fram til 1999, er vel á veg
komin og setur hlaðan mikinn svip á
umhverfið eins og hún gerði forðum.
Steinsnar frá stendur Kálfatjarnar-
kirkja, ein stærsta og sumir segja
fallegasta sveitakirkja á Íslandi,
reist 1893. Aðeins er um hálftíma
akstur frá Reykjavík að þessum
forna kirkjustað þar sem menn geta
notið einstakrar náttúru og skoðað
margvíslegar minjar um búskap og
útræði fyrri tíðar. Þar er líka Golf-
klúbbur Vatnsleysustrandar með
eftirsóttan golfvöll.
Forysta áhugamanna
Það er Minja- og sögufélag Vatns-
leysustrandar sem forystu hefur
haft um endurbygginguna. Það er 15
ára gamalt og hefur það að mark-
miði að stuðla að varðveislu minja í
sveitarfélaginu Vogum þar sem íbú-
ar eru rétt um þrettán hundruð.
Skjaldbreið er ekki eina verkefni
félagsins. Það stendur einnig fyrir
endurbótum á Norðurkoti, hinu
gamla skólahúsi Vatnsleysustrand-
ar, byggt 1903. Þá hefur félagið haft
umsjón með viðgerð á gömlum báti,
súðbyrðingi með engeysku lagi sem
smíðaður var á fjórða áratugnum af
bóndanum á Litlabæ, sem var í ná-
grenni Kálfatjarnar. Verkin hafa
verið unnin í samstarfi við sveitar-
félagið og fleiri aðila og notið opin-
berra styrkja.
Jón Ragnar Daðason, húsa- og
bátasmiður, er yfirsmiður endur-
byggingar Skjaldbreiðar. Hann hef-
ur mikla reynslu á þessu sviði, m.a.
unnið fyrir Síldarminjasafnið á
Siglufirði og Minjastofnun. Í samtali
við Morgunblaðið sagði hann að
lengi hefði verið óvissa um hve göm-
ul hlaðan væri en skjöl sem nýlega
fundust í Þjóðskjalasafni sýndu að
hún væri byggð um 1850 og væri því
eldri en hlaðan í Ólafsdal sem talin
hefur verið hin elsta uppistandandi
hér á landi.
Grjótið úr nágrenninu
Steinhleðsla Skjaldbreiðar er
sögð einstök, en hún er tvöföld, þ.e.
ytri og innri og loftbil á milli. Grjótið
mun hafa komið úr næsta nágrenni,
líklega fjörunni, en árið 1926 þegar
fjós var byggt við hlöðuna var suður-
veggur hennar steyptur upp en
grjótið notað til þess að drýgja
steypuna. Nokkur útlitsbreyting
hefur orðið á hlöðunni í tímans rás.
Þannig var settur kvistur á hana
norðanverða 1946 til að auðvelda að-
komu dráttarvélar með hey.
Í desember 2007 fauk þak hlöð-
unnar og hrundi þá einnig suður-
veggur hennar frá 1926. Þetta óhapp
varð til þess að meiri kraftur var
settur í áform um endurbygginguna.
Jón Ragnar segist hafa haft mikla
ánægju af því gera Skjaldbreið upp
og markmiðið sé að þar sé allt í sem
upprunalegasta horfi þegar verkinu
lýkur. En það sé ekki nóg að gera
upp gömul hús, finna verði þeim
hlutverk við hæfi svo ekki sæki allt í
fyrra horf að nýju. Hann sér fyrir
sér að Skjaldbreið gæti að hluta nýst
sem minjasafn um búskap og útræði
á Vatnsleysuströnd fyrr á tíð.
Öflug útgerð var á staðnum um
aldabil, enda fengsæl fiskimið ekki
fjarri ströndinni, og þar bjuggu
margir stöndugir útvegsbændur og
höfðu þeir fjölda fólks í sinni þjón-
ustu. Skjaldbreið væri líka hægt að
nota fyrir fyrirlestra og samkomur,
m.a. í tengslum við kirkjulegar at-
hafnir í Kálfatjarnarkirkju.
Elsta hlaða landsins endurbyggð
Gömul skjöl sýna að hlaðan Skjaldbreið, steinsnar frá Kálfatjarnarkirkju, er byggð um 1850
Eftir endurbygginguna getur hlaðan nýst sem minjasafn og fyrir ýmiss konar samkomuhald
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Endurbygging Verkið er vel á veg komið eins og hér má sjá. Býli Búskapur var á Kálfatjörn til 1999 þegar þessi mynd var tekin.
Vegleg Hleðslan er tvöföld með loftbili á milli, grjótið kemur úr fjörunni.
Bygging Hlaðan, sem
byggð var um 1850,
stendur aðeins spölkorn
frá Kálfatjarnarkirkju á
Vatnsleysuströnd.
Ljósmynd/Aðsend
Morgunblaðið/Björn JóhannLjósmynd/Aðsend
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646