Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Hafnarvogin í Vestmannaeyjum
bilaði með þeim afleiðingum að það
hafði áhrif á niðurstöður vigtunar.
Gögn sýna að veruleg frávik hafi
verið í útreikningum ísprósentu
vegna bilunarinnar og að hún hafi
hugsanlega viðgengist lengur en
Fiskistofa telur. Þetta getur hafa
orðið til þess að upplýsingar sem
notaðar hafa verið við aflaskrán-
ingu hafa verið rangar.
Í svari við fyrirspurn Morgun-
blaðsins vegna málsins segir Fiski-
stofa að samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem stofnunin hafi „biluðu
kraftnemar í hafnarvoginni í Vest-
mannaeyjum í mars sl. og var við-
gerð lokið undir lok sama mán-
aðar. Margt bendir til þess að
bilunin hafi haft áhrif á niðurstöð-
ur hafnarvigtunar að einhverju
leyti. Ljóst er að skekkja í hafn-
arvigtun getur í einhverjum tilvik-
um ruglað íshlutfall við endurvigt-
un sem er mismunur á vigtun á
hafnarvog og niðurstöðu endur-
vigtunar hjá vigtunarleyfishafa.“
En samkvæmt gögnum sem
Morgunblaðið hefur undir höndum
eru dæmi sem sýna að bilunin hafi
komið upp mun fyrr en í mars,
þvert á það sem Fiskistofa segir í
svari sínu. Til að mynda sýndi vigt-
un 15 kara af gullkarfa 28. janúar
með hafnarvog í Vestmannaeyjum
að brúttóvigt (fiskur og ís) hefði
verið 4.130 kíló, þar af 3.728 kíló af
fiski og 402 kíló af ís. Ísprósentan
var því 9,73%.
Níu kör voru tekin til endurvigt-
unar og voru í þeim 465 kíló af ís
sem merkir að samkvæmt hafnar-
voginni ættu þá að vera neikvæð
63 kíló af ís í þeim sex körum sem
ekki voru endurvigtuð en 310 kíló
samkvæmt endurvigtun og nam
því hlutfallið 17,21%. Sama dag
sýndi endurvigtun á þremur kör-
um af löngu 155 kíló af ís en hafn-
arvogin 101 kíló, eða frávik sem
nemur 53%.
Sambærilega sögu er að segja af
vigtun tveggja kara af löngu 22.
febrúar. Þá var brúttóvigt karanna
746 kíló á hafnarvog en 486 kíló við
endurvigtun, nemur því frávikið
53,4%. Mældist ís í körunum 360
kíló, 48,3%, á hafnarvog en 100
kíló, 20,6%, við endurvigtun.
Grundvöllur eftirlits
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafði vigtunarleyfishafi
gert tilraun í febrúar til þess að
koma á framfæri athugasemdum
um stöðu vigtunarmála í Vest-
mannaeyjum, en það var fyrst þeg-
ar starfsmenn Fiskistofu sáu frá-
vikin við yfirstöðu vigtunar í mars,
sem kom til vegna frávikanna, að
uppgötvaðist að frávikin væru
óvenjuleg og málið fyrst þá tekið
til nánari skoðunar.
Hlutfall íss við vigtun skiptir
fyrst og fremst máli hvað varðar
eftirlit með aflaskráningu og geta
mikil frávik í ísprósentu frá með-
altali útgerðar orðið til þess að
hert verði eftirlit með viðkomandi
útgerðaraðila. Þá hafa vigtunartöl-
ur sem sendar eru Fiskistofu frá
hafnarvogum og vigtunarleyfishöf-
um meðal annars verið nýttar til
grundvallar nýlegri skýrslu stjórn-
valda um mat á áreiðanleika end-
urvigtunar, umfangi og ástæðum
frávika og hugsanlegum úrbótum.
Sögðu skýrsluhöfundar frávik í
talnagögnum benda til „skipulags
ofmats íshlutfalls upp á um 1,7%
að meðaltali“.
Byggja á löggildingu
Í ljósi þeirrar bilunar sem varð
og þeirra frávika í vigtun sem
skapaðist í Vestmannaeyjum var
lagt fyrir Fiskistofu hvort það
kynni að vera svo að hafnarvogir í
öðrum höfnum væru með sambæri-
lega bilun án þess að vitað væri af
því. Jafnframt var spurt hvort til-
efni væri til þess að gera ítarlega
úttekt á ástandi hafnarvoga á land-
inu öllu. „Þær vogir sem notaðar
eru til aflaskráningar á Íslandi
hafa fengið löggildingu og á hafn-
arvogum fer sú skoðun fram ár-
lega. Endrum og eins er Fiskistofu
tilkynnt um bilanir sem upp koma í
vigtarbúnaði en að öðru leyti fer
Neytendastofa með lögbundið eft-
irlit með mælitækjum,
Sé vog með gilda löggildingu er
gengið út frá því hún vigti rétt.
Vandséð er hvernig byggja ætti
vigtun og aflaskráningu á annarri
forsendu en þeirri. Vogir eins og
aðrir hlutir geta bilað en þá er það
á ábyrgð eiganda þeirra að tryggja
að þær séu lagaðar og virki rétt,“
segir í svari Fiskistofu.
Ekki áhyggjuefni
Þá var Fiskistofa einnig spurð
hvort almenningur og þeir aðilar
sem heyra undir eftirlit Fiskistofu
gætu gengið að því vísu að vigt-
unartölur væru réttar og hvort
Fiskistofa teldi tilefni til þess að
þeir aðilar sem heyra undir eftir-
litið ykju endurvigtun þannig að
þær sem sæta eftirliti gætu full-
vissað sig um áreiðanleika vigtun-
ar hafnarvoga.
„Fiskistofa byggir ákvarðanir
sínar um eftirlit með löndun og
vigtun afla sem og um yfirstöðu
hjá endurvigtunaraðilum á gagna-
söfnun og áhættugreiningu og mið-
ar að því að veita virkt aðhald þar
sem líkur eru mestar á að þörf sé
fyrir eftirlit og að það skili ár-
angri. Sem betur fer eru bilanir í
löggiltum vogum fátíðar og upp-
götvast fljótt. Það er ekki ástæða
til að hafa áhyggjur af því að bilun
í hafnarvoginni í Vestmannaeyjum
í nokkra daga hafi valdið mark-
tækum breytingum í starfi Fiski-
stofu og dregið úr árangri við eft-
irlit,“ svarar Fiskistofa.
Skekkjur í grundvelli eftirlits
Biluð hafnarvog í Vestmannaeyjum olli miklum skekkjum við vigtun Gögn sýna að bilunin kom upp
mun fyrr en haldið er fram Bilanir uppgötvast fljótt, segir Fiskistofa Mældi neikvæð 63 kíló af ís
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Eftirlit Íshlutfall við endurvigtun og vigtun hafnarvogar er meðal helstu gagna sem notuð eru við eftirlit Fiskistofu
og mat á hugsanlegu svindli í vigtunarmálum. Biluð vog kann að hafa leitt til þess að eftirlit var hert.
Afurðaverð á markaði
5. maí 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 258,41
Þorskur, slægður 277,87
Ýsa, óslægð 395,84
Ýsa, slægð 263,00
Ufsi, óslægður 79,38
Ufsi, slægður 98,48
Gullkarfi 185,57
Blálanga, slægð 174,00
Langa, óslægð 112,18
Langa, slægð 85,07
Keila, óslægð 28,00
Keila, slægð 68,77
Steinbítur, óslægður 40,00
Steinbítur, slægður 101,03
Skötuselur, slægður 391,21
Skarkoli, óslægður 92,69
Skarkoli, slægður 158,09
Þykkvalúra, slægð 341,00
Langlúra, óslægð 142,98
Bleikja, flök 1.487,69
Gellur 922,80
Hlýri, slægður 95,30
Hrogn/þorskur 16,00
Kinnfiskur þorskur 750,00
Lúða, slægð 593,17
Lýsa, slægð 48,47
Skata, slægð 119,48
Undirmálsýsa, óslægð 125,91
Undirmálsþorskur, óslægður 60,00
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ