Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI KOMIN AFTUR Í BÍÓ TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN ! Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Leikstjórinn Baldvin Z og sam- starfsfólk hans hjá framleiðslufyrir- tækinu Glassriver hefur í nógu að snúast nú í miðju kórónuveirukóf- inu. Þar á bæ eru nokkrar sjón- varpsþáttaseríur á ólíkum fram- leiðslustigum. „Covid-ástandið stoppaði töku- tímabilið hjá okkur sem átti að fara af stað í lok mars og byrjun maí. Allt fraus, allur undirbúningur stoppaði, skrif- stofunni var lok- að og við fórum heim. En við byrjum núna um miðjan mánuð og förum í tökur á seríu sem kallast Júrógarðurinn sem er sería eftir Arnór Pálma Arnarson sem gerði Ligeglad, Hæ Gosi og nú síðast Ráðherrann ásamt Önnu Svövu Knútsdóttur, Dóra DNA, Steinda Jr. og Audda Blöndal. Þættirnir gerast í Húsdýragarðinum og eru mjög skemmtilegt konsept, fyndið en líka mikil dramatík,“ segir Bald- vin. Leikstýrir þáttum með Víkingi og Ólafi Darra Baldvin er sjálfur að fara í tökur á lítilli, kósí seríu, Vegferðinni, í lok júní. „Hún er eftir Víking Kristjáns- son og hann og Ólafur Darri Ólafs- son fara þar með stærstu hlut- verkin. Þetta er nánast tveggja manna sería en ekki alveg, eitthvað af gestaleikurum líka og allt annað konsept en ég hef verið að gera hingað til, í léttari kantinum. Svo erum við að fara í Venjulegt fólk 3, tökum hana á svipuðum tíma og Vegferðina. Í maí erum við líka að fara í verkefni sem fæddist í Covid- ástandinu,“ segir Baldvin og á þar við sjónvarpsþættina Sápan sem hefja bráðum göngu sína á Stöð 2. Voru svartsýn á framhaldið Baldvin er spurður að því hvort óvenjumörg verkefni séu nú í píp- unum hjá Glassriver, í ljósi þess- arar löngu upptalningar. „Já, við lentum í smááfalli á síðasta ári þegar stórt verkefni sem við vor- um að fara í stöðvaðist út af sam- starfsslitum við erlendan aðila. Verkefnið stöðvaðist og við vorum svolítið svartsýn á framhaldið eftir það, vorum búin að setja öll okkar egg í þessa körfu. Þannig að við fórum bara á fullt, að búa til verk- efni og draga að okkur hæfileika- fólk. Afraksturinn af því mun koma í ljós næstu tvö árin, það eru mörg spennandi verkefni fram undan hjá okkur og svo fleiri í haust og næsta vor.“ – Þau tengjast ekki Netflix eða öðrum veitum? „Nei, ekkert af þeim sem eru að koma núna út en svo eru stærri verkefni í burðarliðnum í haust og næsta vor, stærri að umfangi. Við þorum ekki að segja mikið um þau,“ segir Baldvin. Aukin eftirspurn og hraði – Það virðist vera mikil gósentíð í sjónvarpsþáttagerð? „Já, bæði hafa veitur og sjón- varpsstöðvar keyrt hraðar á efnið sitt út af ástandinu af því að áskrifendur sogast að sjónvarpi þessa dagana og mánuðina. Eftir- spurnin eftir nýju efni hefur aukist mjög mikið en auglýsingasjón- varpsstöðvar ströggla kannski meira en áskriftarsjónvarps- stöðvar og -veitur,“ svarar Baldvin og bætir við að þættirnir Jarðar- förin mín, sem Glassriver fram- leiddi, hafi líka gengið mjög vel og notið mikils áhorfs um páskana. Laddi er þar í aðalhlutverki og það dramatísku. Baldvin segir starfsmenn Glassriver mjög framtakssama. En samkomubannið hlýtur að hafa sett strik í reikninginn, eða hvað? Jú, sem fyrr segir voru tökur áætlaðar en Baldvin segir sam- komubannið ekki hafa stöðvað Glassriver. „Við fórum bara í það að kynna sjónvarpsstöðvum hug- myndir sem við gætum gert í samkomubanninu, sem fylgdu þeim reglum og við förum í tökur núna í maí á þeim verkefnum, sem er kærkomið eftir frostið undanfarna tvo mánuði,“ segir Baldvin. Sápa í maí Eitt af þeim verkefnum er Sáp- an, „Sitcom-sápu-murder mystery- drama-comedy“, eins og Baldvin lýsir því, sem verður á hverjum föstudegi í maí á Stöð 2. Þáttunum verður leikstýrt af Fannari Sveins- syni og aðalhlutverk verða í hönd- um Jóhannesar Hauks Jóhannes- sonar, Kötlu Margrétar Þorgeirs- dóttur, Arons Más Ólafssonar og Arnars Jónssonar. „Þetta er algjör snilld, tilraun hjá okkur til þess að gera „soap- com“-þætti í setti, nánast í raun- tíma,“ segir Baldvin. Þættirnir verði teknir upp sama dag og þeir verða sýndir. „Allt getur klikkað,“ segir Baldvin um sjónvarpsþætt- ina. Dýrð í dauðaþögn sú næsta Baldvin segir Glassriver hafa nýtt stöðvunina, verkefnaþurrð og samkomubann til að fara í þessa hugmyndavinnu í gegnum fjar- fundarbúnað og afraksturinn, eftir að Stöð 2 kom inn, sé mikil vinna fyrir bransann þegar frostinu lýk- ur. En hvernig er með næstu kvik- mynd hans, hvað er að frétta af henni? „Hugmyndin er alla vega komin á blað og við erum búnir að senda inn fyrir fyrsta handritsstyrk. Við vorum í heilt ár að skrifa það, ég og Elías Kofoed-Hansen. Við erum búnir að vera með konsept í þróun á milli okkar í heilt ár ásamt fjór- um aðalleikurum myndarinnar. Mikil vinna fór í að móta þessa pælingu okkar. Myndin kallast Dýrð í dauðaþögn, ég virðist alltaf enda með eitthvað tónlistartengt í titlum kvikmyndanna minna,“ segir Baldvin kíminn, en fyrsta breið- skífa Ásgeirs Trausta ber einmitt þann titil. Á fullt stím í kófinu Sápan Aron Már Ólafsson, sem kallar sig Aron Mola, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leika í Sápunni. Morgunblaðið/Golli Samstarfsmenn Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Víkingur Krist- jánsson í hljóðveri K100 þar sem þeir voru með útvarpsþátt árið 2017.  Sjónvarpsþátta- og kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Glassriver með nokkur verkefni í framleiðslu  Tökur eru fram undan á Júragarðinum, Vegferðinni, Venjulegu fólki 3 og Sápunni Baldvin Z
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.