Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 ER BROTIÐ Á ÞÉR? Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur. Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst. Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn. HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT. botarettur.is Arion banki tapaði 2.171 milljón króna á fyrstu þremur mánuðum ársins og jafngildir það neikvæðri arðsemi á eiginfé bankans upp á 4,6%. Tap af áframhaldandi starf- semi Arion banka var 1.282 milljónir og felur það í sér neikvæða arðsemi á eigið fé upp á 2,7%. Á sama tíma- bili í fyrra var afkoma bankans já- kvæð sem nam 1.018 milljónum króna. Þrír þættir höfðu mest að segja um hina neikvæðu afkomu á fjórð- ungnum nú. Hreinar fjármunatekjur voru neikvæðar um tvo milljarða króna, einkum vegna gangvirðis- breytinga hlutabréfa vegna óhag- stæðrar þróunar á mörkuðum, hrein virðisbreyting var neikvæð um 2.860 milljónir, einkum vegna forsendna sem fram komu í IFRS 9-líkönum sem bankinn styðst við en þar hefur vænt þróun um aukið atvinnuleysi og verri horfur í ferðaþjónustu haft neikvæð áhrif. Þá hafði aflögð starf- semi, þ.e. starfsemi sem bankinn er með í söluferli, einnig mikil neikvæð áhrif og námu þau 889 milljónum króna vegna þriggja dótturfélaga. Dótturfélög þung í skauti Líkt og í fyrra hefur starfsemi greiðslukortafyrirtækisins Valitor verulega neikvæð áhrif á afkomu bankans. Þannig nemur hlutdeild bankans í tapi fyrirtækisins á fyrsta fjórðungi 900 milljónum króna en í fyrra nam tapið á sama fjórðungi 1.219 milljónum. Arion banki hefur um langt skeið stefnt að sölu fyrir- tækisins en ekki gengið. Í bókum bankans hefur endurmat á eignum félagsins Stakksbergs ehf. sem fer með eignarhlut bankans í United Silicon jákvæð áhrif upp á 413 millj- ónir króna. Það sem dregur hins vegar afkomuna enn frekar niður er tap af félaginu Sólbjarg ehf. en það heldur utan um eign Arion banka í TravelCo hf. sem bankinn tók yfir í júní 2019. Nemur tapið af þeim eign- arhlut 402 milljónum króna. Heild- areignir bankans námu 1.188 millj- örðum króna í lok marsmánaðar en voru 1.082 milljarðar í árslok 2019. Laust fé bankans jókst þar sem horfið var frá 10 milljarða arð- greiðslu, þá gaf bankinn út skulda- bréf undir viðbótareiginfjárþætti 1 í febrúar og innlán jukust yfir tímabil- ið um 9,4% og segir bankinn að það helgist af því að hann hafi lagt aukna áherslu á þau við fjármögnun sína. Benedikt Gíslason bankastjóri segir í tilkynningu að fjárhagsleg mark- mið bankans hafi ekki breyst „þótt mögulega sé lengra í að þau náist“. Tap Arion banka nam 2,2 milljörðum króna Morgunblaðið/Eggert Taprekstur Dótturfélög Arion banka hafa reynst honum þung í skauti.  Arðsemi eiginfjár -4,6%  Eiginfjárhlutfallið hækkar Sterk staða » Heildar eiginfé bankans var 184 milljarðar í lok mars. » Lækkaði um sex milljarða vegna kaupa á eigin bréfum. » Eiginfjárhlutfall er 27,5% en var 24% í árslok 2019. » Eiginfjárgrunnur óx um 23,3 milljarða frá áramótum, eink- um vegna 100 milljóna dollara skuldabréfafútboðs og frest- unar arðgreiðslu. áskorunum sem alheimsfaraldur veldur. Þá segir hún að aðgerðir eins og tímabundin frestun afborgana og vaxta af lánum hafi verið kynntar. Ennfremur segir Birna að rekstrar- niðurstaða bankans á fjórðungnum sé lituð af neikvæðri virðisrýrnun og tapi af veltubók verðbréfa og niður- færslu eigna í fjárfestingarbók. „Arð- semi eigin fjár er undir markmiði sem skýrist af aðstæðum í kjölfar Co- vid-19-faraldursins sem eiga sér enga hliðstæðu,“ segir Birna. Hún segir að það sé þó ánægjulegt að sjá að rekstrarkostnaður á fyrsta ársfjórðungi lækki um 8,4% á milli ára og einnig að vaxtatekjur hafi auk- ist um 8,1% á milli ára. 57 milljarða ný útlán Ný útlán bankans á tímabilinu námu 57 milljörðum króna, og innlán jukust um 4,8% frá árslokum sam- kvæmt tilkynningunni. Þau eru enn sem áður meginstoð fjármögnunar bankans, eins og einnig kemur fram í tilkynningunni. tobj@mbl.is Tap af rekstri Íslandsbanka var tæp- ir 1,4 milljarðar króna á fyrsta fjórð- ungi þessa árs, en hagnaður á sama tíma á síðasta ári var 2,6 milljarðar. Munar þar mestu um að virðisbreyt- ing útlána var neikvæð um 3.490 milljónir króna á fjórðungnum, sam- anborið við 907 milljónir yfir sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri bankans sem birt var í gær eftir lokun markaða. Heildareignir bankans námu í lok tímabilsins 1.255 milljörðum króna og jukust á milli ára, en þær voru 1.199 milljarðar á sama tíma á síðasta ári. Aukningin nemur 4,7% milli ára. Eigið fé Íslandsbanka jókst um 3,4% milli ára. Það var 179,5 milljarðar í lok fjórðungsins en 173,6 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Heildareigin- fjárhlutfall bankans var 21,9% í lok mars, samanborið við 22,4% í lok árs 2019, sem er, eins og fram kemur í til- kynningu bankans, vel umfram 17% kröfu eftirlitsaðila. Þá segir í tilkynn- ingunni að arðsemi eiginfjár bankans hafi verið -3,0% á ársgrundvelli en 5,9% á sama tíma í fyrra. Þegar skoðaðar eru tekjur bank- ans þá voru hreinar vaxtatekjur 8,6 milljarðar króna, sem er 8,1% meiri tekjur en á sama tíma á síðasta ári þegar vaxtatekjurnar námu 7,9 millj- örðum. Hreinar þóknanatekjur voru 2,5 milljarðar króna og lækkuðu um 5,9% milli ára, en þær voru 2,6 millj- arðar á sama tíma í fyrra. Hreyfiafl góðra verka Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís- landsbanka, segir í tilkynningu að bankinn hafi með hlutverki sínu að vera hreyfiafl til góðra verka skuld- bundið sig til að vinna náið með við- skiptavinum og styðja við þá í þeim Tap Íslands- banka 1,4 ma.  Fyrsta tap á fjórðungi frá 2011 Morgunblaðið/Eggert Bankarekstur Eiginfé Íslandsbanka jókst um 3,4% milli ára. Fjármál » Eignir Íslandsbanka jukust milli ára og nema nú 1.255 milljörðum króna. » Eiginfjárhlutfall bankans var 21,9% í lok mars. » Fjárhagsstaða Íslandsbanka er sterk. » Lausafjárhlutföll í erlendum og innlendum gjaldmiðlum vel yfir innri og ytri markmiðum. 7. maí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 147.06 Sterlingspund 183.21 Kanadadalur 104.63 Dönsk króna 21.377 Norsk króna 14.282 Sænsk króna 14.595 Svissn. franki 151.61 Japanskt jen 1.3776 SDR 200.67 Evra 159.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.783 Hrávöruverð Gull 1696.3 ($/únsa) Ál 1437.0 ($/tonn) LME Hráolía 28.1 ($/fatið) Brent ● Rúmur fjórðungur stjórnarmanna ís- lenskra fyrirtækja, sem skráð eru í hluta- félagaskrá og greiða laun, voru konur í lok árs 2019 eða 26,5%. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar. Hlut- fall kvenna í stjórnum fyrirtækja var á bilinu 21,3% til 22,3% á árabilinu 1999- 2005. Hækkaði það hins vegar í 25,5% árið 2014 og hefur verið um 26% síð- ustu ár. Í fyrra voru 34,7% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 launþega eða fleiri konur. Er hlutfallið 1,1 prósentustigi hærra en árið 2018. Til samanburðar nefnir Hagstofan að hlutfall kvenna í stórum fyrirtækjum var aðeins 12,7% ár- ið 2007 og 9,5% árið 1999. Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyr- irtækja með fleiri en 50 starfsmenn og öðluðust þau að fullu gildi í september 2013. Því hefur enn ekki tekist að upp- fylla lágmarkskröfur löggjafarinnar. Hlut- fall kvenna í stjórnum fyrirtækja með færri en 50 launþega var 26,1% á árinu 2019 og hækkaði um 0,2 prósentustig frá fyrra ári. Hlutfall kvenna í stöðu fram- kvæmdastjóra hækkaði lítillega milli ára og var 23%. Þannig birtist hægfara fjölg- un þeirra hlutfallslega allt frá árinu 1999. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna félaga var 24,3% árið 2019. Kynjahlutfallið þokast hægt upp á við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.