Morgunblaðið - 07.05.2020, Side 26

Morgunblaðið - 07.05.2020, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Hafnarvogin í Vestmannaeyjum bilaði með þeim afleiðingum að það hafði áhrif á niðurstöður vigtunar. Gögn sýna að veruleg frávik hafi verið í útreikningum ísprósentu vegna bilunarinnar og að hún hafi hugsanlega viðgengist lengur en Fiskistofa telur. Þetta getur hafa orðið til þess að upplýsingar sem notaðar hafa verið við aflaskrán- ingu hafa verið rangar. Í svari við fyrirspurn Morgun- blaðsins vegna málsins segir Fiski- stofa að samkvæmt þeim upplýs- ingum sem stofnunin hafi „biluðu kraftnemar í hafnarvoginni í Vest- mannaeyjum í mars sl. og var við- gerð lokið undir lok sama mán- aðar. Margt bendir til þess að bilunin hafi haft áhrif á niðurstöð- ur hafnarvigtunar að einhverju leyti. Ljóst er að skekkja í hafn- arvigtun getur í einhverjum tilvik- um ruglað íshlutfall við endurvigt- un sem er mismunur á vigtun á hafnarvog og niðurstöðu endur- vigtunar hjá vigtunarleyfishafa.“ En samkvæmt gögnum sem Morgunblaðið hefur undir höndum eru dæmi sem sýna að bilunin hafi komið upp mun fyrr en í mars, þvert á það sem Fiskistofa segir í svari sínu. Til að mynda sýndi vigt- un 15 kara af gullkarfa 28. janúar með hafnarvog í Vestmannaeyjum að brúttóvigt (fiskur og ís) hefði verið 4.130 kíló, þar af 3.728 kíló af fiski og 402 kíló af ís. Ísprósentan var því 9,73%. Níu kör voru tekin til endurvigt- unar og voru í þeim 465 kíló af ís sem merkir að samkvæmt hafnar- voginni ættu þá að vera neikvæð 63 kíló af ís í þeim sex körum sem ekki voru endurvigtuð en 310 kíló samkvæmt endurvigtun og nam því hlutfallið 17,21%. Sama dag sýndi endurvigtun á þremur kör- um af löngu 155 kíló af ís en hafn- arvogin 101 kíló, eða frávik sem nemur 53%. Sambærilega sögu er að segja af vigtun tveggja kara af löngu 22. febrúar. Þá var brúttóvigt karanna 746 kíló á hafnarvog en 486 kíló við endurvigtun, nemur því frávikið 53,4%. Mældist ís í körunum 360 kíló, 48,3%, á hafnarvog en 100 kíló, 20,6%, við endurvigtun. Grundvöllur eftirlits Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafði vigtunarleyfishafi gert tilraun í febrúar til þess að koma á framfæri athugasemdum um stöðu vigtunarmála í Vest- mannaeyjum, en það var fyrst þeg- ar starfsmenn Fiskistofu sáu frá- vikin við yfirstöðu vigtunar í mars, sem kom til vegna frávikanna, að uppgötvaðist að frávikin væru óvenjuleg og málið fyrst þá tekið til nánari skoðunar. Hlutfall íss við vigtun skiptir fyrst og fremst máli hvað varðar eftirlit með aflaskráningu og geta mikil frávik í ísprósentu frá með- altali útgerðar orðið til þess að hert verði eftirlit með viðkomandi útgerðaraðila. Þá hafa vigtunartöl- ur sem sendar eru Fiskistofu frá hafnarvogum og vigtunarleyfishöf- um meðal annars verið nýttar til grundvallar nýlegri skýrslu stjórn- valda um mat á áreiðanleika end- urvigtunar, umfangi og ástæðum frávika og hugsanlegum úrbótum. Sögðu skýrsluhöfundar frávik í talnagögnum benda til „skipulags ofmats íshlutfalls upp á um 1,7% að meðaltali“. Byggja á löggildingu Í ljósi þeirrar bilunar sem varð og þeirra frávika í vigtun sem skapaðist í Vestmannaeyjum var lagt fyrir Fiskistofu hvort það kynni að vera svo að hafnarvogir í öðrum höfnum væru með sambæri- lega bilun án þess að vitað væri af því. Jafnframt var spurt hvort til- efni væri til þess að gera ítarlega úttekt á ástandi hafnarvoga á land- inu öllu. „Þær vogir sem notaðar eru til aflaskráningar á Íslandi hafa fengið löggildingu og á hafn- arvogum fer sú skoðun fram ár- lega. Endrum og eins er Fiskistofu tilkynnt um bilanir sem upp koma í vigtarbúnaði en að öðru leyti fer Neytendastofa með lögbundið eft- irlit með mælitækjum, Sé vog með gilda löggildingu er gengið út frá því hún vigti rétt. Vandséð er hvernig byggja ætti vigtun og aflaskráningu á annarri forsendu en þeirri. Vogir eins og aðrir hlutir geta bilað en þá er það á ábyrgð eiganda þeirra að tryggja að þær séu lagaðar og virki rétt,“ segir í svari Fiskistofu. Ekki áhyggjuefni Þá var Fiskistofa einnig spurð hvort almenningur og þeir aðilar sem heyra undir eftirlit Fiskistofu gætu gengið að því vísu að vigt- unartölur væru réttar og hvort Fiskistofa teldi tilefni til þess að þeir aðilar sem heyra undir eftir- litið ykju endurvigtun þannig að þær sem sæta eftirliti gætu full- vissað sig um áreiðanleika vigtun- ar hafnarvoga. „Fiskistofa byggir ákvarðanir sínar um eftirlit með löndun og vigtun afla sem og um yfirstöðu hjá endurvigtunaraðilum á gagna- söfnun og áhættugreiningu og mið- ar að því að veita virkt aðhald þar sem líkur eru mestar á að þörf sé fyrir eftirlit og að það skili ár- angri. Sem betur fer eru bilanir í löggiltum vogum fátíðar og upp- götvast fljótt. Það er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því að bilun í hafnarvoginni í Vestmannaeyjum í nokkra daga hafi valdið mark- tækum breytingum í starfi Fiski- stofu og dregið úr árangri við eft- irlit,“ svarar Fiskistofa. Skekkjur í grundvelli eftirlits  Biluð hafnarvog í Vestmannaeyjum olli miklum skekkjum við vigtun  Gögn sýna að bilunin kom upp mun fyrr en haldið er fram  Bilanir uppgötvast fljótt, segir Fiskistofa  Mældi neikvæð 63 kíló af ís Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Eftirlit Íshlutfall við endurvigtun og vigtun hafnarvogar er meðal helstu gagna sem notuð eru við eftirlit Fiskistofu og mat á hugsanlegu svindli í vigtunarmálum. Biluð vog kann að hafa leitt til þess að eftirlit var hert. Afurðaverð á markaði 5. maí 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 258,41 Þorskur, slægður 277,87 Ýsa, óslægð 395,84 Ýsa, slægð 263,00 Ufsi, óslægður 79,38 Ufsi, slægður 98,48 Gullkarfi 185,57 Blálanga, slægð 174,00 Langa, óslægð 112,18 Langa, slægð 85,07 Keila, óslægð 28,00 Keila, slægð 68,77 Steinbítur, óslægður 40,00 Steinbítur, slægður 101,03 Skötuselur, slægður 391,21 Skarkoli, óslægður 92,69 Skarkoli, slægður 158,09 Þykkvalúra, slægð 341,00 Langlúra, óslægð 142,98 Bleikja, flök 1.487,69 Gellur 922,80 Hlýri, slægður 95,30 Hrogn/þorskur 16,00 Kinnfiskur þorskur 750,00 Lúða, slægð 593,17 Lýsa, slægð 48,47 Skata, slægð 119,48 Undirmálsýsa, óslægð 125,91 Undirmálsþorskur, óslægður 60,00 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.