Morgunblaðið - 07.05.2020, Side 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2020
„FLJÓTUR, SKELLTU HENNI Á ÞIG. ÞAÐ ER
EINHVER AÐ KOMA!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... þegar það er
föstudagur með þér.
HEYRÐU … ÉG HEF
EKKERT AÐ
GERA
ÞARFTU
HJÁLP?
ÞÚ ERT ÓSKÖP HLJÓÐUR …
HVAÐ ERTU AÐ HUGSA UM?
UM MÁLEFNI
andans!
SVONA, SVONA! ÞÚ
ÞARFT EKKERT AÐ
FARA HJÁ ÞÉR þótt
þú sért andfúll!
„KONAN FÓR FRÁ MÉR. NÚ HEF ÉG
ENGAN TIL AÐ TALA NIÐUR TIL.”
fá nánustu ættinga í heimsókn í
þessu samkomubanni.
Fjölskylda
Eiginkona Péturs Gauta er Magn-
ea Tómasdóttir, f. 10.3. 1969, söng-
kona og tónlistarkennari. Þau eru
búsett í Kópavogi. Foreldrar Magn-
eu voru hjónin Tómas Grétar Óla-
son, f. 11.2. 1935, d. 4.10. 2015, verk-
taki, og Guðlaug Gísladóttir, f. 22.11.
1935, d. 23.9. 2008, húsfreyja. Þau
voru búsett í Kópavogi.
Börn Péturs Gauta og Magneu
eru Hallgrímur Orri Pétursson, f.
12.12. 2007, og Kolbeinn Tumi
Pétursson, f. 18.1. 2010.
Bræður Péturs Gauta eru Borgar
Valgeirsson, f. 4.2. 1968, slökkviliðs-
maður, búsettur í Reykjavík; Jón
Valgeirsson, f. 21.1. 1974, lyfjafræð-
ingur, búsettur í Reykjavík, og Gísli
Valgeirsson, f. 8.11. 1984, íslensku-
fræðingur, búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Péturs Gauta eru Val-
geir Bjarni Borgarsson, f. 3.2. 1935,
skipasmiður, búsettur í Njarðvík, og
Sólveig Pétursdóttir, f. 2.9. 1944,
húsmóðir, búsett í Kópavogi. Þau
eru skilin.
Pétur Gauti
Valgeirsson
Kristín Sigríður Sveinsdóttir
húsfreyja á Reykjum og víðar
Bjarni Kristmundsson
bóndi á Reykjum í
Tungusveit og víðar í
Skagafirði
Gísliana Bjarnveig Bjarnadóttir
húsfreyja á Gautlöndum
Pétur Gauti Pétursson
bóndi á Gautlöndum í Mývatnssveit
Sólveig Pétursdóttir
húsmóðir í Kópavogi
Solveig Pétursdóttir
húsfreyja á Gautlöndum,
dóttir Péturs ráðherra,
sonar Jóns Sigurðssonar
frá Gautlöndum
Pétur Jónsson
bóndi á Gautlöndum
Sigurgeir Pétursson
einn þremenninganna sem
sprengdu stífluna í Laxá
Kristmundur Bjarnason
héraðskjalavörður, rithöfundur og
fræðimaður á Sjávarborg, Skag.
Valgerður Einarsdóttir
húsfreyja á Skarði, barnabarn
Torfa Einarssonar, alþm. á Kleifum
Bjarni Jónsson
bóndi á Skarði í Bjarnarfirði
Soffía Bjarnadóttir
húsfreyja á Hólmavík og í Njarðvík
Borgar Sveinsson
verslunarmaður á Hólmavík og skrifstofu-
maður hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur
Guðlaug Magnúsdóttir
húsfreyja á Kirkjubóli
Sveinn Sveinsson
bóndi á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð
Úr frændgarði Péturs Gauta Valgeirssonar
Valgeir Bjarni Borgarsson
skipasmiður í Njarðvík
Jón Ingvar Jónsson orti þessarskemmtilegu vísur um páska-
vikuna 2020:
Páskavikan var mér ei
vond að þessu sinni.
Víða flaug með Wow og Play
í veröldinni minni.
Öll var ferðin ansi cool,
unun hrein að chilla.
Ég sá líka Liverpool
leggja Aston Villa.
Enda gekk mér allt í hag,
aðeins fátt hér nefni.
Saup af elju sérhvern dag
sótthreinsandi efni.
Víða grétu vífin nett
við mér fús að taka
er mig flutti Easy Jet
aftur heim til baka.
Ólafur Stefánsson svaraði og
bætti við:
Hvítasunnan kemur og fer,
kanna vil ég málið,
Hvort hjá þeim í Icelandair,
allt er sopið kálið.
Eins ef fílar öskumökk
og arka vilt um fjöllin,
eru bestir Arctic Truck,
að eiga mix við tröllin.
Enn í sporin Ingvars Jóns,
oft er gott að tifa,
og megi Iceland Excursions
áfram ná að lifa.
Tómas Tómasson fer með „hug-
leiðingu um Trump sóttvarnafröm-
uð“:
Við oss blasir vandi stór
víst mun þarna læknir.
Eys nú mörgum yfir klór
alheims ræstitæknir.
Ágúst H. Bjarnason sagði um
Stephan G. Stephansson, að hann
hefði verið „frjálsthugsandi maður
og trúlítill, svona á almenna vísu, ef
nokkuð má marka vísu þá, sem
hann orti endur fyrir löngu (1875)“:
Í æsku tók ég eins og barn
alheimskunnar trúna.
Með aldri varð ég efagjarn,
engu trúi eg núna.
Ég rakst á þessa stöku míns
gamla og ógleymanlega skrift-
arkennara í Laugarnesskólanum
Hjartar Kristmundssonar í Odd-
fellowblaðinu:
Árin tifa, öldin rennur
ellin rifar seglin hljóð.
Fennir yfir orðasennur
eftir lifir minning góð.
Síra Ögmundur Sigurðsson orti:
Að þú verðir ærulaus
ekki það ég segi.
En þjófs eru augu í þínum haus
það bregst mér samt eigi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margt ber við á langri leið
Vefverslun
rún.is
UM
T
T
nverslun
VÖNDUÐ OG FALLE
DÖNSK TÍSKUVARA
SEND
FRÍTM LAND ALL
G
run.is