Morgunblaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 4
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra afhenti lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu nýja
landamærabifreið í gær.
Bæði dómsmálaráðuneytið og
innri öryggissjóður lögreglunnar
standa straum af bifreiðinni, að
sögn Áslaugar.
Bifreiðin er býsna tæknivædd og
sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Hún er komin hingað til lands
vegna kröfu frá Schengen um eflt
eftirlit á höfnum höfuðborgarsvæð-
isins og Reykjavíkurflugvelli, að
sögn Áslaugar.
„Hér er um að ræða eina bifreið
sem getur sinnt öllum þeim kröfum
sem eru um landamæraeftirlit á
stór-höfuðborgarsvæðinu. Fyrir ör-
fáum árum gerði Schengen úttekt
hérlendis sem hafði í för með sér at-
hugasemdir um eftirlitið.
Ákveðið var að bregðast við at-
hugasemdunum með einni bifreið
sem gæti þá sinnt landamæraeft-
irliti með öflugum hætti hér á stór-
höfuðborgarsvæðinu og hjálpað til í
löggæslu þegar farið er að athuga
ferðaskilríki og annað,“ segir Ás-
laug.
Í bifreiðinni er meðal annars að
finna búnað sem sker úr um það
hvort ferðaskilríki séu gild eða föls-
uð en Jóhann Karl Þórisson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu, kynnti
Áslaugu bílinn í gær og sýndi henni
hvernig bíllinn myndi nýtast landa-
mæraeftirlitinu.
Áslaug segir aðspurð að það sé
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afhending Sigríður B. Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri, Áslaug, Jóhann K. Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn,
Hulda E. Björgvinsdóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Ásgeir Þ. Ásgeirsson yfirlögregluþjónn.
Fengu nýja landamæra-
bifreið vegna Schengen
Dómsmálaráðu-
neytið greiðir fyr-
ir hluta bílsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landamærabíll Áslaug Arna fékk ítarlega sýningu á bílnum sem er sá fyrsti
sinnar tegundar hérlendis. Honum er ætlað að sinna landamæraeftirliti.
ekki venjan að dómsmálaráðherra
afhendi lögreglunni bifreiðar.
„Þetta er auðvitað sérstakt verk-
efni og dómsmálaráðuneytið kom
sérstaklega að kostnaði á þessum
bíl þar sem þetta er úttekt sem er
reglulega gerð af Schengen.“
Nú á frekari vinna sér stað vegna
úttektar Schengen.
„Nú um stundir eru lagabreyt-
ingar í þinginu sem miðast að því að
uppfylla breytingar vegna sömu
Schengen-úttektar,“ segir Áslaug.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
COVID-19, alþjóðlega heitið á þeim
sjúkdómi sem kórónuveiran veldur,
hefur stimplað sig inn í málvitund
Íslendinga. En þótt flestir viti merk-
ingu orðsins er deilt um ritháttinn.
Á ensku nefnist sjúkdómurinn
coronavirus disease 2019. Misjafnt
er hvernig fjölmiðlar heims hafa rit-
að skammstöfunina. Þannig hafa
sumir notast við COVID, aðrir
Covid og enn aðrir covid. Þá hefur
jafnvel CoviD sést á blaði.
Jóhannes B. Sigtryggsson, rann-
sóknarlektor á málræktarsviði
Stofnunar Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum, segir stundum
enga eina góða lausn í augsýn.
Nauðsynlegt sé þó að velja einn rit-
hátt til að tryggja stöðugleika.
„Þetta er dálítið vandræðaorð og
reglur um skammstafanir eru ekki
eins hjá okkur og í ensku. Það má
kannski líkja þessu við SARS sem
líka var stytt í HABL á sínum tíma.
Það var ritað með hástöfum en
kannski aðeins einfaldara því SARS
stendur fyrir Severe Acute
Respiratory Syndrome en í tilfelli
COVID eru stafirnir C og D upp-
hafsstafir orða. Að rita COVID með
hástöfum er skásta leiðin,“ segir
hann og bendir á að ekki séu ritaðir
punktar í skammstöfunum sem rit-
aðar eru með hástöfum, s.s. HÍ,
BHM, HABL og SARS.
Þá segir Jóhannes læknisfræðileg
hugtök almennt rituð með litlum
upphafsstaf, óháð því hvort þau eru
dregin af sérheiti eða ekki. Dæmi
um þetta er asíuflensa, stokkhólms-
heilkennið og stórabóla. COVID sé
hins vegar skammstöfun og fellur
því ekki undir þá reglu.
Á samfélagsmiðlum leggja menn
yfirleitt áherslu á orð sín með því að
rita þau í hástöfum, eins konar öskur
í netheimum. „En ef menn vilja
fylgja ritreglum þá er engin önnur
góð lausn en að nota hástafi.“
Ritað COVID, Covid, covid eða CoviD?
Morgunblaðið/Eggert
Varnarbúnaður Mjög hefur dregið úr smitum kórónuveiru hér á landi.
Alþjóðlegt sjúkdómsheiti veldur nokkrum vandræðum á lyklaborðum blaðamanna Vilji menn
fylgja ritreglum er engin önnur góð lausn en að nota hástafi, segir rannsóknarlektor á málræktarsviði
Nokkuð hefur borið á því að rit-
að sé kórónaveira og fyrri hluti
orðsins þannig látinn vera
óbeygður. Jóhannes segir hins
vegar eðlilegra að beygja hann,
þ.e. kórónuveira, enda vísar út-
lit veirunnar til kórónu eða
krans.
„Þótt við höfum kórónafötin
þá er það meira vörumerki frá
þeim tíma sem menn beygðu
ekki. Varðandi kórónuveiru þá er
engin ástæða fyrir því að beygja
ekki orðið,“ segir Jóhannes.
U í stað a
VÍSAR TIL KÓRÓNU
Snorri Másson
Jóhann Ólafsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Ekkert nýtt tilfelli kórónuveiru var
tilkynnt í gær og hafa því einungis
þrjú smit veirunnar verið greind það
sem af er maímánuði.
Smit af veirunni hafa einnig verið
greind án sýnatöku hérlendis. Sýna-
taka er ekki alltaf nauðsynleg heldur
er klínísk athugun í sumum tilfellum
látin duga, að sögn Más Kristjáns-
sonar, yfirlæknis smitsjúkdóma-
deildar Landspítalans.
Slík klínísk athugun getur farið
þannig fram hjá nokkurra manna
fjölskyldu að veikindi eru staðfest
með sýnatöku hjá tveimur en ein-
faldlega ályktað um veikindi hjá öðr-
um fjölskyldumeðlimum, það er að
segja ef þeir sýna sömu einkenni.
Þannig er gengið út frá því að þeir
hafi fengið sjúkdóminn, án þess að
endanlega sé gengið úr skugga um
það með sýnatöku. Samkvæmt heim-
ildum mbl.is hefur slík klínísk athug-
un jafnvel verið tekin fram yfir sýna-
töku og fólk því verið greint með
veiruna vegna einkenna þrátt fyrir
að veirusýni reynist neikvætt.
Starfshópur skoðar opnun
Á upplýsingafundi almannavarna
sem fram fór í gær sagði Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir að hann
myndi leggja til við heilbrigðisráð-
herra að ráðstafanir varðandi far-
þega sem koma hingað til landsins
yrðu framlengdar en þær falla úr
gildi 15. maí.
Ef það gengur eftir munu allir
sem koma til landsins, bæði ferða-
langar og heimamenn, áfram fara í
tveggja vikna sóttkví við komuna.
Þórólfur sagði að ákvörðunina
yrði að taka með afstöðu til heil-
brigðis- og efnahagslegra sjónar-
miða. Hann horfi á málið út frá
heilsufarslegum sjónarmiðum en
ljóst er að á einhverjum tímapunkti
þurfi að opna landamærin. Sérstak-
ur starfshópur skoðar mögulega
opnun landamæranna.
Í viðtali við Morgunblaðið sem
birtist á fimmtudag sagði Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra að
brýnt væri að opna landið á ný.
Efnahagslífið mun ekki ná fyrri
styrk nema landamærin verði opnuð
að nýju, að sögn Guðlaugs.
Tilfellin alls
þrjú í maí
Greina smit án sýnatöku Fram-
lengja sóttkví við komu til landsins
Ljósmynd/Lögreglan
Upplýsingafundur Þórólfur Guðnason segir að ákvörðun um sóttkví ferðalanga
verði að taka með tilliti bæði til heilbrigðis- og efnahagslegra sjónarmiða.
1.765 hafa náð bata
1.801 smit voru
staðfest í gær kl. 13.00
10 einstaklingar eru látnir
19.462 hafa lokið sóttkví
699 eru í sóttkví
3 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
0 ný smit tilkynnt í gær
26 einstaklingar eru með virkt smit og
eru í einangrun