Morgunblaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐhjahrafnhildi.is NÝSENDING FRÁ Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook SUMAR GLAÐNINGUR GERRY-WEBER | BETTY BARCLAY 20-60%afsl. NÝTT LAXDAL NETVERSLUNLAXDAL.IS Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi Ársalir fasteignamiðlun 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun, 533 4200 og 892 0667 Engjateigi 5, 105 Rvk Vönduð 3ja herbergja íbúð á 9. hæð í lyftuhúsi með frábæru útsýni og innangengt í lokaða bílgeymslu, þar sem fylgir eitt stæði. Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri. Frábært útsýni til suðurs og vesturs. Sér geymsla fylgir í kjallara. Íbúðin getur verið til afhendingar fljótlega. V. 52,5 m. Gullsmári 9, 201 - Kópavogur OPIÐ HÚS í dag, laugardag, kl. 14.00-14.30 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Þessu kynningar- og söfnunarátaki er ætlað að minna á mikilvægi Bibl- íunnar, vekja athygli á sókn hennar inn á nýja miðla og bjóða fólki að gerast bakhjarlar Biblíunnar á Ís- landi með því að styðja Biblíu- félagið,“ segir séra Grétar Halldór Gunnarsson, prestur í Grafarvogs- sókn og formaður framkvæmda- nefndar Hins íslenska biblíufélags (HÍB). Sjónvarpsauglýsing félagsins hefur vakið talsverða athygli. Grétar segir að gerð myndbands- ins hafi kostað 1,1 milljón króna og auglýst hafi verið fyrir 1,4 milljónir á RÚV, Sjónvarpi Símans og á Hring- braut. „Það hjálpaði okkur að það var vinur Biblíufélagsins sem sá um gerð myndbandsins og sjálf- boðaliðar sem komu að gerð þess. Þar að auki var hægt að fá virkilega hagstæð auglýsingatilboð á þessum Covid-19-tímum,“ segir hann. Það var Þorleifur Einarsson sem leik- stýrði og útbjó myndbandið. Elsta félag á Íslandi Hið íslenska biblíufélag er elsta félag á Íslandi, stofnað 1816. Mark- mið þess er að vinna að útgáfu, út- breiðslu og notkun Biblíunnar. HÍB er samtök fólks úr öllum kirkju- deildum og kristnum trúfélögum. Grétar segir að í félaginu séu nú um 1.200, einstaklingar og fyrirtæki. Félagsgjald er þrjú þúsund krónur á ári. Leita að bakhjörlum Biblíufélagið leitar nú að fjárhags- legum bakhjörlum til að styðja starf- semina. Býðst fólki að greiða 1.000 krónur á mánuði, eða meira, til að styðja við starf félagsins. Samhliða auglýsingum hófst úthringingarátak til að safna bakhjörlum. Grétar segir að það hafi tafist örlítið vegna kór- ónuveirufaraldursins. „Við munum á komandi vikum hringja í alla félagsmenn Biblíu- félagsins og bjóða þeim að gerast bakhjarlar. En allir sem hafa áhuga geta skráð sig á vefnum biblian.is og munu þá fá símhringingu,“ segir hann. Grétar segir að hefðbundið söfn- unarátak, svo sem árlegar páska- safnanir Biblíufélagsins, hafi verið orðið mjög óhagstætt. „Það kostaði allt upp í 800.000 kr. að útbúa gíró- seðla og senda í bréfpósti og við sáum að sú leið var ekki lengur sjálf- bær. Við vildum því bæði fara nýjar leiðir í fjáröflun og kynna fólki í leið- inni hvað væri að frétta af Biblíunni og Biblíufélaginu,“ segir hann. Mjög jákvæð viðbrögð „Þau sem hafa styrkt félagið frá degi til dags hingað til eru fyrst og fremst einstaklingar í landinu sem þykir vænt um Biblíuna. Þannig hljóðrituðum við Nýja testamentið allt fyrir ári til notkunar í snjall- tækjum og tölvum og var það hóp- fjármagnað með söfnun á Karolina fund. En við fáum líka drjúgan stuðning frá kirkjum í landinu sem vita að starfsemi Biblíufélagsins skiptir máli. Á liðnum árum hafa kirkjur og kristnir söfnuðir verið að veita á milli 2-3 milljónir í starfsemi okkar á árlega,“ segir Grétar. Meira en fimmtán þúsund manns hafa hlaðið niður í síma sína sér- stöku Biblíuappi og náð í íslensku Biblíuþýðinguna. Grétar segir að margir hlusti líka á Nýja testament- ið á appinu, en aðrir á biblían.is eða á Storytel. „Við erum elsta starfandi félag á Íslandi,“ segir Grétar, „en með okk- ur er nú ferskur kraftur og við finn- um fyrir miklum meðbyr. Við- brögðin við auglýsingunni hafa verið vægast sagt jákvæð,“ segir hann. Guðsorð Ungt fólk les Biblíuna í snjallsíma. Úr sjónvarpsauglýsingu Biblíufélagsins sem sýnd er þessa dagana. Elsta félag Íslands notar nýjustu tækni  Biblíufélagið auglýsir í sjónvarpi og býður upp á app Ákveðið hefur verið að fjarlægja tímabundið grenndargáma á vegum Reykjavíkurborgar sem staðið hafa við Endurvinnsluna í Knarrarvogi. Í bréfi sem Endurvinnslan hefur fengið frá Sorpu, sem hefur haft umsjón með gámunum, segir m.a. að þarna hafi verið ,„langvarandi óþrif og mis- notkun á stöðinni“. Stöðin hefur verið mikið notuð, að sögn Helga Lárussonar, framkvæmdastjóra Endurvinnsl- unnar. ,,Nú er hins vegar ljóst að þeir sem nýttu gámana þarna þurfa að leita annað vegna þess að sumir hafa misnotað þessa aðstöðu,“ segir Helgi. Fyrir þremur vikum var greint frá óþrifnaði við gámana í Morgunblaðinu, en þá lágu pappakass- ar, plastpokar og fleira drasl þar eins og hráviði. Grenndargámar á vegum borgarinnar eru ætlaðir fyrir pappír, plast og gler sem kemst inn um lúg- una. Annað á að fara í pressugáma á stöðvum Sorpu. Helgi segir að ekkert hafi breyst síðustu vikur og enn sé hent þarna plastpokum og drasli, jafnvel heilu sófunum. aij@mbl.is Í Knarrarvogi Sóðaskapurinn við grenndargámana hefur verið mörgum til ama og alls konar drasli, sem á heima hjá Sorpu, verið hent þar. Fjarlægja grenndargáma vegna óþrifa Mikilvægt er að passa að hafa húð- ina ekki óvarða úti í sólinni lengur en í skamma stund. Á það sér- staklega við um börn en sólbruni veldur húðskemmdum sem jafn- framt geta leitt til húðkrabbameins síðar á ævinni. Þetta kemur fram í grein á vef Geislavarna ríkisins. Ástæðan að baki greininni er sú að með hækkandi „maísól“ eykst styrkur útfjólublárrar geislunar frá sólinni. Því er tilefni til að vara fólk við hugsanlegum kvillum sem slíkir geislar geta valdið. Ef skoðaður er mælikvarði á styrk útfjólublárrar geislunar mið- að við heiðskírar aðstæður, svokall- aður UT-stuðull, telst nauðsynlegt að verja sig ef framangreindur stuðull er þrír eða hærri. Sé horft til síðustu mælingar frá 29. apríl sl. má sjá að á þeim tíma var um- ræddur stuðull 3,2. Ætla má að styrkur útfljólublárra geisla muni jafnframt aukast þegar líða tekur á sumarið. Hvetja Geislavarnir rík- isins því fólk til að bera á sig sól- arvörn áður en haldið er af stað út. aronthordur@mbl.is Varast verð- ur geisla frá maísólinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.