Morgunblaðið - 09.05.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
OFN FYLGIROFN FYLGIR
Fjárfesting í vellíðan
Tegund Stærð h x þv Sætafjöldi
450 122 x 152 cm 2 - 4
460 122 x 182 cm 4 - 6
470 122 x 214 cm 5 - 8
Tunnupottur úr sedrusviði
Tegund Stærð þv x l Sætafjöldi
760 214 x 183 cm 2 - 4
770 214 x 214 cm 4 - 6
780 214 x 244 cm 6 - 8
Saunatunna úr sedrusviði
Tegund Stærð Sætafjöldi
PSMINICL 214 x 214 cm 2 - 4
Pod útisauna úr sedrusviðiTegund Stærð b x l Sætafjöldi
860LU 244 x 182 cm 2 - 4
870LU 244 x 214 cm 4 - 6
880LU 244 x 244 cm 6 - 8 .
Luna útisauna úr sedrusviði
Tegund Stærð þv x l Sætafjöldi
760 PV 214 x 182 cm 2 - 4
770 PV 214 x 214 cm 4 - 6
780 PV 214 x 244 cm 6 - 8
Panorama sedrus saunatunna
Smiðjuvegi 11 s. 571 3770, pall@sauna.is, sauna.is
Saunatunnur, klefar og heitir pottar úr sedrusviði sem slegið hafa í gegn á Íslandi!
Kanadísku Dundalk pottarnir
og saunaklefarnir eru úr sedrusviði
sem fúnar ekki, þarf ekkert viðhald,
er sterkur og hentar því einstaklega
vel íslenskri veðráttu.
Þess vegna velur þú sedrus!
OFN FYLGIROFN FYLGIR
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við leggjum mikla áherslu á upp-
byggingu Vísindagarða Háskóla Ís-
lands í Vatnsmýrinni. Þar sjáum við
fyrir okkur að verði samvinnuvett-
vangur atvinnulífs og fræða-
samfélagsins, með það markmið að
skapa kjöraðstæður fyrir rannsóknir
og nýsköpun á Íslandi. Þar er til
dæmis að rísa Gróska hugmyndahús
sem mun meðal annars hýsa CCP og
ýmsa frumkvöðlastarfsemi í bland við
háskólastarfsemi,“ segir Jón Atli
Benediktsson, rektor Háskóla Ís-
lands, spurður um hvað háskólinn
muni leggja af mörkum við að fjölga
undirstöðum í at-
vinnulífinu nú á
tímum kórónu-
veirunnar. Nær
60 þúsund manns
þiggja nú bætur
frá Vinnu-
málastofnun og
því er ljóst að
bregðast þarf við.
Þar gegnir ný-
sköpun lykilhlut-
verki og af þeim sökum er mikilvægt
að hlúa vel að frumkvöðlafyrir-
tækjum.
„Við ættum að hugsa vel hvað sé
hægt að gera til að bæta enn frekar
umhverfi og aðstæður fyrir nýsköpun
hér á landi. Nú er stórt tækifæri hvað
það varðar,“ segir Jón Atli og bætir
við að uppbygging Grósku, hug-
myndahúss í Vatnsmýrinni gegnt
Öskju og Norræna húsinu, sé liður í
því. Þegar framkvæmdir hófust var
talið að allt að 900 störf gætu skapast
í nýju húsi. Ekki er vitað hversu
mörg störf munu skapast en í húsinu
mun verða samvinnuvettvangur at-
vinnulífs og fræðasamfélagsins.
Tölvuleikjafyrirtækið CCP mun
flytja inn á næstunni, en auk þess er
verið að ganga frá leigusamningum
við fleiri aðila. Þar verður horft til
þess að hafa blöndu af háskóla-
starfsemi og háskólatengdri fyrir-
tækjastarfsemi.
Tækifærin eru til staðar
Hlúa verður vel að íslenskum frumkvöðlafyrirtækjum
Morgunblaðið/Eggert
Gróska Talið var að allt að 900 störf gætu skapast í hugmyndahúsinu Grósku sem er í Vatnsmýrinni.
Jón Atli
Benediktsson
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það skiptir auðvitað öllu máli að
hafa fjölbreyttar leiðir til að skapa
gjaldeyri og verðmæti. Eins og við
Íslendingar þekkjum einna best
geta hlutir
breyst hratt og
því er mikilvægt
að vera með
fleiri stoðir til að
minnka höggið,“
segir Ari Krist-
inn Jónsson,
rektor Háskólans
í Reykjavík (HR).
Vísar hann í máli
sínu til höggsins
sem þjóðarbúið
hefur orðið fyrir sökum áhrifa og
útbreiðslu kórónuveirunnar. Munar
þar mest um skarðið sem ferða-
þjónustan skilur eftir sig.
Tækifærin eru til staðar
Að sögn Ara er mikilvægt að
horfa nú til framtíðar og kanna
hvaða leiðir eru færar við sköpun
útflutningsverðmæta. Ljóst er að
horfa verður til fleiri leiða en ein-
göngu ferðaþjónustu, sem ásamt
sjávarútvegi hefur staðið undir
miklum meirihluta gjaldeyrisöfl-
unar þjóðarinnar. Þó þurfi einnig
að tryggja að ferðaþjónustan rísi
upp úr öskunni.
„Við verðum að nýta þetta tæki-
færi til að byggja upp fjölbreyttari
útflutningsverðmæti. Auðvitað
verðum við líka að byggja aftur upp
ferðaþjónustuna, en samhliða því
búum við til fleiri stoðir,“ segir Ari.
Styðja verður við nýsköpun
Spurður innan hvaða geira hann
sjái einna mest tækifæri segir Ari
ýmislegt koma til greina. Allt frá
ylrækt til heilbrigðistækni. „Það
verður alltaf eftirspurn eftir mat-
vælum. Hreinar afurðir frá Íslandi
hafa jákvæða ímynd og við getum
verið stolt af þeim matvælum sem
héðan koma. Þá getum við einnig
horft til skapandi greina á borð við
tölvuleiki eða kvikmyndafram-
leiðslu. Að auki má nefna greinar á
borð við hátækni og heilbrigðis-
tækni,“ segir Ari og tekur fram að
mikilvægt sé að styðja við menntun
fólks auk þess að tryggja gott um-
hverfi fyrir nýsköpun.
„Þetta snýst um að hafa umgjörð
og mannafla sem getur skapað
verðmæti. Við þurfum einnig að
auðvelda fólki að stofna eigin fyrir-
tæki og rekstur. Við viljum í fram-
haldinu að sem fæstar hendur skapi
sem mest verðmæti,“ segir Ari.
Aðspurður segir Ari að HR muni
halda áfram að bjóða upp á fjöl-
breytt tækifæri til menntunar.
Fólki stendur nú til boða að skrá sig
í styttri námskeið auk þess sem
boðið verður upp á námsbrautir
með áherslu á nýsköpun. Þar að
auki mun skólinn halda áfram að
bjóða upp á námsleiðir þar sem
lögð er áhersla á frumkvöðla-
hugsun.
Auðvelda verður
verðmætasköpun
Tími nýsköpunar er fram undan
Ari Kristinn
Jónsson