Morgunblaðið - 09.05.2020, Page 31

Morgunblaðið - 09.05.2020, Page 31
UMRÆÐAN 31 Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Ég hef hvergi ann- ars staðar séð það gerast að ríkisvaldið stuðli að fjölda- uppsögnum, hvetji nánast til þeirra, með því að bjóða fram verulega fjármuni sem fyrirtæki í ákveðinni stöðu geti fengið til launagreiðslna starfs- manna sinna, bara ef þau segi þeim upp. Ekki verður annað séð en að rík- ið taki á þennan hátt á sig heildar- launagreiðslu til launþega, allt upp í 633.000 krónur á mann á mánuði, að meðaltali í 3 mánuði, með því skilyrði að ráðningarsamningi við viðkomandi starfsmenn hafi verið sagt upp og rift. Er þetta hin furðulegasta ráð- stöfun, en alls staðar annars staðar hefur mikill hluti af viðleitni stjórnvalda til að verja fyrirtæki, störf og laun gengið út á það and- stæða; að fyrirtækin fengju stuðn- ing og styrki til að halda mönnum í vinnu, virða og fara eftir gildandi ráðningarsamningum; segja þeim alls ekki upp. Það á víst að vera skilyrði ríkis- valdsins fyrir styrk við uppsagnir að styrkþegi ráði sama fólkið aftur. En ný ráðning er nýtt og óþekkt dæmi. Er einhver trygging fyrir því að starfsmenn haldi áunnum rétt- indum og fullum fyrri launum og fríðindum? Hver ætti að tryggja slíkt? Hver getur fylgzt með ein- stökum ráðningarmálum og séð til þess að réttindi og kjör launþega verði ekki rýrð við nýja samnings- gerð? Hver getur tryggt að ekki verði annar maður ráðinn, í stað þessa gamla, sem sættir sig mögulega við lægri laun eða skert kjör? Í kvöldfréttum sjónvarps nýlega var viðtal við forseta ASÍ og það var ekki annað á henni að heyra en að hún væri ánægð með þessa að- gerð; það gladdi hana að samráð hefði verið haft við verkalýðshreyf- inguna í þessu máli. Ef forsetinn hefði verið í forsvari fyrir atvinnurekendur hefði mátt skilja hana en þar sem hún er forseti ASÍ verður að spyrja: Á hvaða reikistjörnu skyldi þessi ágæta kona vera stödd og er forsætisráðherra með för? Kannske Bjarni Ben og Sigurður Ingi líka? Auðvitað hefði átt að verja þessum fjár- munum, sem eru hluti af nýjum aðgerða- pakka, þeim þriðja, upp á 40-60 milljarða, til þess að styrkja fyrirtæki, smá og stór, með fullnægjandi hætti til að þau gætu viðhaldið og virt ráðningarsamninga og alls ekki rift þeim eða sagt þeim upp. Þess má vænta að eftir slíkt þriggja mánaða styrktartímabil verði hjól atvinnulífsins farin að snúast nokkuð aftur, þannig að að- lagi megi og lækka framhalds- stuðning ríkisins – sem auðvitað þyrfti að halda áfram – að því. Slík ráðstöfun hefði stuðlað að öryggi og velferð manna og tryggt vissu og stöðugleika. Launamenn hefðu vitað hvar þeir stæðu og hefðu fengið mest mögulegt skjól og öryggi á erfiðum tímum. Fyrir undirrituðum er almenn afkoma ferðaþjónustu víðs vegar um landið enn óleyst, þó að eig- endum margra þeirra hafi nú verið gert kleift – illu heilli, segi ég – að losa sig við starfsmenn sína á ein- um til þremur mánuðum án mikilla eigin fjárútláta. Skyldi þetta líka virka fyrir hin fjölmörgu fjölskyldufyrirtæki víða um landið? Ég sé það varla ganga upp. Hver á að segja hverjum upp? En hvað tekur við eftir upp- sagnarfrest? Staðan verður þá auðvitað galopin; um allt þarf þá að semja upp á nýtt, en slík samn- ingsgerð er auðvitað full af óvissu, þó að atvinnuveitendur lofi, á nú- verandi stigi, öllu góðu og óbreyttu. Ég leyfi mér að fullyrða: Það verður ekkert samt og óbreytt eft- ir þrjá mánuði. Aðgerðapakkarnir þrír eru nú komnir í um 344 milljarða. Ég hef gert það að tillögu minni að boð- aður ferðastyrkur á alla fullorðna landsmenn, sem átti að vera 5.000 krónur á mann, sem fyrir mér er meira grín en alvara – einn kvöld- verður – verði hækkaður í 50.000 krónur þannig að íslenzkur al- menningur geti nú í sumar heim- sótt og kynnt sér land sitt meira og betur en áður hefur gerzt; fyllt gististaði, hótel og veitingastaði landsins lífi; íslenzku lífi. Eftir slíka íslenzka ferðaöldu kynnu útlendingar að byrja að fylla í skarðið og tryggja framhald í vaxandi mæli með haustinu. Ef þessi leið væri farin, ferða- þjónustunni til halds og trausts, en um leið landsmönnum til skemmt- unar og tilbreytingar, eftir álag og erfiðleika Kórónu, myndi þessi að- gerð fara úr 1,5 milljörðum í 15 milljarða. Núverandi heildarpakki færi þá úr 344 milljörðum í 357,5 milljarða, sem í augum undirritaðs væri, í þessu samhengi, bita munur en ekki fjár. Góð fjárfesting. Ef björgun á að takast, þannig að þjóðarskútan og allt sem inn- byrðis er standi af sér storminn, þarf að fara í 15-20% af landsfram- leiðslu; 450-600 milljarða. Inn á þá stærðargráðu eru aðrar vestrænar þjóðir stilltar. Þjóð- verjar eru reiðubúnir að fara í 20% af landsframleiðslu, ef þörf krefur, því þeir vita að hvað sem skyn- samleg fyrirbygging og vörn kann að kosta verður hún ódýrari en endurreisn ef til hruns kemur. Einhverjir kunna nú að spyrja hvort höfundur, sem hefur verið þekktur af öðru, sé orðinn róttæk- ur vinstri maður; bévítans kommi!? Ef ofangreind afstaða ber vitni um það, þá er svarið: Já. „Bévítans komminn“ Eftir Ole Anton Bieltvedt »Er einhver trygging fyrir því að starfs- menn haldi áunnum réttindum og fullum fyrri launum og fríð- indum? Hver ætti að tryggja slíkt? Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Nú hefur mikið ver- ið rætt um að hvetja til ferða Íslendinga inn- anlands til að halda við ferðamannaiðnaðinum í sumar, í von um að næsta ár verði betra. Skiljanlega er mögu- lega einhver búbót á ferðinni en ég er hræddur um að inn- lendir ferðamenn gefi lítið í aðra hönd. Ég ætla nefnilega sjálfur að ferðast mikið innanlands, en venjur mínar, og ég ætla að reikna með að venjur meðaljónsins séu svipaðar mínum eigin, eru ekki nærri eins gjafmildar og hjá ferðamönnum. Ég nota því sjálfan mig sem eins konar staðgengil meðaljónsins. Í fyrsta lagi fer ég ekki í lunda- búðir. Það gerir meginþorri Íslend- inga ekki heldur. Minjagripaversl- anir munu því ekki græða mikið. Í öðru lagi ferðast ég um með fellihýsi í eftirdragi. Íslendingar gera það flestir, þótt sumir hafi tjöld meðferðis og aðrir hjólhýsi, ef efni leyfa. Það er mun skemmtilegra en að gista á hóteli, enda getur maður valið gististaðinn svolítið sjálfur, og er einnig mun ódýrara. Auk þess grillar maður í útilegum og ferða- lögum. Hótelin munu því ekki njóta mjög góðs af innlendum ferðamönn- um. Í þriðja lagi kaupi ég birgðir í lág- vöruverslunum þegar ég ferðast innanlands. Ég forðast kaffihúsin eins og heitan eldinn (eða heitar lummur, með rúsínum!) þótt ég láti það ef til vill eftir börnunum að fara einu sinni á veitingahús, þá oftast í ódýrari kantinum, enda vilja öll börn frekar ódýra pítsu/hamborg- ara en nautalund. Kaffihús og veit- ingahús hafa því ekki mikið upp úr innlendum ferðamönnum. Í fjórða lagi ferðast ég um á eigin bíl, svo rútu- fyrirtækin eru ekki lík- leg til að græða. Í fimmta lagi tala ég reiprennandi ensku, svo ég þarf ekki leiðsögu- mann til að túlka fyrir mig þurfi ég að ræða við afgreiðslufólk á fjölförn- um ferðamannastöðum. Ég tala jafnvel líka íslensku, skyldi ég þurfa á henni að halda. Hins vegar mæli ég með því að veitingahús/hótel/rútufyrirtæki/ leiðsögumenn reyni að semja við dvalarheimili aldraðra, skóla/ foreldrafélög og önnur félagasamtök um pakkaferðir. Það eru einu tilvikin þar sem ég sé fyrir mér að hægt sé að veita viðskipti til téðra fyrirtækja. Það er þó auðvitað algerlega háð því að ekki komi bakslag í faraldurinn í maí. Þess vegna vil ég biðja fólk að fara með gát þegar samkomubanni lýkur, svo að mögulega megi bjarga einhverjum fyrirtækjum frá gjald- þroti í ár. Ákveðið var að fjárfesta í auglýs- ingum á samfélagsmiðlum. Það er ef til vill ekki besti kosturinn til að stuðla að hópaferðum. Frekar væri að fá fjármagn til elliheimila og skóla til þess að fara í téðar hópaferðir, styrktar af ríkinu. Börn og gamal- menni fengju afþreyingu og ferða- mannaiðnaðurinn fengi innspýtingu. Innlendir ferðamenn Eftir Arngrím Stefánsson Arngrímur Stefánsson » Ferðavenjur mínar eru ekki nærri eins gjafmildar og hjá ferða- mönnum. Höfundur er guðfræðingur. Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur SPARAÐU 30%þegar þú bókar4 meðferðir íháreyðingu VARANLEG LASER HÁREYÐING Viðbjóðumupp á nýjustu tækni í laser háreyðingu g Fjarlægir óæskilegan hárvöxt g Er einföld og þægileg meðferð Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi Ársalir ehf fasteignamiðlun, 533 4200 og 892 0667 Engjateigi 5, 105 Rvk Skútuvogur 10B, 104 Reykjavík TIL SÖLU EÐA LEIGU Gott 375 m² atvinnuhúsnæði við Skútuvog í Reykjavík. Húsnæðið á jarðhæð sem er 256 m² er með hárri og góðri innkeyrsluhurð, lofthæð ca 4,3 m, 3ja fasa rafmagn í sal. Skrifstofur, kaffistofa og snyrting á efri hæð, eru 119 m². Húsnæðið allt í góðu ástandi. Til afhendingar strax. Til að bóka skoðun, hafið samband við Björgvin í síma 892 0667 eða bjorgvin@arsalir.is. Ársalir fasteignamiðlun 533 4200 ÁSKIRKJA | Helgistund birtist á heimasíðu Áskirkju; askirkja.is, og á Facebook-síðu kirkjunnar kl. 10. Þar flytur Sigurður Jóns- son sóknarprestur ritningarorð og hugvekju, Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni biður bæna, Jóhanna Ósk Valsdóttir syngur ein- söng og Bjartur Logi Guðnason leikur á org- elið. Þetta verður síðasta streymis- helgistundin að sinni. Sunnudaginn 17. maí kl. 11 verður fyrsta guðsþjónustan eftir rýmkun samkomureglna. Aðalsafnaðar- fundur Ássóknar 2020 verður haldinn í Ási að henni lokinni. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 10. maí verður helgihald sent út á Facebook- síðu Grafarvogskirkju. Morgunblaðið/Arnaldur Hrísey Hríseyjarkirkja. ORÐ DAGSINS: Ég mun sjá yður aftur. (Jóh. 16) Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.