Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 34

Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 Í dag fer fram útför elsku bróður okkar Odds Sæ- mundssonar. Oddur var á milli okkar systra í aldri, litli bróðir Siggu og stóri bróðir Jónu. Æskuárin í Keflavík liðu við leik og störf og samfélagið á Framnesveginum hélt vel utan um okkur. Þar voru börn í öllum húsum og sterk vináttubönd mynduðust fljótt milli Odds og Hilmars. Nálægðin við sjóinn og frystihúsin í nágrenni við heimili okkar hafa líklega haft áhrif á ástríðu hans fyrir sjómennsku og veiðum. Snemma byrjuðu Oddur og Hilmar að skapa verð- mæti úr fiski, líklega ekki eldri en 10 ára. Oddur var duglegur og líf- legur og þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni, og líklega ekki alltaf þótt gaman að hafa Jónu í eftirdragi. Óvenjulegar aðstæður í fjöl- skyldu okkar á þessum tíma urðu til þess að tengsl okkar systkina og tryggð urðu mjög sterk. Oddur fann snemma til ábyrgðar gagnvart okkur systr- um og segja má að hann hafi verið kletturinn okkar alla tíð og fyrir það erum við ætíð þakklátar. Við minnumst þess líka að Oddi þótti ótrúlega gaman að stríða okkur en þegar hann fann að nóg var komið var stutt í hlýjuna og gleðina. Fjölskyldan flutti til Reykja- víkur en Oddur sá ekkert annað en sjómennsku og var á sjó frá 15 ára aldri frá Keflavík og minnumst við systur þess hve sjóveikur hann var í byrjun en aldrei hvarflaði að honum að gefast upp. Hann hóf nám ásamt Hilmari við Sjómanna- skólann 17 ára. Keflavík togaði áfram í hann og fljótlega eftir að námi lauk festu þeir vinirnir kaup á trillunni Sæfugli og þar með hófst þeirra útgerðarsaga. Oddur var fengsæll og lánsamur skipstjóri, hann var hörkutól og ákafur í sjósókn og óhætt er að segja að menn sóttust eftir Oddur K. Sæmundsson ✝ Oddur K. Sæ-mundsson fæddist 12. maí 1950. Hann lést 25. apríl 2020. Útför Odds fór fram í kyrrþey. plássi hjá honum. Oddur kynntist Jónínu ungur og stofnuðu þau heim- ili í Keflavík, þau voru dugleg og samhent í uppeldi barna sinna, þeirra Helgu Jóhönnu, Guðmundar og Sæ- mundar. Þó viðvera Odds á heimilinu hafi oft verið stopul þá var hann mikill fjölskyldu- maður og velferð hennar skipti hann öllu máli. Fjölskyldur okkar systkina ólust upp við það að vera í mikl- um samskiptum og börnin okkar dvöldu oft á heimilum hvert annars. Góð tengsl okkar skiluðu sér til barnanna okkar og mynd- uðust sterk vináttubönd milli þeirra. Við minnumst með gleði margra ferðalaga erlendis bæði með og án barna. Sigga man vel fyrstu utan- landsferð Odds og Hilmars þeg- ar þeir fóru með henni og Dóra til Kaupmannahafnar og Lond- on kornungir og reynslulausir. Eftir lát föður okkar eign- uðumst við systkinin sumarbú- stað sem hann hafði byggt í Borgarfirði, þar höfum við fjöl- skyldurnar átt góðar stundir saman og framkvæmdagleði Odds naut sín þar. Eitt árið buðu Oddur og Jón- ína okkur systrum og mökum á skemmtibátinn Ugga sem stað- settur var á Majorca. Oddur hafði áhyggjur af sjóveiki okkar systra sem reyndist algjör óþarfi og áttum við yndislega viku siglandi saman um Mið- jarðarhafið með öllum lysti- semdum. Við þökkum Oddi fyrir sam- fylgdina og biðjum Guð að blessa fjölskyldu hans. Jóna og Sigurveig (Sigga). Kvaddur er í dag öðlingurinn Oddur Sæmundsson. Vinur og tengdafaðir dóttir okkar. Ótal gleðistundirnar áttum við með þeim hjónum Odd og Jónínu. Efst í huga er sigling á Ugga frá Mallorca til Menorka, með fyrsta barnabarnið hana Huldu Sóllilju, þá 3ja mánaða. Það var ógleymanleg ævintýra- ferð. Okkur þótti vænt um að fá að vera öll saman á jólum og áramótum með barnabörnunum, auk fjölmargra samverustunda, bæði hér heima og erlendis. Ekki skemmdi afi Oddur það á gamlárskvöldum með myndar- legum sólum, blysum og rak- ettum sem skotið var upp í kas- savís. Óli afi vandi reglulega komur sínar í Heiðarhornið svo þeir gætu horft saman á enska boltann. Voru þeir í takt að hrópa á réttum stöðum og engin ágreiningur um að besta liðið væri Liverpool. Við minnumst Odds með þakklæti og söknuð í huga, og sendum Jónínu, börnum, barna- börnum og öðrum aðstandend- um, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hulda og Ólafur (Óli) á Stað. Fallinn er frá allt of snemma vinur minn Oddur Sæmundsson skipstjóri. Oddur hefur barist við illvígan sjúkdóm undan far- inn ár, sem að lokum hafði bet- ur. Kynni okkar Odds hófust á unglingsárum, þegar Stapaböll- in stóðu sem hæst, og rúnturinn upp og niður Hafnargötuna var algengur. Oddur átti alltaf flotta bíla og það var gaman á rúnt- inum með honum. Það er varla hægt að minnast á Odd nema að hafa Hilmar Magnússon í hinu orðinu; þeir ólust upp í sömu götunni og störfuðu saman alla tíð, en þeir stofnuðu útgerð saman sem þeir ráku til margra ára. En Oddur og Hilli komu oft á rúntinn í Sandgerði, þar voru glæsilegar stúlkur og góðir drengir sem gaman var að hitta. Oddur á Fordinum og Hilli á Volvoinum, engir smá kakkar, við hinir áttum ekki séns í þessi bílamál. En Oddur fór að fara óeðli- lega oft í Borgarfjörðinn í sum- arbústað fjölskyldunnar sem nú heitir Sæmundarkot, að okkur fannst. Maður uppsker eins og maður sáir segir einhvers stað- ar, en þar fann hann ástina sína hana Jónínu. Svo við Hilli fórum oft með okkar dömur, Jórunni og Þórunni, í heimsókn í Sæ- mundarkot og áttum við alltaf góðar stundir á þeim bæ. Þarna kynntumst við fyrst grillmatnum, en einn af vinum okkar hann Danni var snillingur í þeirri grein. Grilluðu kjúkling- arnir og holusteiktu lambalærin, þetta er allt ógleymanlegt. Oddur var alltaf hrókur alls fagnaðar og alltaf gaman að heimsækja þau hjón þangað og einnig á heimili þeirra á Heið- arhornið í Keflavík. Oddur var aflakló á sjónum sem skipstjóri og var það fengur að fá skipspláss hjá þeim á bát þeirra Stafnesinu. Ég var eitt haustið ráðinn sem kokkur á Stafnesið. Það var mikil reynsla sem ég fékk þar, enda ákvað ég að helga mig því að vera kokkur í landi, eftir þá reynslu, enda alltaf sjóveikur. Lokamáltíðin mín um borð á Stafnesinu þetta haustið var einmitt einn af uppáhaldsréttum hans, lamba- kótelettur í raspi. Eftir standa góðar minningar um góðan dreng, megi hann í friði fara. Við hjónin sendum Jónínu, Helgu, Guðmundi, Sæmundi og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hans. Axel og Þórunn. Góður vinur og fyrrverandi samstarfsmaður er fallinn frá mörgum árum of snemma; við erum að tala um skipstjórann Odd Sæmundsson. Samstarf okkar hófst árið 1992 þegar Teddi hringdi í þá félaga Hilmar og Odd og bað þá að geyma fyrir okkur aflaheim- ildir yfir kvótaáramótin það ár. Með þeim gjörningi hófst samstarf sem stóð í 10-11 ár, eða allt þar til þeir Hilmar og Oddur seldu Stafnesið. Oddur var fengsæll skipstjóri, ósérhlífinn og duglegur og sótti sjóinn stíft. Það var engin lognmolla í kringum hann, það vita þeir sem til þekkja, ef fiskur var í sjónum þá fiskaði Oddur. Þetta samstarf gekk mjög vel þrátt fyrir skapstóra menn í for- svari, allt handsalað með handa- bandi og aldrei bar þar skugga á og allir sáttir. Við minnumst þessa tímabils ávallt með gleði því það var svo gaman þó mikið væri að gera. En þegar Oddur hætti til sjós kom annað tímabil; tímabil vin- áttu og samveru með þeim hjón- um Jónínu og Oddi og það var sko „fallegt í Færeyjum“. Við ferðuðumst saman til Majorca þar sem við sigldum með þeim, til Tenerife og svo auðvitað til Kanarí. Þau buðu okkur í sumarbústaðinn, Sæ- mundarkot, sem er þeirra sælu- reitur í Borgarfirði og þar var sko dásamlegt að vera með þeim. Tvær ferðir standa þó upp úr, það var á haustdögum 2018 þeg- ar við fórum til berja í Fjörður og Flateyjardal. Við gistum á Grenivík á gististað sem var al- veg niður við fjöruborð og þegar við vorum búin að vera annan daginn í Fjörðum og hinn í Flat- eyjardal var nú gott að koma í náttstað, fara í heita pottinn, horfa út á fjörðinn í blíðskap- arveðri og sjá sólina setjast í sæinn og dreypa á bauk. Þarna var okkar maður far- inn að finna verulega fyrir verkjum í öxl, sem seinna kom í ljós að var krabbamein. Hin ferðin var þegar þau hjón mættu óvænt til Kanarí í nóv- ember sl. þar sem við Teddi vorum að fagna 70 ára afmæli og 50 ára brúðkaupi, mætt til að fagna þessum áfanga með okk- ur, svo sæt bæði. Þarna átti Oddur oft erfitt vegna kvala, oft þreklaus en alltaf hress og stutt í húmorinn, hann var betri í dag en í gær og þetta var allt að koma og hann ætlaði sko sannarlega að vinna vágest þann er á hann herjaði, annað var ekki í myndinni. Ekki má gleyma að minnast á minigolfið, í það var farið á hverjum degi og suma daga tvisvar, þar kom keppnisskapið vel í ljós og yfirleitt vann hann okkur enda var hann í leiðinni að kenna okkur tæknina. Það verður öðruvísi sumarið framundan bæði vegna Covid en aðallega vegna þess að það er enginn Oddur sem hringir og skipuleggur einhverja ferð. Við munum sakna hans sárt en um leið þökkum við fyrir dásamleg kynni og allar góðu samverustundirnar sem við átt- um saman. Að lokum biðjum við almætt- ið að vaka yfir Jónínu, börnum þeirra, tengdabörnum og barna- börnum í framtíðinni. Minning þín er ljós í lífi okk- ar. Kær kveðja, þínir vinir, Jóna Halla Hallsdóttir og Theodór Guðbergsson (Teddi). Til þín Ég þakka Guði löngu liðinn dag sem lét mig eignast þig að ævivin. Og öll þau blóm sem uxu á þinni leið með ilm og fegurð hresstu og glöddu mig. Og birtan sem þú breiddir yfir allt sló bjarma á lífið allt í kringum þig. Svo líða dagar, ár og ævitíð og ýmsum blikum slær á loftin blá. Í sorg og gleði alltaf varstu eins og enginn skuggi féll á þína brá. Svo brast á élið, langt og kólgukalt og krafan mikla um allt sem gjalda má. Og fljótið niðar enn sem áður fyrr og ennþá flúðin strýkur næman streng. Við blæþýtt ljóð, um blóm og sum- aryl og bjarta kyrrð – í minningu um þig. (Oddný Kristjánsdóttir) Kæri vinur, þegar að leiðar- lokum er komið er margs að minnast og margt að þakka. Allt það sem við höfum brallað sam- an um ævina er ekki hægt að telja upp í stuttri minningar- grein. Þú varst ávallt hrókur alls fagnaðar og aldrei nein lognmolla í kringum þig. Við eigum góðar minningar frá ferð- um okkar bæði innanlands og víðs vegar um heiminn og alltaf var gaman að vera í kringum ykkur Jónínu. Þú varst hörkuduglegur skip- stjóri og afreksmaður á sjónum, sóttir stíft og gerðir miklar kröfur til áhafnar þinnar en mestu kröfurnar gerðir þú til sjálfs þín og uppskarst ríkulega. Um leið og við vottum fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúð þökkum við fyrir vináttu og samstarf í marga áratugi sem aldrei bar skugga á. Jórunn og Hilmar. Jááá sæll! hrökk gjarnan upp úr Oddi þegar mikið lá við og það var oft. Oddur var brimskafl í athöfnum og hugsun, stór í sniðum, fylginn sér og ákafur. Á fundum Knattspyrnudeildar Keflavíkur tók hann menn snarpt á í spjallinu og þeir sátu þögulir á eftir meðan hann tróð tóbaki í nefið. Mesta fjörið var þegar hann var farinn að hlæja svo mikið að síðustu setning- arnar köfnuðu í hlátrinum. Þá var hann búinn að gjörsigra fé- lagana og tóbakstaumarnir láku úr nefinu og bréfsnifsi komin á loft til bjargar. Oddur var Keflvíkingur og Liverpoolmaður fyrir allan pen- inginn, sigurreifur og ætlaði að drekka 20 ára gamalt Liver- poolrauðvínið á sigurstundu í vor. Við gömlu félagarnir mun- um halda upp á þá stund af virðingu við fallinn félaga. Síð- ustu samverustundir okkar voru á léttari nótunum, svo við kæm- umst báðir í gegnum þær. Hann sat uppi og ég spurði hvort það hjálpaði að vera í Liverpool- sokkum. Svarið verður ekki haft eftir, en hann snýtti sér hressi- lega og bætti við: „Manchest- ermaður skilur þetta ekki, Liv- erpoolsokkarnir gera gæfumuninn.“ Oddur var enn sjóðheitur og trúr á okkar síð- asta fundi. Hann var nagli. Já algjör nagli í gegnum veikindin eins og lífið þar sem hann sótti stíft og fiskaði vel. Skipstjóri sem skilaði öllu sínu í land þótt oft væri róið á tæpasta vað. Þeir fiska sem róa og það var ekkert gefið eftir og ræst þegar aðrir lágu í höfn og lagt í ’ann, vestur fyrir opinn Kamar. Þar sem út- hafsöldurnar risu hæst og ekk- ert grín að eiga fyrstu bauju. Þeir fengu góða lexíu út í lífið peyjarnir sem voru með honum á sjó og gleyma því aldrei. Að vera með 45 tonn af óslægðum vertíðarfiski að meðaltali í róðri á vetrarvertíð gera ekki nema yfirburðamenn og skipstjóri sem þekkir miðin og þorskinn eins og lófann á sér. Oddur var vandvirkur og skannaði bleyð- urnar áður en hann lagði netin fyrir þorskinn. Álagið var oft mikið á bát og menn, teinar voru undir slitum og það var sjaldan tími að fá sér smók á milli bauja. Svo bannaði hann að reykja í borðsalnum fyrstur í öllum flotanum og fylgdi því eft- ir eins og enginn væri morgun- dagurinn. Staðfastur og sókn- djarfur skipstjóri á Stafnesi KE 130 og skipsrúmið var eftirsótt. Oddur var glæsilegur maður á velli, glaðlegur og bjartur sýn- um sem skapaði sér eftirsóttan orðstír meðal þeirra sem sigldu með honum í lífsins sjó. Við Sigga kynntumst Oddi og Jón- ínu fyrir 17 árum þegar við fluttum á Suðurnes og það var okkar lán. Hjálpsemin og greiði lífsins gerði okkur kleift að hefja nýtt líf á nýju heimili. Oddur og fjölskylda stóðu í stafni og veittu okkur skjól og styrk sem gerði okkur gæfu- muninn í lífinu. Það verður aldr- ei fullþakkað. Oddur var ankerið í fjölskyldunni sem var brim- vörn hans þegar síðustu brotsjó- irnir gengu yfir og ekkert varð við ráðið. Hann var stoltur af þeim og uppruna sínum. Góður drengur hefur barið nesti sitt fyrir aldur fram og siglir nú til frekari sóknar á nýj- um miðum. Við hjónin eigum minningar um góðan vin sem aldrei mun ganga einn. Vottum Jónínu, börnum þeirra og fjöl- skyldu samúð. Ásmundur Friðriksson og Sigríður Magnúsdóttir. Kveðja frá Knattspyrnu- deild Keflavíkur Keflavík hefur átt því láni að fagna að eiga fjölda máttar- stólpa sem hafa lagt sitt af mörkum fyrir félagið og komið knattspyrnunni í Keflavík á þann stall sem hún er nú á. Einn af þeim, Oddur Sæmunds- son, er nú fallinn frá aðeins 69 ára að aldri. Oddur var sannur Keflvíkingur í orðsins fyllstu merkingu. Hann mætti á alla leiki Keflavíkur og studdi liðið sitt bæði í orði og á borði. Odd- ur var sæmdur bæði brons- og silfurmerki Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags fyrir störf sín í stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur þar sem hann sat í um áratug. Auk þess hlaut Odd- ur starfsmerki UMFÍ árið 2016. Knattspyrnudeild Keflavíkur kveður fallinn félaga og þakkar af alúð fyrir vel unnin störf í þágu knattspyrnunnar. Við sendum innilegar samúð- arkveðjur til fjölskyldu og ást- vina. Sigurður Garðarsson, formaður knattspyrnu- deildar Keflavíkur. Lát akker falla! Ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel þú æðandi dimma dröfn! Vor Drottinn bregst eigi sínum. Á meðan akker í æginn falla. Ég alla vinina heyri kalla, sem fyrri urðu hingað heim. (Þýð. Vald. V. Snævarr) Í dag er kvaddur vinur góður, það er alltaf söknuður að kveðja vin, eftir samferð í gegnum lífið í áratugi, á landi og sjó, þar sem vinátta og tryggð var alltaf höfð í hávegum. Vinur sem var trúr sínu starfi og með óbylandi trú á því sem hann tók sér fyrir hendur, eins og róa til fiskjar með þorskanet allt árið og skila ótrúlegum árangri sem fáir trúðu á, síðan ráðist þið í það æskufelagarnir að láta byggja fyrir ykkur skip fullkomið og glæsilegt á sínum tíma ,og síðan útbúa skip til túnfiskveiða. Til þess þurfti mann eins og þig sem stóðst keykur við það sem þú ætlaðir með þínu fólki og þínum gjörfuleika. Það var ekki bara sjómennskan sem dreif þig áfram, áhugi á íþrótt- um og óbilandi trú á þínu liði svo sem eins og Keflavík og Liv- erpool, þar vorum við þó alltaf sammála. Það var þétt og góð kveðjan er við hittumst síðast, „við hitt- umst kannski fljótlega aftur“ sagði hann, þá langt leiddur af þeim sjúkdóm er hrjáði hann. En mér fannst í þessum orðum að hann vissi hvert stefndi. Hann var þó keykur og hress, beinn í baki og glæsileikinn skein af honum sem ungur væri. Það verða örugglega fagnað- arfundir og gleði mikil þegar þú kemur á fund brottkallaðra vina Árna Vikars, Sigurðar Steinar og Buggu hans Óla Björns. Að lokum vil ég þakka þér það trúnaðartraust sem milli okkar ríkti alla tíð. Fjölskyldu Odds Sæmunds- sonar vottum við Edda okkar dýpstu samúð, Runólfur Guðmundsson. Oddur tengdapabbi minn og vinur var einstakur maður í alla staði. Alveg frá því að ég hitti hann og Jónínu fyrst fannst mér ég alltaf velkomin í Heiðar- hornsfjölskylduna góðu. Fyrir það er ég endalaust þakklát. Oddur var mikill fjölskyldumað- Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.