Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 48

Morgunblaðið - 09.05.2020, Side 48
„Svekkelsið var alveg gríðarlegt“ ARNÓR Kristján Jónsson kris@mbl.is Á þessum degi fyrir þrjátíu árum lék Arnór Guðjohnsen til úrslita með Anderlecht í Evrópukeppni bikarhafa gegn ítalska liðinu Samp- doria. Ítalirnir höfðu betur en þeirra skærasta stjarna, Gianluca Vialli, skoraði bæði mörkin í 2:0 sigri á Ullevi-leikvanginum í Gauta- borg. Morgunblaðið hafði samband við Arnór og bað hann að rifja upp þennan viðburð en hann hafði árið 1984 farið með Anderlecht í úrslit í UEFA-bikarnum þar sem liðið tap- aði fyrir Tottenham. Eru þessir úr- slitaleikir þeir stærstu á glæsilegum ferli Arnórs? „Já, það má alveg segja það hvað varðar undirbúning og keppnina fram að úrslitaleik. Að komast alla leið í svona keppni og standa svo frammi fyrir svona úrslitaleik. Ég man að ég var aldrei eins einbeittur eins og fyrir leikinn gegn Samp- doria. Þegar við mættum Totten- ham var ég að koma úr meiðslum og kom bara inn á í seinni leiknum. Sú upplifun var því öðruvísi. Varð- andi minn feril með félagsliðum þá voru þetta stærstu leikirnir sem ég spilaði. Ekki síst út af umfanginu í kringum úrslitaleiki í Evrópu- keppnum,“ sagði Arnór sem var nokkuð áberandi í úrslitaleiknum gegn Sampdoria sem sýndur var í beinni útsendingu hér heima og ógnaði einna mest marki ítalska liðsins. Anderlecht náði sér ekki nægilega vel á strik í leiknum að sögn Arnórs. Engu að síður þurfti að framlengja til að ná fram úrslit- um. Óþarfa spenna „Maður fann einhvern veginn á liðinu að menn voru ekki að spila sinn besta leik. Var það örugglega út af spennunni. Ég man að ég var mjög ósáttur við þjálfarann í að- draganda úrslitaleiksins vegna þess að hann myndaði einhverja spennu í kringum byrjunarliðið, hverjir ættu að byrja inni á og hverjir ekki. Það var einhver óþarfa spenna í þessu og liðið var ekki tilkynnt fyrr en kvöldið fyrir leik. Málið er að hann var ekki vanur að vinna hlutina með þessum hætti en gerði það allt í einu þarna. Í búningsklefanum í hálfleik reyndu menn að peppa mannskap- inn upp en þá fann maður einnig fyrir því að það var eitthvert óör- yggi til staðar. Þar fyrir utan var Sampdoria klárlega betra liðið þeg- ar leið á leikinn. Þar sem ég hafði tapað úrslitaleik með Anderlecht áð- ur þá var ég alveg viss um að þarna yrði ég í sigurliði. Svekkelsið var því alveg gríðarlegt,“ rifjar Arnór upp. Lið sem oft náði langt Þann tíma sem Arnór var hjá Anderlecht var liðið ávallt vel mann- að. Belgar voru með mjög sterkt landslið á þessum árum og slógu í gegn á HM í Mexíkó árið 1986 þeg- ar þeir fóru í undanúrslit. „Við vorum með geysilega sterkt lið. Ekki bara í Belgíu heldur á evr- ópskan mælikvarða. Við vorum örugglega á meðal fimm bestu lið- anna í Evrópu. Sem dæmi þá sló Bayern München okkur út eitt árið en svo slógum við það út eitt árið en Bayern var þá eitt stærsta liðið í Evrópu fyrir utan kannski tvö bestu ítölsku liðin. Anderlecht hafði þrisv- ar unnið Evrópukeppni á árunum áður en ég kom til félagsins. 1976 og 1978 [Evrópukeppni bikarhafa] og voru nýkrýndir Evrópumeistarar þegar ég kom til félagsins eftir að hafa unnið [UEFA-bikarinn] 1983. Í þjálfarateyminu hjá okkur voru menn sem höfðu tekið þátt í úrslita- leikjum.“ Þögnin á Nývangi Frammistöðu liðsins segir Arnór hafa verið sérlega svekkjandi því liðið hafði oft leikið mjög vel á tíma- bilinu og bendir á að liðið sló Barce- lona út úr keppninni. Johan Cruyff var þá byrjaður að setja saman firnasterkt lið hjá Barcelona sem lék þrívegis til úrslita í Evrópu- keppnum á fjórum árum. „Við unnum Barcelona 2:0 í fyrri leiknum á heimavelli. Ég man að umfjöllunin um seinni leikinn var öll á þeim nótum að það ætti bara að slátra okkur. Forseti Barcelona lét út úr sér setningu sem gerði allt vitlaust. „Ef við þurfum að fótbrjóta þá til að komast áfram þá gerum við það.“ Setti þetta viðvör- unarbjöllur af stað hjá UEFA og það voru nokkrir eftirlitsmenn á leiknum til að allt færi eðlilega fram. Fyrir utan úrslitaleikinn var þessi leikur eftirminnilegastur enda hafði Barcelona unnið keppnina 1989. Þeir voru með Ronald Koe- man í vörninni, Michael Laudrup var kominn og Guardiola var þarna ungur leikmaður þótt ég þori ekki að fullyrða að hann hafi spilað. Camp Nou tók enn fleiri áhorf- endur þá en hann gerir í dag og voru 105 þúsund manns á vellinum. Ég gleymi þessu aldrei og tilfinn- ingin var eins og þrengt væri að manni. Ég hafði aldrei heyrt því- líkan hávaða í áhorfendum eins og þegar Barcelona skoraði fyrsta mark leiksins. Mig langaði að taka fyrir eyrun þótt maður geri það náttúrlega ekki. Þegar þeir skoruðu svo annað varð hávaðinn ennþá verri. Leikurinn fór svo í framleng- ingu og þá skoruðum við. Því augnabliki gleymi ég aldrei því þá tók bara við þögn. Þetta var bara rothögg. Þögnin hjá þessum mann- fjölda var eiginlega óhugnanlegri en hávaðinn. Reyndar fylgdu okkur fjögur þúsund stuðningsmenn til Barcelona en maður bara rétt heyrði í þeim,“ sagði Arnór og hlær að minningunni. „Þetta var magnaður leikur og í raun ótrúlegt að hafa komist í gegn- um þá enda voru þeir eitt allra besta lið Evrópu. Cruyff var þarna að koma inn með þann leikstíl sem menn eru þekktir fyrir hjá Barce- lona í dag,“ sagði Arnór Guðjohnsen í samtali við Morgunblaðið en leik- urinn fyrir þrjátíu árum markaði tímamót á ferli Arnórs því hann var sá síðasti sem Arnór spilaði fyrir Anderlecht.  Frekari upprifjun og spjall við Arnór er að finna í grein á mbl.is.  Úrslitaleikurinn fyrir 30 árum var síðasti leikur Arnórs fyrir Anderlecht Ljósmynd/Anderlecht Anderlecht Arnór Guðjohnsen í búningi Anderlecht með belgíska meist- arabikarinn á Constant Vanden Stock-leikvanginum í Brussel. 9. maí 1990 » Arnór Guðjohnsen var fasta- maður í liði Anderlecht sem lék til úrslita í Evrópukeppni bikar- hafa í knattspyrnu. » Eftir að hafa slegið út Bally- mena United, Barcelona, Ad- mira Wacker og Dinamo Búk- arest. » Anderlecht mætti Samp- doria í úrslitaleik í Gautaborg og hafði ítalska liðið betur 2:0 eftir framlengdan leik. » Anderlecht komst tvívegis í úrslit í Evrópukeppnum á þeim sjö árum sem Arnór var hjá fé- laginu. 48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020 9. maí 1989 Morgunblaðið segir frá því að Alfreð Gíslason, landsliðs- maður í hand- knattleik, hafi gert tveggja ára samning við spænska félagið Bidasoa. Alfreð fer því aftur í at- vinnumennsku eftir eitt ár með KR heima á Íslandi því hann hafði áður leikið með Essen í Vestur- Þýskalandi frá 1983 til 1988. 9. maí 1993 Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik sigrar Eng- lendinga, 104:92, í vin- áttulandsleik á Akranesi, en hafði tapað fyrir þeim með fimmtán stigum daginn áður. Valur Ingimundarson skorar 25 stig fyrir Ísland og Guð- mundur Bragason 23. 9. maí 1995 Ísland sigrar Túnis, 25:21, í öðrum leik sínum í heimsmeistarakeppni karla í handknattleik í Laugardals- höllinni og er með fjögur stig eftir tvær umferðir. Valdimar Grímsson skorar níu mörk fyr- ir íslenska liðið og Konráð Olavsson sex. 9. maí 2013 Þrír íslenskir knattspyrnu- menn eru bikarmeistarar með liðum sínum erlendis. Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Jóhannsson vinna hollenska bikarinn með AZ Alkmaar sem sigrar PSV Eindhoven 2:1 í úrslitaleik og Arnór Smára- son vinnur danska bikarinn með Esbjerg sem sigrar Rand- ers 1.0 í úrslitaleik. 10. maí 1981 Kraftajötnarnir Jón Páll Sig- marsson og Víkingur Trausta- son hljóta báðir silfurverðlaun í Evrópumeist- aramótinu í kraftlyftingum á Ítalíu, Jón Páll í -125 kg flokki og Vík- ingur í +125 kg flokki. Ísland hafnar í fimmta sæti af fjórtán þjóðum í stiga- keppni mótsins. 10. maí 1984 Vesturþýska knattspyrnu- félagið Bayer Uerdingen kaupir lands- liðsframherj- ann Lárus Guð- mundsson af belgíska félag- inu Waterschei og semur við hann til tveggja ára. Kaup- verðið er sagt vera 8,5 millj- ónir íslenskra króna. Uerdin- gen hafnaði í 10. sæti í Vestur-Þýskalandi þetta vor. Lárus hafði ári áður komist í undanúrslit Evrópukeppni bikarhafa með Waterschei, sem nú heitir Genk. 10. maí 1995 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik sigrar Ung- verja, 23:20, á heimsmeist- aramótinu í Laugardalshöll- inni og er með fullt hús stiga eftir þrjá fyrstu leikina. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland byrjar heimsmeistaramót á þremur sigrum og liðið stend- ur vel að vígi í riðli sínum. Valdimar Grímsson skorar 9 mörk og Júlíus Jónasson 5 fyr- ir íslenska liðið. Á ÞESSUM DEGI Handknattleiksmaðurinn Sig- tryggur Daði Rúnarsson leikur væntanlega í fyrsta skipti með meistaraflokksliði á Íslandi á næsta tímabili. Hann staðfesti við Vísi í gær að hann væri á heimleið frá Þýskalandi og þar kom fram sam- kvæmt heimildum að hann væri á leið til ÍBV. Sigtryggur Daði er 23 ára miðjumaður sem hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og spilað með þýsku B-deildarliðunum Lübeck-Schwartau, Balingen og Aue undanfarin ár en áður með Þór á Akureyri í yngri flokkum. Á heimleið frá Þýskalandi Ljósmynd/Lübeck-Schwartau Eyjar? Sigtryggur Daði Rúnarsson ætlar að leika á Íslandi næsta vetur. KA-menn halda áfram að stækka hóp sinn í handboltanum, en í gær skýrðu þeir frá því að Ragnar Snær Njálsson væri kominn aftur til fé- lagsins eftir langa fjarveru. Ragnar lék áður með KA og HK hér heima og með Dimou Thermaikou í Grikk- landi og Bad Neustadt í Þýskalandi. Hann dró sig í hlé frá handbolt- anum í heil sex ár en gekk til liðs við Stjörnuna snemma á síðasta ári og lék hálft annað tímabil með Garðabæjarliðinu. Ragnar er 34 ára og leikur sem skytta en er um leið öflugur varnarmaður. Ragnar snýr á heimaslóðir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Akureyri Ragnar Snær Njálsson er kominn aftur í uppeldisfélagið, KA.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.