Morgunblaðið - 09.05.2020, Síða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2020
Margir safnamenn og list-sagnfræðingar gangavíst með þann draum aðuppgötva og geta sýnt
áður óþekkta fjársjóði. Mér þykir
líklegt að starfsfólk Þjóðminjasafns
Íslands hafi fengið á tilfinninguna að
það hafi fengið einn slíkan upp í
hendurnar þegar það fór að kanna
ljósmyndasafn Gunnars Péturssonar
(1928-2012) sem
var afhent safn-
inu eftir hans
dag. Því um er að
ræða æði merki-
legt safn í ís-
lenskri ljós-
myndasögu, safn
mynda sem ein-
kennist af leitandi
og þroskaðri sýn
myndhöfundar sem hélt áfram að
vinna að verkum sínum án þess sam-
tals sem verður til við að sýna verkin
öðrum og fá við þeim viðbrögð.
Gunnar var sannkallaður huldumað-
ur í ljósmyndasögu okkar. Hann
vann alla starfsævi sína sem áhuga-
ljósmyndari en sýndi myndir aðeins í
upphafi opinberlega og er það því
fyrst nú sem við áttum okkur á því
hvað þessi hógværi Reykvíkingur,
sem naut þess að ferðast um land sitt
og taka hér myndir, hafði verið að
fást við. Og það er stórmerkilegt að
sjá.
Formtilraunir og ferðalög
Gunnar bjó alla ævi í sama húsi við
Grettisgötu og starfaði lengst af sem
skrifari í pakkhúsi Eimskipafélags-
ins. Hann fór aldrei til útlanda. En
rúmlega tvítugur gekk hann í Ferða-
félag Íslands og naut þess að ferðast
um landið; hann gekk á alla jökla og
fór vítt og breitt um hálendið, lengst
af með ferðafélaga sínum og náinni
vinkonu, Ingibjörgu Ólafsdóttur
(1914-1998), sem einnig var slyngur
áhugaljósmyndari. Og ferðalögin
urðu jafnframt uppspretta stórs
hluta myndefnisins.
Öflugar hreyfingar áhugaljós-
myndara urðu áberandi víða um lönd
eftir seinni heimsstyrjöld og varð
Gunnar snemma virkur í slíkum fé-
lögum hér. Í þeim var þá iðulega að
finna áhugaverðustu deigluna í ljós-
myndun, ljósmyndun sem varð hluti
af módernískri hreyfingu eftirstríðs-
áranna, þar sem sjónum var beint að
formum í stað frásagna; heimurinn
var í rúst eftir stríðið, mennskan
hafði tapað og áhersla var lögð á list
listarinnar vegna.
Í safni Gunnars sem afhent var
Þjóðminjasafninu eru um 54 þúsund
filmur, svarthítar og litskyggnur. Í
tilkynningu um sýninguna segir að
sjá megi að hið óhlutbundna hafi ver-
ið leiðarþráður í öllum verkum
Gunnars og er sagt að abstrakt ljós-
myndir hans teljist „einstakt fram-
lag til fagurfræðilegrar ljós-
myndunar á Íslandi“.
Gunnar var árið 1953 stofnfélagi í
Litla ljósmyndaklúbbnum og Félagi
áhugaljósmyndara og tók á næstu
árum virkan þátt í starfsemi beggja,
átti verk á samsýningum, tók þátt í
samræðum um verk annarra félaga
og þá sendi hann myndir á alþjóð-
legar sýningar sem voru algengar og
bæði virkum áhugaljósmyndurum og
atvinnumönnum bauðst að taka þátt
í. En eftir 1958 hætti Gunnar að sýna
myndir og liðu rúmlega fjórir ára-
tugir þar til hann tók árið 1999 þátt í
sýningunni Áhugaljósmyndarar í
Reykjavík 1950-1970 sem var sett
upp á vegum Þjóðminjasafns Íslands
í Þjóðarbókhlöðunni. Átti hann þar
fimm verk. Þrátt fyrir að hann sýndi
ekki opinberlega allan þennan tíma
er nú augljóst að hann hélt alla ævi
áfram að taka myndir og hafði
brennandi áhuga á miðlinum. Ég
minnist þess að hafa séð Gunnar á
sýningum á ljósmyndum og hann var
iðulega gestur þar sem ljósmyndarar
voru með leiðsögn um sýningar eða
héldu fyrirlestra. Nú er ekki annað
hægt en að harma að Gunnar hafi
ekki stigið fram sjálfur meðan hann
lifði og sýnt þessi verk – en sem bet-
ur fer glötuðust þau ekki heldur end-
uðu safni þjóðarinnar.
Áhrifamikil sýning
Sýningin í Myndasal er sett upp með
afar lifandi og áhugaverðum hætti.
Bæði eru sýnd svarthvít frumprent
Gunnars og ný og þá stærri prent
sem sýningarhöfundurinn Ívar
Brynjólfsson hefur unnið fagmann-
lega eftir filmum ljósmyndarans.
Formtilraunir eru áberandi þegar
gesturinn gengur í salinn, svo sem í
hreyfingu og hröðun í litmyndum og
tvítökum í svarthvítu, þar sem Gunn-
ar hefur tekið aftur ofan í myndir á
sömu filmuna. Í þessum verkum
birtist vel sterk formræn tilfinning,
þar sem myndsköpunin kallast á við
sambærilegar hræringar erlendis.
Gunnar varð snemma áskrifandi að
hinu framsækna bandaríska ljós-
myndarímariti Aperture, sem Minor
White ritstýrði og lagði til að mynda
áherslu á formræna nálgun við land-
lag. Eintök af tímaritinu og bókum
úr eigu Gunnars má sjá á sýningunni
– til að mynda með verkum eftir
Ernst Haas, sem var merkur frum-
kvöðull í sambærilegum tilraunum í
litljósmyndum og Gunnar fékkst við
um tíma. Athyglisvert er að sjá hvað-
an hann varð fyrir áhrifum.
Ánægjulegt er að sjá prent sem
Gunnar sendi til sýninga erlendis
sett upp þannig að gestir geti skoðað
á bakhliðinni stimpla og merkimiða
frá samkeppnum og sýningastöðum.
Þegar leið á ferilinn lagði Gunnar
sífellt meiri áherslu á myndir teknar
úti í náttúrunni og dró þá úr borgar-
myndum, sem hann myndaði líka
fyrstu árin. Undir lok ævi sinnar
fékk Gunnar Guðmund Ingólfsson til
að skanna inn fyrir sig nokkrar
valdar litljósmyndir af formum úr
náttúrunni sem hann lét prenta og
ramma inn – þær eru saman á sýn-
ingunni og virðist sem hann hafi ver-
ið þar byrjaður að undirbúa sýningu
á úrvali verkanna eftir sinn dag og
hafi viljað vera með í ráðum um
valið. Ívar hefur skannað inn og
stækkað aðrar raðir náttúru- og
landslagsmynda, afar formhreinar
og áhugaverðar.
Á nokkrum veggjum eru hópar
frumprenta Gunnars sem sýna vel
hvernig hann hugsaði endanlega út-
komu. Hann sker myndir óhikað og
þrengir, þar sem hann leggur ofur-
áherslu á nákvæma og hreina mynd-
byggingu. Fólk er iðulega notað sem
„myndauki“, til að gefa hreyfingu og
líf en verkin fjalla þó ekki endilega
um það, heldur snýst myndsköpunin
um heild og myndrænt jafnvægi. Og
orðið jafnvægi má nota um sýning-
una sem heild; áhugaverða mynda-
kjarnana, frummynda og nýrra
prenta, upplýsandi veggtexta og
ítarefni í sýningakössum.
Krafðist engrar athygli
Þjóðminjasafnið gefur út fallega bók
samhliða sýningunni og er hún eins
og vera ber ríkulega prýdd myndum
ljósmyndarans. Heimspekingurinn
Steinar Örn Erluson hefur rann-
sakað myndheim og feril Gunnars og
skrifar upplýsandi grein um hann. Í
kaflanum „Myndgreining“ er fjallað
stuttlega um átta þætti sem ein-
kenna safn Gunnars og ein mynd
sýnd sem dæmi um hvern: ganga,
náttúra, uppbrot, hröðun, fletir, ljós,
lýsing og ferðir. Í seinni hluta bókar-
innar eru síðan birtar rúmlega fimm-
tíu ljósmyndir.
Myndavalið er athyglisvert og gott
að ekki eru alltaf sömu myndir í bók
og sýningu. Hins vegar þykir rýni
það aðfinnsluvert að þegar til eru
frumprent eftir Gunnar sem sýna
hvernig hann vildi skera myndirnar
sé ekki farið eftir því við birtingu
þeirra mynda. Í bókinni eru nokkrar
ljósmyndir sem sjást á sýningunni
þrengra skornar af Gunnari og skilj-
anlega, því þær eru áhrifameiri með
þeim hætti, lausar við allan óþarfa
sem truflar augað, með réttri
áherslu á form og hreyfingu. Hans
útgáfa er rétta myndverkið, óskorin
filman hráefnið í það.
Gunnar Pétursson var óvenju-
legur maður í íslenskri ljósmynda-
og myndlistarsögu. Huldumaður
sem vann markvisst að myndheimi
sínum, sýnilega án þarfar fyrir að
sýna verkin. Guðmundur Ingólfsson
ljósmyndari skrifaði í minningar-
grein að með honum væri genginn
maður „sem fékkst til hinstu stundar
við skapandi iðju af listfengi og
krafðist engrar athygli. Slíkir menn
eru sjaldgæfir.“
Þótt Gunnar sé ekki meðal okkar
til að fylgja verkum sínum eftir er
sýningin fallegur og merkilegur
minnisvarði um vinnu hans, og við-
burður sem enginn áhugamaður um
myndsköpun ætti að missa af.
Verk huldumanns afhjúpuð
Morgunblaðið/Eggert
Uppgötvun Frá fjölbreytilegri og vel uppsettri sýningunni með verkum Gunnars í Myndasal Þjóðminjasafnsins.
Hún er „viðburður sem enginn áhugamaður um myndsköpun ætti að missa af,“ skrifar gagnrýnandi.
Þjóðminjasafn Íslands
Gunnar Pétursson – Í ljósmálinu
bbbbm
Sýningarhöfundur: Ívar Brynjólfsson.
Þjóðminjasafn er opið alla daga frá kl.
10 til 17.
Höfundur greina í samnefndri bók:
Steinar Örn Erluson.
Ritstjóri: Linda Ásdísardóttir.
Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands,
2020. Kilja í stóru broti, 112 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
LJÓSMYNDUN
Myndbygging Röð mynda þar sem ljósmyndarinn leikur sér með marg-
breytileg formin sem samspil verkamanna á byggingarpöllum mynda.
Einbeittur Ingibjörg Ólafsdóttir
myndaði Gunnar í Þórsmörk.
Veiðivefur
í samstarfi við