Morgunblaðið - 20.05.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 20.05.2020, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. M A Í 2 0 2 0 SAFNA FÉ EFTIR AÐ FORSETINN FLÚÐI LAND CAPO VERDE AIRLINES Í ERFIÐLEIKUM HOLLYWOOD OG FYRSTA BREIÐSKÍFAN VIÐSKIPTAMOGGINN ATLI ÖRVARSSON 24HÓLMAR ÖRN 22 Línuflokkur á vegum Landsnets færði í gær mastur í Hnoðraholtslínu sem liggur á milli tengivirkja í Hafnarfirði og í Hnoðraholti í Garðabæ. Mastrið var fært um 26 metra í sama línustæði til að rýma fyrir lagningu Ásvalla- brautar í Hafnarfirði. Gekk verkið eins og í sögu, samkvæmt upplýsingum Landsnets, og síðdegis í gær átti að setja straum á línuna á nýjan leik. Línuflokkurinn var búinn að undirbúa verkið með því að lagfæra slóða og útbúa plan fyrir krana og undirstöður á nýjum stað. Krani var notaður til að fella mastrið og reisa það á ný. Línumenn- irnir stilltu mastrið af og festu stögin. Mastur í háspennulínu fært um 26 metra til að rýma fyrir nýjum vegi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Línuflokkur Landsnets að störfum við Hnoðraholtslínu í Hafnarfirði Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Komið hefur til tals að sett verði á laggirnar nýtt stéttarfélag flug- freyja. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins innan úr Icelandair. Ef af yrði myndi nýtt félag vera skipað flugfreyjum sem ekki styðja stefnu samninganefndar Flugfreyju- félags Íslands (FFÍ). Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur hugmyndin verið viðruð innan Ice- landair, en vel kemur til greina að semja við nýtt félag. Þá horfir flug- félagið ekki til þess að fá inn sjálf- stæða verktaka í stað núverandi flugfreyja. Þess í stað verður fremur gengið til samninga við nýtt stétt- arfélag náist ekki samningar við FFÍ. Eins og mbl.is greindi frá í gær óskaði samninganefnd Flugfreyju- félags Íslands eftir frestun samn- ingafundar í kjaradeildu félagsins og Icelandair, sem átti að hefjast klukk- an 17 síðdegis í gær. Síðasta sátta- fundi í kjaradeilunni lauk um klukk- an eitt í fyrrinótt en hann stóð yfir í um 11 klukkustundir. Boðað hefur verið til nýs fundar í deilunni klukk- an 8:30 hjá ríkissáttasemjara. Að því er heimildir Morgunblaðsins herma er enn talsvert milli deiluaðila og er staðan jafnframt viðkvæm. Hluthafafundur á föstudag Til að samningar náist er ljóst að ná þarf samkomulagi sem gerir Ice- landair betur samkeppnishæft á al- þjóðavísu. Nú þegar hefur verið samið við flugvirkja og flugmenn, en ekki hefur enn tekist að semja við flugfreyjur. Hefur Bogi Nils Boga- son, forstjóri flugfélagsins, jafn- framt sagt að kjarasamningar við flugstéttir verði að liggja fyrir áður en hluthafafundur fer fram nú á föstudag. Á fundinum fer fram at- kvæðagreiðsla um hvort ráðist verði í nýtt hlutafjárútboð þar sem stefnt er að því að safna 30 milljörðum króna. Í skriflegu svari við fyrir- spurn Morgunblaðsins fyrr í vikunni var félagið ekki tilbúið að taka af- stöðu til þess hvernig brugðist yrði við ef samningar við flugfreyjur nást ekki fyrir framangreinda dagsetn- ingu. Semji við nýtt stéttarfélag flugfreyja  Ekki útilokað að Icelandair geri kjarasamning við annað stéttarfélag Eftir fyrirhugaðar breytingar á stóra bíósalnum í Bíóhöllinni í Álfabakka verða þar 60% færri sæti en voru í honum eftir að bíóið var opnað fyrst árið 1982. Upphaflega voru 517 sæti í salnum en eftir breytingarnar verða þau 200 talsins. Árni Samúelsson, forstjóri Sambíóanna, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að vegna kórónuveirunnar hafi þurft að fresta breytingum á bíósölunum í Álfa- bakka, en hann vonast til að þeim verði lokið næsta sumar. „Við mun- um eftir þessar breytingar bjóða upp á flottari sali og meiri þægindi fyrir gesti.“ Öllum Sambíóunum var lokað vegna samkomubannsins sem sett var á vegna kórónuveirunnar, en nú hafa Sambíóin í Álfabakka verið opn- uð aftur. Árni segir að búið sé að fresta fjölda stórmynda sem sýna átti nú í vor, og óvíst sé hvenær fyrsta nýja stórmyndin komi í bíó. „Við stefnum á að sýna fyrstu nýju stórmyndirnar síðsumars. Það verð- ur boðið upp á leikna útgáfu af Mulan og svo stórmynd Christopher Nolan, Tenet. Svo koma myndirnar í bunum og í haust opnast allar flóðgáttir.“ Í samtalinu ræðir Árni einnig um setu sína í stjórn risafyrirtækisins Cineworld, sem einnig hefur orðið fyrir miklum áhrifum af kórónuveir- unni. Fækka bíósætun- um niður í 200  Árni Samúelsson segir að mikið hungur sé í nýjar stórmyndir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Árni Kórónuveiran hefur sett strik í reikninginn hjá Sambíóunum. Stofnað 1913  118. tölublað  108. árgangur 

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.