Morgunblaðið - 20.05.2020, Page 6

Morgunblaðið - 20.05.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS Fagmennska og þjónusta ASSA ABLOY á heima hjá okkur - Lyklasmíði og vörur Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kristján Þórður Snæbjarnarson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, segir um 10% félagsmanna, eða um 650 manns, hafa farið á hlutabætur eftir að kórónuveirufaraldurinn braust út. Þá hafi um 150 félagsmenn verið atvinnu- lausir og í fullri atvinnuleit. Það sam- svarar rúmlega 2% félagsmanna. Um 6.500 félagsmenn eru í Rafiðn- aðarsambandi Íslands. Tölurnar koma frá Vinnumálastofn- un og eiga við um marsmánuð. Því er ekki ólíklegt að tölurnar hafi lækkað með tilslökunum á samkomubanni. „Maður heyrir að atvinnuástandið sé mjög gott í okkar grein. Það er enn nóg af verkefnum og töluverð vinna í boði. Staðan er því betri en í mörgum greinum,“ segir Kristján Þórður. Að hans mati bendi flest til að fækka muni á hlutabótaskránni en á móti kunni atvinnuleysi að aukast. Urðu að draga úr þjónustu Kristján Þórður segir að almennt hafi nýframkvæmdir haldið áfram í faraldrinum en sum fyrirtækja hafi þurft að draga úr þjónustu. Þá hafi margir rafiðnaðar- menn misst verk- efni eftir að allt viðburðahald féll niður í faraldrin- um. Ástandið sé virkilega slæmt í viðburðageiran- um. Töluvert er um opinberar fram- kvæmdir. M.a. á að byggja nýtt skrifstofuhús Alþingis, viðbyggingu við Stjórnarráðið og nýj- ar höfuðstöðvar Landsbankans. Verkefnin munu skapa störf En hvaða áhrif skyldu þessi verk- efni hafa á eftirspurn eftir rafiðnaðar- mönnum? Kristján Þórður segir að al- mennt skapi framkvæmdir störf fyrir félagsmenn hans. „Þó eru blikur á lofti varðandi verk- efnastöðuna. Það er ekki sérlega bjart yfir til lengri tíma,“ segir hann. Hætt sé við að dregið verði úr yfirvinnu „við þær aðstæður sem séu fram undan“. Það geti aftur lækkað heildarlaun. „Okkar geiri hefur haft töluverða yf- irvinnu. Það hefur verið skortur á mannskap,“ segir Kristján. Spáir fækkun á hlutabótaskrá  Formaður RSÍ segir stöðuna almennt góða Kristján Þórður Snæbjarnarson Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við fögnum þessari niðurstöðu. Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, for- stjóri Byko, í samtali við Morgun- blaðið. Vísar hann þar til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem sátt var náð milli íslenska rík- isins og sex fyrrverandi starfsmanna Húsasmiðjunnar og Byko. Efnislega eru dómarnir sex allir eins. Mennirnir sex voru hluti tólf starfsmanna Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins byggingarvöruverslunar sem voru upphaflega ákærðir fyrir ólöglegt verðsamráð. Voru mennirn- ir, að einum undanskildum, sýknaðir í héraðsdómi. Hæstiréttur sneri hins vegar sex dómum héraðsdóms við og voru alls sjö starfsmenn Byko og Húsasmiðjunnar sakfelldir fyrir refsivert verðsamráð. Á síðasta ári komst Mannréttinda- dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ríkið hefði brotið á Júlíusi Þór Sig- urþórssyni, sem Hæstiréttur hafði dæmt í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi, með því að snúa við dómi héraðsdóms án þess að hafa hlýtt á vitnisburð í málinu. Í kjölfarið viður- kenndi ríkið brot sitt í málum hinna mannanna sex. Í öllum málum var brotið það sama, en Hæstiréttur var talinn hafa brotið gegn lögum um milliliðalausa málsmeðferð og sönn- unarfærslu. Þá var sömuleiðis farið gegn reglum Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð. Fengu ekki að beita vörnum „Þeir fengu ekki að beita vörnum og það kemur skýrt fram í dómnum,“ segir Sigurður og bætir við að þetta styðji málflutning Byko. Sjálfur kveðst hann hafa átt von á niðurstöð- unni. „Þetta kom okkur alls ekkert á óvart enda áttum við von á þessu,“ segir Sigurður. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem MDE ályktar að brotið hafi verið gegn reglum um milliliðalausa sönn- unarfærslu með dómi í Hæstarétti. „Þetta er ekki mál sem ég vil vera að tjá mig um. Ég get hins vegar sagt að þetta er ekki eina málið sem er að koma til baka frá Mannréttindadóm- stólnum. Það er auðvitað klárlega umhugsunarefni,“ segir Sigurður. Ríkið viðurkennir brot í Byko-máli  Forstjóri Byko segir niðurstöðuna mjög ánægjulega  Farið gegn reglum um réttláta málsmeðferð Morgunblaðið/Ómar Byko Íslenska ríkið viðurkenndi brot sitt í Byko-málinu svokallaða. Aðsóknin í Laugardalslaugina hef- ur verið prýðileg það sem af er vik- unni að sögn Sigurðar Víðissonar, forstöðumanns laugarinnar. Segir Sigurður að aðsóknin hafi verið mest á mánudeginum, en þegar leyfilegt var að hafa laugina opna frá miðnætti til kl. 6 um morguninn hafi 560 manns farið í sund. Fjöldi fólks í lauginni er tak- markaður vegna samkomubanns sóttvarnayfirvalda og einungis mega vera 350 manns í lauginni í einu. Sigurður segir það bara hafa gerst einu sinni á mánudag, en að jafnaði hafi verið um 280 manns í einu í Laugardalslaug. Sigurður segir aðspurður að að- sóknin sé aðeins meiri en fólk hafi átt von á, en þó ekki óvenjulega mikil miðað við hvað veðrið hefur verið gott. Hins vegar sé ljóst að margir hafi verið orðnir spenntir fyrir því að geta fengið sér sundsprett á nýjan leik. „Það hefur verið gaman að sjá hvað það er margt fólk, og einnig gaman að sjá hve margir af fasta- gestum laugarinnar hafa lýst yfir ánægju sinni með að vera komnir aftur,“ segir Sigurður. sgs@mbl.is Fólk fegið að geta farið í sund Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.