Morgunblaðið - 20.05.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA. Mán. til fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16. Sunnud. kl. 12–16
RAFLAGNAEFNI
Í MIKLU ÚRVALI
Tedros Adhanom er forstjóriAlþjóðlegu heilbrigðisstofn-
unarinnar. Hann var áður heil-
brigðisráðherra og svo utanrík-
isráðherra í
ríkisstjórn sem
setið hefur ára-
tugum saman í
Eþíópíu.
Flokkur hanskenndi sig
við marx-
lenínisma en eftir
fall Sovétríkjanna
var nafni stjórnar-
flokksins breytt
og flokkurinn
sagðist nú stjórn-
arskrárbundinn
lýðræðisflokkur.
Það breytti þóengu um ráðherraferil Te-
drosar, því að stjórnarflokkurinn
leiðir enn einn í Eþíópíu, sem er
hið fullkomna lýðræði.
Tedros tók langan tíma í aðviðurkenna að kórónuvírus
gæti smitast á milli manna. Sú af-
staða stofnunar SÞ sem honum er
trúað til að stjórna ýtti ekki und-
ir að aðildarþjóðir hertu varnar-
aðgerðir gagnvart faraldrinum.
Þegar Tedros hafði verið trúað
fyrir WHO skipaði hann Mugabe,
slátarann frá Simbabve, sem sér-
stakan friðarsendiherra stofn-
unarinnar! Hann var þó síðar
knúinn til að afturkalla þá skip-
an.
Í vikunni fór fram netfundurríkja um stöðu þessarar um-
deildu stofnunar. Svandís Svav-
arsdóttir varði fyrir hönd Íslands
Tedros forstjóra í bak og fyrir.
Það væri fullmikið sagt að farið
hafi vel á því, en það kom ekki al-
veg á óvart. Vonandi hefur hún
ávarpað hann sem Comrade í
upphafsávarpi!
Svandís
Svavarsdóttir
Comrade Tedros
STAKSTEINAR
Tedros Adhanom
Ghebreyesus
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hafist verður handa í vikunni við að
flytja malarefni í yfirborð á nýjum
göngustíg á Skógaheiði með þyrlu.
Af öryggisástæðum verður lokað
fyrir aðgengi að bílastæðinu sem og
að Skógafossi sjálfum á meðan þyrl-
an er að störfum. Reiknað er með að
verkið hefjist á föstudagsmorgun og
taki fjóra til fimm daga.
Unnin hefur verið grófvinna og
landmótum síðustu mánuði og stytt-
ist í verklok, en um er að ræða ann-
an áfanga af þremur í uppbyggingu
Umhverfisstofnunar á göngustígum
á heiðinni. Að verki loknu verður
hægt að virða fyrir sér fossaröð
Skógaár á öruggan og sjálfbæran
máta, segir í frétt á heimasíðu Um-
hverfisstofnunar. Hingað til hefur
verið gengið meðfram ánni á göml-
um kindaslóðum og var svæðið veru-
lega farið að láta á sjá sökum
ágangs.
Til að koma malarefni í yfirborð
hins nýja stígs þarf að flytja nokkur
hundruð rúmmetra með þyrlu upp af
láglendinu. Í fréttinni segir að í
ferðamannaleysinu hafi skapast
tækifæri til að skipuleggja þyrlu-
flutninginn á þann veg að notast
verður við bílastæðið framan við
fossinn sem vinnusvæði meðan á
þyrluflutningum stendur.
Áður stóð til að fljúga þyrlunni
margfalt lengri vegalengd í hverri
ferð til að komast hjá lokunum, enda
hefur fossinn jafnan verið heimsótt-
ur af þúsundum gesta á degi hverj-
um á síðustu árum. aij@mbl.is
Takmarkað aðgengi að Skógafossi
Ljósmynd/Umhverfisstofnun
Skógaheiði Bílastæði verður nýtt
sem vinnusvæði í ferðamannaleysinu.
Þyrla notuð til að flytja efni í stíga
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Aðalmeðferð í máli byggingaverktak-
ans Sérverks ehf. á hendur Reykja-
víkurborg hefst í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag. Borginni er stefnt
til endurgreiðslu oftekinna gjalda en
til vara að ólögmæti innviðagjalds
verði viðurkennt.
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum er það Sérverk sem stefnir
borginni formlega en að baki mál-
sókninni er hópur stórra verktaka-
fyrirtækja innan vébanda Samtaka
iðnaðarins.
Einar Hugi Bjarnason, lögmaður
verktakafyrirtækjanna, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að annars veg-
ar sé krafist endurgreiðslu á 120
milljóna innviðagjaldi sem Sérverk
hafi greitt vegna framkvæmda í
Vogabyggð. Einnig sé sett fram
viðurkenningarkrafa í því skyni að fá
fram álit dómsins á lögmæti gjalds-
ins. Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri SI, hefur nefnt sem
dæmi að innviðagjald vegna upp-
byggingar í Vogabyggð nemi 23 þús-
und krónum á fermetra, eða 2,3 millj-
ónum á hverja 100 fermetra íbúð.
„Það hefur mjög mikla þýðingu að
leyst verði úr þessu máli. Bara í
Vogabyggð var innviðagjaldið fimm
milljarðar króna en gjaldið hefur ver-
ið lagt víðar á í borginni. Hluti gjalds-
ins á að fara í uppbyggingu skóla og
gatna sem teljast til hefðbundinna
verkefna sveitarfélaga. Það er uppi-
staðan í málarekstrinum að það gangi
ekki að leggja á frekari gjöld vegna
þessara verkefna,“ segir Einar Hugi.
Búast má við því að málflutningi ljúki
í dag og að dómur verði kveðinn upp
innan fjögurra vikna.
Milljarðar í innviða-
gjöld fyrir dómstóla
Aðalmeðferð í
máli Sérverks gegn
Reykjavíkurborg
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vogabyggð Mikil uppbygging er
þegar hafin og innviðagjald rukkað.