Morgunblaðið - 20.05.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Íslandsbanki ætlar að loka tveimur
útibúum sínum á höfuðborgarsvæð-
inu á næstunni, annars vegar á
Granda og hins vegar á Höfða, og
verður útibú bankans á Suðurlands-
braut þá hið eina sem eftir verður í
Reykjavík. Auk þess verður bankinn
áfram með afgreiðslu í höfuðstöðv-
um sínum í Smáranum og útibúinu í
Strandgötu í Hafnarfirði.
Edda Hermannsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Íslandsbanka, sagði í
samtali við mbl.is í gær að engum
yrði sagt upp í tengslum við þessar
breytingar, heldur færðist starfsfólk
í útibúið á Suðurlandsbraut og í aðal-
stöðvarnar. Samtals starfa 15 manns
í útibúunum tveimur. Verður nú öll
húsnæðislánaþjónusta bankans á
Suðurlandsbraut.
Í tilkynningu frá bankanum segir
að bankaþjónusta hafi breyst mikið á
undanförnum árum. Þá hafi kórónu-
veirufaraldurinn flýtt fyrir þessari
þróun og hafi notkun á bankaþjón-
ustu í appi meðal annars margfald-
ast. Samkvæmt upplýsingum frá
Eddu hefur heimsóknum fyrstu dag-
ana eftir að útibú bankans voru opn-
uð að nýju eftir faraldurinn fækkað
um 70% miðað við sama tíma í fyrra.
Útibúum fækkað mjög
Útibúum viðskiptabankanna hefur
fækkað mikið undanfarinn áratug,
en Landsbankinn rekur í dag fimm
útibú í Reykjavík auk fyrirtækjamið-
stöðvar og tveggja útibúa í öðrum
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð-
inu. Arion banki rekur í dag þrjú
útibú í Reykjavík og einn fyrirtækja-
kjarna. Þá er Arion með tvö útibú í
öðrum sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Með aðeins eitt útibú í Reykjavík
Íslandsbanki hyggst loka útibúum
sínum á Granda og Höfða á næstunni
Morgunblaðið/Hallur Már
Útibú Faraldurinn hefur haft áhrif á bankaþjónustu og heimsóknir í útibú.
Opnað var fyrir umsóknir á endur-
greiðslum á virðisaukaskatti vegna
ýmiss konar vinnu við bílaviðgerðir í
gær. Um er að ræða bílaviðgerðir,
sprautanir og réttingar á fólks-
bifreiðum einstaklinga sem felldar
voru undir átakið „Allir vinna“ til að
mæta efnahagslegum áhrifum kór-
ónuveirunnar. Ekki er hægt að sækja
um vegna atvinnubíla. Fjárhæð
vinnuliðar í þessu sambandi þarf að
vera að lágmarki 25.000 kr. án virð-
isaukaskatts.
Sótt er um á þjónustusíðu Skattsins
en þar er umsóknir að finna undir
flipanum „samskipti“.
Jafnframt er nú hægt að sækja um
100% endurgreiðslu á virðisauka-
skatti af vinnu við íbúðarhúsnæði og
frístundahúsnæði, vegna reikninga
frá og með 1. mars síðastliðnum.
Þetta á einnig við um reikninga
vegna heimilisaðstoðar og reglu-
legrar umhirðu íbúðarhúsnæðis, s.s.
garðvinnu, ræstingar sameignar og
annarra þrifa. Þessi útfærsla á „Allir
vinna“-úrræðinu gildir á tímabilinu 1.
mars og til ársloka. hdm@mbl.is
Opnað fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts
Morgunblaðið/Golli
Starfsemi Virðisaukaskattur af
vinnu við hús er nú endurgreiddur.
Aðalfundur
Eikar fasteignafélags hf.
verður haldinn 10. júní 2020
Aðrar upplýsingar:
Hluthafi getur falið umboðsmanni að sækja hluthafafund
fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram dagsett og
skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í samræmi
við eyðublað sem er aðgengilegt á heimasíðu félagsins.
Rafrænt umboð skal senda á netfangið stjornun@eik.is
áður en fundur hefst. Umboð verða ekki afturkölluð svo
gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað
við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins,
hvort heldur sem fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar
á aðalfundinum og leggja fram ályktunartillögur ef hann
gerir skriflega eða rafræna kröfu um það til stjórnar
félagsins eigi síðar en kl. 16:00 sunnudaginn 31. maí
2020. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið
stjornun@eik.is. Hafi hluthafi krafist þess að fá mál tekin til
meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögur fyrir
framangreindan tíma, verða dagskrá og tillögur uppfærðar
á heimasíðu félagsins eins fljótt og auðið er eftir móttöku
þeirra. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar eigi síðar
en miðvikudaginn 3. júní 2020. Mál sem ekki hafa verið
greind í endanlegri dagskrá aðalfundar er ekki unnt að taka
til endanlegrar úrlausnar á fundinum nema með samþykki
allra hluthafa en gera má um þau ályktun til leiðbeiningar
fyrir félagsstjórn.
Á hluthafafundum félagsins fylgir eitt atkvæði hverri einni
krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á
fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst
þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt ef framboð fleiri
aðila koma fram en nemur fjölda sæta sem kjósa skal um.
Hluthafar geta greitt atkvæði bréflega fyrir fundinn með því
að fylla með skýrum og greinilegum hætti út atkvæðaseðil
sem finna má á heimasíðu félagsins, undirrita og votta
seðilinn, og senda hann með pósti á lögheimili félagsins
eða rafrænt á netfangið stjornun@eik.is. Atkvæðaseðillinn
þarf að uppfylla framangreind skilyrði og berast í síðasta lagi
einni klukkustund fyrir upphaf aðalfundarins svo atkvæðið
teljist gilt.
Frestur til þess að senda tilnefningarnefnd félagsins framboð
til stjórnar rann út 20. febrúar 2020 vegna aðalfundar sem
stóð til að halda 2. apríl 2020 en var frestað vegna COVID-19
faraldursins. Ekki er ráðgert að tilnefningarnefnd fjalli
um ný framboð til stjórnar vegna boðaðs fundar. Tillögur
tilnefningarnefndar koma fram í skýrslu nefndarinnar
sem er aðgengileg hluthöfum á heimasíðu félagsins.
Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið
stjornun@eik.is lýkur sjö sólarhringum fyrir aðalfund, nánar
tiltekið kl. 16:00 miðvikudaginn 3. júní 2020. Eyðublöð
vegna framboðs til stjórnarsetu er að finna á heimasíðu
félagsins og verða upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar
birtar þar og verða til sýnis á skrifstofu þess eigi síðar en
sólarhring eftir að framboðsfrestur rennur út.
Fresti til að tilkynna um framboð til setu í tilnefningarnefnd
á netfangið stjornun@eik.is lýkur fimm sólarhringum fyrir
aðalfund, nánar tiltekið kl. 16:00 föstudaginn 5. júní 2020.
Eyðublöð vegna framboðs til setu í tilnefningarnefnd er
að finna á heimasíðu félagsins og verða upplýsingar um
frambjóðendur birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en
tveimur dögum fyrir hluthafafundinn.
Aðalfundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann
er löglega boðaður, sbr. 11. gr. samþykkta félagsins.
Aðalfundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn
og atkvæðaseðlar, sem verða afhent á fundarstað, einnig
á íslensku.
Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem
varðar aðalfundinn, svo sem endanleg dagskrá, tillögur
stjórnar og hluthafa, starfskjarastefna, skýrsla tilnefningar-
nefndar félagsins, eyðublöð vegna umboðs og framboðs
til stjórnar, upplýsingar um atkvæðagreiðslu og atkvæða-
seðill vegna skriflegra kosninga og kosninga fyrir aðalfund,
skjöl sem verða lögð fram á aðalfundi, upplýsingar um
frambjóðendur, upplýsingar um fjölda hluta og atkvæða-
fjölda í félaginu, er - eða verður eftir því sem þau verða til
- að finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is/fjarfestar/
hluthafar. Auk þess munu viðeigandi gögn liggja frammi
í höfuðstöðvum félagsins, að Sóltúni 26, 105 Reykjavík,
þremur vikum fyrir aðalfundinn.
Upplýsingar um tillögur stjórnar um breytingar á starfs-
kjarastefnu félagsins og samþykktum ásamt greinargerð
með þeim má finna í heild sinni á heimasíðu félagsins,
www.eik.is/fjarfestar/hluthafar. Í stuttu máli lúta tillögurnar
að eftirfarandi:
• Lögð er til breyting á grein 4.3 í starfskjarastefnu
félagsins. Lagt er til að hámark árangurstengdra
greiðslna, sem hlutfall ofan á heildarlaun starfsmannsins
sem umbunað er, á ársgrundvelli, verði hækkað í 16%.
Tillögunni er ætlað að auka svigrúm félagsins til þess að
umbuna starfsmönnum fyrir árangur í starfi.
• Lögð er til breyting á fjölda hluta í 4. gr. samþykkta
félagsins verði tillaga um lækkun hlutafjár samþykkt.
Reykjavík, 19. maí 2020
Stjórn Eikar fasteignafélags hf.
Stjórn Eikar fasteignafélags hf. boðar til aðalfundar í félaginu. Fundurinn verður
haldinn í salnum Háteig, á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 10.
júní 2020 og hefst stundvíslega kl. 16:00.
Eik fasteignafélag hf.
Sóltún 26, 105 Reykjavík
www.eik.is
Framkvæmd aðalfundar félagsins kann að verða breytt með hliðsjón af tilmælum stjórnvalda eða öðrum viðbrögðum vegna
COVID-19 faraldursins. Upplýst verður um ráðstafanir af þessum sökum eftir því sem við verður komið.
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár
2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagðir fram til staðfestingar
3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og nefnda fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár
5. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins
6. Kosning félagsstjórnar
7. Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd
8. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
9. Heimild til kaupa á eigin hlutum
10. Tillaga um lækkun hlutafjár
11. Önnur mál sem löglega eru fram borin
Drög að dagskrá fundarins er svohljóðandi:
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Goðalandi,
Fljótshlíð, föstudaginn 12. júní 2020 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á 27. gr. samþykkta félagsins.
3. Önnur mál.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skulu hafa borist
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir
aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.
Reykjavík, 19. maí 2020.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
Samkvæmt gögnum Fiskistofu var
hlutfall landaðs botnfiskafla á fisk-
veiðiárinu 65% af aflaheimildum
hinn 15. maí sl. en var tæp 70% á
sama tíma í fyrra. Kristján Þór Júl-
íusson, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, hefur undirritað
reglugerð þar sem heimild til flutn-
ings aflamarks í botnfisktegundum
yfir á næsta fiskveiðiár er aukin
tímabundið úr 15% í 25%. Er þetta
gert til að stuðla að meiri sveigjan-
leika við veiðar og vinnslu til að
bregðast við áhrifum COVID-19 á ís-
lenskan sjávarútveg, segir í frétt frá
ráðuneytinu.
Mikill samdráttur í eftirspurn eft-
ir ferskfiski í heiminum í kjölfar CO-
VID-19 er helsta ástæða þessarar
lækkunar en einnig hefur dregið úr
eftirspurn eftir frosnum afurðum á
síðustu vikum. Við þær aðstæður var
talið rétt að veita tækifæri til frekari
sveigjanleika við veiðar og vinnslu
með því að hækka heimild til flutn-
ings úr 15% í 25%, segir í fréttinni.
Heimilt að flytja
meira á milli ára
Morgunblaðið/RAX
Þorskur Hlutfallslega minna hefur
verið veitt á þessu fiskveiðiári.