Morgunblaðið - 20.05.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.05.2020, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mikillgróður-eldur kviknaði í Borg- arfirði í fyrradag og stóð slökkvi- starf yfir fram á nótt. Elds- upptök voru í Norðurárdal þar sem fyrir er mosi, kjarr og lyng. Um 100 manns börðust við eldinn. Auk björgunar- sveita og tiltæks mannskapar var kallað til lið frá Akranesi og Suðurnesjum. Var slökkvi- starfið erfitt og flókið. „Þetta er eins djöfullegt og hugsast getur, að fá eld í þetta. Það eru um þrjú þúsund ár síð- an talið er að Grábrók hafi gos- ið síðast. Það má því gera ráð fyrir að mosinn sé ekki mikið yngri en það, en hann er yfir- leitt um 20 sentimetra þykkur, og meira en það sums staðar,“ sagði Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri Borgar- byggðar, í samtali við mbl.is í gær. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem gróðureldar kvikna á þessum slóðum. Sem betur fer varð ekki manntjón. Hins veg- ar kom berlega í ljós hvað lítið þarf til að eldur breiðist út ef gróður er þurr. Ekki er vitað hvernig eld- arnir í Norðurárdal kviknuðu. Líklegt verður þó að telja að það hafi verið af mannavöld- um. Talið er að níu af hverjum tíu gróðureldum á Íslandi verði af völdum manna. Slíkir eldar kvikna ekki hér á landi nema eldingu slái niður. Það er því full ástæða til að minna á að fara varlega með eld og átta sig á því að það þarf ekki að vera hlýtt í veðri til að eldar logi ef lítið hefur rignt og gróður er skraufþurr. Hér blossa reglulega upp gróðureldar og hefur jafnvel tekið marga daga að ráða nið- urlögum þeirra. Hafa sérfræð- ingar sagt að búast megi við að þeir verði tíðari samfara hlýrra veðurfari og aukinni gróðursæld. Sveitarfélög eru mörg lítt búin til að takast á við slíka elda og hafa þau verið hvött til að gera áætlanir um hvernig að því skuli staðið. Þá hefur verið varað við þeirri hættu sem getur skapast kvikni gróð- ureldar þar sem eru miklar sumarhúsabyggðir eða skóg- rækt. Í fyrra lýstu Almanna- varnir yfir óvissustigi á Vest- urlandi vegna langvarandi þurrka og var virkjuð við- bragðsáætlun vegna gróður- elda í Skorradal, þar sem gróð- ur er mikill og þéttur. Var fólk þá beðið að fara með gát, kveikja ekki elda og bent á að neisti frá útblæstri bíls gæti dugað til að kveikja eld. Hér er að mörgu að huga og gæti orðið dýrkeypt að vera ekki viðbúinn. „Eins djöfullegt og hugsast getur að fá eld í þetta“ } Eldur í uppsveitum Í gær lauk á Al-þingi annarri umræðu um lítið mál af jákvæða taginu, en þar er um að ræða frum- varp til laga um breytingu á lögum um stimpil- gjald og snýr að afnámi stimp- ilgjalds af skjölum varðandi eignayfirfærslu skipa. Í grein- argerð með frumvarpinu er vís- að til sjónarmiðs um jafnræði atvinnugreina, en um nokkurra ára skeið hefur svo háttað til að skip yfir fimm brúttótonnum eru einu atvinnutækin sem bera stimpilgjald þegar eigna- yfirfærsla á sér stað. Þetta er nokkuð sérstakt og ekki síður það, sem einnig segir í greinargerðinni, að engan rökstuðning sé að finna fyrir þessari vægast sagt sér- kennilegu sérstöðu í lögskýr- ingargögnum gildandi laga. Þá segir þar að þessi breyt- ing muni bæta „rekstrar- umhverfi skipa á Íslandi, leiða til sambærilegra rekstrar- umhverfis líkt og hjá erlendum samkeppnisaðilum og styðja sérstaklega við íslenskan sjáv- arútveg sem er í mikilli alþjóðlegri samkeppni“. Ekki er alltaf mikill skilningur á síðast- nefnda atriðinu í umræðunni hér á landi, sem fer gjarnan fram líkt og þátttakendur telji að ís- lensk sjávarútvegsfyrirtæki stundi engin alþjóðaviðskipti og eigi ekki í nokkurri sam- keppni við útveg annarra þjóða. Hvað þá að sú staðreynd þyki skipta máli að erlendur sjávarútvegur er gjarnan niðurgreiddur af hinu opin- bera, sem gerir enn brýnna að tryggja sem best rekstrar- umhverfi hér á landi. En þrátt fyrir þessi augljósu rök fyrir því að aflétta þessum skatti af þessari einu atvinnu- grein létu þingmenn samfylk- ingarflokkanna, Pírata, Við- reisnar og Samfylkingar, sig hafa það að rísa á fætur og mótmæla þessari litlu skatta- lækkun. Sá fjandskapur í garð sjávarútvegsins og um leið stuðningur við rangláta og of háa skatta kemur því miður ekki á óvart. Samfylkingarflokk- arnir missa aldrei af tækifæri til að ráð- ast á sjávarútveginn } Unnið að afnámi ranglætis F yrir fámenna þjóð eins og Ís- lendinga er fátt mikilvægara en traust alþjóðasamstarf sem hef- ur í heiðri þau gildi sem okkur eru kærust. Umræðan um að best sé að einangra okkur frá þeim þjóðum sem við eigum mest sameiginlegt með er skaðleg. Breska ríkisstjórnin er svo heillum horfin að hún margneitaði að taka þátt í innkaupum Evrópuríkjanna á búnaði vegna kórónuveir- unnar. Litið var til leiðtogans vestan Atlants- ála sem taldi veiruna vera skæða flensu. Guð má vita hve mörg mannslíf þetta blinda of- stæki hefur kostað. Þó að utanríkisráðherra Íslands hafi enn ekki skýrt það í hverju hin miklu tækifæri Ís- lands í Brexit eru fólgin verður að hrósa hon- um fyrir það hve staðfastlega hann styður aukaaðild Ís- lendinga að sambandinu í gegnum EES-samninginn. Í Reykjavíkurbréfi Moggans er talað er um hinar „bein- lausu undirtyllur búrókrata í Brussel“ í utanríkisráðu- neytinu, þannig að ráðherrann hlýtur að vera á réttri leið. Ríkisstjórnin afþakkaði í liðinni viku þátttöku Íslands í uppbyggingu frá Atlantshafsbandalaginu með vísan í það að einn ríkisstjórnarflokkurinn sé á móti stríði. Einleikur eins flokks er á ábyrgð hinna. Eru þeir flokkar fylgjandi stríði sem vilja taka þátt í virku varnarbandalagi? Auðvitað ekki. Danir, Norðmenn, Eistar, Lettar og Litháar fengu allir að kenna á því að þegar til kastanna kemur er einhliða yfirlýsing um hlut- leysi einskis virði. Allar þjóðirnar eru nú reynsl- unni ríkari í NATO, sem ásamt Evrópusamband- inu er áhrifamesta friðarbandalag sögunnar. Evrópuandstæðingar eiga auðvelt með að finna sér ástæður fyrir einangrunarstefnunni. Einn daginn er það vegna þess hve ofursterkt sambandið sé, næsta dag hæðast þeir að veik- leikum þess. Reglulega er spáð upplausn sam- bandsins eins og hún yrði heillaspor fyrir alla. Morgunblaðið spyr í fyrrnefndu bréfi: „Springur myntbandalagið með hvelli? Liðast ESB í sundur? Eða verður þessi krísa notuð til að þröngva aðildarþjóðunum síðasta skrefið inn í formlegt sambandsríki með seðlabanka sem sæt- ir engum takmörkunum þjóðríkjanna og fær að beina fjármunum úr sameiginlegum sjóðum frá ríkari löndum til þeirra sem höllum fæti standa? Hagfræðingar verða að svara því hvort slíkar að- gerðir eru til þess fallnar að leysa hin undirliggjandi vandamál.“ Einn helsti leiðtogi frjálslyndra í Evrópu, Guy Verhof- stadt, hefur barist fyrir því að sambandið styðji þau ríki sem verst hafa komið út úr kórónuveirunni með sameigin- legri ábyrgð á 500 milljarða evru sjóði. Merkel og Macron hafa nú tekið undir þessa tillögu og gert að sinni og hag- fræðingar styðja hana. Vonandi tekst með samtakamætti að koma efnahag allra þessara þjóða á réttan kjöl. Við græðum nefnilega líka á því að aðrir geti ferðast til Íslands og keypt íslenskan fisk. Benedikt Jóhannesson Pistill Hroki og hleypidómar Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegna staðsetningar Fisk-vinnslunnar Odda á fiskeld-issvæðinu á suðurfjörðumVestfjarða og nálægðar við stærsta laxasláturhús landsins á fyrirtækið að geta framleitt hágæða flök sem unnin eru áður en dauða- stirðnun laxins hefst. Afurðir af þeim gæðum eru meðal annars eftirsóttar í sushi-rétti um allan heim. Megnið af íslenska eldislaxinum er flutt heilt og ferskt í frauðkössum á markaði austan hafs og vestan og einnig til Asíu. Nokkur fiskvinnslu- fyrirtæki hafa flakað lax fyrir eldis- fyrirtæki eða keypt og flakað á eigin reikning og selt á erlenda markaði. Fleiri eru að huga að þeim málum. Verðmæti laxaafurða eykst minna við laxaflökun og kostnaður við hráefnið er hærra hlutfall en við al- menna fiskvinnslu. Þess vegna er mikilvægt að nýting hráefnisins sé sem best og nýttir séu þeir markaðir sem gefa hæst verð. Tækni tryggir nýtingu Fiskvinnslan Oddi á Patreksfirði hefur fjárfest í nýjustu og bestu vinnslulínunni sem nú er völ á hjá Marel og hefst flökun þar og útflutn- ingur í haust. Nýting hráefnisins á að verða eins og best verður á kosið. Vinnslulínan er tölvustýrð og sjálf- virk, allt frá innmötun til hausunar, flökunar, snyrtingar og pökkunar. Áætlað er að þörf verði á að bæta við 14-16 starfsmönnum til að vinna úr 2.500 til 3.000 tonnum af laxi á ári. „Við munum leggja áherslu á að vinna laxinn fyrir dauðastirðnun. Það er eftirsótt vara hjá veitingahúsum en getur líka farið í reykhús,“ segir Skjöldur Pálmason, framkvæmda- stjóri Odda. Fyrirtækið hefur samið við Arnarlax og Arctic Fish um kaup á hráefni en sláturhús Arnarlax á Bíldudal slátrar fyrir bæði eldisfyrir- tækin. Þar er fiskurinn undirkældur og fær Oddi hann því í besta mögu- lega ástandi. Markaður fyrir lax er í aðalatrið- um tvískiptur, annars vegar stór- markaðir sem meðal annars selja lax- inn í neytendaumbúðum og hins vegar veitingahúsamarkaður sem vill fá laxinn flakaðan. Þessi vinnsla fer nú að mestu leyti fram úti í Evrópu. Arnarlax var með hugmyndir í upp- hafi um að vinna laxinn í bita á Bíldu- dal og frysta og voru keypt einhver tæki til þess. Eðalfiskur í Borgarnesi hefur flakað mikið af laxi fyrir Fisk- eldi Austfjarða og þar hefur orðið til mikil þekking á laxavinnslu á löngum tíma. Fleiri fyrirtæki flaka lax, í smærri stíl. Vinnsla Odda verður stærri og með betri tækjabúnaði en hér hefur áður þekkst. Hörð samkeppni Í upphafi verður lögð áhersla á flök en Skjöldur útilokar ekki að af- urðirnar verði þróaðar frekar og farið að pakka í neytendapakkningar á Patreksfirði. Einnig komi til greina að frysta bita. Stjórnendur fyrirtækisins og sölumenn eiga mikið verk fyrir höndum. Skjöldur segir að gríðarlega hörð samkeppni sé á þessum mark- aði. Þar eru fyrir á fleti stórar verksmiðjur. Bindur hann vonir við að góð nýting og hágæðavara sem minna framboð er af í heim- inum en almennum laxi skapi fyrir- tækinu sérstöðu og hjálpi því að komast inn á markaðinn. Markaðs- starf er í fullum gangi. Reiknar Skjöldur með að hluti af við- skiptavinum fyrirtækisins í hvítfiski kaupi af þeim lax til dreifingar og vonandi bætist nýir kaupendur við. Aðstaða til að fram- leiða hágæða afurðir Fiskvinnslan Oddi hefur starfað í um 50 ár. Skjöldur Pálmason segir að til þess að stækka fiskvinnsluna á hefðbundinn hátt þurfi að fjárfesta í kvóta fyrir fiskiskipin og í vinnslunni fyrir marga milljarða. Hann gef- ur ekki upp kostnaðinn við að koma upp vinnslu á laxi en seg- ir hana aðeins brot af kostnaði við að stækka hvítfiskvinnsl- una. Þetta sé því ódýr leið til að stækka og styrkja fyrir- tækið. Laxinn er verðmætari en annar fiskur og er reiknað með að velta fyrirtækisins tvöfaldist með því að bæta 2.500 til 3.000 tonnum af laxi við þau 4.500 til 5.000 tonn af fiski sem nú fer í gegnum fisk- vinnsl- una. Ódýr leið til að stækka LAXAVINNSLA Skjöldur Pálmason Ljósmynd/Aðsend Flökun Oddi er í góðri aðstöðu til að framleiða hágæða laxaflök. Afurðir eins og ætlunin er að framleiða á Patreksfirði eru eftirsóttar í sushi-rétti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.