Morgunblaðið - 20.05.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 20.05.2020, Síða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvali N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Hornsófi Chicago 2 horn 3, hægt að panta sem tungusófa, U sófa eða bara eins og hentar. Grásleppuveiðar stöðvaðar, ástæðan: ráðgjöf frá Hafrann- sóknastofnun var að klárast. Ráðgjöf þessi hefur verið deilumál milli manna og Hafró og sama hvaða gögn eru sýnd til að sýna fram á að stuðull hennar við útreikning fyrri ára sé rangur, þá hreyfa þeir sig ekkert. Aðferð þeirra við að finna út afla á árunum 1985 til 2008 er svo röng að furðu sætir, að menn sem telja sig vísindamenn skuli falla í þessa gryfju. Að notast við gögn úr gömlum afladagbókum er bara ekki hægt nema í besta falli sem viðmið. Ég þekki engan, sem skráir afla í afladagbók, sem gerir meira úr afla sínum, frekar að skrá minni afla. Hér á árum áður, þegar grásleppa var skorin úti á sjó og einungis komið í land með hrognin, voru menn að giska á afla dagsins út frá magni hrogna í tunnunum. Slattar í tunnum voru stundum ekki skráðir og stundum var verið að fylla út þessar bækur nokkrum dögum seinna og skáld- skapurinn eftir því. Að vísinda- menn skuli notast við svo vafasöm gögn við útreikning á hvað má veiða er, – ja mig skortir orð til að lýsa þessari heimsku. 425 kg af óslægðri grásleppu þarf í fulla 105 kg hrognatunnu samkvæmt útreikningum þessara manna hjá Hafró, ekki vildi ég kaupa tunnur sem þeir verka því það þarf 21,6 kg af aukasalti til að fylla þær, hrognin hljóta því að vera brimsölt. Þegar ég var að salta þurfti yfirleitt 170-180 grásleppur til að fá í eina saltaða tunnu, meðalþyngd grá- sleppu er 3 kg og því þarf samkvæmt þessu 510 til 540 kg af grá- sleppu í tunnuna, sem hljómar svipað og þeir gömlu sögðu; það þyrfti 550 til 600 kg í tunnu. Ráðgjöfin er því röng sem nemur þessum mismun, u.þ.b. 20%. Svo má lengi deila á þá að- ferð að meta stofnstærð út frá afla í togararalli; af hverju nota þeir þá ekki togararallið til að gefa út loðnu- og síldarkvóta eftir maga- innihaldi þorsks? Það er alveg jafn gáfulegt og hin vitleysan. Margir grásleppusjómenn eru foxillir út í hvernig ráðherra fram- kvæmdi þessa stöðvun veiða, stuttur fyrirvari og margir lentu í vandræðum við að ná netunum upp í tæka tíð. Flestir náðu aðeins að nýta helming sinna daga og margir enn minna og hluti veiði- manna gat ekki byrjað. Ráðherra ákvað að innra svæðið á Breiða- firði fengi allt að 15 daga til veiða. Ef ráðherra er samkvæmur sjálf- um sér í því að hann sé að fylgja ráðgjöf Hafró þá fá bátar á Breiðafirði 0 daga því aflinn er kominn fram úr ráðgjöf. En hvað gat ráðherra gert eins og staðan var orðin? Hann gat ekki gert neitt annað. Hins vegar má deila um það hvort hann hafi gefið út of marga daga í upphafi, sumir telja að strax 10. apríl hefði hann átt að fækka veiðidögum en það var ekki gert og þetta er niðurstaðan. Verið er að vinna í því að fá vottun á íslensk grásleppuhrogn og er ein grunnforsenda þess að farið sé eftir ráðgjöf. Ef veiðar verða heimilaðar án aukningar á ráðgjöf er næsta víst að vottunin mun ekki skila sér í hús, sem þýð- ir lægra verð og jafnvel illseljan- legar afurðir næstu ára. Því finnst mér það ábyrgðarleysi hjá bæjar- ráði Stykkishólms að fara fram á að allir fái sína 44 daga. En hvað getur ráðherra gert til að bæta mönnum upp þetta veiði- tap? Fordæmi eru fyrir því að út- gerðir hafi fengið bætur þegar stöðva hefur þurft veiðar, t.d. skelbætur. Eðlilegt fyndist mér að þeir bátar sem ekki fengu að veiða fái bætur í stað þess að veiða um- fram ráðgjöf. Framkvæmd þess- ara bóta getur verið á marga vegu og t.d. væri hægt að miða við að þeir sem hafa stundað grásleppu síðustu þrjú ár fengju fullan skammt, tvö ár fengju tvo þriðju og eitt ár þriðjung. Hvað á að gera til að koma í veg fyrir að þetta ástand komi upp aftur? Ég held að eina færa leiðin sé að kvótasetja grásleppu, þá er hægt að stjórna þessum veiðum og menn vita hvað þeir fá að veiða í upphafi vertíðar og geta skipulagt sínar veiðar út frá því. Einnig býður kvótasetning upp á þann möguleika að veiðimenn geti stjórnað að hluta til verði, þá verður enginn pottur þar sem allir keppast við að veiða sem mest á sem skemmstum tíma. Einnig ger- ir kvótasetning mönnum kleift að taka net í land vegna ótíðar. Margir óttast að kvótinn lendi á fárra manna höndum; verksmiðjur kaupi upp kvótana. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Grásleppa er ekki eins og annar fiskur sem veiðist allt árið, t.d. hér fyrir norðan er veiðin yfirleitt frá mars til loka maí, eflaust er hægt að byrja fyrr en lokin verða alltaf í maí, það er sjálfhætt þá. Að safna miklum heimildum í grásleppu verður ekki raunin held ég. Það er hægt að setja veiði- skyldu á hana umfram aðrar teg- undir. Það verður alltaf einhver hagræðing, sumir hætta og svo eru það þessir menn eins og ég, sem eru með ólæknandi grá- sleppuvírus sem engin lyf eða meðferð er til við, sem verða alltaf á grásleppu, sama hvað konan, heilsan og annað segir. Svo í lokin: Við grásleppusjó- menn verðum að leggjast í það að markaðssetja afurðir grásleppu sem frygðaraukandi mat eða jafn- vel lyf, við þurfum að selja meira af henni. Svo mætti reyna að framleiða úr henni efni til að sprauta í varir og brjóst. Mér sýn- ist margar konur vilja líkjast grá- sleppum. Fleira var það ekki. Nokkur orð um grásleppu Eftir Þórð Birgisson » Ja, mig skortir orð til að lýsa þessari heimsku. Þórður Birgisson Höfundur er sjómaður. Karlar sneiða hjá námi í háskólum og hverfa hópum saman úr námi í framhalds- skóla. Þróunin er ugg- vænleg. Nú er svo kom- ið að konur eru í miklum meirihluta meðal háskólanema. Þær útskrifast fleiri á flestum sviðum, en nær eingöngu í hugvísind- um, samfélagsvísindum og heilbrigðisvísindum. Ýmiss konar kvenna- og kynfræði eru vinsælar undirgreinar. Um sjötíu af hundraði háskólanema eru konur víðast hvar á Vesturlöndum. Kvenfrelsarar ráða víða lögum og lofum í æðri mennta- stofnunum. Ofbeldi – meira að segja líflátshótanir – í garð þeirra sem neita að meðtaka rétttrúnaðarboð- skapinn eða komast að óhentugum niðurstöðum fyrir málflutning þeirra er áberandi. Vísindum og fræðum stafar ógn af kvenfrelsunaryfirgangi, bæði hvað stjórnun háskóla og iðkun varðar. Sama ógn snýr að sjálfum kjarna vísindalegrar hugsunar, m.a.; almennri og fræðilegri siðvendni; frjálsri og fordómalausri hugsun; umburðarlyndi og hlutlægni; frelsi til gagnrýni; vandvirkni og faglegri skynsemi við val viðfangsefna; fag- legri og óhlutdrægri aðferðarýni, hagsmunarýni; skilmerkilegri og gagnrýninni framsetningu (þar með talin hugtakanotkun); faglegri var- kárni við alhæfingar. Ungverski sálfræðiprófessorinn og fyrrverandi forseti „Félags um vísindafrelsi og fræðimennsku“ (Society for academ- ic freedom and scholarship) í Kanada, John J. Furedy (1940-2016), hefur varað við því gerræði sem nú ríkir í háskólamenningu Vestur- landa. Hann bendir á að minnsta kosti fimm megindrætti sem móta gerræðismenninguna eða „flauelsal- ræðið“. 1. Ótúlkanleg lögmál. (Hliðstæða gæti verið lögmálið um málfar, sem einungis svokallaðir jafnrétt- isfulltrúar skilja. Lög- málið er runnið undan rifjum þeirra á grund- velli huglægra þæginda eða fróunar. Það er túlkað að geðþótta í stað þess að setja fram hlutbundin skilmerki um frávik frá því.) 2. Tilvist gervi- sérfræðinga sem hafa vald til að blanda sér í námsefni vísindagreina og starf deilda. 3. Skelfingarhrollur við þátttöku í gagnrýnum umræðum um grundvall- aratriði. 4. Stöðubundið siðferði. (Hlið- stæða gæti verið sú trú, að það sé í lagi að sníða ákveðnum hópi stakk staðalímynda – eins og til að mynda hvítum körlum af engilsaxneskum uppruna – en ekki körlum af öðrum uppruna, eða þeim sem ekki eru bleikskinnar eða karlar.) 5. Djöfulvæðing þeirra sem öðru- vísi hugsa. John áréttar forn háskóla- réttindi til vísindaiðkunar án af- skipta: „Frjálsræði er réttur allra (fræðimanna og nemenda) í stofn- unum æðri menntunar til ástundunar vísinda [og fræðimennsku]. Það sama á við um rétt til frammistöðumats (verðleiki) öndvert við mat sam- kvæmt skoðunum (þægindi). Mennt- un við kanadíska háskóla er á líðandi stundu öndverð [við vísindafrelsi]. Hún er flauelseinræði, sem svipar til einkenna gerræðisstjórnarfars nema að því leyti að refsingar eru mildari.“ John ítrekar, að við æðri mennta- stofnanir ættu fræðimenn að halda í heiðri „það viðhorf að andstæðar hugmyndir vísindamanna séu snar þáttur í æðri menntun – og því skyldi hvetja til þess [að kynna slíkar hug- myndir].“ Eftirfarandi aðgreiningar, segir hann, eru skýrar í grundvall- aratriðum (enda þótt stundum séu þær erfiðar viðgangs, þegar á hólm- inn er komið); aðgerðir og viðhorf; skoðanir og frammistaða; vísinda- frelsi og vald; samhverf og ósam- hverf valdatengsl; málefni og menn.“ Og John heldur áfram: „Svið eins og þroskasálfræði og skoðun ein- staklingsmunar eru sérstaklega, en þó ekki eingöngu, varnarlítil gagn- vart þeirri andþekkingarfræðilegu grundvallarreglu að gildi skoðana skuli mæla á stiku huglægra þæg- inda, fremur en sannindamerkja og rökfærslu. „Harðari“ greinar eins og lífeðlisleg sálfræði og taugavísindi eru einnig í hættu.“ Louise Dixon, Nicola Graham- Kevan, John Archer taka í svipaðan streng og minna á að „[f]ramfarir í félagsvísindum eigi sér stað, þegar kenningar eru prófaðar og þeim breytt á grundvelli nýrra nið- urstaðna (evidence). Í félagsvís- indum er vísindalegri aðferð beitt á sviðum þar sem fordómar kynnu að ríkja. Aflvaki félagsvísindamanna er oft og tíðum hugmyndafræðilegt við- horf til viðfangsefnisins. Það torveld- ar hugsun út fyrir viðurkennda kenn- ingaafstöðu. Það er sérstaklega áberandi í rannsóknum á ofbeldi í nánum samböndum.“ Louise og fé- lagar segja ennfremur: „Áhrifamiklir fræðimenn hafa aðhyllst þá meg- inkreddu að feðraveldi sé óhjá- kvæmilega aflvakinn í [parsam- böndum]. Þetta hefur alið af sér mergjaða trú (core beliefs), sem var- in er gegn rannsóknaniðurstöðum sem henni mæla gegn.“ Þarf að gera gangskör að því að endurreisa vís- indamennskuna? Vísindi í voða Eftir Arnar Sverrisson »Einu sinni var frjáls vísindaiðkun, mark- viss leit að prófaðri og haldgóðri þekkingu, að- alsmerki háskólanna. En hún er á hverfanda hveli. Arnar Sverrisson Höfundur er ellilífeyrisþegi. arnarsverrisson@gmail.com Eitt af breytimerkjum batnandi hags á síðustu öld var útbreiðsla vaðstígvéla til almennings, sem þurfti sannarlega á því að halda að vera þurr í fæturna. Það má kalla tutt- ugustu öld- ina öld vað- stígvélanna, en stígvélin voru þó fyrst um sinn tákn velmegunar en ekki strits. Í Sjálfstæðu fólki er mikið talað um vosbúð Sumarhúsafólksins á engjum á óþurrkasumrum. Sér- staklega er talað um skort á vatns- heldum hlífðarfatnaði. Börnin gegn- drepa löngu fyrir hádegi. Ekki minnst á skófatnað, sjálfsagt að vera blautur í fætur. Annað var með Rauðsmýringa. Sonur hreppstjórans í stórum stíg- vélum og dóttirin í glansandi vað- stígvélum. Veiðimaðurinn að sunnan í landi Bjarts var líka í háum vatnsstíg- vélum. Þannig birtist stéttamunur og efnahags í þessum fótabúnaði sem síðar varð einkennismerki verka- manna, bænda og sjómanna. Nú er þessi stígvélaöld liðin og það er ekki fyrir smámenni að kaupa sér stígvél á fæturna, ekki frekar en fyrir hundrað árum. En það er hægt að fá þau með stáltá. Sunnlendingur Græn gúmmístíg- vél með stáltá Bylting Margt breytt- ist með komu gúmmí- stígvélanna. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.