Morgunblaðið - 20.05.2020, Síða 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020
Troy Deeney, fyrirliði enska knatt-
spyrnuliðsins Watford, ætlar ekki að
mæta til æfinga hjá félaginu í vikunni.
Mega leikmenn ensku úrvalsdeildar-
innar byrja að æfa í þessari viku og
æfðu leikmenn nokkurra félaga í litlum
hópum í gær. Deeney mun hins vegar
ekki mæta til æfinga á næstunni þar
sem hann vill ekki stofna lífi fimm mán-
aða sonar síns í hættu, en hann hefur
átt við öndunarerfiðleika að stríða.
Alþjóða íþróttadómstóllinn, CAS, til-
kynnti í gær að áfrýjun Manchester City
vegna refsingar UEFA, Knattspyrnu-
sambands Evrópu, yrði tekin fyrir dag-
ana 8. til 10. júní. UEFA úrskurðaði City
í tveggja ára bann frá Evrópumótunum
í knattspyrnu og sektaði félagið um
jafnvirði 4,6 milljarða íslenskra króna
fyrir að brjóta reglur sambandsins um
fjárhagslega háttvísi. City tilkynnti
strax að úrskurðinum yrði áfrýjað til
CAS, sem nú hefur sett málið á dagskrá
á heimasíðu sinni. Ef CAS dæmir ekki
City í hag mun félagið ekki leika í
Meistaradeild Evrópu eða Evrópudeild-
inni keppnistímabilin 2020-21 og 2021-
22.
Sænsk heilbrigðisyfirvöld hafa hafn-
að hugmyndum sænska knattspyrnu-
sambandsins um að ljúka bikar-
keppninni í karlaflokki dagana 1. til 9.
júní. Til stóð að leika átta liða úrslitin 1.
júní, undanúrslitin 5. júní og úrslitaleik-
inn 9. júní en heilbrigðisyfirvöld í land-
inu eru ekki tilbúin að heimila fótbolta-
leiki á þeim tíma eins og til stóð.
Keppninni hefur því verið frestað um
óákveðinn tíma. Þá átti sænska úrvals-
deildin í karlaflokki að fara af stað um
miðjan júní en það er enn ósamþykkt,
enda hefur glíma Svía við útbreiðslu
kórónuveirunnar gengið verst af öllum
Norðurlandaþjóðunum.
Alþjóða íþróttadómstóllinn, CAS,
hafnaði í gær áfrýjun hlauparans Bra-
lon Taplin, en hann var á dögunum úr-
skurðaður í fjögurra ára bann fyrir að
sniðganga lyfjapróf eftir keppni í
heimalandinu Granada. Mun hann
missa af Ólympíuleikunum í Tókýó á
næsta ári sem og HM 2020 í Bandaríkj-
unum og HM 2023 í Ungverjalandi.
Knattspyrnumaðurinn Aron Kári Að-
alsteinsson er genginn til liðs við 1.
deildarlið Fram, en þangað kemur hann
sem lánsmaður frá Breiðabliki. Aron er
21 árs gamall miðvörður sem hefur leik-
ið sem lánsmaður með HK og Keflavík
síðustu ár. Hann kom við sögu í þremur
leikjum HK í úrvalsdeildinni á síðasta
tímabili.
Skagamaðurinn Björn Bergmann
Sigurðarson mun yfirgefa kýpverska
knattspyrnufélagið APOEL án þess að
leika deildarleik með liðinu. Var Björn
lánaður til APOEL frá Rostov í Rúss-
landi í janúar, en hann
náði ekki að vinna sér
inn sæti í liðinu og í
gær tilkynnti
Knattspyrnu-
samband Kýp-
ur að deild-
inni þar í
landi yrði af-
lýst vegna
kórónuveirunnar.
Á rússneski fót-
boltinn að fara
af stað í næsta
mánuði og gæti
Björn þá leikið
með Rostov á
ný.
Eitt
ogannað
að halda áfram og farnir að leiða
hugann að næstu leiktíð.“
Missir ekki svefn
Það hefur mikið gustað um körfu-
boltann í Vesturbænum undan-
farnar vikur, en Inga Þór Steinþórs-
syni var sagt upp störfum sem
þjálfara karlaliðsins í byrjun maí.
Þá hætti Benedikt Guðmundsson
með kvennaliðið viku síðar, en
Kristófer segir að það sé mikið
slúðrað í kringum Vesturbæinn þótt
ekki sé alltaf innistæða fyrir því.
„Ég er með samning við KR sem
gildir út næsta tímabil og ég ætla
mér að spila með liðinu á næstu leik-
tíð. Maður er búinn að heyra margs
konar orðróm sjálfur og það eru
margar sögur í gangi um stöðuna í
Vesturbænum. Maður er ekki að
taka þennan orðróm mjög alvarlega
og ég fæ það á tilfinninguna að þetta
séu einfaldlega sögur til þess að fólk
hafi eitthvað að tala um.
Ég er ekki að velta mér upp úr
þessu, ég veit hver staða mín er inn-
an félagsins og ég skipti mér ekki af
öðru. Mín tilfinning er allavega sú
að fólk láti hlutina hljóma mun verr
en þeir eru, en það er ekki mitt að
tala um. Fólk mun alltaf tala en við
leikmennirnir og þeir sem standa í
kringum liðið erum ekki að missa
svefn yfir orðrómi úti á götu.“
Framtíð öldunganna óljós
Ákveðin óvissa ríkir um liðið en
flestir reikna með því að Jón Arnór
Stefánsson, einn besti leikmaður Ís-
lands frá upphafi og fyrirliði liðsins,
sé hættur körfuknattleiksiðkun. Jón
verður 38 ára gamall í september.
Þá óvíst hvort Helgi Már Magnús-
son og Jakob Örn Sigurðarson
ákveða að hætta líka, en þeir eru
fæddir árið 1982 eins og Jón Arnór.
„Þessir gæjar eru náttúrlega allt-
af að gefa það út að þeir séu hættir
og svo enda þeir á að taka eitt ár í
viðbót. Ég get alveg séð þá Helga og
Kobba taka eitt ár í viðbót en ég veit
ekki alveg með Jón Arnór. Ég held
að hann sé frekar staðráðinn í að
hætta núna en það væri líka súrt
fyrir hann ef síðasti leikurinn hans
var einhver lala leikur gegn Val á
Hlíðarenda fyrir framan tíu áhorf-
endur.
Það leikur enginn vafi á því að það
verða nokkrir sem byrja að suða í
honum um að halda áfram þegar
nær dregur tímabilinu og auðvitað
vill maður hafa gæja eins og Jón
Arnór með sér í liði. Ef allt gengur
upp veit maður ekki hvað verður en
þegar allt kemur til alls er þetta
hans ákvörðun og síðast þegar við
ræddum málin tjáði hann mér að
hann væri hættur en við sjáum hvað
setur.“
Skemmtileg áskorun
Fari svo að öldungarnir í KR-
liðinu ákveði að leggja skóna á hill-
una segist Kristófer, sem hefur ver-
ið lykilmaður í liðinu undanfarin ár,
tilbúinn að taka við keflinu sem einn
af leiðtogum liðsins. Kristófer er
uppalinn í Vesturbænum og var
meðal annars valinn besti leikmaður
Íslandsmótsins tímabilið 2018-19
þegar KR vann sjötta meistaratitil
sinn í röð.
„Það er endalaust verið að tala
um ákveðin kynslóðaskipti í Vestur-
bænum og þessir eldri leikmenn
hafa aðeins verið aðalmennirnir í
liðinu á undanförnum árum. Þótt ég
sé búinn að vera viðloðandi liðið
undanfarin þrjú ár og hafi þannig
séð stimplað mig inn voru leikmenn
eins og Matthías Orri að klára sitt
fyrsta tímabil. Við erum líka með
leikmenn eins og Bjössa Kristjáns
sem er á svipuðum aldri og ég og
Matti.
Ég held að mesta áskorunin verði
fyrir þessa yngri stráka sem eru í
kringum tvítugt og eru að koma upp
úr yngri flokkunum. Þeir munu fá
aukin tækifæri og þurfa að stíga upp
og að sama skapi mun ábyrgðin að-
eins færast yfir á mig og Matta sem
dæmi. Maður er bara spenntur fyrir
því og ég tel mig og Matta tilbúna í
að taka liðið aðeins á herðar okkar
og bera þetta áfram á næstu árum.
Ég hef fengið tækifæri til þess að
spila með þessum eldri og reyndari
strákum hjá KR í gegnum tíðina og
maður hefur lært heilan helling af
þeim bestu. Maður er þess vegna vel
í stakk búinn að taka við keflinu al-
mennilega þegar að því kemur og
það er skemmtileg áskorun að verða
leiðtogi í liðinu. Að fá að gera það
með uppeldisfélagi sínu gerir þetta
enn skemmtilegra og það mun bara
gera mann að betri leikmanni þegar
upp er staðið,“ bætti Kristófer við í
samtali við Morgunblaðið.
Áskorun að taka við
keflinu í Vesturbænum
Kristófer Acox er á leið í tvær aðgerðir vegna nýrnaveiki og ökklameiðsla
Tilbúinn í leiðtogahlutverk í liði KR Missir ekki svefn yfir sögum af KR
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vesturbærinn Kristófer Acox kveðst vera búinn að læra mikið af eldri leik-
mönnum KR-inga og vera tilbúinn að taka við keflinu af þeim.
KR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Þeir sem standa næst körfuknatt-
leiksdeild KR eru lítið að kippa sér
upp við sögurnar og slúðrið í kring-
um Íslandsmeistarana í Vestur-
bænum þessa dagana að sögn Krist-
ófers Acox, leikmanns liðsins.
Kristófer, sem er 26 ára gamall,
greindist með nýrnabilun í desem-
ber á síðasta ári og það háði honum
talsvert eftir áramót en hann spilaði
þó tíu leiki með liðinu það sem eftir
var af keppnistímabilinu.
Þá var hann einnig að glíma við
meiðsli á ökkla fyrri part vetrar en
hann á von á því að fá bót meina
sinna á næstu vikum.
„Mér líður ágætlega þessa dag-
ana og ég er á leið í aðgerð í fyrra-
málið (í dag),“ sagði Kristófer í sam-
tali við Morgunblaðið. „Þetta verður
engin svakaleg aðgerð þannig að
það verða tveir til þrír dagar þar
sem ég þarf kannski að taka því ró-
lega. Ég vonast svo til þess að ná
mér góðum af þessu nýrnavanda-
máli eftir aðgerðina og læknarnir
eru bjartsýnir á að það gangi upp.
Ég er svo á biðlista að komast í
aðgerð á ökkla og settur dagur, eins
og staðan er í dag, er 29. júní. Von-
andi kemst ég fyrr að því það mun
taka mig einhvern tíma að jafna mig
á þeirri aðgerð og markmiðið er að
vera kominn af stað á æfingum fjór-
um til sex vikum eftir að ég kem úr
aðgerðinni.“
Pirrandi niðurstaða
Íslandsmeistararnir voru á góðu
skriði þegar tímabilinu var aflýst
vegna kórónuveirufaraldursins.
Liðið hafði unnið fjóra leiki í röð,
meðal annars gegn deildarmeist-
urunum Stjörnunni og Njarðvík, og
var komið í fjórða sæti deildarinnar.
„Það versta við þetta allt var að
við vorum hægt og rólega að komast
á beinu brautina, fannst mér. Við
vorum búnir að ná í nokkra sterka
sigra á liðunum í efri hlutanum og
mér finnst liðið vera að komast í úr-
slitakeppnisgírinn ef svo má segja.
Við áttum eftir að spila einn leik í
deildinni þegar tímabilinu var aflýst
og það er pirrandi að fá ekki al-
mennilega niðurstöðu í tímabilið.
Það er svo sem ekki hægt að velta
sér of mikið upp úr því, það sem er
búið er búið.
Að sama skapi er Íslands-
meistarabikarinn áfram í skápnum í
DHL-höllinni, sem er jákvætt. Þar
viljum við að sjálfsögðu hafa hann
og við getum huggað okkur við það
en núna held ég að allir séu tilbúnir
Handknattleiksdeild KA/Þórs réð í
gær Andra Snæ Stefánsson sem
þjálfara meistaraflokks kvenna og
mun hann því taka að sér stjórn liðs-
ins fyrir komandi handboltavetur.
Tekur hann við af Gunnari Líndal
Sigurðssyni. KA/Þór fór alla leið í
bikarúrslit í vetur þar sem liðið tap-
aði fyrir Fram. Þá var liðið í sjötta
sæti Olísdeildarinnar með 14 stig
eftir 18 leiki þegar tímabilinu var af-
lýst. Andri Snær hefur verið fyrirliði
karlaliðs KA undanfarin ár og þjálf-
að ungmennalið félagsins með góð-
um árangri.
Fyrirliðinn þjálfar
KA/Þór í vetur
Ljósmynd/KA/Þór
Akureyri Andri Snær Stefánsson er
nýr þjálfari kvennaliðs KA/Þórs.
Ian Woan, aðstoðarþjálfari enska
knattspyrnuliðsins Burnley, hefur
verið greindur með kórónuveir-
una. Er hann einn sex einstaklinga
innan ensku úrvalsdeildarinnar
sem hafa greinst með smit síðustu
daga. Leikmenn deildarinnar
máttu æfa í litlum hópum á æf-
ingasvæðum félaganna frá og með
gærdeginum og voru alls 748 sýni
tekin í undirbúningi þess. Mun Wo-
an fara í sjö daga einangrun, áður
en hann verður skimaður á nýjan
leik. Jóhann Berg Guðmundsson
leikur með Burnley.
Þjálfari Jóhanns
með veiruna
Ljósmynd/Burnley
Burnley Jóhann Berg Guðmunds-
son leikur með Burnley á Englandi.