Morgunblaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það hefur verið tilhneiging á síðustu árum til að skera
niður í rekstri með því að útvista ákveðnum þáttum.
Ræstingar og mötuneytisþjónusta
verða oftar en ekki fyrir valinu,“ seg-
ir Andrés Ingi Jónsson alþingismað-
ur, sem sent hefur fyrirspurn um
ræstingaþjónustu á öll ráðuneyti. Er
í fyrirspurninni óskað eftir sundur-
liðun á því hvernig ræstingu er hátt-
að hjá ráðuneytum og stofnunum
þeirra.
Að sögn Andrésar er forsvars-
mönnum stofnana hætt til að skera
niður með því að útvista verkefnum
er áður voru unnin af starfsmönnum
innanhúss. Getur slíkt jafnframt orðið til þess að fé-
lagslegt undirboð raungerist.
„Ég vildi kanna þetta mál til að sjá hvort verið væri
að ná fram sparnaði með því að draga úr réttindum og
launum fólks. Þetta hefur oft verið notað sem réttlæt-
ing fyrir niðurskurði en það hlýtur að vera hægt að
hagræða í rekstri án þess að það komi niður á rétt-
indum fólks. Mér finnst almennt að grunnstarfsemi
stofnana eigi að vera í höndum starfsmanna umræddra
stofnana,“ segir Andrés.
Nú á dögunum var greint frá áformum Heilbrigð-
isstofnunar Suðurlands um uppsagnir á ræstingafólki
vegna skipulagsbreytinga. Þá er jafnframt ráðgert að
ræstingarnar verði boðnar út. Að sögn Andrésar birtust
framangreindar fréttir um svipað leyti og hann sendi
umrædda fyrirspurn á ráðuneytin.
„Ég vildi kanna þetta mál. Mér finnst mjög und-
arlegt, eins og í tilfelli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands,
að verið sé að skera niður á þessu sviði. Þessir starfs-
menn hafa verið lykilfólk meðan á faraldrinum hefur
staðið. Þar sinntu þeir sóttvörnum og tryggðu öryggi
okkar í öllu þessu ástandi. Mér finnst ekki gott að verið
sé að fórna því nú þegar skera á niður,“ segir Andrés.
Morgunblaðið/Ernir
Þrif Niðurskurður hjá ráðuneytum og stofnunum getur
komið fram í útvistun ræstinga og mötuneytisþjónustu.
Lykilfólki fyrst sagt upp
Stofnanir skeri niður með
útvistun ræstingaþjónustu
Andrés Ingi
Jónsson
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Gera má ráð fyrir að netverslun
Krónunnar verði komin í loftið í
haust. Þetta segir Eggert Þór Krist-
ófersson, forstjóri Festar hf., í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hefur verslunin verið í undirbún-
ingi um nokkurt skeið, en vel hefur
gengið fram til þessa. Frá því að
áhrifa og útbreiðslu kórónuveirunnar
tók að gæta hér á landi hafa forsvars-
menn Krónunnar prufukeyrt net-
verslunina. Til að hafa verkefnið sem
raunhæfast var starfsfólki í framlín-
unni boðið að nýta sér þjónustuna
meðan á faraldrinum stóð. Að sögn
Eggerts liggur mikill undirbúningur
að baki netversluninni.
„Við settum prufukeyrsluna af stað
þegar faraldurinn var í gangi. Við
ákváðum jafnframt að hleypa fram-
línufólki, þar á meðal heilbrigð-
isstarfsfólki, inn í svokallað prufu-
snjallforrit til að leggja okkar af
mörkum meðan á ástandinu stóð,“
segir Eggert, sem kveðst spenntur
fyrir verkefninu.
Í netversluninni kennir ýmissa
grasa, en þar má finna allar vörur
sem Krónan hefur upp á að bjóða.
Þannig verður viðskiptavinum gert
kleift að nálgast vörur sem sömuleiðis
má finna í öllum helstu verslunum.
Spurður hvort Krónan hafi verið of
sein til nú þegar faraldur kórónuveiru
virðist að mestu yfirstaðinn kveður
Eggert nei við.
„Við vorum búin að vera með þetta
lengi í undirbúningi en ákváðum að
setja þetta í prufukeyrslu fyrir
nokkru. Við sjáum fyrir okkur að
þetta verði ein búð af mörgum horft
til framtíðar,“ segir Eggert, sem
kveðst eiga von á því að stafræn þjón-
usta matvöruverslana muni einungis
aukast næstu ár. „Við sjáum fyrir
okkur að þetta verði valkostur til
framtíðar þar sem fólk getur verslað í
gegnum netið eða snjallforrit,“ segir
Eggert.
Morgunblaðið/Styrmir
Krónan Forstjóri Festar kveðst eiga von á því að stafræn þjónusta aukist
næstu ár. Þar séu matvöruverslanir jafnframt ekki undanskildar.
Krónan opnar
netverslun í haust
Þróun og undirbúningur stendur yfir
Collab með hindberja- og apríkósu-
bragði er vinsælasti koffíndrykk-
urinn það sem af er ári. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í tölum
Markaðsgreiningar/AC Nielsen um
sölu koffíndrykkja í stórmörkuðum.
Í greiningunni eru skoðaðir fyrstu
fjórir mánuðir ársins, en mælingin
nær til 19. apríl sl. Á umræddu tíma-
bili hafa verið seldir ríflega 84 þús-
und lítrar af drykknum. Er það jafn-
framt umtalsvert meira en selt hefur
verið af koffíndrykknum Nocco
Miami sem kemur næstur. Munar
ríflega 14 þúsund lítrum í sölu á
drykkjunum. Þrátt fyrir þetta er
Nocco áfram með stærsta hlutdeild í
lítrum talið á markaði koffíndrykkja,
eða rétt tæplega 36%. Næst koma
koffíndrykkir frá Monster, en fyrir-
tækið er með ríflega 20% markaðs-
hlutdeild.
Athyglisvert er að bera saman
neyslu koffíndrykkja hér á landi
milli ára. Frá árinu 2018 hefur sala
koffíndrykkja aukist um rétt tæp-
lega 70%.
Á árinu 2020 seldust nær 4,5 millj-
ónir lítra en til samanburðar var sú
tala rétt ríflega 2,6 milljónir tveimur
árum áður. Hefur salan því aukist
um tæplega tvær milljónir lítra á
tveimur árum.
aronthordur@mbl.is
Collab vinsælastur í
flokki koffíndrykkja