Morgunblaðið - 27.05.2020, Side 16

Morgunblaðið - 27.05.2020, Side 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 ✝ GuðmundurVíðir Helgason fæddist í Reykjavík 1. apríl 1956. Hann lést á Landspítalan- um 9. maí 2020. Foreldrar hans voru Helgi Hrafn Helgason bók- bandsmeistari, f. 16. desember 1928, d. 9. mars 1976, og Inga Rúna Sæmunds- dóttir, húsmóðir og gjaldkeri, f. 19. september 1931. Bræður Guð- mundar Víðis eru Þröstur, f. 17. ágúst 1961, og Sæmundur, f. 2. mars 1964. Hinn 31. desember 1981 kvænt- ist Guðmundur Víðir eftirlifandi eiginkonu sinni, Eddu Guðmunds- dóttur, vefnaðar- og textílkenn- ara við Hússtjórnarskólann í Reykjavík, f. 18. september 1958. Börn þeirra eru: 1) Helgi Hrafn, sagnfræðingur, f. 16. ágúst 1984, maki Livia Stevaux, f. 2. apríl efnastjórum verkefnisins Botndýr á Íslandsmiðum (BIOICE) 1992- 2013 og var forstöðumaður Rann- sóknarstöðvarinnar í Sandgerði frá 1992 til lokunar hennar 2013. Guðmundur Víðir rannsakaði flokkun burstaorma og stöðu þeirra í botndýrasamfélögum við Ísland. Árið 2014 stofnaði Guðmundur Víðir ásamt öðrum Rorum ehf., fyrirtæki á sviði rannsókna og ráðgjafar í umhverfismálum. Hjá Rorum starfaði hann sem sérfræð- ingur við ýmis rannsóknarverk- efni og gegndi stöðu formanns stjórnar. Guðmundur Víðir sat jafnframt um árabil í stjórn Fé- lags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og Sunddeildar KR. Eftir hann liggja fjölmargar vísinda- greinar í innlendum og erlendum tímaritum. Nýjasta greinin birtist í breska tímaritinu Journal of Nat- ural History í þessum mánuði. Ár- ið 2012 nefndu spænskir vísinda- menn nýuppgötvaða burstaormategund eftir Guð- mundi Víði, Sphaerodoropsis gud- munduri. Útför Guðmundar Víðis fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 27. maí 2020, og hefst athöfnin klukk- an 13. 1984. 2) Kjartan, líf- fræðingur, f. 20. ágúst 1988, maki Kristín Rut Þórð- ardóttir, f. 23. nóv- ember 1990. Dætur þeirra eru Una Katrín, f. 20. febrúar 2016, og Freyja, f. 16. maí 2019. 3) Hrafnkell, myndlist- armaður, f. 23. mars 1991, maki Zofia Skoroszewska, f. 17. júní 1993. Guðmundur Víðir ólst upp í Reykjavík og lauk stúdentsprófi frá MT 1976. Hann lauk B.Sc. prófi í líffræði frá Háskóla Ís- lands árið 1979, B.Sc. fjórða árs námi frá sama skóla 1982 og M.Sc. námi frá Háskólanum í Gautaborg 1985 með áherslu á flokkun liðorma. Guðmundur Víðir vann á Líffræðistofnun Há- skólans frá 1985-2014 við rann- sóknir í fjörum og á sjávarbotni. Hann var einn af verk- Elskulegur sonur minn, Guð- mundur Víðir, er látinn langt fyrir aldur fram. Það er sárt að sjá eftir svo góðum manni í blóma lífsins, okkur finnst að hann ætti svo margt eftir til að hlakka til og lifa fyrir. Afastelpurnar nýkomnar heim frá Svíþjóð og hann og Edda svo glöð að fá þær og ætluðu svo sann- arlega að njóta þeirra næstu árin. Guðmundur var frekar dulur maður og var oft erfitt að fá að vita hvað hann var að bralla. Hann var aldrei mikið fyrir að stæra sig af verkum sínum. Hann var svo lánsamur að eignast frábæran lífsförunaut, hana Eddu sína. Þau voru svo samrýnd að þau voru oft- ast nefnd samtímis, Edda og Gummi, og er mjög erfitt að segja bara Edda. Gummi var skemmti- legur strákur, uppátektarsamur og fallegur með mjallahvítt hár og blá augu. Honum tókst einu sinni fimm ára að mála hálfa blokkina þar sem við bjuggum með olíu- málningu sem hann gróf upp úr geymslunni. Enda var afi hans málarameistari. Minningar eru margar og góð- ar og ég er stolt að hafa verið móð- ir hans. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Mamma. Á milli húsa okkar Gumma voru aðeins nokkrir garðar. Það má sennilega enn greina far í gangstétt og á girðingum í Mið- túninu á milli heimilanna tveggja í 18 og 24, svo tíðar voru ferðirnar. Ég upplifði mig tilheyra þeim báð- um jafn mikið. Í mínum huga taldi bræðrahópurinn sem samanstóð af Gumma, Þresti og Sæma fjóra, en ekki þrjá. Ég, frændinn og uppeldisbróðir þeirra þriggja, var fjórði bróðirinn og Rúna systir var aukamúttan mín. Svona var ég nú lánsamur. Gummi, sá elsti og hávaxnasti af okkur „bræðrunum“ í Mið- túninu, ruddi braut okkar hinna þriggja. Hann var orðinn ungling- ur þegar við hinir vorum á fullu við að slíta barnsskónum og þegar þeir voru orðnir bæði allt of litlir og slitnir, þá var Gummi kominn í tölu fullorðinna, við þrír unglingar. Að sjálfsögðu litum við upp til hans, án þess að mikið bæri á og ef til vill ómeðvitað. Við lærðum af honum hvernig maður á að fara að þessu öllu saman. Herbergið hans var einkar áhugavert, okkur þótti það töff. Við laumuðumst inn til að skoða vínylinn hans, stóra segulbands- tækið og albúmin öll. Eftir á að hyggja var Gummi án efa sá sem hafði hvað mest áhrif á tónlistar- áhuga minn, akkúrat á þeim árum sem ég var hvað móttækilegastur. Við heyrðum tónlist hljóma frá herberginu hans og ég sperrti eyr- un eftir rokkinu og Megasi. Þegar við vorum báðir orðnir fullorðnir hef ég alla tíð kunnað að meta fáu en vinsamlegu orðin frá Gumma sem voru innihaldsrík og báru þess merki að hann var eld- klár. Enn er óþakkað fyrir ein- staka hugulsemi og vinsemd sem hann og Edda sýndu mér á ögur- stundu í mínu lífi. Það er sennilega of seint að þakka fyrir þá hlýju og þann stuðning sem þau gáfu mér, en þó kannski ekki, svo ég þakka þeim báðum núna. Takk fyrir stuðninginn sem var ómetanlegur og gleymist aldrei. Það er sárt að missa, ljúft að minnast. Sigurður Rúnar. Góður vinur og félagi, mágur og svili er fallinn frá, alltof fljótt. Dag- farsprúður maður sem flíkaði ekki öllum þeim mikla fróðleik sem hann bjó yfir. Við Björn eigum margar ljúfar minningar um ánægjulegar samverustundir og sérstaklega þær ótal gönguferðir sem við fórum í með honum og Eddu. Þar naut Gummi sín, þegar hann fræddi okkur um alls kyns gróður- og skordýrategundir sem við þekktum ekki nöfnin á og hefð- um gengið framhjá án þess að veita eftirtekt. Flest sumur fórum við í helg- arferð í paradísina okkar í Birki- hvammi í Borgarfirði. Í fyrstu voru drengirnir þeirra, Helgi Hrafn, Kjartan og Hrafnkell, með okkur í för en eftir því sem árin liðu og þeir orðnir unglingar var meira spennandi að vera í bænum með vinunum. Það er ekki ár síðan við fórum í okkar síðustu helgarferð og ekki grunaði okkur þá að þetta yrði okkar síðasta ferð öll saman. Við munum auðvitað halda áfram að njóta samveru og útiveru með Eddu okkar og getum saman rifjað upp og yljað okkur við minn- ingarnar um allar góðu samveru- stundir okkar með Gumma, heima og heiman. Nú fer sól hækkandi dag frá degi og sumarið á næsta leiti. Megi sólin umfaðma ykkur öll með birtu sinni og yl á þessum sorgartímum. Hugur okkar er hjá Rúnu mömmu sem nú horfir á eftir syni sínum, hjá Eddu og sonunum, tengdadætrum og litlu sólargeisl- unum Unu Katrínu og Freyju. Blessuð sé minning Guðmundar Víðis. Björn og Helga Lára. Við erum afar sorgmædd vegna fráfalls Guðmundar Víðis. Við geymum fagrar minningar í hjört- um okkar. Sonur hans talaði alltaf við okkur um foreldra sína með ástríðu, aðdáun og kærleika. Faðir hans væri líffræðingur sem hefði komið til Brasilíu til að taka þátt í ráðstefnu í héraði okkar, hér í Par- aná. Það var því mikilvæg stund þegar við kynntumst honum við brúðkaup Liviu og Helga Hrafns. Það voru yndislegir dagar, þegar fjölskyldurnar sameinuðust í veisluhöldum. Gleði okkar var mikil að hafa hann hjá okkur. Við munum geyma þær minningar í hjörtum okkar. Við erum mjög þakklát fyrir að hafa kynnst hon- um. Fyrir hönd fjölskyldunnar Souza-Stevaux, Maria Conceição Souza. Síminn hringdi og skjárinn sagði: „Sæmi frændi“. Það er alltaf bæði gaman og gott að heyra í Sæma frænda mínum, ekki síst þegar hann flissar yfir aulahúmor frænku sinnar. Í þetta skiptið fylgdi hringingunni önnur tilfinn- ing. Sæma lá lágt rómur, Gummi var farinn. Þessi hávaxni og vel gefni frændi minn var óheyrilega stríð- inn. Líka þegar litla frænka hans hafði troðið hausnum (í ákveðinni tilraun) og sat föst í handriði stig- ans fræga í Miðtúninu. Hann kall- aði litla gerpið sem hékk dagana langa á heimili hans Trínu, góðlát- legt grín að hætti Gumma. Náttúrufræðingurinn frændi minn er að öllum líkindum nú þeg- ar lagstur í viðamiklar rannsóknir í nýjum vistarverum – við treyst- um honum vel í það verkefni. Elsku þið öll sem Gumma elsk- uðu, hugurinn er hjá ykkur. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Ómar Ragnarsson/ Gísli á Uppsölum) Þangað til næst, Katrín Brynja (Trína). Í dag kveðjum við Guðmund Víði bróður minn eða Gumma eins og hann var kallaður innan fjöl- skyldunnar en hann lést 9. maí sl. eftir stutt en erfið veikindi. Ég hélt fram á síðustu stund að Gummi myndi hrista þessi veik- indi af sér, enda bar hann sig ávallt vel. Við vitum það þó nú, að sjúkdómurinn hlýtur að hafa verið farinn að taka sinn toll. Ein af mínum fyrstu minning- um um Gumma er frá æskuárun- um en þá var hann mín helsta fyr- irmynd og vörn gegn hrekkjusvínum í blokkinni sem við bjuggum í, ég sé hann enn fyr- ir mér þar sem hann hleypur á eft- ir Halla nágranna okkar sem var að stríða mér. Það gat þannig ver- ið gott að eiga stóran bróður sem hægt var að leita til. Gummi var fimm árum eldri en ég svo við lék- um okkur lítið saman sem krakk- ar en höfum örugglega rifist og slegist eins og bræðra er siður. Ég fann til öryggis að eiga stóran bróður og leit alltaf upp til hans. Gummi átti plötuspilara, spilaði rokktónlist, safnaði hári niður á herðar og fór sínar eigin leiðir. Þegar Gummi fékk bílpróf þá keypti hann sé blæju-Willys, sem mér þótti mjög töff. Mér brá mikið þegar ég eitt sinn kom inn í bíl- skúr og sá jeppann hans Gumma, illa farinn eftir veltu og ég vissi í raun ekki hvort Gummi var lífs eða liðinn. Gummi og allir sem í bílnum voru sluppu sem betur fer ómeiddir úr því ævintýri. Um tveimur árum síðar þegar pabbi okkar dó mæddi mikið á Gumma og enn og aftur var gott að eiga stóran bróður. Þegar Gummi kynntist Eddu, ástinni í lífi sínu, breyttust sam- skiptin og eftir nám hér á Íslandi fluttu þau Gummi og Edda saman til Svíþjóðar í framhaldsnám. Þeg- ar ég hélt síðan sjálfur til náms í Danmörku voru þau Gummi og Edda mikill stuðningur við mig og einskonar öryggisnet. Ég var tíð- ur gestur hjá þeim í Gautaborg á þessum tíma, enda freistandi að taka ferjuna yfir til Gautaborgar og dvelja í vellystingum hjá Eddu og Gumma. Gummi las mikið, var vel inni í öllum málum og gaman að ræða við hann, enda sátum við gjarnan fram eftir með viskíið úr ferjunni og ræddum málin. Á þessum tíma var aldursmunurinn á milli okkar minna atriði og við náðum að kynnast sem fullorðnir menn og er ég afar þakklátur fyrir þennan tíma. Ég minnist Gumma með hlýju og þakklæti. Þröstur Helgason. Guðmundur Víðir Helgason  Fleiri minningargreinar um Guðmund Víðir Helga- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Lilja HelgaGunnarsdóttir fæddist á Ísafirði 3. febrúar 1932. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Grund 9. maí 2020. Móðir Lilju var Guðlaug Kvaran, f. 1895. d. 1985, dóttir Jósefs Hjörleifsson- ar Kvaran prests á Breiðabólstað, Skógarströnd og Lilju Mettu Kristínar Ólafsdótt- ur. Faðir Lilju var Gunnar And- rew, f. 1891. d. 1970, for- stöðumaður sjúkrahússins á Ísafirði, sonur Jóhannesar Ólafs- sonar hreppstjóra og alþingis- manns og Helgu Samson- ardóttur. Lilja var yngst fimm systkina. Bræður hennar: Bolli, f. 1918. d. 1994, Jósef, f. 1919, d. 1989, Kári, f. 1921, d. 1995, og Kjartan, f. 1924, d. 2003. Árið 1951 giftist Lilja Ingi- mundi Magnússyni ljósmyndara, f. 14. janúar 1931, syni Helgu Kristjánsdóttur og Magnúsar Ingimundarsonar. Synir þeirra: 1) Magnús framhaldsskólakenn- ari, f. 1952, maki Brynhildur Ingvarsdóttir augnlæknir. Börn Magnúsar eru Ingi Fjalar, f. 1973, maki Sólveig Ólafsdóttir. Börn þeirra eru Þór Fjalar, Magnús Fjalar og Katrín Helga. Jóhanna Katrín, f. 1981, maki Finnur Vilhjálmsson. Börn þeirra eru Alda, Ægir og ónefnd dóttir. Lilja Ósk, f. 1986, og Gunnar Ingi, f. 1991, unnusta Eva Harð- ardóttir. 2) Gunnar fram- kvæmdastjóri, f. 1956, maki Hrund Sch. Thorsteinsson hjúkrunarfræðingur. Börn Gunnars eru Davíð, f. 1980, maki Nína Björk Arnbjörnsdóttir. Börn þeirra eru Soffía Hrund og Gunnar Óli. Börn Nínu eru Kjartan og Kolbrún Dís. Jakob, f. 1993, Soffía, f. 1995, unnusti Jón Dagur Þorsteinsson, og Magnús, f. 1999, unnusta Glódís Ylja Hilmarsdóttir. 3) Bolli Þór Bolla- son, fv. ráðuneytisstjóri f. 1947, maki Hrefna Sig- urðardóttir viðskipta- fræðingur. Börn Bolla eru Ólöf, f. 1964, maki Guð- mundur Pálsson. Börn þeirra Páll, maki Margrét Ósk Hildur Hallgríms- dóttir, sonur þeirra Guðmundur Alex. Anna Þórunn, maki Jósef K. Jósefsson, synir þeirra Daníel Logi og Arn- ór Breki. Guðmundur Ingi og Lárus, unnusta Aþena Eir Jóns- dóttir Elizondo, dóttir óskírð. Lilja Guðlaug, f. 1973, sonur hennar Jóhann Arnar Sig- urþórsson, unnusta Ástrós Eiðs- dóttir, dóttir hennar Katrína. Lárus, f. 1974, maki Lára Björg Björnsdóttir, þeirra dóttir Halla María. Þórunn, f. 1976, maki Sig- urgeir Guðlaugsson, synir þeirra Aron Fannar, Ísak Andri og Guð- laugur Breki. Stjúpdóttir Bolla er Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 1964, maki Mohsen Rezakahn Khajeh. Börn þeirra Bolli Þór, unnusta Heiðveig R. Madsen, Lárus og Anna Birna. Dóttir Jó- hönnu er Halla Guðrún Richter, hennar börn Jóhanna, Jakob og Anna Lilja. Dætur Hrefnu eru Karen Þóra Sigurkarlsdóttir, f. 1972, og Hanna Christel Sig- urkarlsdóttir, f. 1977. Lilja ólst upp á Ísafirði fyrstu æviárin. Hún fluttist með móður sinni til Reykjavíkur árið 1944. Fyrstu árin bjuggu þær í Hafn- arfirði en síðar í Reykjavík og héldu þar heimili alla tíð síðan. Lilja hóf ung störf í Reykjavíkur Apóteki og vann þar í hartnær tvo áratugi við afgreiðslustörf og síðan hjá Kjartani bróður sín- um í lyfjaheildversluninni Her- mes við skrifstofu- og sölustörf. Seinni hluta ævinnar vann hún í gestamóttöku Hótels Sögu og síðan lengst af í Búnaðarbanka Íslands. Útför Lilju fer fram frá Nes- kirkju í dag, 27. maí 2020, klukk- an 15. Þegar ég hugsa til baka til Lilju, fósturmóður minnar, sé ég hana fyrir mér sem mjög glaðlega og hressa manneskju, alltaf á ferðinni, sífellt á hreyf- ingu og alltaf svo skemmtileg. Hvert sem hún kom var hún hrókur alls fagnaðar. Fyrstu minningabrotin mín um Lilju eru til í endursögn annarra, aðallega föðurömmu minnar, Guðlaugar Kvaran. Ég var eins og hálfs árs gamall þegar foreldrar mínir skildu, árið 1948. Áður höfðum við búið hjá ömmu Ísafold og afa Einari á Vesturgötu 38 þar sem ég fæddist. Einar bróðir varð eftir hjá þeim en ég fór til ömmu Guðlaugar og Lilju í kjallara- íbúð á Bárugötu 7. Þar hófst sambúð okkar sem átti eftir að endast þar til ég hélt utan til náms erlendis liðlega tvítugur að aldri. Fyrstu minningar mínar frá þessum tíma voru þegar pabbi kom heilu og höldu af Vatna- jökli eftir flugslysið þegar Geysir rakst á Bárðarbungu í september 1950. Hann kom með risastóran schäferhund inn í eldhúsið á Bárugötunni sem var sá eini af átján hundum sem lifði af slysið. Ég var svo hræddur við þennan hund, sem var eins og kálfur að stærð, í minningunni alla vega, að ég skreið út um eldhúsgluggann út í garð. Síðan hafa hundar ekki náð hátt upp á vinsældalistann hjá mér! Frekari minningar eru ótal margar. Til að byrja með var Lilja kannski svolítið eins og stóra systir mín, fimmtán ára þegar ég kom inn á heimilið hjá þeim. Smám saman eftir því sem árin liðu þróaðist okkar samband meira yfir í að vera það á milli sonar og dóttur, sér- staklega eftir að hún kynntist Inga og eignaðist Magnús og Gunnar sem voru og eru mér auðvitað og hafa verið alla tíð sem bræður. Ég fór snemma að kalla ömmu Guðlaugu mömmu, senni- lega vegna þess að Lilja kallaði hana mömmu. Þegar fram í sótti fannst mér bara að ég ætti í þeim tvær mæður, önnur var þessi rólega og yfirvegaða mamma Guðlaug sem skapaði það trausta og góða andrúms- loft á heimilinu sem var gott að geta gengið að sem vísu og hins vegar Lilja sem fór með mig og síðan bræður mína út um allt, á Tjörnina, í útilegur, í berjamó, út um allar trissur, að ógleymd- um Inga, sem gerði allt þetta mögulegt, fyrst á lánsbíl frá pabba sínum og síðan á hinum ógleymanlegu Moskóvítsum. Lilja setti auðvitað svolítið regl- urnar á heimilinu en stundum var gott að geta aðeins hallað sér að mömmu Guðlaugu ef manni fannst reglurnar aðeins of stífar. Margt sem ég vildi geta sagt leyfir plássið ekki. Vil samt segja frá því hvernig Lilja og Ingi tóku þátt í uppeldi Ólafar, dóttur minnar, sem fæddist þegar ég var í menntaskóla. Þau voru boðin og búin að passa hana hvenær sem við Anna, móðir hennar, vorum í skólanum, í prófum o.fl. Ég lifði líka fyrir það þegar ég var við Lilja Helga Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.