Morgunblaðið - 27.05.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020
Fjarþjónusta
fyrir betri heyrn
ReSound Smart3D
Afgreiðslutími 9:00-16:30 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar
að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum
og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð.
Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda
heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D
og Quattro heyrnartækjanna.
Við svörum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Kauphöllin í New York-borg fékk aft-
ur að opna fyrir viðskipti með hluta-
bréf á „gólfinu“ í gær, en þau hafa ein-
göngu verið stunduð með rafrænum
hætti frá því um miðjan marsmánuð.
Er opnunin talin enn eitt merki þess
að kórónuveirufaraldurinn sé í rénun
bæði í Bandaríkjunum og í flestum
ríkjum Evrópu, en á sama tíma hafa
heilbrigðisyfirvöld miklar áhyggjur af
stöðunni í Suður-Ameríku.
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New
York-ríkis, hringdi kauphallarbjöll-
unni frægu sem markar upphaf við-
skipta dagsins. Fjárfestar virtust
taka vel í opnunina, en allar helstu
vísitölur vestanhafs tóku nokkurn
kipp upp á við þegar viðskipti hófust.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
fagnaði því á twittersíðu sinni, og
sagði það til marks um að fleiri ríki
Bandaríkjanna ættu að hefja að létta
á sóttvarnaraðgerðum sínum, svo að
hægt yrði að reisa efnahag landsins
við, en Trump hefur átt í ágreiningi
við ríkisstjóra í nokkrum ríkjum um
það hvenær tímabært sé að hvetja
fólk til þess að snúa aftur til vinnu og
hversdagslífs. Rúmlega 98.000 manns
hafa nú farist af völdum kórónuveir-
unnar í Bandaríkjunum, og rúmlega
1,6 milljónir manna hafa smitast af
henni þar, en hvort tveggja er hið
mesta í heimi þegar einungis er horft
til fjölda tilfella.
Óttast öran vöxt í Brasilíu
Svæðisskrifstofa Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar WHO fyrir Norður-
og Suður-Ameríku lýsti yfir áhyggj-
um sínum í gær af áframhaldandi
framgangi kórónuveirunnar í ríkjum
Suður-Ameríku, sérstaklega í Bras-
ilíu, Perú og Síle. Vakti sérstakar
áhyggjur að fjölgun tilfella í Brasilíu
undanfarna sjö daga var sú mesta í
heimi í nokkru ríki frá því að farald-
urinn hófst.
Harðvítugar deilur standa enn yfir
í Brasilíu um kórónuveiruna og afleið-
ingar sóttvarnaraðgerða á milli stuðn-
ingsmanna Jairs Bolsonaros, forseta
landsins, og þeirra sem vilja grípa
fastar í taumana til þess að takast á
við faraldurinn.
Tvær af helstu fréttastofum Bras-
ilíu tilkynntu í fyrrinótt að þær hygð-
ust hætta að sýna frá óformlegum
upplýsingafundum forsetans, þar sem
stuðningsmenn Bolsonaros áreittu
frétta- og blaðamenn þeirra, auk þess
sem hann sjálfur gripi gjarnan til fúk-
yrða og grófra merkja með höndun-
um þegar hann ávarpaði fjölmiðla-
menn. Hyggjast fjölmiðlarnir ekki
senda fólk aftur á fundina fyrr en ör-
yggi þeirra verður tryggt.
Heilbrigðisráðuneyti Brasilíu lýsti
því yfir sama dag að það stæði við ráð-
leggingar sínar til almennings í land-
inu um að taka inn malaríulyfið hy-
droxyklórókín til þess að vinna bug á
kórónuveirunni, þrátt fyrir að WHO
hefði ákveðið að hætta með lyfjapróf-
anir á því vegna ótta um að sumar
aukaverkanir þess gætu dregið fólk
til dauða. „Við ætlum að halda ró okk-
ar og það verður engin breyting,“
sagði í yfirlýsingu heilbrigðisráðu-
neytisins. Um 375.000 manns hafa nú
smitast af veirunni í Brasilíu og rúm-
lega 23.000 manns látist af völdum
hennar.
Vilja bjarga ferðasumrinu
Það er þó ekki bara í Bandaríkj-
unum heldur einnig í Evrópu sem
leiðtogar ríkja vilja reyna að létta á
sóttvarnaraðgerðum sínum, þar sem
allt stefnir í mikinn samdrátt vegna
faraldursins í sumar og haust.
Luigi di Maio, utanríkisráðherra
Ítalíu, lýsti því yfir í gær að hann væri
að reyna að afla samþykkis annarra
aðildarríkja Evrópusambandsins fyr-
ir því að öll innri landamæri þess yrðu
opnuð hinn 15. júní næstkomandi.
„Við ættum að bjarga því sem bjarg-
að verður af sumrinu til að hjálpa
frumkvöðlum okkar,“ sagði di Maio.
Ursula von der Leyen, forseti
framkvæmdastjórnar sambandsins,
mun kynna tillögur sínar um frekari
efnahagsaðgerðir í dag, og eiga þær
að nema um þúsund milljörðum evra í
stuðning við þau ríki sem orðið hafa
fyrir barðinu á kórónuveirunni. Aðild-
arríkin hafa deilt nokkuð undanfarna
mánuði um það hvort aðstoð við þau
ríki sem verst hafa orðið úti í faraldr-
inum eigi að vera í formi lána eða
styrkja.
Seðlabanki Evrópu varaði hins veg-
ar við því í gær að ríki evrusvæðisins
mættu ekki skuldsetja sig um of, þar
sem það gæti grafið undan stöðug-
leika evrunnar og jafnvel leitt til
vangaveltna um framtíð hennar.
Aftur opnað í Wall Street
AFP
Wall Street Fjárfestir gengur framhjá kauphöllinni frægu í New York sem aftur fékk að opna dyr sínar í gær.
Heimsfaraldurinn í örum vexti í Brasilíu, Perú og Síle, en í rénun í Bandaríkj-
unum og Evrópu Seðlabanki Evrópu varar við að ríki skuldsetji sig um of
Douglas Ross,
undirráðherra
Skotlandsmála,
sagði embætti
sínu lausu í gær
í mótmælaskyni
vegna máls
Dominics
Cummings,
helsta ráðgjafa
Boris Johnsons,
forsætisráðherra
Breta, en hann er sagður hafa
brotið gegn sóttvarnareglum
landsins í síðasta mánuði.
Mikil ólga ríkir enn vegna máls-
ins þrátt fyrir að Cummings hafi
reynt að útskýra sína hlið þess í
fyrradag, og hafa um 20 þing-
menn Íhaldsflokksins hvatt hann
til þess að segja af sér.
Segir af sér vegna
Cummings-málsins
Douglas
Ross
BRETLAND
Yfirstjórn
Bandaríkjahers í
Afríku sakaði í
gær rússnesk
stjórnvöld um að
hafa sent orr-
ustuþotur nýlega
til stuðnings
stríðsherranum
Khalifa Haftar.
Sagði í til-
kynningu hersins
að þoturnar hefðu fyrst flogið frá
Rússlandi til Sýrlands, þar sem þær
hefðu verið málaðar til að „fela
uppruna sinn“ áður en þær héldu til
Líbíu. Þá voru Rússar sakaðir um
að styðja við bakið á málaliðum sem
nú berðust fyrir hönd Haftars, sem
stefnt hefur að því að taka Trípólí,
höfuðborg landsins, í rúmlega ár,
en án árangurs.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa ávallt
neitað því að þau hafi haft afskipti
af núverandi átökum í landinu, sem
standa á milli Haftars og ríkis-
stjórnarinnar í Trípólí, sem Sam-
einuðu þjóðirnar hafa viðurkennt.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, brást ekki við ásök-
ununum, en sagði nauðsynlegt að
koma á vopnahléi í Líbíu sem fyrst.
Saka Rússa um að
hafa sent herþotur
LÍBÍA
Khalifa
Haftar
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
lýsti því yfir í gær að hápunkti kór-
ónuveirufaraldursins hefði verið
náð þar í landi. Fyrirskipaði hann
jafnframt að hátíðarhöld vegna sig-
urs bandamanna í síðari heims-
styrjöld færu fram 24. júní, en þann
dag verða 75 ár liðin frá sigur-
göngu rússneska hersins í Moskvu-
borg eftir sigurinn.
Hátíðahöldin áttu upphaflega að
fara fram 9. maí, 75 árum eftir að
Sovétmenn tóku við uppgjöf Þjóð-
verja, en kórónuveirufaraldurinn
varð til þess að fresta þurfti hátíða-
höldunum. Xi Jinping, forseti Kína,
og Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, voru á meðal þeirra
sem ætluðu að vera viðstaddir há-
tíðahöldin.
Ný tilfelli eru nú færri en 9.000 á
dag í Rússlandi og hefur tíðnin fall-
ið ört síðustu daga. Hins vegar til-
kynntu stjórnvöld í gær að 174
Rússar hefðu látist á undangengn-
um sólarhring, sem er hið mesta til
þessa. 3.807 hafa nú látist af völd-
um veirunnar í Rússlandi, en
dánartíðnin þykir lág í samanburði
við önnur ríki.
AFP
Á Rauða torginu Stríðslokahátíðir Rússa þykja oft tilkomumiklar, en þessir
hermenn gengu fylktu liði um Rauða torgið í Moskvu hinn 9. maí í fyrra.
Hápunkti veirunnar
náð hjá Rússum