Morgunblaðið - 27.05.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.05.2020, Qupperneq 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Opið mán.-fös. 10-18 | Við sérsmíðum gluggatjöld sem passa fullkomlega fyrir þig og þitt heimili Z-Brautir og gluggatjöld Allt fyrir gluggana á einum stað Íslensk framleiðsla 40 ára Helgi ólst upp á Ytra-Hólmi 2 í Hvalfjarðarsveit en býr í Akrakoti 2 í sömu sveit. Hann lauk námi við Lög- regluskóla ríkisins og er rannsóknar- lögreglumaður á Vesturlandi. Maki: Arna Kristín Sigurðardóttir, f. 1985, umsjónarkennari í Heiðar- skóla. Dætur: Thelma Rakel, f. 2001, Díana Ingileif, f. 2010, og Sara Margrét, f. 2013. Foreldrar: Anton Guðjón Ottesen, f. 1943, bóndi og Ingileif Daníels- dóttir, f. 1944, fyrrverandi kennari í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Þau eru búsett á Ytra-Hólmi 2. Helgi Pétur Ottesen Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gættu þess að gefa ekki loforð sem þú getur ekki staðið við. Þú ert eitthvað að velta fyrir þér að setjast í helgan stein. Athugaðu málin vel. 20. apríl - 20. maí  Naut Notaðu daginn til þess að gera lang- tímaáætlanir fyrir framtíðina. Þó að einhver mótmæli þér er ekki þar með sagt að við- komandi sé að hafna þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það verður ekki bæði sleppt og haldið svo þú þarft að gera það upp við þig hvað þú raunverulega vilt. Hlustaðu á þá sem eldri eru og hafa meiri lífsreynslu en þú. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að gæta þess að ofgera þér ekki. Þú ert of samviskusöm/samur í því sem þú gerir. Þú færð skrítna fyr- irspurn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Láttu allar áhyggjur lönd og leið um stund og lyftu þér upp og njóttu augna- bliksins. Er félagsskapurinn sem þú ert í góður? Kannski þarftu að endurmeta hann. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er hætt við að þú lendir í deilum við aðra í dag. Þér tekst að fá aðra til að sjá hlutina með þínum augum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vinir þínir og maki eru þér ofarlega í huga í dag. Allt fellur í ljúfa löð í ástarsam- bandinu. Þér eru allir vegir færir, nýttu þér það. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Að biðja um hjálp er ekki veik- leikamerki. Þér finnst mikilvægt að allir fái að segja sína skoðun. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Áætlanir þínar varðandi fast- eignaviðskipti ganga upp. Óveðursskýin hrannast upp hjá góðum vini, gerðu allt sem þú getur til að hjálpa. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ný tækifæri standa þér opin og það ríður á miklu að þú flýtir þér hægt og kannir alla málavexti til fulls. Kipptu í spott- ann fyrir vin ef þú getur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert ekki til stórræðanna fyrri part dags en munt bæta það upp seinni- partinn. Einhver er stuttur í spuna við þig, reyndu að fá svar við því hvers vegna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér hefur tekist að halda þér í góðu formi síðustu ár. Reyndu að halda því áfram. Bíllinn er eitthvað að stríða þér. K ristín Sigríður Þor- steinsdóttir fæddist 27. maí 1930 í Vest- mannaeyjum. Hún átti alla sína barn- æsku í Vestmannaeyjum og bjó fjöl- skylda hennar lengst af í Goðasteini á Kirkjubæjarbraut 11. Kristín stundaði nám við Barna- skóla Vestmannaeyja en bekkjar- bróðir hennar þar og síðar eig- inmaður í yfir hálfa öld var Sigfús J. Johnsen. Ung hóf Kristín störf á Símstöðinni í Vestmannaeyjum. Þá var til þess tekið að hún kunni öll símnúmer utanbókar og hefur hún verið talnaglögg fram á þennan dag. Þau Sigfús héldu til náms í Reykjavík þar sem Kristín lauk námi við Húsmæðraskóla Reykja- víkur árið 1950. Fljótlega eftir að ungu hjónin hófu búskap reistu þau sér glæsi- legt hús á Kirkjubæjarbraut 17 í Vestmannaeyjum. Afi Sigfúsar hvatti þau til að leggja kross í grunn byggingarinnar til verndar heimilinu og varð úr að krossinn var lagður í grunninn. Í gosinu árið 1973 þótti undravert hvernig hraun- ið úr Eldfelli virtist sneiða framhjá húsinu á Kirkjubæjarbraut 17 og varð það eins konar framvörður byggðarinnar gegn háum hraun- veggnum á tvo kanta. Árið 1968 fluttu Kristín og Sigfús til Reykjavíkur ásamt sex börnum sínum. Það voru mikil viðbrigði fyr- ir þau hjónin og stóran barnahóp að flytja til borgarinnar en elsti son- urinn var þá að hefja nám við menntaskóla en hin börnin voru á grunnskólaaldri. Fjölskyldan kom sér fyrir á Háaleitisbraut 111 og náði fljótt að festa rætur á höfuð- borgarsvæðinu. Kristín hóf störf hjá Landsbanka Íslands árið 1973 þar sem hún átti eftir að starfa næstu áratugi eða allt fram á elli- lífeyrisaldurinn. Í Vestmannaeyjagosinu árið 1973 neyddust foreldrar Kristínar, Þor- steinn og Ingigerður, og systir hennar og mágur, Inga Dóra og Guðmundur Helgi, ásamt dætrum þeirra, til að yfirgefa Eyjuna eins og aðrir Vestmannaeyingar. Hús þeirra, Goðasteinn, á Kirkjubæjar- braut 11, skemmdist mikið af eldi og vikri og svo fór að þau sneru ekki heim aftur til búsetu og settust öll að á höfuðborgarsvæðinu. Fjölskyldan hefur átt hug og hjarta Kristínar og eru börn, barna- börn og barnabarnabörn hennar og Sigfúsar orðin um 40 talsins. Kristín hefur ávallt haft áhuga á hönnun en hún hannaði meðal ann- ars fjölda kjóla á yngri árum og fatnað á börnin. Hin seinni ár hefur hún verið ötul í prjóni fyrir stór- fjölskylduna. Fjölskylda Eiginmaður Kristínar var Sigfús J. Johnsen, f. 25.11. 1930, d. 2.11. 2006, kennari og félagsmálastjóri í Garðabæ. Foreldrar hans voru hjónin Árni J. Johnsen, f. 13.10. 1892, d. 15.4. 1963, kaupmaður og Margrét Marta Jónsdóttir versl- unarkona, f. 5.3. 1895, d. 15.5. 1948. Börn Kristínar og Sigfúsar: Stúlka Sigfúsdóttir, f. 5.3. 1953, d. 5.3. 1953, dr. Þorsteinn Ingi, f. 4.6. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður – 90 ára Í Eyjum Fjölskyldan ásamt tveimur tengdadætrum við Kirkjubæjarbraut eftir gos. Frá vinstri: Sif, Þór, Margrét, Gylfi, Bryndís Guðmundsdóttir, Árni, Bergþóra Karen Ketilsdóttir, Þorsteinn Ingi, Sigfús og Kristín. Talnaglögg fram á þennan dag Á góðri stundu Kristín og börnin. Með yngstu barnabörnunum Kristín ásamt Kristínu Katrínu og Hildi Björk. 30 ára Heimir Óli er Hafnfirðingur en býr í Kópavogi. Hann er húsgagnasmiður frá Tækniskólanum í Hafnarfirði og er að klára iðnfræði við HR. Heimir Óli er verkstjóri og húsgagnasmiður hjá Gleipni verktök- um. Hann er handboltamaður hjá Haukum. Maki: Kristín Ósk Óskarsdóttir, f. 1990, MA í lögfræði. Börn: Martin Gauti, f. 2017, og Emilía Kara, f. 2019. Foreldrar: Heimir Heimisson, f. 1960, framkvæmdastjóri Gleipnis verktaka, og Elín Sigríður Óladóttir, f. 1959, samráðs- fulltrúi hjá Landsneti. Þau eru búsett á Klofahólum í Landsveit. Heimir Óli Heimisson Til hamingju með daginn Kópavogur Emilía Kara Heim- isdóttir fæddist 19. ágúst 2019. Hún vó 2.830 og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Heimir Óli Heimisson og Kristín Ósk Óskarsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.