Morgunblaðið - 27.05.2020, Page 23
Benedikt
Guðmundsson
Ungir menn
fá tækifæri
ÞJÁLFARAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Darri Freyr Atlason er tekinn við
karlaliði KR í körfuknattleik. At-
hygli hefur vakið að svo ungum
þjálfara sé treyst fyrir verkefninu í
Vesturbænum en Darri verður 26
ára 1. júní næstkomandi. Hann var
því ekki orðinn 25 ára þegar hann
gerði kvennalið Vals að Íslands-
meisturum í fyrsta skipti í sögu fé-
lagsins í fyrra.
Morgunblaðið skimaði yfir fæðing-
arár þjálfara í efstu deild karla í
íþróttinni og reyndi að átta sig á
hvaða dæmi væru um að ungir
menn hefðu stýrt liðum í deildinni.
Upp úr krafsinu kemur að nokkr-
ir voru yngri en Darri þegar þeir
tóku við liðum og sterkum liðum í
sumum tilfellum. Hér er látið liggja
á milli hluta þegar menn stýrðu lið-
um í fáum leikjum í millibilsástandi.
Friðrik er sá yngsti
Samkvæmt lista sem tekinn var
saman fyrir KKÍ yfir þjálfara í
deildinni er Njarðvíkingurinn kunni,
Friðrik Ingi Rúnarsson, sá yngsti
sem tekið hefur við liði í deildinni.
Friðrik var einungis 22 ára gamall
þegar hann var ráðinn þjálfari
Njarðvíkur árið 1990. Í ljósi vel-
gengni Njarðvíkinga á níunda ára-
tugnum mætti kannski segja að að-
stæður Friðriks hafi ekki verið
ósambærilegar þeim sem Darri er í
nú. En það er svo sem ekki aðal-
atriðið.
Ekki óx starfið Friðriki í augum
því Njarðvík vann 21 leik í deildinni
tímabilið 1990-1991 en tapaði fimm.
Liðið varð Íslandsmeistari um vorið
með hinn 22 ára gamla þjálfara eins
og frægt varð.
Fjórum árum áður hafði Njarðvík
ráðið einn af sínum dáðustu sonum,
Val Ingimundarson, til að vera spil-
andi þjálfari árið 1986. Valur var þá
aðeins 24 ára og jafnframt einn besti
leikmaður landsins. Liðið varð Ís-
landsmeistari og tapaði aðeins þrem-
ur leikjum í deildinni.
Ef við höldum okkur við Njarð-
víkinga þá varð Teitur Örlygsson
spilandi þjálfari 25 ára gamall tíma-
bilið 1992-1993. Liðið hafnaði í 6.
sæti en Teitur þjálfaði næst árið
2000. Einar Árni Jóhannsson var 27
ára þegar hann tók við Njarðvík-
urliðinu árið 2004 og hafnaði liðið í
3. sæti.
Einar og Benedikt 23 ára
Ef við förum lengra aftur í tímann
þá var Einar Bollason aðeins 23 ára
þegar hann var spilandi þjálfari hjá
KR veturinn 1966-1967 og gerði KR
að Íslandsmeisturum.
Benedikt Guðmundsson var einnig
23 ára þegar hann var ráðinn þjálf-
ari KR árið 1995. Á fyrsta tímabili
undir hans stjórn hafnaði liðið í 5.
sæti í deildinni.
Ingi Þór Steinþórsson var 27 ára
þegar hann tók við KR á 100 ára af-
mælisári félagsins 1999 og varð liðið
Íslandsmeistari á hans fyrsta ári við
stjórnvölinn. Í deildakeppninni vann
liðið 14 leiki en tapaði 8.
Finnur Freyr Stefánsson var á
þrítugasta aldursári þegar hann tók
við KR árið 2013 og náði sögulegum
árangri árin á eftir. Keith Vassell
var 27 ára þegar hann var spilandi
þjálfari hjá KR 1998-1999 og Páll
Kolbeinsson 26 ára árið 1990.
Darri er því nokkru yngri en
Finnur var í þessum sporum, jafn
gamall Páli, aðeins yngri en Ingi og
Vassell voru en nokkru eldri en Ein-
ar og Benedikt voru.
Ágúst meðal þeirra yngstu
Í hópi þeirra yngstu sem þjálfað
hafa í deildinni er Ágúst Björg-
vinsson sem var 23 ára þegar hann
tók við Val árið 2002. Hafnaði liðið í
11. sæti undir hans stjórn. Núver-
andi formaður deildarinnar, Svali
Björgvinsson, tók við Valsliðinu
aðeins 25 ára árið 1992 og hafnaði
liðið í 7. sæti árið 1993.
Aðrir kunnir Valsarar sem tóku
við ungir eru til dæmis Tómas Hol-
ton sem var 27 ára árið 1991 og
hafnaði liðið í 5. sæti árið 1992. Þá
var Torfi Magnússon 28 ára árið
1983 og urðu Valsmenn í 4. sæti árið
1984.
Afrek Pálmars
Pálmar Sigurðsson var ein besta
skytta landsins þegar Haukar gerðu
atlögu að Íslandsmeistaratitlinum á
níunda áratugnum. Pálmar varð
spilandi þjálfari árið 1987 aðeins 24
ára og Haukar urðu Íslandsmeist-
arar 1988. Liið vann tíu leiki en tap-
aði sex í deildinni. Það voru því
býsna ungir spilandi þjálfarar sem
fóru mikinn í úrslitarimmunni 1988:
Pálmar og Valur hjá Njarðvík.
Jón Arnar Ingvarsson fékk tæki-
færi sem þjálfari Hauka árið 1998
og var þá 26 ára gamall. Haukar
höfnuðu í 8. sæti árið 1999. Samherji
þeirra Pálmars og Jóns hjá Hauk-
um, Ívar Ásgrímsson, tók við liði
Snæfells í efstu deild árið 1992 og
var þá 27 ára. Liðið hafnaði í 5. sæti
árið 1993.
Margir fá tækifæri 26 ára
Ef við færum okkur til Grinda-
víkur þá var Guðmundur Braga-
son, leikjahæsti maður í sögu A-
landsliðsins, 26 ára þegar hann
tók við Grindavík árið 1993. Liðið
varð í 2. sæti á
Íslandsmótinu
og varð deildar-
meistari.
Í Stykkishólmi
urðu breytingar
árið 2008 þegar
Hlynur Bærings-
son og Sigurður
Þorvaldsson urðu
spilandi þjálfarar
hjá Snæfelli.
Hlynur var 26 ára árið 2008 en Sig-
urður er tveimur árum eldri. Snæ-
fell hafnaði í 3. sæti í deildinni árið
2009.
Á Akranesi tók Sigurður Elvar
Þórólfsson við ÍA árið 1994 og var
þá 26 ára. Hafnaði liðið í 11. sæti
árið 1995. Fimm árum síðar tók
Brynjar Karl Sigurðsson við liðinu
og var einnig 26 ára. ÍA hafnaði í
12. sæti árið 2000.
Aldurinn 26 ár kemur oft fyrir í
þessari samantekt og Birgir Mika-
elsson var 26 ára þegar hann var
ráðinn spilandi þjálfari Skallagríms
árið 1991. Hafnaði liðið í 8. sæti ár-
ið 1992.
Jón Kr. lét til sín taka
Gamla stórveldið ÍR réð Sturlu
Örlygsson sem spilandi þjálfara árið
1988 og var hann 27 ára. ÍR hafnaði
í 7. sæti árið 1989.
Hjá öðru stórveldi, Keflavík, tók
Jón Kr. Gíslason við á miðju tímabili
1988-1989 en hann er fæddur 1962.
Á hans fyrsta tímabili varð liðið Ís-
landsmeistari.
Annar Keflvíkingur, Jón Guð-
mundsson sem er einnig þekktur
dómari, var ráðinn þjálfari Þórs á
Akureyri árið 1995 og var þá 26 ára.
Þór hafnaði í 10. sæti árið 1996.
Baldur var 28 ára
Af mönnum sem nú þjálfa í
deildinni nefna að Baldur Þór
Ragnarsson, þjálfari Tindastóls,
var 28 ára þegar hann tók við Þór
í Þorlákshöfn sumarið 2018. Liðið
hafnaði í 6. sæti í deildinni en kom
mjög á óvart í úrslitakeppnini
2019 og fór í undanúrslit.
Eins og sjá má á þessari sam-
antekt er hreint ekki óalgengt að
menn fái tækifæri til að þjálfa í
efstu deild karla í körfunni þegar
þeir eru 26 ára. Einhverra hluta
vegna. Einnig má sjá að nokkur
dæmi eru um að menn hafi fengið
tækifæri enn yngri en Friðrik Ingi
Rúnarsson virðist vera sá yngsti.
Hér er rétt að taka fram að
upptalningin er ef til vill ekki
tæmandi en miðað við það sem
Morgunblaðið fann er þarna að
finna þá allra yngstu sem hafa
þjálfað í efstu deild.
Darri tekur við KR 26 ára gamall
Mörg dæmi eru um slíkt í efstu deild
Morgunblaðið/Frikki
Meistari Friðrik Ingi rífur Íslandsbikarinn á loft vorið 1991, þá ekki orðinn 23 ára.
Ágúst
Björgvinsson
Valur
Ingimundarson
Pálmar
Sigurðsson
Einar
Bollason
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020
Ole Gunnar Solskjær, knatt-
spyrnustjóri Manchester United, vonast
til að framherjinn Odion Ighalo klári
tímabilið í ensku úrvalsdeildinni með lið-
inu en hann er á lánssamningi frá
Shenghai Shenhua frá Kína. Nígeríumað-
urinn á að snúa aftur til Kína á sunnu-
daginn, enda ætti tímabilinu á Englandi
að vera lokið, en enn eru níu umferðir
eftir vegna kórónuveirufaraldursins. Kín-
verska félagið er sagt vilja fá framherj-
ann til baka nema United sé tilbúið að
kaupa hann á 20 milljónir punda. „Von-
andi getur hann verið áfram, klárað það
sem hann byrjaði á og unnið bikar með
okkur. Sem stendur hefur þó ekkert ver-
ið ákveðið og kínverska deildin fer bráð-
um að byrja,“ sagði Solskjær í samtali
við MUTV, sjónvarpsstöð félagsins.
Körfuknattleiksþjálfarinn Friðrik Ingi
Rúnarsson hefur verið ráðinn aðstoð-
arþjálfari Njarðvíkur. Þetta kom fram í
fréttatilkynningu sem félagið sendi frá
sér í gærkvöldi. Friðrik Ingi er einn
reyndasti þjálfari landsins en hann mun
aðstoða Einar Árna Jóhannsson með lið-
ið, ásamt Halldóri Karlssyni. Friðrik gerði
Njarðvík tvívegis að Íslandsmeisturum,
1991 og 1998. Í millitíðinni varð Grinda-
vík Íslandsmeistari undir hans stjórn,
eða 1996. Hann starfaði á síðasta tíma-
bili hjá Þór Þorlákshöfn.
Knattspyrnuþjálfarinn Helena Ólafs-
dóttir hefur látið af störfum sem þjálfari
Fjölnis í 1. deild kvenna en þetta kom
fram á heimasíðu félagsins. Helena, sem
tók við liðinu í byrjun nóvember á síð-
asta ári, óskaði sjálf eftir því að láta af
störfum vegna annarra verkefna en hún
hefur stýrt Pepsi-mörkum kvenna á
Stöð2Sport undanfarin ár.
Körfuknattleikskappinn Gabriel Ad-
ersteg er genginn til liðs við Vestra en
þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Adersteg, sem er frá Svíþjóð, kemur til
félagsins frá Snæfelli þar sem hann lék á
síðustu leiktíð en hann skoraði 22 stig
að meðaltali í 1. deildinni á síðustu leik-
tíð.
Áður en hann kom til Íslands lék hann
meðal annars í ítölsku C-deildinni.
„Gabriel er vinnusamur og fjölhæfur
leikmaður sem getur leyst margar stöð-
ur á vellinum og er mikill liðsspilari,“
segir á heimasíðu Vestra.
„Það er mikill fengur að þessum öfluga
leikmanni og körfuknattleiksdeild Vestra
býður Gabriel velkominn til leiks og
hlakkar til samstarfsins,“ segir enn
fremur á heimasíðu félagsins.
Knattspyrnukonan Málfríður Erna
Sigurðardóttir hefur framlengt samning
sinn við Íslandsmeistara Vals en þetta
staðfesti félagið á facebooksíðu sinni í
gær. Málfríður, sem er 36 ára gömul, er
uppalin á Hlíðarenda og lék sinn fyrsta
meistaraflokksleik með liðinu fyrir tutt-
ugu árum. Hún lék með Val frá 2000 til
ársins 2015 þegar hún gekk til liðs við
Breiðablik. Hún lék
með Breiðabliki í tvö
tímabil áður en hún
gekk aftur til liðs við
Valskonur. Hún á að
baki 237 leiki í efstu
deild þar sem hún hef-
ur skorað 29 mörk og
þá á hún að baki 33 A-
landsleiki þar sem hún
hefur skorað tvö
mörk. Málfríður lék
aðeins þrjá deildarleiki
undir lok síðustu leik-
tíðar eftir að hafa tekið
sér frí frá fótboltanum
en hún hefur sjö sinnum
orðið Íslandsmeistari og
sjö sinnum bikarmeistari.
Eitt
ogannað
Markvörðurinn Bryndís Lára
Hrafnkelsdóttir mun á næstu dög-
um ganga til liðs við Íslandsmeist-
ara Vals í knattspyrnu samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Bryn-
dís Lára mætti á sínu fyrstu æfingu
með liðinu á mánudaginn en hún á
að baki 138 leiki í efstu deild fyrir
Breiðablik, ÍBV og Þór/KA. Hún
varð Íslandsmeistari með Þór/KA
sumarið 2017 og þá á hún að baki
einn A-landsleik. Hún er að jafna
sig á bakmeiðslum en Bryndís á að
berjast við Söndru Sigurðardóttur
um markvarðarstöðuna.
Valskonur að
styrkja sig
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Meidd Bryndís Lára Hrafnkels-
dóttir er að ná sér af meiðslum.
Knattspyrnumaðurinn Pétur Við-
arsson hefur ákveðið að taka skóna
af hillunni og spila með uppeldis-
félagi sínu FH í úrvalsdeildinni,
Pepsi Max-deildinni, í sumar en
þetta kom fram á facebooksíðu
Hafnarfjarðarliðsins. Pétur, sem á
að baki 176 leiki fyrir félagið í efstu
deild þar sem hann hefur skorað
fimm mörk, ákvað að leggja skóna
á hilluna eftir síðasta tímabil. Pétur
er uppalinn í Hafnarfirðinum en
hann hefur fimm sinnum orðið Ís-
landsmeistari með liðinu og einu
sinni bikarmeistari.
Hættur við að
hætta við
Morgunblaðið/Valli
Endurkoma Pétur Viðarsson hefur
ákveðið að taka skóna af hillunni.