Morgunblaðið - 27.05.2020, Page 25

Morgunblaðið - 27.05.2020, Page 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI GÓÐ GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU TALI. AFMÆLISVEISLA Í ÁLFABAK Tvær frábærar eftir sögu Stephen King EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI. JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA. Djasstrommuleikarinn Jimmy Cobb, sem var síðastur á lífi af hljóðfæraleikurunum sem komu fram á hinni dáðu plötu Miles Davis, Kind of Blue frá árinu 1959 – söluhæstu djassplötu sögunnar, er látinn 91 ára að aldri. Dánarmeinið var lungnakrabbi. Cobb var í mörg ár lykilmaður í hjómsveit Davis og lék á fleirum af frægustu plötum hans, þar á meðal Porgy and Bess (1959), Sketches of Spain (1960), Someday My Prince Will Come (1961) og til að mynda á tónleikaplötunum Miles Davis at Carnegie Hall og Live at the Black Hawk. Stíll Cobbs einkenndist að lauf- léttum en afar taktvissum slætti, og mjög persónulegu tifi á symbala, eins og aðdáendur fyrrnefndra platna þekkja. Í samtali við Billboard í fyrra sagði Cobb að Miles hefði gefið hljóðfæraleikurunum svolitlar upp- lýsingar um hugmyndir sínar og síðan hefðu þeir orðið að vinna út frá því. „Og hann treysti okkur öll- um því hann vissi að við vorum allir góðir tónlistarmenn. Hann þurfti ekki að segja neitt meira en bara hvað hann vildi að væri gert.“ Auk Cobb á trommur og Davis á trompet léku á Kind of Blue Julian „Cannonball“ Adderley á alt- saxófón, John Coltrane á tenór- saxófón, Bill Evans á píanó, nema í laginu „Freddie Freeloader“, en þar er Wynton Kelly við píanóið, og Paul Chambers á kontrabassa. Cobb fæddist í Washingtonborg árið 1929. Hann hóf ungur að flakka um Bandaríkin berjandi húðir með hljómsveit Earl Bostic og seinna með söngkonunni Dinah Washington og fyrrnefndum Wyn- ton Kelly og Cannonball Adderley. Hann lék til að mynda einnig með Billie Holiday, Pearl Bailey og Dizzy Gillespie áður en hann gekk í sveit Davis árið 1957. Í viðtali sagði Cobb að hann hefði þróað fínlegan áslátt sinn með því að starfa mikið með sumum bestu söngvurum aldarinnar, sem hefði hjálpað honum við að þróa leikinn. Cobb hélt áfram að ferðast um heiminn og leika, fram á síðustu ár. Dáður Trommarinn Jimmy Cobb við settið á djasshátíð á Spáni árið 2012. Trommarinn sem lék á Kind of Blue allur Bandaríski rithöfundurinn Joyce Carol Oates hlaut hin alþjóðlegu frönsku Cino del Duca- bókmenntaverðlaun. Verðlaunaféð er hið hæsta sem veitt er í Frakklandi, rúmlega þrjá- tíu milljónir króna, en verðlaunin eru veitt fyrir ævistarf höfunda. Oates, sem er 81 árs, hefur sent frá sér um sextíu bækur, skáldsög- ur, sagnasöfn, endurminningar og leikrit. Tekið er til þess að margir höfundanna sem hlotið hafa þessi verðlaun hreppa síðar Nóbelsverðlaun, þar á meðal Andrei Sakha- rov, Mario Vargas Llosa og Patrick Modiano. Joyce Carol Oates Oates hreppti Cino del Duca-verðlaunin Sýningarsalir og lítil söfn í Frakk- landi hafa fengið leyfi til að opna að nýju fyrir gestum, þó með ströngum skilyrðum um fjarlægðarmörk, miða þarf að kaupa fyrir fram á netinu og ber gestum að vera með grímur. Til að mynda var Jacquemart-Andre- safnið, sem er í glæsihöll í París, opnað að nýju í vikunni. Hin stærri opinberu söfn, eins og Louvre og Musée d’Orsay, verða þó ekki opnuð gestum fyrr en um miðjan júní. AFP Undirbúningur Forvörður hreinsaði styttu við innganginn í Jacquemart-Andre-safnið í París áður en það var aftur opnað. Það er eitt fyrstu safnanna í borginni sem hefja starfsemi að nýju eftir að þeim var lokað vegna COVID-19. Minni frönsk söfn opnuð Aðgengilegt Grímuklæddur maður virðir fyrir sér verk eftir breska mál- arann Joseph Mallord William Turner á sérsýningu helgaðri verkum hans sem hefur nú verið opnuð að nýju í Jacquemart-Andre-safninu í París. Staðalbúnaður Spritt og sótt- hreinsiþurrkur taka á móti gestum, sem þurfa að kaupa miða fyrir fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.