Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.5. 2020
Það hefur verið merkilegt að fylgjast meðþví hvernig þjóðin hefur brugðist viðþeim faraldri sem nú gengur yfir. Ólík-
legasta fólk tekur því nánast þegjandi að dúsa í
sóttkví, bíða í röð fyrir utan búð eftir að tuttug-
asti viðskiptavinurinn skili sér út og halda í
heiðri flestar þær reglur sem þríeykið öfluga
hefur kynnt fyrir okkur.
Mér datt því í hug hvort við gætum ekki not-
að tækifærið og bætt við nokkrum reglum sem
myndu gera lífið einfaldara. Svona í leiðinni.
Til dæmis þessar:
1. Ef maður er að segja sögu og meirihluti
þeirra sem eru að hlusta hefur heyrt hana áður
á hann rétt á að kæfa hana í fæðingu. Ef fólk
segist hafa heyrt sögu þá er hún ekki nógu góð
til að heyra hana tvisvar.
2. Ef fólk kann ekki á lyftur og hefur ekki
áttað sig á þeirri einföldu reglu að maður á að
ýta á takkann sem bendir í áttina sem maður
er að fara en ekki á báða takkana eða bara eitt-
hvað eftir því hvernig manni líður, þá verður
fólk að fara inn í lyftuna og fara alla leið upp
áður en það kemst niður. (Eða öfugt.)
3. Ef upp kemst að fólk kann ekki að nota e-
regluna fer það sjálfkrafa í bann frá sam-
skiptamiðlum í viku. (Fyrir þá sem ekki vita er
ekkert til sem heitir e-h. Það er e og svo síðasti
stafur orðsins sem maður ætlar að segja. E-r
þýðir einhver, e-ð þýðir eitthvað og svo fram-
vegis.) Ehv er ekki til og ekki e-h heldur.
4. Ef þú ert með salat eða nautakjöt eða
bara hvað sem er í tönnunum þá á sá fyrsti sem
þú talar við að láta þig vita. Það er ekkert gam-
an að eyða heilu kvöldi í að líta út fyrir að hafa
misst framtönn.
5. Ef þú kannt ekki að bakka í stæði, finndu
þá góðan stað til að æfa það. Sá staður er til
dæmis ekki þrengsta stæðið í einstefnugötu.
6. Þegar starfsmaður kemur á nýjan kassa í
stórmarkaði þá þýðir það ekki að aftasti maður
í næstu röð verði allt í einu fyrstur. Þetta er
ekki eitthvert biblíudæmi.
7. Ef þú þarft að gera eitthvað stórt á sal-
erninu, ekki bíða með það þangað til þú ert
kominn um borð í flugvél.
8. Ef þú ert ósammála einhverjum þá eru
ekki meiri líkur á því að þið verðið sammála ef
þú hækkar röddina.
9. Ef aðrir muna betur eftir því sem þú gerð-
ir í gærkvöldi en þú sjálfur, þá er þetta senni-
lega vandamál og rétt að gera eitthvað í því.
10. Fullvaxið
fólk var ekki
hannað til að
ferðast með flug-
vélum og á rétt á
að halla sætinu.
Það á hins vegar að ná augnsambandi við þann
sem situr fyrir aftan áður en það lætur vaða.
11. Ef maður klárar pappír á almenningssal-
erni þá á maður að láta einhvern vita. Sama
þótt það geti verið vandræðalegt.
12. Notum stefnuljós og hættum að vera í
símanum í gatnamótum.
13. Hættum að trúa öllu sem við lesum á
netinu. Það getur ekki allt verið satt.
Þetta eru þannig séð ekki flóknar reglur, en
ég myndi verða ykkur eilíflega þakklátur fyrir
að fara eftir þeim. Það myndi gera tilveruna
svo miklu þægilegri. Svona fyrst við erum á
annað borð farin að sætta okkur við að einhver
sé að segja okkur fyrir verkum.
’Ef þú þarft að gera eitthvaðstórt á salerninu, ekki bíðameð það þangað til þú ert kom-inn um borð í flugvél.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Við þurfum fleiri reglur
(um sumt)
Þetta er skrifað 1. maí. Það ernöturlegt að einmitt um þessimánaðamót skuli þúsundir
missa vinnuna og enn fleiri vera í
óvissu um atvinnuöryggi sitt. Sam-
hliða því að kveða niður heilbrigðis-
ógnina af Covid-19 er ekkert mikil-
vægara fyrir okkur stjórnmálamenn
en að huga að velferð þeirra sem
verða fyrir barðinu á þessum atburð-
um og skapa atvinnulífinu skilyrði til
að blómstra á ný.
Öllu verkafólki óska ég til ham-
ingju með daginn. Fólk kann að
greina á um leiðir í kjarabaráttu og
líklega ber meira á því núna en oft
áður, án þess að ég ætli út í þá sálma
hér. Markmiðið um góð lífskjör og
sem jöfnust tækifæri fyrir alla er
okkur þó sameiginlegt.
Góð viðbrögð
við aðgerðum
Þetta er fimmta
greinin mín í röð um
Covid-faraldurinn,
afleiðingar hans og
viðbrögð okkar. Ég
játa að ég bjóst ekki
við því í upphafi að
þær yrðu svo
margar. Staðan hefur breyst hratt og
ekki alltaf til hins betra þó að nú sé
heldur farið að rofa til í einhverjum
skilningi þrátt fyrir mikla erfiðleika
víða.
Nýjasta útspili stjórnvalda um
greiðsluskjól, aðstoð við launa-
greiðslur á uppsagnarfresti og fleira,
var vel tekið af atvinnulífinu. Það er
auðvitað algjör þrautalending að að-
stoða fyrirtæki við að segja upp fólki,
enda voru aðgerðir okkar í upphafi
með það höfuðmarkmið að verja störf
og koma í veg fyrir uppsagnir. Málin
þróuðust hins vegar á þann veg að
þetta var óhjákvæmileg niðurstaða,
eins dapurlegt og það er.
Vandasamt stökk
Í einni af myndunum um Bleika
pardusinn reynir rannsóknarlög-
reglumaðurinn seinheppni Clouseau
að stökkva yfir kastalasíki með
stöng, líkt og stangarstökkvari. Ekki
tekst betur til en svo að stöngin reyn-
ist of stutt, þannig að Clouseau fer
beina leið á eftir henni ofan í síkið og
endar á bólakafi.
Það mætti segja að við værum í
áþekkri stöðu; við erum að stökkva
yfir síki og vitum ekki hversu djúpt
það er. Við þurfum þess vegna að
stilla af lengdina á stönginni í miðju
stökki, jafnvel oft og mörgum sinn-
um, og vera tilbúin að bregðast hratt
við. Stöngin má hvorki vera of stutt
né of löng; hvorugt myndi skila til-
ætluðum árangri; við færum ann-
aðhvort á kaf eða gætum ekki hafið
okkur á loft. Ég tel að okkur sé að
takast þetta nokkuð vel.
Þegar ég sagði í viðtali efnislega
eitthvað á þá leið að við gætum þurft
að stilla þetta af tíu sinnum tók ég
sérstaklega fram að þar ætti ég ekki
endilega við númeraða „pakka“, þó
að spurningin hefði lotið að þeim.
Þetta samhengi skilaði sér ekki til
allra, sem er óheppilegt. Ég lagði líka
áherslu á að nú væri það atvinnulífs-
ins og fjármálakerfisins að taka
ákvarðanir með hliðsjón af útspili
stjórnvalda.
Á jákvæðum nótum
Þrátt fyrir erfiðleika og áskoranir
þurfum við líka að horfa á björtu hlið-
arnar. Baldur Kristjánsson ljós-
myndari er með stór-
góða myndaseríu á
Instagram (baldur-
kristjans) sem hann
kallar því skemmtilega
tvíræða nafni „Covid
Positive“ eða
„Covid-jákvæð“. Hann
biður fólk á förnum
vegi að nefna eitthvað
eitt jákvætt við ástandið í dag. Mér
finnst við hæfi í sumarbyrjun að fá að
vitna í nokkur svör hér.
„Þetta er nýtt upphaf og tækifæri
til þess að ná sátt við sjálf okkur og
umheiminn.“ „Sumarið er komið.“
„Það er eitthvað gott við að geta ekki
planað framtíðina.“ „Að vera einn
með vindinum á hjólinu.“ „Meira
heima.“ „Byrjaður að elda meira.“
„Meiri tími með fjölskyldunni.“
„Hvað öllum er umhugað um hvert
annað.“ „Verður geggjað að ferðast
innanlands í sumar.“ „Samvera með
börnunum.“ „Meiri ró.“ „Vera meira
úti í íslenskri náttúru.“ „Dýrka að
vera heima.“ „Þurfum að hugsa hlut-
ina upp á nýtt.“ „Fólk kemst ekki hjá
því að leita innávið.“ „Miklu meira
með nýfæddu barni en ella.“ „Maður
getur hægt á sér, náð andanum og
hugsað allar hugsanir til enda.“
„Sýnir okkur hvað við getum þegar
við stöndum saman.“ „Lærum von-
andi eitthvað á þessu, tölum meira
saman.“ „Aldrei verið þakklátari en
nú fyrir hverja stund sem ég hitti
góða vini eða fjölskyldu.“
Mitt svar eftir gott spjall við
Baldur var: „Nýjar lausnir.“
Gleðilegt sumar, kæru lesendur.
Landið rís
þrátt fyrir allt
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’Nýjasta útspilistjórnvalda umgreiðsluskjól, aðstoðvið launagreiðslur á
uppsagnarfresti og
fleira var vel tekið
af atvinnulífinu.
Morgunblaðið/Ófeigur
„Þrátt fyrir erfiðleika og áskor-
anir þurfum við líka að horfa á
björtu hliðarnar,“ skrifar Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is