Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Blaðsíða 13
3.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 þurfti að sigla á móti skipinu, stökkva á milli skipa og ná í manninn. Flugvélin beið svo til að ferja hann yfir til Las Palmas,“ segir Kristín og útskýrir að maðurinn hafi verið settur beint úr bátnum í sjúkrabíl sem átti að keyra á flug- völlinn. En í stað þess að beygja inn á flugvöll- inn beygði bílstjórinn í hina áttina, í átt að sjúkrahúsi. „Ég sagði honum að sjúkraflugið væri klárt, hann ætti að keyra á flugvöllinn. Hann myndi ekki lifa það af að fara á þennan spítala; hann þyrfti miklu meiri aðstoð. En þeir þóttust ekki skilja mig en enginn þarna skildi ensku eða spænsku. Þetta snerist hjá þeim um pening- inn; þeir vildu fá sjúklinginn inn á spítalann til að fá peninginn,“ útskýrir hún. „Þeir stoppuðu við spítalann og það mætti þarna mannfjöldi til að reyna að rífa sjúkling- inn út úr bílnum. Ég lagðist á börurnar. Ég var líkamlega að berjast gegn þeim og hugsaði ekkert út í það að þarna var ég kona í araba- ríki,“ segir hún. „Það komu alltaf fleiri og fleiri og þarna voru mikil öskur og læti á arabísku. Ég neitaði að láta þau fá þennan meðvitundarlausa mann. Að lokum náðu þeir í lækni sem talaði frönsku. Þá allt í einu braust fram franska, sem ég hafði ekki notað síðan í menntaskóla,“ segir Kristín, sem fékk að lokum sitt fram. „Ég hafði tekið frönsku í menntó þegar allir mínir vinir tóku þýsku, bara af því ég vildi gera eitthvað öðruvísi en aðrir. Og ég trúi því að þessi eina ákvörðun mín, að haka við frönsku í stað þýsku, hafi orðið til þess að bjarga mannslífi.“ Þótt útlitið hafi verið svart náði maðurinn sér. „Það var algjört kraftaverk að hann skyldi lifa af; það var enginn sem bjóst við því. En hann náði sér og fór meira að segja aftur til starfa síðar. Eina sem breyttist var að hann varð grænmetisæta og varð heldur léttari í skapi. Hann sendir alltaf jólakort og hefur gef- ið okkur koníak og fleiri fallegar gjafir frá sínu heimalandi, Úkraínu.“ Að kveðja spítalann Þegar Kristín kom heim réð hún sig í 70% starf á endurhæfingardeild Landspítalans og hugðist taka vaktir á slysadeild á móti. Hún fann sig vel á endurhæfingadeildinni og gat vel hugsað sér að vinna þar áfram. Það varð lítið úr vöktunum á slysadeild því Kristín fór að upplifa endurtekin flensulík einkenni. „Fyrst var þetta eins og flensa og svo út- haldsleysi, sem ég skildi ekki því ég var ekki byrjuð að taka vaktir og aðeins með eitt kall- tæki. Ég hélt kannski að ég væri að fá flensu af því ég væri nýkomin frá Spáni. Ég var þurr og rauð í augum og þurr í hálsinum og fór að fá hálsbólgur og útbrot og fleiri einkenni. Það varð alltaf erfiðara fyrir mig að hlaupa eða stunda ræktina sem ég skildi ekki því ég var í fantaformi. En ég mætti alltaf í vinnuna því ég er af þeirri kynslóð sem mætir bara í vinnuna sama hvað, sem er auðvitað rangt,“ segir hún. „Einn daginn var okkur sagt að taugasál- fræðingarnir væru svo veikir að við þyrftum að skipta um herbergi við þá; það væri svo mikil mygla,“ segir Kristín og segist þá í fyrsta skipti hafa farið að hugsa um hvort veikindi hennar gætu mögulega verið tengd þessum rakaskemmdum. „Eftir nokkra mánuði var mér ekkert að batna en ég var að enn að vinna. Það tekur mann langan tíma að átta sig á þessu. Ég tók eftir því að ég var betri heima um helgar en það dró af mér í vinnunni. Um vorið var ég orðin verulega veik, en hélt að þetta myndi lagast í sumarfríinu. En þegar ég kom aftur til starfa eftir sumarfríið varð ég enn verri, var hreinlega orðin talmóð og ég lagðist einfald- lega í rúmið með verstu flensu ævinnar. Svo kom í ljós að fleiri voru veikir,“ segir Kristín og það kom á daginn að húsnæði Landspít- alans var víða illa farið af rakaskemmdum. „Ég hélt að ég myndi bara lagast og hélt að ég yrði bara frá vinnu í eina viku meðan á við- gerðum stæði. Ég gerði mér enga grein fyrir þessu. Ég reyndi að fara niður á slysadeild og fékk strax einkenni og ég prófaði fleiri staði en fékk alls staðar einkenni. Þetta var hrikalegt ár. Það tók mig heilt ár að átta mig á því að ég gæti ekki farið aftur að starfa sem læknir á spítalanum,“ segir hún. „Það var mikil sorg að kveðja ástríðuna mína, læknisstarfið. Þetta var skellur.“ Fleiri sem veiktust Kristín á nú erfitt með að dvelja inni í gömlum húsum og er komin með óþol fyrir alls kyns efnum, eins og ilmvötnum og hreinsiefnum. „Kenningar með þessi veikindi eru að þetta kveiki á ónæmiskerfinu. Það verður ýkt svörun við hlutum sem maður þoldi ágætlega áður. Ónæmislæknirinn minn sagði að við í mínum hópi værum því miður ennþá miklu næmari á rakaskemmdir og örveruefnasúpuna sem af því hlýst en hægt væri að mæla nákvæmlega. Það er alltaf verið að skoða þetta betur og fleiri skýringar að koma fram. Af þeim þrjátíu sem voru saman í læknadeildinni hafa sex veikst vegna rakaskemmda í húsnæði í vinnu okkar. Þrír karlmenn og þrjár konur, allt yfirlæknar nema ég, sem var hætt. Þau þrjú sem veiktust fyrst voru lengur í húsnæðinu og veiktust mest, en hin sem veiktust síðar vissu af hinum og gátu farið út fyrr. Ég, ásamt félagi ofnæmis- og lungnalækna, hélt málþing um umhverfisveik- indi fyrir þremur árum á læknadögum. Við vor- um fjögur sem höfðu lent í þessu sem héldum erindi. Þarna greindum við frá eigin heilsufari og hversu erfitt það er að reka deildir þar sem húsnæðið veldur veikindum. Og það sem mér finnst algjörlega óviðunandi er að veikasta fólk- ið í landinu, og allt það góða starfsfólk sem því sinnir, sé í húsnæði sem er ekki í lagi með. Ég hef alltaf tjáð mig um það að byggja ætti nýjan spítala frá grunni á góðum stað frekar en að byggja við gömul og víða ónýt hús,“ segir hún. „Ég veit því miður um fólk af öllum stéttum sem hefur veikst,“ segir hún og nefnir að hún og konan í eldhúsinu hafi oft þjáðst saman. „Mér finnst þetta sorglegt ástand, en það var aldrei góðæri í heilbrigðisþjónustunni og það átti alltaf að vera að spara og svo kom hrunið og allt varð ennþá erfiðara. Peninga sem áttu að fara í viðhald þurfti að nota í rekstur.“ Lánsöm að vera hraust Síðan eru liðin um fimm ár og Kristín hefur ekki setið auðum höndum, þótt veikindin hafi tekið sinn toll og sett henni skorður. Kristín varð að sætta sig við að það væru margir staðir sem hún gæti alls ekki farið né unnið á sökum rakaskemmda húsnæðisins. Eftir að hún hætti á spítalanum fór hún í leiðsögunám í endur- menntunardeild Háskóla Íslands. „Námið var í eitt og hálft ár og ég kynntist frábæru fólki. Við ferðumst mikið saman og lendum í skemmtilegum ævintýrum en ég get illa unnið við þetta því ég á erfitt með að vera í rútum, og mörgum skálum og hótelum. Ég get þó verið í nýjum rútum og einstaka skálar hafa verið í lagi. Ég skil stundum ekkert hvað veldur en ég finn það bara um leið og ég geng inn. Ég fæ það sem við köllum högg,“ segir hún og lýsir því að strax verður pirringur í augum, hálsi og lungum, og svo fylgja flensueinkennin eftir það. „Þá er ég bara úti, og hefur kuldaþol mitt þjálfast mikið. Þar hefur sjósundið hjálpað mér mikið. Þegar ég var veikust gaf það mér mikið líka því þar gat ég hitt fólk utandyra. Fyrstu tvö, þrjú árin kom enginn hér inn á heimilið og það voru mjög fáir staðir sem ég gat farið á. Það var frekar erfitt fyrir mig af því ég er svo fé- lagslynd. Sjósundið hefur því verið mikil gjöf, bæði fyrir líkama og sál,“ segir hún. „Ég er svo mikil Pollýanna í mér að ég hef ekki lagst í reiði. Ég meira að segja neita að hugsa um mig sem veika, heldur segi ég bara eins og er, að ég þoli ekki sumt húsnæði. Þá forðast ég það bara og geri allt sem ég get til að halda mér hraustri. Ég var líka lánsöm að áður en ég veiktist var ég rosalega hraust og gat hlaupið upp hvaða fjall sem er. Fyrst var ég mjög svekkt og sorgmædd að hafa misst þessa hreysti mína. En það breyttist og seinna varð ég þakklát fyrir að hafa í raun verið svona hraust áður, því það hefur hjálpað mér að þola veikindin betur. Ég horfi á það sem ég hef og er þakklát fyrir að vera með svona góða fjölskyldu og vini, hreyfigetu og að geta stundað útivist.“ Seigla og streita Kristín er nú í hlutastarfi við heilsurannsókn hjá þjónustumiðstöð rannsóknarverkefna (ÞR) fyrir Íslenska erfðagreiningu en einnig kennir hún læknanemum. „Fólk kemur Í ÞR og er hjá okkur hálfan dag í alls konar heilsurannsóknum,“ segir hún en auk þess hefur Kristín síðastliðin ár beint kröftum sínum enn meira að heilsueflingu og forvörnum og flutt vinsæl erindi um seiglu og streitu. „Ég hef alltaf verið í fræðsluhlutverkinu og lengi haft áhuga á streitu og fundist hún heillandi. Streitan hjálpar okkur að þola áskor- anir, breytingar og hættur. En hún á ekkert að vera alltaf í gangi! Mér hefur þótt gagnlegt og gaman að því að fræða fólk um streitu og sér- staklega hvað sé hægt að gera til að efla streituþol og seiglu. Eftir að ég gat ekki verið á spítalanum hef ég haft miklu meiri tíma til að sinna þessu og hef verið beðin að tala um þetta víða. Ég hef unnið mikið meðal annars með Gyðu Dröfn Tryggvadóttur lýðheilsufræðingi, en hún hefur skipulagt heilsutengdar ráð- stefnur. Svo er hún líka búdda zen. Við höfum mæst; ég með mína vestrænu læknisfræði og hún með sína austrænu visku,“ segir Kristín. Við förum að slá botninn í samtalið en ekki er úr vegi að spyrja hvað sé á dagskrá á næst- unni hjá þessari orkumiklu konu, sem þó hefur þurft að hægja á sér. „Ég lifi að mestu í núinu en mig langar að vera virk og geta tekið þátt. Mig langar að halda áfram að læra og fylgjast áfram með fjöl- skyldu og vinum. Ég lifi einn dag í einu, en mér er samt alltaf að detta eitthvað nýtt í hug.“ „Ég er svo mikil Pollýanna í mér að ég hef ekki lagst í reiði. Ég meira að segja neita að hugsa um mig sem veika, heldur segi ég bara eins og er, að ég þoli ekki sumt húsnæði. Þá forðast ég það bara og geri allt sem ég get til að halda mér hraustri,“ segir Kristín Sigurðardóttir læknir. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.