Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,-
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
BOTANIC model 3185
L 162 cm Leður ct. 15 Verð 345.000,-
L 192 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
Lundahlaupið er nú haldið í þriðja sinn og verða keppendur
ræstir á laugardaginn eftir viku stundvíslega kl. 12.30. Hlaupnir
verða 20 km og keppendur ráða hvort þeir hlaupa alla leiðina
sjálfir eða mynda tveggja eða fjögurra manna hópa sem skipta
henni á milli sín. Hlaupið er meira og minna umhverfis Heimaey
með tilheyrandi útsýni yfir sæinn. Að mestu er hlaupið á stígum
úti í náttúrunni en þó stuttan spöl á malbikuðum vegum með lít-
illi umferð.
Hlaupið var fyrst haldið árið 2018 og þótti heppnast vel, sama
máli gegnir um hlaupið í fyrra. Guðni Páll Pálsson, sem vann
hlaupið 2018 á rétt um einni og hálfri klukkustund, lét þau um-
mæli falla að hlaupið hefði verið skemmtilega krefjandi í fjöl-
breyttu landslagi og að útsýnið væri stórbrotið.
Hægt er að skrá sig til leiks á hlaup.is og World-
marathons.com.
Frá Lundahlaupinu í
fyrra. Útsýnið er að
sönnu tilkomumikið.
Ljósmynd/Jóhannes Helgi Jensson
Engin ólund í Lundahlaupi
Hið árlega Lundahlaup fer fram í
Vestmanneyjum laugardaginn 9. maí nk.
Leiðin sem
hlaupin er í
Lundahlaupinu.
„Útnesjakarl“ nokkur ritaði
Morgunblaðinu bréf fyrir réttum
sextíu árum og fannst, eins og
fjölmörgu öðru fólki, að á sum-
ardag fyrsta ætti útvarpið að
flytja mest íslenskt efni, bæði í
orði og hljómum.
„Því að þessi dagur er fyrst og
fremst íslenzkur og alþýðlegur,
ef svo má að orði komast, sam-
eign alþjóðar, líkt og 17. júní og
því eigum við kröfurétt á því að
okkur hlustendum sé boðið upp
á eitthvað sem minni á hann og
gildi hans fyrir þjóðina, en út-
lend, torskilin tónverk séu spör-
uð þann dag.“
Annars þótti „útnesjakarli“ allt
of mikið í útvarpinu af þessu
þungskilda efni, bæði tónverkum
og leikritum, er misstu marks í
flutningi í útvarp og kæmi þar
margt til greina, m.a. hlustunar-
skilyrði, „þótt úrvals fólk flytji
þetta, en um þetta ætlar útnesja-
karl ekki að ræða margt að þessu
sinni“, stóð ennfremur í bréfinu.
Lauk bréfritari máli sínu á því
að fleiri alþýðlegar raddir þyrftu
að heyrast um þetta efni á opin-
berum vettvangi og gilti ekki að
stinga þessu undir stól.
GAMLA FRÉTTIN
Sameign
alþjóðar
Reykvíkingar koma saman og gleðjast sumarið 1960. Myndin er að vísu
ekki tekin á sumardaginn fyrsta, heldur á sjálfan þjóðhátíðardaginn.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Sigourney Weaver
kvikmyndaleikkona
Bryndís Schram
sjónvarpskona
Guðrún Sóley Gestsdóttir
sjónvarpskona